Morgunblaðið - 18.04.1999, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999
MORGUNB LAÐIÐ
HUGVEKJA
í DAG
Hvað er brýnast
á ári aldraðra?
Þar sem mannréttindi vega minnst og
fátæktin er mest í veröldinni búa aldr-
aðir við hörmuleg kjör. Það er brýnasta
verkefni fjölþjóðasamfélagsins á ári
aldraðra, segir Stefán Friðbjarnarson,
að rétta hlut þessa fólks.
PAÐ hefur heldur betur
teygzt úr meðalævi mannsins
gegnum tíðina. Þegar sögur hefj-
ast af fólki var hún um eða innan
við 20 ár. Talið er að meðalævi
Islendinga hafi verið undir 30 ár-
um á þjóðveldisöld (930 til 1262).
Ævilíkur íslenzks sveinbarns,
sem fæðist nú, í lok 20. aldar, er
á hinn bóginn 77 ár og ævilíkur
meybams 80 ár. Það er ekki að
undra þótt fjölgi mjög
í sveit eldri borgara.
Hvað veldur þess-
ari þróun? Jón
Bjömsson segir m.a. í
ágætri grein um öldr-
un (Sveitarstjórnar-
mál, 4. tbl. 1995):
„Þegar við fjöllum um
ellina verðum við að
muna að hún er
menningarfyrirbæri.
Það þýðir að menn-
ingin fremur en nátt-
úran hefur skapað
hana. Elli er sjaldgæf
í hinni svokölluðu
villtu náttúru; hún er
sérréttindi efnaðra
þjóða og húsdýranna
sem það fólk heldur.
Það er menningin og
tæknin sem hafa gert
mönnum kleift að lengja líf sitt.
Til eru fræðimenn, sem taka
verður alvarlega, sem halda því
fram að von bráðar verði fólk
undir áttræðu alls ekki álitið
gamalt.“
Meðalævi íslendinga er ára-
tugum lengri í lok 20. aldar en á
morgni hennar. Ástæðan er ótví-
rætt meiri hagsæld og betri að-
búð, hvers konar, sem rekja má
til vaxandi menntunar og þekk-
ingar. Það má hins vegar ekki
gleyma því, þegar fjallað er um
þessi efni, að sú kynslóð, sem nú
er skilgreind sem „eldri borgar-
ar“, byggði upp þetta þjóðfélag
menntunar og velferðar, er við
státum af í dag. Hún hefur lagt
margfalt meira til samfélagsins
en hún hefur þegið af því.
Menning þjóða er mæld á
margs konar mælikvarða. Meðal
annars þann á hvem veg samfé-
lagið býr að hinum öldruðu, sem
skilað hafa því heilli starfsævi.
Margt hefur vel tekizt í íslenzku
samfélagi í þeim efnum, sem
ástæða er til að meta og þakka.
Þó skortir enn talsvert á að
„kerfið" hafi samlagað sig
breyttri aldursskiptingu þjóðar-
innar, vaxandi íbúahlutfalli eldra
fólks. Skortur á hjúkrarými fyrir
öldrunarsjúklinga er, svo dæmi
sé tekið, svartur blettur á þjóðfé-
lagi okkar. Það stenzt heldur
ekki réttlátt mat að meðhöndla
ávexti aldraðs fólks af sparnaði
þess (lífeyrissjóðum) skattalega
á annan og harkalegri hátt en
öðruvísi fengnar fjármagnstekj-
ur. Það verður og að teljast rétt-
lát krafa að grunnlífeyrir al-
mannatrygginga fylgi almennri
launaþróun. Stjómvöld hafa þeg-
ar tekið lofsverð skref til að rétta
úr þessum misfellum, en betur
má svo vel sé.
Framkvæði að stefnumótun í
málum aldraðra er, lögum sam-
kvæmt, hjá heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu. Sama
ráðuneyti axlar yfirstjóm heil-
brigðisþjónustunnar, sem taka
verður mið af vaxandi íbúahlut-
falli aldraðs fólks, ekki sízt há-
aldraðs fólks. Sveitarfélögin
gegna og lykilhlutverki í málefn-
um aldraðra, einkum í þéttbýli:
rekstur hjúkranar- og dvalar-
heimila og sambýla, rekstur fé-
lagsmiðstöðva, félagsleg heima-
þjónusta o.s.frv. Sveitarfélögum
ber, í stuttu máli sagt, að stuðla
að því að aldraðir geti búið við
eðlilegt heimilislíf í umgengni við
aðra svo lengi sem verða má og
jafnframt að tryggja nauðsyn-
lega stofnanaþjónustu sé hennar
þörf. Sum sveitarfélög sinna
jsessu hlutverki allvel, önnur
miður, enda aðstaða þeirra mis-
jöfn.
Félög aldraðra vinna og gott
starf í þágu eldri borgara, eink-
um á höfuðborgarsvæðinu, bæði
í hagsmunagæzlu og skipulagn-
ingu félagsstarfs. Margs konar
félagasamtök önnur koma einnig
við sögu. Þjóðkirkjan og söfnuðir
hennar leggja og vaxandi
áherzlu á starf með öldruðum og
í þágu aldraðra. Þessi þáttur
kirkju- og safnaðarstarfs hefur
mjög mikið gildi. Aldraðir hafa,
sem aðrir, mikið að sækja í sókn-
arkirkju sína. Það skiptir einnig
máli að kirkjan taki þátt í félags-
starfi aldraðra og rækti sam-
band við aldna einstaklinga.
Sameinuðu þjóðimar tileink-
uðu árið 1999 baráttu fyrir betri
aðbúð aldraðra í heiminum. ís-
lenzk stjórnvöld hafa þegar sýnt
nokkra viðleitni í þá vem. Það er
vel. Það er hins vegar brýnasta
verkefni fjölþjóðasamfélagsins á
ári aldraðra að bæta hag og rétta
hlut aldraðs fólks þar sem fá-
tækt er mest og mannréttindi
minnst í heiminum. Hjálpar-
stofnun þjóðkirkjunnar og Carit-
as (hjálparsamtök kaþólskra)
em góðir og traustir farvegir
fyrir hjálp frá einstaklingum, fé-
lagasamtökum og fyrirtækjum
við aldraða í sárri neyð víða um
veröld.
Á ári aldraðra er og öllum
hollt að huga að fornum vegvísi.
(5. Mós. 5.16):
„Heiðra föður þinn og móður
þína, eins og Drottinn Guð þinn
hefur boðið þér, svo þú verðir
langlífur og svo að þér vegni vel í
því landi, sem Drottinn guð þinn
hefur gefið þér.“
Höfundur er fyrrverandi blaða-
maður við Morgunblaðið.
VELMKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir fyrir
aðstoð
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf:
„Til vingjarnlegu fjöl-
skyldunnar sem aðstoðaði
mig við að draga bílinn
minn úr snjóskafli við Ei-
ríksstaði 13. apríl sl. Kær-
ar þakkir. Island er mjög
spennandi land og íbúai'nir
gott fólk.“
Holgeir, Cologne,
Þýskalandi.
Nýr þjóðsöngur?
HVAÐ segja menn um þá
hugmynd að fá nýjan þjóð-
söng í byrjun nýrrar ald-
ar? Það er orðið langt síð-
an þeirri hugmynd hefur
skotið upp, en að því hlýt-
ur að koma fyrr eða síðar
að sálmur Matthíasar
verði endanlega færður
inn í kirkjur landsins þar
sem hann á heima og við
fáum nýjan þjóðsöng sem
hæfir við upphaf lands-
leikja í íþróttum og önnm-
ámóta ómerkileg tækifæri.
Ég verð að segja eins og er
að ég hef aldrei fundið fyr-
ir hrifningu þegar þjóð-
söngurinn okkar er leikinn
á íþróttaleikvangi. Við
verðum að eiga þjóðsöng
sem getur fengið hjörtu
landsmanna til að slá í
takt. Reynum nú að koma
okkur út úr öllum miðalda-
móral og fagna nýrri öld
eins og vera ber.
Sigurþór Júníusson.
Umfjöllun uni
skotíþróttir
ÉG er óhemjuþreyttur á
íþróttasíðum Morgun-
blaðsins. Allar skotíþróttir
eru sniðgengnar í blaðinu.
Það er tilviljun ef kemur
smáfrétt um þessa íþrótt
en sagt frá öllum öðrum
íþróttum. Þykir mér hart
ef ekki er hægt að skrifa
eitthvað um þessa íþrótt.
Sigurfinnur Jónsson.
Sala stríðsleikfanga
ÞAÐ voru sendir á öll
heimili í landinu bæklingar
frá virtri leikfangabúð hér í
bænum. Heil síða í þessum
bæklingi er um stríðstól,
hríðskotabyssur, vélbyssur
og hersett með töskum,
hnífum, áttavitum og
hjálmum. Allt eru þetta
leikfóng fyrir börnin. Sam-
tímis og við erum að horfa
á þetta skelfilega stríð í Jú-
góslavíu er verið að senda
þetta inn á íslensk heimili
til að hvetja foreldra til að
kaupa þetta handa börnum
sínum. Maður er gráti nær
því þama er verið að
hvetja börnin til að leika
sér með stríðsleikfong og
um leið horfa bömin á
þetta í fréttunum. Finnst
mér þetta mjög ósmekk-
legt. Hvet ég foreldra og
aðra forráðamenn bama til
að henda þessum bæklingi.
Kolbrún Inga
Sæmundsddttir.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
HÁLFLOÐNIR, 8 vikna,
kassavanir kettlingar fást
gefins á góð heimili. Upp-
lýsingar í síma 588 7436.
Tapað/fundið
Loðskinnshúfa
týndist í Kópavogi
Eigandi loðskinnshúfu úr
kanadísku refaskinni (ljós-
drapplit með Ijósbrúnum
kolli) varð fyrir þeirri
óþægilegu reynslu á
bílaplani fyrfr framan Fé-
lag garðyrkjumanna í
Kópavogi fimmtudaginn
15. apríl síðastliðinn, þeg-
ar hann var um það bil að
að stíga út úr bíl sínum að
ógnar vindhviða feykti af
honum húfunni sem hvarf
síðan sjónum eigandans.
Þrátt fyrir leit tókst ekki
að finna húfuna. Ef ske
kynni að einhver rækist á
þennan höfuðbúnað á
þessum slóðum væri eig-
andi húfunnar þakklátur
ef viðkomandi vildi skila
henni til lögreglunnar í
Kópavogi.
Kg7 21. Hgl+ - Kh8 22.
Hxg8+ - Kxg8 23. De8+ -
Rf8 24. Hgl+ - Kh8 25.
Umsjón Margeir Bxe5+ °S svartm- Safst
Pétursson upp þvi mátið blasir við.
STAÐAN kom
upp á meist-
aramóti Sánkti
Pétursborgar í
Rússlandi sem
nú stendur yf-
ir.
Solovjov
(2.445) hafði
hvítt og átti
leik gegn
Birjukov
(2.405)
19. Bxf7+! -
Kxf7
20. Dh5+ -
HVÍTUR leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
*
Ast er...
að segja honum ekki
alltaf hvað hann á að
gera og hvað ekki
TW Reg. LhS. Pk. OB — I rQtns >OM>vod
(cl '995 Los Atgeea Tiirc« SyediMie
NEI, Olsen, O eins og
Oxygenkarbónat, L eins
og Latexpdlýgensýrox-
in, S eins og Spetaxlato-
nexklyríð, E eins og
Epoxydamdníakpdlyet-
hyl, N eins og Nyhemd-
glóbínrófumarat.
Víkverji skrifar...
SALA hlutabréfa í Baugi, eig-
anda Hagkaups, Nýkaups og
Bónuss, til almennings hefst á
morgun, mánudag. Kunningi Vík-
verja í viðskiptaheiminum sagði
gárungana í bransanum hafa talað
um það, þegar gengi hlutabréfanna
var tilkynnt, að skemmtilegt hefði
verið að selja þau á genginu 10,11
eða jafnvel 11,11 - sbr. tvo keppi-
nautanna á matvörumarkaðnum -
en svo hefðu bréfin auðvitað verið
verðlögð við hæfi. Þau verða nefni-
lega seld á „gamla, góða Hagkaups-
verðinu", eins og sagði í grein um
málið í Morgunblaðinu á fimmtu-
daginn - á genginu 9,95.
X X x
A
AHUGAMENN um íþróttir, sem
greiða allir afnotagjald af Rík-
isútvarpinu eins og aðrir lands-
menn, fá ekki nógu mikið fýrir sinn
snúð, að mati Víkverja. Nýleg dæmi
um skort á þjónustu RÚV eru leikir
knattspymulandsliðsins í Andorra
og Ukraínu. Sýn á reyndar sjón-
varpsréttinn á útileikjum liðsins
(þökk sé RÚV) en ríkisstöðin sendi
ekki einu sinni útvarpsmann til að
lýsa leikjunum. Hvað með alla þá
sem ekki gátu íylgst með í sjón-
varpi? Annað dæmi er heimsbikar-
mótið í handknattleik sem fram fór í
Svíþjóð fyrir skemmstu. RÚV átti
heldur ekki fulltrúa þar, og skýring-
in sem Víkverji hefur heyrt er sú
sama í báðum tilvikum. Sú að fyrir-
tækið, eða íþróttadeild þess, hafi
ekki fengið styrktaraðila í verkefn-
ið! Það er orðið æ algengara að
kostendur séu fengnir að hinum og
þessum útvarpsþáttum og hið sama
virðist orðið uppi á teningnum í
sjónvarpinu. Hvernig má þetta
vera? Víkverja hefur reyndar borist
til eyrna að Ríkisútvarpið verði ekki
með fréttamenn á Smáþjóðaleikun-
um sem fram fara í Liechtenstein í
sumar, en RÚV gerði þeim glæsileg
skil fyrir tveimur árum, þegar leik-
amir fóru fram hérlendis. Hver
skyldi ástæðan vera fyrir væntan-
legri fjarveru ríkisfjölmiðlanna í Li-
echtenstein? Sú sama og áður er
getið, skv. heimildum Víkverja.
xxx
KÖNNUN var gerð á því fyrir
skömmu hve stór hluti þjóðar-
innar borðar þorramat og hvað af
kræsingunum fólki þyki best. Ákaf-
lega þjóðlegt og skemmtilegt, en
Víkveiji gat ekki að því gert að
hann brosti út í annað þegar hann
sá hvaða fyrirtæki gerði könnunina.
Nefnilega PricewaterhouseCoopers
ehf.
XXX
VIÐTAL er við Arnar Gunn-
laugsson, atvinnumann í knatt-
spyrnu hjá Leicester í Englandi í
nýjasta hefti Mannlífs. Það er Pétur
Pétursson, fyrrum atvinnumaður og
Skagamaður eins og Arnar, sem
tekur viðtalið og myndirnar - en
Pétur er lærður ljósmyndari og
starfar sem slíkur. Ámar segir m.a.
í viðtalinu að hann finni lítið fyrir
stuðningi heiman frá Islandi, og
ekki er annað að skilja en hann eigi
við stuðning fjölmiðla. Honum
finnst þeir hafa of mikinn áhuga á
samningamálum og öðm er snertir
peninga en á fundi með enskum
blaðamönnum, eftir að hann var
keyptur til Leicester frá Bolton,
hafi þeir aftur á móti bara talað við
hann um knattspymuna „og hvað
það væri gaman að vera kominn aft-
ur í úrvalsdeildina".
Víkverji varð satt að segja undr-
andi á að lesa þetta. Ætli Amar
hafi ekki fylgst með því í breskum
fjölmiðlum þegar þarlendir knatt-
spyrnumenn fara til erlendra fé-
laga? Kemur aldrei fram þar hvað
þeir fá í laun? Hvort skyldu íslensk-
ir lesendur vera spenntari fyrir
spurningunni: Hvað ertu með í
laun? eða Hvernig líst þér á að vera
kominn til Leicester City? Liggur
það ekki í augum uppi að honum líst
vel á að vera kominn til nýja félags-
ins? Annars hefði leikmaðurinn
varla farið þangað.
xxx
SKONDIÐ en skiljanlegt, hugs-
aði kunningi Víkverja í upphafi
ráðstefnu sem hann sat á vegum
Landssímans hf. á dögunum, en hún
var haldin bæði á Akureyri og í
Reykjavík. Fyrst bað einn for-
kólfanna norðan heiða alla viðstadda
um að slökkva á farsímum sínum og
síðan impraði Þórarinn V. Þórarins-
son, stjórnarformaður fyrirtækisins,
á því sama fyrir sunnan. Ekki á
hverjum degi sem forráðamenn fyr-
irtækis hvetja menn beinlínis til að-
gerða sem draga úr tekjum þess!