Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 B 11 KNATTSPYRNA Reuters PETER Schmeichel, markvörðurinn snjalli hjá Man. Utd, og Alex Ferguson með bikarinn á Wembley. Manchester United tók báða titlana af Arsenal og leikur um þann þriðja í kvöld Tveir komnir í húsf einn efíir MANCHESTER United varð á laugardag enskur bikarmeistari í knattspyrnu er liðið sigraði Newcastle, 2:0, á Wembley-leikvang- inum í Lundúnum. Þetta er í þriðja sinn sem Man. Utd. vinnur tvöfalt í ensku knattspyrnunni - bæði deild og bikar og er það met. Hetja leiksins var varamaðurinn Teddy Sheringham. Hann kom inn á sem varamaður snemma leiks, skoraði strax mark og lagði svo hitt upp fyrir Paul Scholes. Sheringham, sem er 33 ára og margreyndur enskur landsliðsmaður, hafði fyrir leiktíðina aldrei unnið titil á ferlinum, en á nú tvær og getur ásamt félög- um sínum bætt þeirri þriðju við í kvöld í úrslitaleik Meistara- keppni Evrópu gegn Bayern Munchen. Leikmenn Man. Utd tryggðu sér enska meistaratitilinn helgina áð- ur og á laugardag voru þeir miklu sterkari en leikmenn Newcastle. Fyrirliðinn Roy Keane varð að fara af velli snemma leiks vegna meiðsla og kom Sheringham inn á í stað hans. Hann hafði ekki verið lengi inni á er hann skoraði fyrsta mark leiksins með laglegum hætti og það mark skildi liðin að í leikhléi, þrátt fyrir nokkur ágæt tækifæri meistar- anna til að auka forystuna. „Það er ótrúlegt hvað hlutirnir eru fljótir að gerast í knattspym- unni. Eina stúndina siturðu rólegur á bekknum og á næstu mínútu ertu búinn að skora í sjálfum úrslita- leiknum,“ sagði Sheringham eftir leikinn, en hann var næstum búinn að bæta öðru marki sínu við undir lok leiksins, en lagleg vippa hans fór í þverslána. Hann lagði þó upp síðara mark liðsins, fyrir Paul Scholes á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Markið kom nokkuð gegn gangi leiksins. Duncan Ferguson kom inn á sem varamaður í liði Newcastle í leikhléi og hleypti strax miklu lífi í sóknarleik sinna manna. Það kom því eins og köld vatnsgusa er leik- menn Man. Utd bættu öðru marki við. Gríski varnarmaðurinn Nikos Dabizas gerði sig sekan um slæm mistök í vöm Newcastle, sendi knöttinn beint á Ole Gunnar Sol- skjær og þaðan barst knötturinn til Sheringham sem lagði upp gott skot Scholes í mitt markið. „Eg tel ekki að þetta hafi verið eitt af fallegustu mörkum ársins, enda hitti ég knött- inn frekar illa. En sem betur fer fór knötturinn inn,“ sagði Scholes eftir leik og var hinn hógværasti. Eftir leikinn átti Ferguson bágt með að leyna gleði sinni. Hann jós varamanninn Teddy Sheringham sérstaklega lofi. „Teddy var hreint frábær og lykill okkar að sigri í leiknum. Leikmenn- imir hafa allir verið stórkostlegir á þessu keppnistímabili og ég er bæði sæll og stoltur yfir því sem hefur áunnist," sagði hann. Danski markvörðurinn lék sinn síðasta leik fyrir liðið á enskri gmnd og hann var sigurreifur í leikslok. „Þetta var erfiður leikur á hörðum velli og á stundum fannst mér við vera þreyttir. En þetta gekk og ég hlýt að vera hamingjusamur með það. Ég er líka bjartsýnn fyrir Evr- ópuleikinn og þá náum við þriðja titl- inum,“ sagði markvörðurinn. Hollenski knattspymustjórinn Ruud Gullit hjá Newcastle, sem gerði Chelsea að bikarmeisturum 1997, var allt annað en kátur. „Þetta er sárt, því við vorum komnir inn í leikinn og er svo refsað íyrir slæm vamarmis- tök. Þar með var leikurinn búinn fyr- ir okkur. Staðreyndin er sú að lið Man. Utd býr yfir slíku einvalaliði leikmanna að þeir geta nánast skorað að vild. Leikmenn vinna allir vel hver iyrir annan og era gæðalið.“ Gullit, sem líklega verður áfram stjóri Newcastle, sagði að liðið þyrfti að byggja upp nýtt lið, losa sig við leikmenn og kaupa aðra í staðinn. „Við verðum að taka eitt skref fyrir í einu,“ sagði hann. Fyrirliðinn Alan Sherarer sagði að það hefði verið vond tilfinning að tapa fyrir Arsenal í fyrra og nú væri sú tíl- finning mætt á ný. „Við getum samt ekki annað en viðurkennt að þeir voru betri. Gangi þeim vel á miðvikudags- kvöld [í kvöld]. Þeir eru með gott lið og ég vona að þeir bæti þriðja títlinum við gegn Bayem,“ sagði fyrirliðinn. Sheringham kallaður í landsliðshópinn TEDDY Sheringham sagði eftir bikarúrslitaleikinn að hann stefndi að því að komast á nýjan leik í enska landsliðið. Það virðist ætla að ræt- ast þjá honum, því Kevin Keagan, þjálfari landsliðsins, segir að Teddy verði í 24 leikmanna hdpi sínum fyrir leikinn gegn Svíum í byrjun næsta mánaðar. „Teddy hefiir ekki leikið reglulega og því gat ég ekki valið hann. Nú er hann mjög heitur og á sama tíma eru Dion Dulilin og Michael Owen meiddir," sagði Keagan og var hinn sáttastí. Ferguson sigur- sælastur ALEX Ferguson, hinn skoski knattspyrnustjóri Man. Utd., er sigursæl- asti „stjórinn“ í sögu ensku bikarkeppninnar. Með sigrinum á Newcastle hefur Fergu- son stýrt liði sínu til fjög- urra bikarsigra - 1990, 1994 og 1996 og nú 1999. Það hefur engum knatt- spyrnusfjóra tekist áður í 127 ára sögu þessarar elstu útsláttarkeppni heims. Shering- ham stjarna leiksins TEDDY Sheringham, sem margir hafa gagn- rýnt harðlega á leiktíð- inni og ekki talið eiga heima í hinu sterka liði Man. Utd., var stjarna bikarúrslitaleiksins og hefur nú á skömmum tíma eignast tvo sigur- verðlaunapeninga - þá fyrstu á löngum ferlinum. „Ég er 33 ára og þá eru ekki margar slíkar stundir eftir. Sfjórinn velur í Iiðið og maður bíður og vonast til að verða valinn. Síðustu dagar hafa verið stór- fenglegir og þetta er eitt- hvað sem ég hefði ekki getað látið mig dreyma um,“ sagði Sheringham, sem keyptur var frá Tottenham fyrir síðustu leiktíð. Sárabót fyrir Paul Scholes SEINNA mark Man. Utd. skoraði Paul Scholes og hefur það eflaust verið honum einhver sárabót, því hann verður í leik- banni í kvöld er liðið leik- ur gegn Bayern MUnchen í Barcelona. Hið sama gildir um fyrirliðann Roy Keane, sem varð að fara meiddur af velli á upp- hafsmínútum bikarúr- slitaleiksins. Litlu munaði raunar að Scholes gæti ekki tekið þátt f úrslitum bikar- keppninnar, því hann fann fyrir verkjum í brjósti skömmu fyrir leik og var settur í skyndi í læknisskoðun. Eftir hana var afráðið að láta pilt leika og sjá menn sjálf- sagt ekki eftir því.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.