Morgunblaðið - 18.04.1999, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999 51
í DAG
BRIDS
Um.sjón 0ii<1 iniiniliir
l'áll Arnarson
SEX hjörtu er góður samn-
ingur í NS, en aðeins tvö
pör af tíu náðu slemmunni
þegar spilið kom upp í átt-
undu umferð Islandsmóts-
ins. Það voru annars vegar
Sigfús Orn Amason og
Friðjón Þórhallsson í Heit-
um samlokum, og hins veg-
ar Samvinnuferðaparið
Helgi Jóhannsson og Guð-
mundur Sv. Hermannsson.
Suður gefur; NS á hættu.
Norður ♦ KD V D985 ♦ Á3 ♦ ÁK1054
Vcstur Austur
* 10864 4* 975
V 74 VÁ6
♦ DG7 ♦ K109864
*DG73 + 82
Suður AÁG32 V KG1032 ♦ 52 + 96
Helgi og Guðmundur
sögðu þannig, gegn þeim
Hrannari Erlingssyni og
Júlíusi Sigurjónssyni:
Vestur Norður Austur Suður
HraunarHdgi Júliús Guðm.
- Pass
Pass 1 lauf* 2 tíglar 2 hjörtu
4 tíglar 4 grönd Pass 5 hjörtu
Pass 61ýörtu Allirpass
Guðmundur passar í byrj-
un, en svo opnar Helgi á
sterku laufi. Hrannar og
Júlíus hindra síðan hraust-
lega í tíglinum, en Helgi
tekur af skarið og veður í
slemmu.
Útspil Júlíusar var
tíguldrottning og Guðmundi
var ekki alveg rótt þegar
hann drap á ásinn, spilaði
þrisvar spaða og henti tígli
úr blindum. En þegar aust-
ur fylgdi þrisvar lit í spað-
anum var slemman nokkurn
veginn í húsi. Guðmundur
trompaði næst spaða hátt í
borði, austur henti tígli, og
spilaði svo hjarta á kónginn,
sem hélt. Nú trompaði hann
tígul og spilaði hjarta: 1430 í
NS.
„Það var ekki fyrr en ég
var að labba út úr salnum,
sem það rann upp fyrir mér
að þetta var ónákvæmt spil-
að,“ sagði Guðmundur, þeg-
ar spilið var rifjað upp síðar
í góðu tómi. Hvernig gat
Guðmundur bætt spila-
mennskuna? Jú, segjum
sem svo að austur eigi ásinn
þriðja í hjarta og eitt lauf,
en ekki 2-2 eins og var í
reynd. Þá getur hann drepið
á hjartaás, spilað iaufein-
spilinu og læst blindan inni,
og tryggt sér þannig slag á
tromphundinn sinn.
Sagnhafi getur séð við
þessari legu með því að taka
fyrst á laufhámann, áður en
síðasta trompinu er spilað
úr borði. Dæmigerð bók-
arþraut.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Arnað heilla
GULLBRÚÐKAUP. f dag, sunnudaginn 18. apríl, eiga 50
ára hjúskaparafmæli Björg Randversdóttir og Þorlákur
Þórðarson, Stóragerði 20, Reykjavfk.
O ÁRA afmæli. Á
O O morgun, mánudag-
inn 19. apríl, er áttatíu og
fimm ára Elísabet Jónsdótt-
ir, Ölduslóð 17, Hafnar-
firði. Hún verður ásamt
börnum að heiman á afmæl-
isdaginn.
^ í\ ÁRA afmæli. í dag,
• v/ sunnudaginn 18. apr-
D, verður sjötug Ásgerður
Sigríður Sigurðardóttir,
Hrísrima 4, Reykjavík. Hún
og eiginmaður hennar, Júlí-
us Óskar Halldórsson eru á
Benidorm á afmælisdaginn.
A ÁRA afmæli. Mánu-
tl v/ daginn 19. apríl verð-
ur fimmtugur Þórður
Andrésson, stöðvarsljóri
orkuvers Hitaveigu Suður-
nesja, Svartsengi, Holts-
götu 23, Njarðvík. Hann og
eiginkona hans, Nína H.
Magnúsdóttir, verða á
Kanaríeyjum.
Norðurmynd - Ásgrímur.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 27. júní sl. í Akureyr-
arkirkju af sr. Birgi Snæ-
björnssyni Fanney Óskars-
dóttir og Högni Friðriks-
son. Heimili þeirra er að
Víðilundi 8c, Akureyri.
HÖGNI HREKKVÍSI
STJ ÖRjVUSPA
ellir Erunccs llrake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert maður athafna og ævin-
týra og veist ekkert verra
en að hafa ekkert fyrir
stafni.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú sækir mikinn fróðleik í
nýja vinnufélaga. Reyndu
að notfæra þér hann til að
auðvelda starf þitt.
Naut
(20. apríl - 20. mafl
Þér hættir til að leggja of
mikið upp úr yfirborði hlut-
anna. Mundu að það er
kjarninn sem máli skiptir.
Finndu hann.
Tvíburar
(21. maí - 20. júm)
Það er allt í lagi að treysta á
innsæi sitt og láta eðlisávís-
un ráða. Sinntu gömlum
vinum þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf)
Hefnigirni er löstur sem þú
þarft að losa þig við. Brjóttu
odd af oflæti þínu og viður-
kenndu staðreyndir mála.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér finnast aðrir horfa um
of yfir öxlina á þér. Taktu
ekki álit þeirra nærri þér.
Þú ert á réttri leið.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þrátt fyrir góðan árangur
ertu ekki fullkomlega sáttur
við sjálfan þig. Slakaðu á og
leyfðu sjálfum þér að
blómstra.
rfv
(23. sept. - 22. október) A
Þér hættir til of mikillar
þröngsýni og nú er nauð-
synlegt að þú náir heildar-
sýn svo að viðamikið verk-
efni fari ekki út um þúfur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Reyndu að sjá fyrir næsta
skref í starfi þínu því svo
kann að fara að þú þurfir að
taka það fyrr en þú ætlar.
Hlustaðu á góð ráð.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) (faCr
Það getur verið yndislegt að
fá útrás í gegnum tónlistina.
Vertu óhræddur við að
fylgja eigin tUfinningum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) +■?
Það er ekki bæði hægt að
ráðast á kerfið og berjast
síðan á hæl og hnakka til
þess að ná sem mestu út úr
því.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) Cfin!
Notfærðu þér hagstæðan
byr og vertu óhræddur við
að stíga ný skref sem leiða
þig á framtíðarbraut.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Varastu að undirrita nokk-
uð án þess að kynna þér
gaumgæfilega efni þess og
afleiðingar. Vandi í starfi
leysist af sjálfu sér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spúr af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
10 rósir át. 990 .
— Enskt postulín
— Italskur kristall
— Itölsk og portúgölsk húsgögn
— Vondaðar, grískar íkonamyndir
Opið til kl. 10 öll kvöld *
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð, 105 Reykjavík
Símar: 515 1735, 515 1736
Bréfasími: 515 1739
Farsími: 898 1720
Netfang: utankjorstada@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá Sýslumanninum
í Reykiavík, í Hafnarbúðum við Tryggvagötu, alla daga
frákl. 10-12, 14-18 og 20-22.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar.
Sjálfstæðisfólk!
Látið okkur vita um stuðningsmenn sem ekki verða heima
á kjördag, t.d. námsfólk erlendis.
Fákafeni 11, sími 568 9120.
ÞRÍR VINIR
Ævintýri litlu
selkópanna
eftir Karvel Ögmundsson
Þessi fallega og fróðlega
bók er nú fáanleg í stærri
bókabúðum í Reykjavík.
Sérmerktu handklæðin
loksins komin aftur
Okkar vinsælu sérmerktu handklæði.
Fáanleg í ýmsum litum í st. 70x140 sm.
Ámáluð merkingin er áberandi og falleg.
Tilvalið í skólann og íþróttimar.
Aðeins kr. 1.490 með nafni
/
Jl
Sendingarkostnaöur bætist viö
vöruverð.
PÖNTUNARSÍMI
virka daga kl 16-19
557 1960
Sumar
‘99
Sérstök tilboð
næstu daga
í tilefni sumars
/ssa tískuhús
Hverfísgötu 52, sími 562 5110