Morgunblaðið - 06.03.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. MARZ 1999 21
VIÐSKIPTI
__/
Aðalfundur Samtaka verslunarinnar og FIS
Alþjóðleg viðskiptafé-
lög fái ekki staðist EES
JON Asbjörnsson fráfarandi for-
maður Samtaka verslunarinnar - Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna, gerði
m.a. frumvarp til laga um alþjóðleg
viðskiptafélög sem fram kom á al-
þingi nýlega, að umtalsefni á aðal-
fundi samtakanna sem haldinn var í
gær.
Hann sagðist hræddur um að hug-
myndir um þau fái ekki staðist regl-
ur EES samningsins. „Ábyrgð
stjómvalda sem nú hvetja fjölda fyr-
irtækja til fjárfestingar í slíkum fé-
lögum er mikil. Þessi félög hafa að
sumu leyti á sér blæ sérhagsmuna
og sértækra aðgerða. Almenna regl-
an ætti að vera að tryggja öllum fyr-
irtækjum sömu skattalegu stöðu og
treysta frumkraft atvinnulífsins sem
er miklu víðar að finna en einvörð-
ungu á meðal þeirra fyrirtækja sem
þessum lögum er ætlað að ná til,“
sagði Jón Asbjörnsson.
Hann kom einnig inn á upptöku
evrunnar. Hann sagði að enginn vafi
léki á því að sameiginleg mynt Evr-
ópuþjóðanna myndi skila íslending-
um verulegri hagræðingu og stöðug-
leika, m.a. í minni viðskiptakostnaði
og minni gengisáhættu. „Upptaka
evrunnar hér á landi er hinsvegar
miklu meira mál og umhugsunarefni
fyrir fámenna þjóð og lítið hagkerfi,
sem þá þyrfti að taka sveiflur í hag-
kerfi iðnríkja mið-Evrópu fremur en
sveiflm’ í óstöðugri náttúru okkar ís-
lendinga. Einnig búum við við þá
sérstöðu Evrópulanda að hafa mik-
inn hluta viðskipta okkar við Amer-
íku og Asíu. En evran er spennandi
og jákvæð fyrir Evrópuviðskipti
okkar,“ sagði Jón.
Lífeyrisspamaður
spornar við ofþenslu
Um kjarasamninga félagsmanna
sagði hann að lög um viðbótarlífeyr-
issparnað, sem tóku gildi í upphafi
þessa árs, væru spor í rétta átt í að
stemma stigu við ofþenslu í hagkerf-
inu í kjölfar síðustu kjarasamninga.
„Allir möguleikar ættu að vera til
þess að tryggja áframhaldandi góð-
æri hér á landi m.a. vegna þeirrar
miklu gerjunai' sem greinilega er í
hagkerfinu og aukinnar afkastagetu
þjóðarbúsins. En það verður aðeins
gert með því að okkur takist að
halda aftur af verðlagshækkunum.
Abyrgð stjórnvalda er hér mikil svo
og okkar, aðila vinnumarkaðarins.“
Jón sagði einnig að menntamál
muni koma til umræðu í næstu
kjarasamningum og benti á að
menntamál og samkeppnishæfni
þjóða væri að verða eitt aðaláherslu-
mál þjóða. „Við í versluninni eigum
hér skyldum að gegna. Við verðum
að temja okkur þau vinnubrögð í
mennta- og þjálfunarmálum starfs-
fólks og stjórnenda verslunarfyrir-
tælqa sem best duga í þeirri sam-
keppni sem framaundan er við inn-
lenda og erlenda aðila," sagði Jón.
Á fundinum var ályktað um sam-
, Morgunblaðið/Kristinn
ÞORA Guðmundsdóttir forstjóri flugfélagsins Atlanta var gestur fund-
arins. Rakti hún sögu fyrirtækis síns, skýrði frá rekstrinum og fram-
tíðaráætlunum. Meðal annars sagði hún að velta félagsins 1998 hafi
verið 9,5 milljarðar króna og 700 manns vinni hjá fyrirtækinu á há-
annatimum. Afkomu félagsins sagði hún viðunandi.
keppni í flutningamálum og
greiðslumiðlun og stoðþjónustu við
verslunina.
I ályktuninni segir m.a. að nauð-
synlegt sé að fyrirtæki sem eru með
markaðsráðandi stöðu á þessum
sviðum, að um þau gildi sérreglur
sem komi í veg fyrir að þau misnoti
aðstöðu sína. I þessu samhengi var
bent á nýlegan úrskurð Samkeppnis-
ráðs þar sem fram kemur að eitt fyr-
irtæki er með u.þ.b. 70% markaðs-
hlutdeild á sjóflutningum til landsins
og algerlega markaðsráðandi. í
sama úrskurði komi fram að sama
fyrirtæki virðist hafa misnotað að-
stöðu sína til að gera upp á milli við-
skiptavina sinna.
Einnig sagði fundurinn að mikil-
vægt sé að greiðslumiðlunarfyrir-
tækjum sé búin löggjöf eða reglur
sem hindri það að þau nýti sér mark-
aðsráðandi stöðu sína og komi sér
hjá virkri verðsamkeppni.
S3 Bókasnin
S3.Eignir
S3 Fréttir
S3.Fundir
S3.Ga.fli
S3 Handbók
S3 Hópsijnri
S3.Markaflsstióri
S3.Namxkaii
S3.Samxkipti
S3.5larfsmann
S3.Stiórnandur
S3.Umsóknir
S3.Vsfur
S3.Vi#vara
S3.Víraliati
SS.Þakking
S3 Þiónuata
Markaðsstjóri Nóa-Siríus
,Bíðan við tókum í notkun S3 hópvinnulausnirnar frá Nýherja
hafa öll samskipti og samvinna starfsmanna gengið hraðar
auk þass sem mikill tími hefur sparast við skjölun bréfa, ámI
símbrefa og tölvupóstssamskipta við viðskiptavini
okkar. Kröfur neytenda og vaxandi samkeppni kalla á
aukin gæði og betri þjónustu og með S3 kerfinu hefur d
okkur tekist að efla fyrirtækið í harðnandi samkeppni. Það
er óhætt að segja að Nýherji hefur staðið framúrskarandi vel
að allri ráðgjöf og þjónustu í sambandi við S3 lausnina. Ég er
sannfærður um að S3 lausnin á erindi til allra fyrirtækja sem
vilja nýta sér upplýsingatækni til þess að ná lengra.'
^ S3 er xein hépvinnulausna fyrir íslensk iyrirlœki
K ag stofnanir. 53 lausnirnar eru byggfler á Lotus
: \ Notes og stóreuka iramleiini fyrirtœkie og gsra
] störfin léttari. ttll skjalavistun og skraning
I / samskipta vifl viflskiptavini verður leikur einn
wr/ mefl 53 og samstari og hépvinna í fyrirtmkinu
verflur mun skilvirkari. 53 eainar saman og
varflveitir þann iiórsjéð sem ielst f þekkingu og reynslu
starismanna fyrirtækisins. 53 lausnin miflar að betri árangri á sviflum
sölustjérnunar, starfsmannastiérnunar, markaflsstiérnunar og gœða-
stjérnunar. Meí 53 er einnig auflvelt afl byggja upp
og vilhalda hoimasíflum og vörulistum iyrir- Ml' 'W ^
takisius. 53 lausnin og hépvinnulausnir B 'fc, 1
Nýherja haia reynst vel hjá ijölda iyrirtakja.
Fáflu nánari upplýsingar hjá _ __
hugbúnaðardsild Nýharja strax f dag. |\| | H t lm
Skaftahlíð 24 • Sími 569 7700
http://www.nyherji.is
Nokkrir notendur 53: Almannavarnir ríkisins, Baadar ísland hí, Flugleiðir hf, Fræðslumiðstöð Heykjavíkur, Landsvirkjun, Lðggiltir
andurskDðendur hf, MarBl hf, Nói Síríus hf, Dz hf, SDlumiðstöð Hraöfrystthúsanna hf, P. SamúelssDn ehf, Vffiifell ehf, Össur hf.