Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 16
KNATTSPYRNA/ ENGLAND
Tottenham fylgist með Eiði
TOTTENHAM hefur fylgst með
Eiði Smára Guðjohnsen, fram-
heija Bolton Wanderers að und-
anförnu. Kemur fram á spjallsíðu
úrvalsdeildarliðsins á Netinu að
George Graham, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, hafi látið „njó-
snara“ sína fylgjast með frammi-
stöðu Eiðs með Bolton í ensku 1.
deildinni að undanförnu og að
þessir sömu njósnarar hafi komið
til baka með hástemmdar lýsing-
ar af framgöngu hins unga ís-
lendings sem eitt sinn hafi leikið
í framlínu PSV Eindhoven í
Hollandi ásamt hinum brasilfska
Ronaldo.
Eiður Smári hefur átt fast sæti
í byijunarliði Bolton að undan-
förnu og verður í fremstu víglínu
liðsins er það etur kappi við Wat-
ford um iaust sæti í úrvalsdeild-
inni í hreinum úrslitaleik á
Wembley-leikvanginum í Lund-
únum næstkomandi mánudag.
Talið er fremur ólfklegt að
Bolton hafi áhuga á að selja Eið
Smára, en úrslit leiksins á
mánudag gætu þó haft umtals-
vert að segja í þeim efnum.
Gríðarlegar tekjur fylgja því
nefnilega að komast í úrvals-
deildina, en samkvæmt frétt
spjallsíðunnar er líklegt að Eið-
ur Smári kosti ríflega 300 millj-
ónir króna.
SMÁÞJÓÐALEIKAR í LIECHTENSTEIN
Jón Arnar
keppir í
þremur
greinum
JÓN Arnar Magnússon
keppir í þremur greinum í
dag, 110 m grindahlaupi,
langstökki og kúluvarpi.
Þessar greinar fara allar
fram á svipuðum tíma og
það verður því nóg að gera
hjá tugþrautarkappanum.
„Já, mér skilst að þessar
greinar fari fram á innan
við einum og hálfum tíma.
Ég er ekkert óvanur því að
keppa í mörgum greinum
sama daginn þótt það hafi
yfirleitt verið lengri tími á
miUi greina. Þetta er ágæt
æfing fyrir tugþrautarmót-
ið í Götzis um næstu helgi
og ég lít á það þannig,“
sagði Jón Amar, sem studdi
vel við bakið á löndum sín-
um á frjálsíþróttavellinum í
gær.
Hann segist vera búinn
að ná sér af meiðslunum
sem hafa hijáð hann. Kvef
hefur verið að angra hann
síðustu daga, en Jón Arnar
sagðist ekki hafa miklar
áhyggjur af því. „Ég verð
tilbúinn."
Gulldrottn-
ingin
ekki með
GULLDROTTNING fijáls-
íþróttakeppni Smáþjóða-
leikanna, Guðrún Arnar-
dóttir, Ármanni, er ekki
með á leikunum í Liecten-
stein vegna þess að aðal-
greinar hennar, 400 og 100
metra greindahlaup voru
felldar út af dagskrá vegna
ónógrar þátttöku. Á leikun-
um í Reykjavfk fyrir tveim-
ur árum vann Guðrún gull í
400 metra grindahlaupi,
200 og 400 metra hlaupi og
loks í 4x100 metra boð-
hlaupi.
Morgunblaðið/Golli
MAGNÚS Hðrður Árnason og Guðmundur Stephensen í keppni í tvíliðaleik í gær.
Silfur í fýrsta sinn
ÍSLENSKA landsliðið í borðtennis braut blað í sögu sinni þegar
karlasveitin vann silfurverðlaun í liðakeppninni í gær. Er þetta í
fyrsta sinn í sögu leikanna sem íslenska landsliðið vinnur til
verðlauna í liðakeppni þeirra. Þá var það ekki nema hársbreidd
frá því að hreppa gullið því Markús Árnason tapaði I æsispenn-
andi oddalotu í leik sínum við Lúxemborgara, þar sem hann var
yfir, 19:18, en tapaði, 21:19, á lokasprettinum. Kvennaliðið hafir
aði í fjórða sæti af fimm þátttökuþjóðum.
Ivar
Benediktsson
skrifar frá
Liechtenstein
Guðmundur Stephensen og
Markús skipuðu karlaliðið, en
Eva Jósteinsdóttir og Lilja Rós Jó-
hannesdóttir voru í
kvennasveitinni.
„Þetta er frábær ár-
angur og ekki síst
þegar horft er til þess
að við erum ekki nema hársbreidd
frá gullinu," sagði Pétur Ó. Steph-
ensen, liðsstjóri íslenska liðsins.
„Þetta undirstrikar framfarir í
íþróttinni heima og nú bíðum við
bara eftir hvað gerist í einstak-
lings- og tvíliðaleiknum á fimmtu-
dag og fóstudag."
„Ég hefði gjarnan viljað hafa
betri tíma til undirbúnings, við vor-
um ekki nema eina viku við æfingar
saman fyrir mótið,“ sagði Hu Dao
Ben, landsliðsþjálfari, og sagði að
með betri undirbúningi hefði verið
hægt að gera betur. „Það tekur
sinn tíma að fá hópinn til þess að
einbeita sér að leiknum og því var
tíminn ekki nægur og við hefðum
getað gert betur,“ sagði Ben enn-
fremur.
í karlaflokki lagði ísland Kýpur
3:1 og Möltu og Liechtenstein með
sömu úrslitum. Hins vegar lá það í
valnum fyrir San Marínó, 3:2. ís-
land vann þrjár viðureignir en tap-
aði tveimur eins og San Marínó og
Kýpur, en vann fleiri lotur í tap-
leikjunum og fékk því silfur, en
Kýpur fékk brons. Lúxemborg stóð
uppi sem sigurvegari.
Viðureignin við Lúxemborg var
hins vegar afar jöfn og t.d. fór tví-
liðaleikurinn í oddalotu þar sem
jafnt var allan tímann en Lúxem-
borgarar kreistu fram 21:19-sigur.
Guðmundur vann báða einliðaleiki
sína gegn Lúxemborgurunum, sem
er athyglisverður árangur þar sem
þeir eru skráðir tveir sterkustu
borðtennismenn mótsins sam-
kvæmt styrkleikalista. Verður fróð-
legt að fylgjast með einvígi þeirra í
einstaklingskeppninni á fimmtu-
dag.
Stúlkurnar unnu Liechtenstein
3:0, töpuðu fyiir Möltu og San Mar-
ínó 3:1 og 3:0 fyrir Lúxemborg.
Á morgun eiga borðtennismenn
frí frá keppni en taka til við að nýju
á fimmtudag og ljúka keppni á
fóstudaginn með tvíliðaleik karla og
kvenna.
Skipt um
Skota
hjá Leiftri
SKOTINN Paul Kinniard
leikur ekki fleiri leiki í efstu
deild fyrir Leiftur á Ólafs-
firði. Kinniard lék með Ólafs-
firðingum í fyrra og í fyrsta
leik þeirra í deildinni á dög-
unum gegn Eyjamönnum, en
heldur heim á leið innan
skamms.
_ En ekki er þar með sagt að
Ólafsfirðingar séu Skotalaus-
ir, því annar skoskur miðju-
maður er mættur til bæjarins
og hyggst reyna fyrir sér
með liðinu. Sá heitir Gordon
Forrest og er 22 ára.
Eyjólfur
ræðir við
Stjörnuna
HANDKNATTLEIKSDEILD
Stjömunnar hefur rætt við Eyjólf
Bragason um að hann þjálfi
kvennalið þess næsta vetur. Theo-
dór Guðfinnsson, landsliðsþjálfari
kvennalandsliðsins, hafði gert sam-
komulag við Stjörnuna um að
þjálfa liðið, með þeim fyrirvara að
leikmannahópur þess yrði óbreytt-
ur fyrir næsta vetur.
Enn er ekki útséð með hvort
hópurinn haldist óbreyttur því
Ragnheiður Stephensen er í Nor-
egi að skoða aðstæður hjá Totem.
Hún er væntanleg aftur til landsins
á næstu dögum.
Þorsteinn Gunnarsson, formaður
handknattleiksdeildar Stjörnunn-
ar, sagði að hann gæti ekki beðið
með að ráða þjálfara og því hefði
verið rætt við Eyjólf, sem hefur
verið aðstoðarmaður Einars Ein-
arssonar, þjálfara meistaraflokks
karla.
1 ' j
Valsstúlk- y
urfá -
góðan
liðsstyrk
KVENNALIÐ Vals í handknatt- .
leik mætir sterkt til leiks á næstu
leiktíð ef fram heldur sem horfir. J
Útlit er fyrir að þær Brynja Stein-
sen og Helga Ormsdóttir semji við
liðið á næstu dögum. Brynja, sem
er alin upp í KR en lék um skeið
með Val, lék í vetur með þýska lið-
inu Minden og Helga lék með
Gróttu/KR í 1. deild í vetur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa Valsmenn einnig átt í
óformlegum viðræðum við Fanney
Rúnarsdóttur, landsliðsmarkvörð,
en hún hefur leikið í Noregi undan-
farin tvö ár með Tertnes.
Grótta/KR hefur einnig leitað til
Fanneyjar, enda lék hún lengi með
Gróttu.
Ágúst Jóhannsson mun sem
kunnugt er þjálfa Valsliðið á næstu
leiktíð, en hann lék með Gróttu/KR
á síðustu leiktíð og var einnig að-
stoðarþjálfari liðsins.