Morgunblaðið - 18.04.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999 45
MINNiNGAR
Fimmtudaginn 25. mars skrifa
ég í dagbókina mína: Kæri Guð,
enn hefurðu ekki leyst hana ömmu
mína frá hlutverki sínu, þrátt fyrir
að það sé búið að leggja niður sýn-
ingar með henni.
En sá dagur kom að hún fór í
ferðina miklu, ferð til lands sem við
öll eigum eftir að heimsækja og því
miður komum við ekki til baka með
háan Visa-reikning né myndir af
merkum og fallegum byggingum
sem við stóðum hugfangin fyrir
framan og horfðum á.
Mér finnst vera stutt síðan ég
kynntist ömmu á nýjan leik, eftir
að ég varð fullorðin. Þá eru ömmur
aðeins meira en það sem lítið barn
gerir sér hugmynd um.
Eg kunni best við húmorinn
hennar, líka það að henni var alveg
sama hvernig ég klæddi mig, henni
fannst bara gaman að gömlu
kjóldruslunum mínum eða gömlu
peysunum hennar sem ég var kom-
in í. Eg var nú samt ekki neitt
mjög dömuleg íyrir frú Andersen
en þrátt fyrir það setti hún ekki
upp Andersen-svipinn, því hann
merkir að henni og öllum þeim sem
nota hann er misboðið. Eg er búin
að læra öll svipbrigðin - Andersen-
svipbrigðin hjá mömmu, en ég held
að þau hafi farið ömmu best.
Amma vildi ekki að við grétum
hana, við ættum frekar að skála í
sérrýi. Svona var hún amma, hún
var ekkert venjulegt gamalmenni.
Henni fannst hún nefnilega ekkert
gömul. Hún þvemeitaði að fara og
hitta annað gamalt fólk og föndra
eða spila með því. Hún vildi frekar
vera með okkur unga fólkinu. Ein-
hvers staðar er sagt að ömmur hafi
gamla og þreytta fætur en ungt
hjarta.
Þrátt fyrir bann ömmu um að við
mættum gráta hana, sendi ég
henni nokkur tár sem þakklætis-
vott fyrir allt ristaða brauðið með
Búra- ostinum og kalda kókið og
fyrir hennar orð mun ég skála í
sérrýi.
Eg vildi samt að amma væri enn
hjá okkur, með sígarettuna í munn-
vikinu, sérrý-staup á borðinu og
gerandi grín. Þannig mun ég minn-
ast hennar. En líf okkar er einung-
is hlutverk í stóru leikriti og eins
og í öllum leikritum detta sum
hlutverkin fyrr út en önnur.
Þóra Margrét.
FRETTIR
Fyrirlestur
um galdur
og ofbeldi
HELGI Þorláksson, prófessor í
sagnfræði, flytur fyrirlestur þriðju-
daginn 20. apríl í boði Sagnfræð-
ingafélags Islands sem hann nefn-
ir: Galdrar og félagssaga.
Fundurinn verður haldinn í
Þjóðarbókhlöðu á 2. hæð í hádeg-
inu kl. 12.05-13 og er hluti af fyrir-
lestrarröð Sagnfræðingafélagins
sem nefnd hefur verið: Hvað er fé-
lagssaga? Fyrirlestur Helga er sá
21. í röðinni og eru allir áhuga-
menn um sögu hvattir til að koma á
fundinn. Helgi flutti íyrirlestur um
efnið á vegum heimspekideildar
Háskóla Islands stuttu eftir að
hann tók við embætti prófessors
við sagnfræðiskor og mun í þessum
fyrirlestri gera grein fyrir fram-
haldsrannsóknum sínum með sér-
stakri áherslu á ofbeldi, það sem
var fólgið í líkamlegum árásum og
meiðingum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Athygli skal vakin á að fundar-
menn geta fengið sér matarbita í
veitingasölu Þjóðarbókhlöðunnar
og neytt hans meðan á fundinum
stendur.
Skjalamappa
fannst
SVÖRT skjalamappa með um 70
tölvudiskum fannst á Suðurlands-
bi-aut síðdegis á fóstudag. Mappan
er ómerkt. Eigandinn getur vitjað
hennar í síma 568-6606 hjá
Katrínu. Einnig er hægt að senda
fax í síma 568-6696.
Erindi um ár
í lífi refsins
PÁLL Hersteinsson flytur fyrir-
lestur þriðjudaginn 20. apríl sem
hann nefnir Ár í lífi refsins sem er
á vegum Líffræðifélags Islands.
I fyi'irlestrinum verður fjallað
um refarannsóknir. Byggt verður á
atferlisrannsóknum sem fram fóru
LUNDUR
FASTEIGNASALA
SIIMI 533 1616 FAX 533 1617
SUDURLANDSBRAUT 10, 2.IIÆD, F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, ÍOSREYKIAVIK
.JiVEINN^GUÐMUNDSSmmXaLÍGGj^FASTj^ELLERTRÓEMnígSON^SÖLLWIAÐ^
Tröllaborgir - nýbygging Vorum að fá í sölu vel hannað ca 170 fm
endaraðhús . Húsið selst í núverandi ástandi sem er full frágengið að utan
en búið að ganga frá hitalögn og fl. að innan.Til afhendingar strax. V. 10,9
m.
Smárarimi - einbýli Vorum að fá ca 150 fm einbýlishús ásamt 46 fm
bílskúrs. Húsið skilast fullbúið að utan án þakkants en fokhelt að innan.
Sævargarðar - Seltjarnarnesi Vorum að fá í sölu glæsilegt ca
230 fm einbýlishús á einni hæð. Góðum útsýnisskáli á þaki. Húsið er með
vönduðum innréttingum og gólfefnum. Heitur pottur og fallegur verð-
launagarður.
Álfhólsvegur - sérhæð Vorum að fá I sölu góða ca 120 fm hæð á
góðum stað. Þrjú svefnherbergi, rúmgott eldhús. Nýir ofnar og lagnir. Gler
að mestu endurnýjað. Vel ræktaður garður. V. 11,8 m.
Einarsnes Vorum að fá í einkasölu góða sérhæð. Tvö svefnherbergi,
rúmgóð stofa, parket á gólfum, mikið útsýni. V. 8,5 m.
Flétturimi ásamt góðu bílskýli Góð ca 105 fm (búð á 2. hæð
ásamt innbyggðu bílskýii. Þvottahús í íbúð. íbúðin er laus strax.
Furugrund - aukaherbergi vorum að fá í einkasölu góða ca 90 fm
4ra herbergja íbúð ásamt ca 23 fm aukaherbergi með aðgangi að wc.
Stutt í skóla og verslun. íbúðin er laus fljótlega. V. 8,9 m.
Laugarnesvegur Vorum að fá ca 110 fm íbúð á 3. hæð í góðri blokk.
fbúðin er laus fljótlega.
Holtsgata Vorum að fá í einkasölu góða 4ra herbergja íbúð. Tvöföld
stofa, tvö svefnherbergi. Mikil lofthæð. Falleg íbúð. Hús og sameign í
góðu ástandi-.
Miðbær Raykjavíkur - lúxusíbúð Vorum að fá í sölu ca 60 fm
2ja herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu húsi við Lækjargötu. íbúðin er öll hin
vandaðasta og sameign góð. Húsvörður. Lyfta, stórar vestursvalir.
Krummahólar 10 - lyfta Góð ca 72 fm 2ja herbergja íbúð á 5. hæð
í lyftuhúsi. Stórt hol, góð stofa og borðstofa. Eldhús með ágætum innrét-
tingum, þvottahús og búr inn af eldhúsi. Gott herbergi og fataherbergi
innaf. Stórar suðursvalir og gott útsýni.
Ljósheimar - lyftuhús Vorum að fá góða mikið endurnýjaða ca 55
fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð. Áhv. ca 2,5 millj.
á Ströndum og Hornstranda-
friðlandi. Verður m.a. greint frá
lífsháttum refsins eftir árstíðum og
reynt að skýra hvernig atferli og
líkamlegir eiginleikar gera honum
kleift að lifa við þær aðstæður sem
ríkja á Islandi og annars staðar á
norðurslóðum.
Fyrirlesturinn verður í Lög-
bergi, stofu 101 og hefst kl. 20. Að-
gangur er ókeypis og allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Rætt um leik-
skóla á fundi
í Garðabæ
FORELDRAFÉLÖG leikskólanna
í Garðabæ, í samvinnu við fræðslu-
og menningarsvið Gai'ðabæjar,
standa fyrir fundi sem ber yfir-
skriftina „Leikskólinn okkar -
fyrsta skólastig". Fundurinn verð-
ur í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
þriðjudaginn 20. apríl kl. 20 og er
ætlaður foreldrum og þeim sem
áhuga hafa á uppeldi bama.
Á fundinum kynnir Bjöm
Bjamason menntamálaráðhema
nýja skólastefnu, „Enn betri leik-
skóli. Jóhanna Einarsdóttir, dósent
við Kennaraháskóla Islands og
skorarstjóri fyrir leikskólaskor
KHI, flytur erindi, „Leikskólinn í
nútíð og framtíð" og Ingimundur
Sigurpálsson, bæjarstjóri Garða-
bæjar, ræðir um stöðu leikskóla-
mála og framtíðarsýn í málefnum
leikskóla. Á eftir erindum eru um-
ræður og fyrirspurnir.
Stjörnuspá á Netinu
Opin hús í dag
Álfheimar 30 — 4. Itæð t.v.
— laus strax
Vorum að fá í einkasölu mikið endurnýjaða, bjarta og rúmgóða
107 fm 4ra herb. íbúð á 4. hæð. Þrjú rúmgóð svefnherb. og
stórt eldhús. Fjölbýlið viðgert og málað. Parket á gólfum. Stór-
ar svalir. Gott skipulag. Verð 8,9 millj. Áhv. 4,7 millj.
Vignir og Eyrún taka á móti þér í dag á milli kl. 13 og 15.
Bleikarcjróf 5 —■ einbýli
— laust 10. júní
137 fm einbýli með mikla möguleika. Rúmgóð herbergi og stofa.
Parket og flísar. Möguleiki á að útbúa séraðstöðu á neðri hæð.
Áhv. 5,7 millj. Verð 11,0 millj.
Halldóra og Ómar taka á móti ykkur á milli kl. 14 og 16 í dag.
Frakkastígur 12A
— laus strax
Vorum að fá í sölu 104 fm 4ra herb. endaíbúð á 1. hæð með sér-
inng. í fjölbýli byggðu 1981 ásamt stæði í bílgeymslu. 3 rúmgóð
svefnherb. og stofa. Suðursvalir. Flísalagt baðherb.
Una og Valdimar taka á móti ykkur í dag á milli kl. 14 og 16.
Verð 11,9 millj. íbúðin er laus strax.
föklafold 43
Glæsileg 3ja herb. íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýli. Fallegar innr. Rúm-
góð herb. Parket og flísar. Suð-vestursvalir m/fallegu útsýni. Áhv.
ca 5,0 millj. byggsj. Verð 9,5 millj.
Sigrún Edda tekur á móti þér og þínum á milli kl. 14 og 16 í
dag.
Gimli, Þórsgötu 26, sími 552 5099.
HAFNARFJORÐUR MIÐBÆR
Fyrsta flokks skrifstofuhúsnæði
FRÁBÆRT ÚTSÝNI - SKAPANDI UMHVERFI
t-
Til leigu 374 fm skrifstofuhúsnæöi á 4. hæð í lyftuhúsi. Til afhendingar strax.
Tiibúið undir tréverk eða fullinnréttað eftir nánara samkomulagi. Öll þjónusta
fyrir hendi í næsta nágrenni.
Dómshús, bankar, veitinga- og kaffihús, pósthús, verslanir,
bílastæðahús, útsýni yfir höfnina, faliegur miðbær.
Möguleiki á að skipta í tvær einingar
Allar upplýsingar hjá fasteignasölunni Ás,
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, sími 520 2600.
V'