Morgunblaðið - 18.04.1999, Síða 49

Morgunblaðið - 18.04.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Enn betri síma- skrá á Netinu Frá Ólafi Þ. Stephensen: VÍKVERJA er símaskrárþjónusta Landssímans hugleikin eins og ýmsum öðrum viðskiptavinum fyr- irtækisins, enda er hún mikið not- uð. Síðastliðinn fímmtudag, 15. apríl, staðhæfir Víkverji að síma- skráin á Netinu hafi ekki verið til- tæk notendum nema „endrum og eins“ undanfarið. Þetta er nú heldur djúpt tekið í árinni hjá Víkverja. Staðreyndin er sú að samkvæmt skráningum Landssímans hefur símaskráin á Netinu „dottið út“8 sex sinnum á undanförnum vikum og harmar Landssíminn það, enda leggur fyr- irtækið sig fram um að tryggja sem bezt rekstraröryggi þessarar mikilvægu og vinsælu þjónustu. Truflanirnar stöfuðu reyndar af því að verið var að setja upp tvö- faldan búnað, sem virkar þannig að varavél tekur sjálfkrafa við ef hin dettur út, en slíkt gerist því miður stundum og flestir kannast við þau skilaboð að þessi eða hinn net- þjónninn sé óvirkur, ekki bara hjá símaskránni heldur fleirum af mest sóttu vefsíðum landsins. Þessar breytingar eiga m.ö.o. að tryggja enn betur öryggi þjónustunnar í framtíðinni og að símaskráin sé ávallt aðgengileg. Prófunum á þeim mun ljúka á næstu dögum eða vikum. Víkverja og lesendum til upplýs- ingar má geta þess að af ofan- greindum sex tilvikum varð síma- skráin á Netinu einu sinni óvirk í tvær klukkustundir, einu sinni í um klukkustund og fjórum sinnum í fimm til fimmtán mínútur í hvert sinn. Það er því heldur ofsagt hjá Víkverja að netsfmaskráin sé bara tiltæk endrum og sinnum. Þetta sést m.a. á því að heimsóknir á símaskrárvefinn hafa sízt verið færri undanfamar vikur en ella. Síðastliðnar þrjár vikur hafa þær á virkum dögum verið á bilinu 20.000 til 28.000 á dag. I ljósi þessarar miklu notkunar netsímaskrárinnar hyggst Lands- síminn á næstunni taka upp ýmsar nýjungar, t.d. fjölbreyttara val eft- ir svæðum, betri upplýsingar um símanúmer sem eingöngu koma fyrir í undirlínum og um vefföng, upplýsingar um Islendinga erlend- is o.fl. Víkverji telur það vera dæmi um einhvern trassaskap að sími og heimilisfang Rauða krossins skuli ævinlega koma upp sem dæmi um hvernig eigi að bera sig að við leit- ina, finnist umbeðnar upplýsingar ekki í skránni. Á þessu er hins vegar sú skýring að Landssíminn vildi taka dæmi, sem jafnframt vekti athygli á góðu málefni. Þar varð Rauði krossinn fyrir valinu. Það er hins vegar rétt að þegar Rauði krossinn flutti var heimilis- fanginu í þessari sýnissíðu ekki breytt strax þótt það væri að sjálf- sögðu leiðrétt í skránni sjálfri, sem er uppfærð daglega og inni- heldur ævinlega nýjustu breyting- ar á símanúmerum og heimilis- föngum. ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN, forstöðumaður upplýsinga- pg kynningarmála Landssíma íslands við Austurvöll. Kristín Óskarsdóttir (Kiddý) hánsnyptimeistani Agætu viðskiptavinir. Ég hef hafið störf á Hársnyrtistofunni Salon París að Skúlagötu 40 (Barónsstígsmegin) og vil ég bjóða gamla sem nýja viðskiptavini velkomna. ■hláus KvyrtistoliakA Sa\ ov\ IParís Tímapantanir í síma 561 7840 Vísindastyrkir Atlantshafsbandalagsins (Nato Science Fellowships) Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til að styrkja vísindamenn til rannsókna eða námsdvalar við erlendar vísinda- stofnanir í aðildarríkjum bandalagsins. Ennfremur er lagt fé af mörkum til að styrkja vísindamenn frá sam- starfsríkjum (Cooperation Partner Countries) í Mið- og Austur Evrópu til stuttrar dvalar við rannsóknarstofnun á íslandi eða íslenska vísindamenn til stuttrar dvalar á rannsóknarstofnun í Mið- og Austur Evrópu. Samkvæmt nýrri vísindastefnu NATO skal nú u.þ.b. 75% af því fé sem til ráðstöfunar er hverju sinni fara í samstarf við Mið- og Austur Evrópu. Rannsóknastofnunum, sem þetta varðar, er bent á að hafa samband við Rannsóknarráð (slands. Ráðstöfunarféð 1999 er um 4 MKr. Umsóknum um styrki skal komiðtil Rannsóknarráðs íslands, Lauga- vegi 13, 101 Reykjavík í síðasta lagi 1. maí 1999. Umsóknareyðublöð og upplýsingar er hægt að fá á heimasíðu Rannsóknarráðs (slands — http://www.rannis.is. Einnig er hægt að fá umsóknareyðublöð á skrifstofu Rannsóknarráðs (slands, Lauga- vegi 13. Afgreiðslutími þar er kl. 9—12 og kl. 13—17. RANNÍS ______________SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999 49 Sölusýning á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hótel, Reykjavík, í dag, sunnudaginn 18. apríl frá kl. 13-19 HOTEIy REYKJAVIK NÝ SENDING RAÐGREIOSLUR Njóttu lífsins og fljúgðu á stórtónleika Kristjáns Jóhannssonar með fjölskyldu og Karlakór Akureyrar - Geysi. Kristján Jóhannsson stórtenór hefur upp raust sína hér á landi í lok apríl og byrjun maí með Karlakór Akureyrar - Geysi og með bræðmm sínum, þeim Svavari og Jóhanni Má. Skelltu þér til Akureyrar eða Egilsstaða með aðstoð íslandsflugs sem býður frábærar pakkaferðir (flug & tónleikar) til Akureyrar og Egilsstaða í tilefni tónleikanna. Einnig koma fram systursynir bræðranna, þeir Örn Viðar og Stefán Birgissynir. Kristján og félagar syngja í (þróttaskemmunni á Akureyri (30. aprd kl. 20:00 og 1. maf kl. 16:00) og í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum (2. maí kl. 16:00). Forsala aðgöngumiða, upplýsingar og bókanir í síma 570 8090. www.islandsflug.is Upplýsingar og bókanir í síma 570 8090 ISLANDSFLUG gorír flBÍrum fært að fíjúga GOTT FÓU * SlA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.