Morgunblaðið - 24.02.1999, Page 56
Drögum
í dag!
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Heimavörn
Sími: 533 5000
Andstreymi
á Granda-
garði
ÞAÐ urðu engir fagnaðarfundir
þegar önd og hrafn hittust á
förnum vegi á Grandagarði við
Reykjavíkurhöfn. Hrafninn réðst
að öndinni með miklum látum en
hún varðist af hörku. Þeir sem
sáu til giskuðu á að öndin hefði
verið eitthvað veik eða særð og
hrafninn hefði ætlað að notfæra
sér það. Hrafninn hafði hins veg-
ar ekki erindi sem erfiði og flaug
á endanum á brott. Það kann þó
-^fað vera að hann hafi snúið við og
gert aðra árás.
Seðlabankinn hækkar
vexti til lánastofnana
Hyggst
draga úr
útlána-
_ aukningu
BANKASTJÓRN Seðlabankans
hefur ákveðið að hækka vexti í við-
skiptum við lánastofnanir. Hækkar
ávöxtun í endurhverfum viðskiptum
um 0,4% á næsta uppboði, ávöxtun
daglána hækkar nú þegar um 0,4%
og vextir af innstæðum lánastofn-
ana í Seðlabankanum um 0,4%.
Bankinn hyggst leggja lausafjár-
kvöð á lánastofnanir.
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Seðlabankanum hafa þess-
ar aðgerðir þann tilgang að hamla
— *gegn miklum vexti innlendrar eftir-
spurnar, styrkja gjaldeyrisforða og
draga úr útlánaaukningu.
Birgir Isleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri segir að þessar aðgerðir
séu fyrst og fremst varúðarráðstöf-
un, en ekki sé verið að bregðast við
neinni stórhættu sem Seðlabankinn
sjái nú í augnablikinu.
■ Liður í/16
Morgunblaðið/Kristinn
Stefnt að flutningi framleiðsluþáttar AKO/Plastos
Skapar 50 ný
störf á Akureyri
DANÍEL Amason, framkvæmda-
stjóri AKO/Plastos, sem er með
starfsemi bæði í Garðabæ og á
Akureyri, sagði stefnt að því að
flytja framleiðsluþátt fyrirtækisins
til Akureyrar en við það myndi
starfsfólki norðan heiða fjölga um 50
og verða um 65 talsins. Daníel sagði
að ef áætlanir fyrirtækisins gengju
eftir yrði framleiðslan flutt til Akur-
eyrar á þessu ári en um er að ræða
prentdeild, pokadeild og filmufram-
leiðslu.
Upphaf ehf. sem er í eigu þeirra
Daníels Ainasonar, Eyþórs Jóseps-
sonar og Jóhanns Oddgeirssonar,
keypti rúmlega 75% eignarhlut í
Plastos umbúðum í Garðabæ undir
lok síðasta árs. Upphaf á og rekur
Akoplast en við samruna fyrirtækj-
anna undir nafni AKO/Plastos er það
hið annað stærsta hérlendis í fram-
leiðslu og sölu plastumbúða, með um
40% hlutdeild á plastmarkaðnum.
Velta sameinaðs fyrirtækis er áætl-
uð 650 milljónir króna á þessu ári og
starfsmenn eru 80 talsins.
í stærra húsnæði
á Akureyri
Daníel sagði stefnt að því að starf-
semin á Akureyri yrði undir sama
þaki og því ljóst að húsnæði íyrir-
tækisins við Tryggvabraut væri of
lítið. Hann sagði að starfsemin þyrfti
3.500-4.000 fermetra húsnæði. For-
svarsmenn fyrirtækisins hafa þreif-
að fyrir sér á húsnæðismarkaðnum á
Akureyri en ekkert er fast í hendi á
þessari stundu. Daníel sagði að
einnig kæmi tO greina að byggja
undir starfsemina á Akureyri.
Gert er ráð fyrir að söludeild
AKO/Plastos verði áfram að mest-
um hluta rekin fyrir sunnan og að
starfsmenn verði um 15. Fyrirtækið
á tæplega 5.000 fermetra húsnæði í
Garðabænum en Daníel sagði stefnt
að því að selja það og flytja starf-
semina í minna húsnæði í kjölfar
minnkandi umsvifa.
Vinnslustöðin hf.
Þúsund
tonn til
Svíþjóðar
VINNSLUSTÖÐIN hf. er nú
að framleiða fisk í neytenda-
pakkningar fyrir norska fyi'ir-
tækið Norway Seafoods. Um
er að ræða samning sem gildir
út fiskveiðiárið.
Mest munar um vinnslu og
pökkun á fiski í 400 gramma
neytendaumbúðir fyrir sænsk-
ar verzlanir. Um 1.000 tonn er
að ræða, mest þorsk en einnig
ufsa og ýsu.
Auk framleiðslunnar fyrir
sænska markaðinn framleiðir
Vinnslustöðin karfa í neytenda-
umbúðir á markað í Þýzka-
landi, bita til Bandaríkjanna og
gulllaxmarning, annan marn-
ing og loðnuhrogn fyrir norska
markaðinn.
■ Vinnslustöðin/Cl
Nígeríumaður í gæsluvarðhaldi vegna gruns um tékkafals og peningaþvætti
Náði út níu milljónum
króna á 12 dögum
23 ÁRA gamall Nígeríumaður var í
gær úrskurðaður í gæsluvarðhafd til
4. mars í Héraðsdómi Reykjavíkur
vegna gruns um að hann hefði inn-
leyst falsaða gjaldeyristékka fyrir
að jafnvirði 11,2 milljónir króna í Is-
landsbanka í Keflavík. Maðurinn var
handtekinn á mánudag í Leifsstöð,
um 10 mínútum áður en flugvél, sem
hann átti bókað far með, lagði af
stað til Kaupmannahafnar.
Maðurinn hafði lagt andvirði
gjaldeyristékkanna inn á gjaldeyris-
reikning fyrirtækis, sem hann rak í
félagi við íslenskan mann, og er svo
grunaður um peningaþvætti með því
að hafa fengið um 6,1 m.kr. af þessu
fé flutt yfir á eigin reikning í Lands-
bankanum í Keflavík. Mismuninn,
um 5,1 milljón króna, hafði hann
fengið afhenta í reiðufé.
Starfsmenn Landsbankans
gerðu viðvart
Málið komst upp þegar starfs-
menn Landsbankans í Keflavík
gerðu Iögreglu viðvart um að mað-
urinn hefði lagt inn andvirði 6,1
m.kr. í erlendum gjaldeyri og vildi
fá fjárhæðina greidda út. Helgi
Magnús Gunnarsson, fulltrúi í efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra,
segir að samkvæmt lögum um varn-
ir gegn peningaþvætti beri banka-
starfsmönnum að láta vita um
óvenjulegar innlagnir á reikninga.
Maðurinn hafði innleyst um 40 þús-
und sterlingspunda ávísun, 4,6 millj-
ónir króna, í Islandsbanka í Keflavík
hinn 10. febrúar og 56 þúsund sterl-
ingspunda ávísun á sama stað hinn
19. febrúar án þess að gert væri við-
vart um óvenjulegar innlagnir og án
þess að kannað væri hvort innistæða
væri fyrir ávísununum.
Helgi Magnús sagði að maðurinn
hefði einnig reynt að innleysa þriðju
ávísunina, fyrir um 100 þúsund dali,
hjá íslandsbanka í Lækjargötu.
Hann hefur starfað við fiskútflutn-
ing hér um tveggja ára skeið við fyr-
irtæki, sem hann á ásamt íslenskum
manni.
Jón Þórisson, framkvæmdastjóri
hjá Islandsbanka, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að í þessu máli
hefðu starfsreglur bankans verið
brotnar.
■ Innleysti án athugasenida/29