Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 B 13 IÞROTTIR KÓRFUKNATTLEIKUR GOLF / STIGAMOT GOLFSAMBANDSINS Afmælisgjöf til Friðriks FRIÐRIK Ragnarsson, einn landsliðsmannanna, átti afmæli á sunnudag, varð 29 ára. Var mikið sungið fyrir hann í bún- ingsherberginu eftir leik. Fyrir leik afhentu skipuleggjendur mótsins honum afmælistertu og einum Rúmenanum einnig, en hann átti líka afmæli. Rúmeninn kom til Friðriks og óskaði hon- um til hamingju og kyssti hann á báðar kinnar eins og siður er þar í landi, en Friðrik vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið og þótti lítið til kossins koma. Félagar hans í landsliðinu höfðu hins vegar gaman af tilburðum Rúm- enans. Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálfari, eftir frækilega framgöngu í Slóvakíu „Erum á uppleið“ Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálf- ari íslenska körfuknattleiksliðs- ins, sem hafnaði í þriðja sæti í und- anriðli Evrópumótsins í Slóvakíu, segir að árangur landsliðsins sýni að íslenskur köifuknattleikur sé á mikilli uppleið. Liðið hefur unnið sér þátttökurétt í undanúrslitariðl- um EM í annað sinn og leikur fyrstu leikina í keppninni í vetur. „Pað er ljóst að sú reynsla sem liðið hefur áunnið sér á undanfórn- um árum skilaði sér í mótinu í Slóvakíu. Liðið lék geysilega vel, ekki síst í síðasta leiknum gegn Rúmenum, sem eru með sterkt lið, en við unnum 74:61 og tryggðum okkur þriðja sætið í riðlinum. Greinilegt var að leikmenn íslenska liðsins voru staðráðnir í að halda áfram á sömu braut og fá tækifæri til þess að leika við bestu þjóðir álf- unnar.“ íslenska liðið náði strax undir- tökunum í leiknum gegn Rúmen- um, komst í 12:6 og 31:15 og staðan í leikhléi var 32:30. Aðeins minnk- Jóhannes varði titilinn JÓHANNES B. Jóhannes- son, Islandsmeistari í snóker, varði á laugardag titil sinn er hann lagði Brynjar Valdimarsson sannfærandi í úrslitaleik ísiandsmótsins, 9:1. Jó- hannes varð Islandsmeist- aði bilið eftir hlé en með góðri vörn tókst að halda fengnum hlut. Her- bert Arnarson var stigahæstur í ís- lenska liðinu, gerði 22 stig. Helgi Jónas Guðfinnsson var með 20 sem og Falur, Guðmundur Bragason gerði 10. íslendingar töpuðu fyrir Slóvök- um á laugardag, 49:64. Samningur Jóns Kr. við Körfuknattleikssamband Islands rann út eftir keppnina í Slóvakíu. Jón sagði það draum sinn að fá að halda áfram með liðið og hann teldi það eðlilegt að KKI gæfi honum tækifæri til þess. „Ég hef fengið mikla reynslu sem landsliðsþjálfari á undanförnum árum og hef fundið stuðning frá leikmönnum, sem vilja að ég haldi áfram,“ sagði Jón, sem lagði starf sitt að veði fyrir leikina í Slóvakíu. Hann sagði að mál sín hjá landsliðinu skýrðust á næstu dög- um. Jón sagði árangur landsliðsins, sem vann Kýpur, Wales og Rúm- ena á mótinu, sýna að íslenskur körfubolti væri á mikill uppleið. „Við mættum ekki með okkar sterkasta lið, vorum án Hermanns Haukssonar og Teits Örlygssonar en tókst engu að síður að ná þess- um árangri. Ég tel þetta vísbend- ingu um aukna breidd í íslenskum körfubolta og að við séum að kom- ast lengra heldur en Norðurlanda- þjóðirnar Norðmenn og Danir, sem við höfum borið okkur saman við, en þær sátu eftir í undanriðlum EM.“ Dregið verður í undanúrslitariðl- um EM í Frakklandi í júlí. t • Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson RAGNHILDUR Sigurðardóttir kannar aðstæður á flöt, áður en hún púttar. Öm Ævar og Ragn- hildur best í Eyjum ÖRN Ævar Hjartarson, GS, og Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, fögnuðu sigri á fyrsta stigamóti sumarsins í golfi sem fór fram í Eyjum um helgina. Leiknar voru 36 holur á laugardag, 18 á sunnudaginn - að vísu með þeirri undantekningu að í kvenna- flokki varð að fresta þremur síðustu holunum fyrri daginn til næsta dags vegna myrkurs. Vindar blésu ekki byrlega fyrri dag- inn og var erfitt að leika golf á annars ágætum vellinum í Eyjum en síðari daginn var veðrið mun betra og kom þetta berlega fram á skori kylfinganna. Sigfús Gunnar Guðmundsson skrífar Eftir 36 fyrstu holurnar var nán- ast allt í hnút í karlaflokknum - Örn Ævar Hjartarson, GS, og Har- aldur Hilmar Heimis- son, GR, leiddu, voru á 12 höggum yfir pari en síðan kom hópur kylfinga rétt á hæla þeim þannig að allt var opið fyrir síðustu átján holumar, Örn Ævar (222 höggum) var þó ekkert á því að láta toppsætið því hann lék vel seinni dag - lék völlinn á pari og sigraði með fjögurra högga mun, næstur kom Kristinn G. Bjarnason, GR (226 höggum), hann lék einnig á pari seinni daginn. Haraldur Hilm- ar Heimisson, GR (227 höggum), varð svo þriðji eftir að hafa sigrað Júlíus Hallgrímsson, GV (227), í bráðabana. „Vonandi byrjunin" Örn Ævar Hjartarson var ánægður með sigurinn. „Petta gekk mjög vel í dag [sunnudag] - sér- staklega seinni níu holurnar. Ég átti í smá erfiðleikum í byrjun, en ég náði að bjarga mér á seinni níu hol- unum, sem er reyndar mjög óvenju- legt á þessum velli. Ég náði að leika holurnar níu á tveimur undir pari. Fyrri dagurinn var erfíður, þar sem vindurinn var sterkur og erfitt að stjórna boltanum á flötunum. Sigur- inn hér er vonandi byrjunin á góðu sumri hjá mér,“ sagði Öm Ævar. Eyjamaðurinn Porsteinn Hall- grímsson, sem keppir nú fyrir GR, mætti á heimaslóðir. Honum gekk ekki sem best - varð sextándi á 239 höggum. Þorsteinn sagðist hafa unnið eitt á mótinu - fengið flest vítin. Sex kúlur hans fóm útaf braut, tvær enduðu í tjörn. Öruggt hjá Ragnhildi Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (229 högg), stóð uppi sem sigurveg- ari í kvennaflokki. Hún hafði gott forskot eftir 36 íyrstu holurnar - sex högg - og bætti svo tveimur við á lokahring, þannig að hún sigraði með 8 högga mun. Olöf María Jóns- dóttir, GK (237 högg), kom næst og þriðja varð Herborg Arnarsdóttir, GR (244 högg). Kvenfólkið gat ekki alveg lokið fyrstu 36 holunum íyrri daginn vegna myrkurs og þær hófu því daginn á að klára þær þi'jár hol- ur sem eftir vom áður en þær lögðu af stað í lokahringinn. Ragnhildur, sem var einu höggi undir pari fyrir síðustu þrjár hol- umar á seinni keppnisdeginum, endaði með því að leika á tveimur höggum yfir pari. „Astæðan fyrir þessu var klaufaskapur hjá mér við flatirnar," sagði Ragnhildur. ■Schwe^eSj~,!!^> á íslandi / - o O O O - ^OOOOOOO', fO OOOOOOOO1 llOOOOOOOQOI tOOOOOOOOOi ftOOOOOOOj o O ° O O o Schweppes Open í Grafarholti 29. maí 1999. Leiknar verða 18 holur með schramble fyrirkomulagi, tveir í liði. Hámarksforgjöf er 36. Kariar leika af gulum teigum og konur af rauðum. Vegleg verðlaun verða veitt fyiir 1.-5 sæti. 1. Verðlaun ViP-ferð með flugi og gistingu á British Open í júlí 1999. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.