Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 10
10 B MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
"5
Milan
meistari
AC MILAN tryggði sér á
sunnudag ítalska meistaratit-
ilinn í knattspyrnu í sextánda
sinn í sögu félagsins og þann
fimmta á síðustu átta árum.
Mílanó-liðið sigraði Perugia á
útivelli, 1:2, og gerði vonir
Rómarliðsins Lazio um meist-
aratitil að engu.
Lazio sigraði Parma, 2:1, á
Ólympíuleikvanginum í Róma-
borg, en það dugði ekki til og Róm-
verjar verða að láta sér lynda ann-
að sætið. Það er ekki svo rýr upp-
skera, enda færir það liðinu, sem
varð Evrópumeistari bikarhafa á
dögunum, sæti í Meistaradeild Evr-
ópu á næstu leiktíð. Hins vegar er
grátlegt íyrir leikmenn Lazio að
hafa glutrað tækifærinu niður, því
baráttan um titilinn hefur í raun
staðið milli þeirra og Fiorentina í
allan vetur, en á endasprettinum
stökk gamla risaveldið frá Mílanó
fram í sviðsljósið og hirti titilinn -
enduðu með einu stigi meira en
Lazio.
„Við eigum þetta skilið. Ég til-
einka leikmönnum mínum þennan
titil,“ sagði Alberto Zaccheroni,
þjálfari Milan, sem kom frá Udi-
nese fyrir tímabilið. Hann nær
meistaratitli á sínu fyrsta ári og
það þótt hann hafi aðeins keypt tvo
leikmenn, báða frá Udinese - Oli-
ver Bierhoff og Thomas Helveg. Að
öðra leyti lét hann sér nægja álit-
legan leikmannahóp AC Milan, sem
þó hafði aðeins náð 10. og 11. sæti í
deildinni síðustu tvö árin.
Aðdáendur Lazio fögnuðu sínum
mönnum ákaft, þrátt fyrir úrslitin.
Ef AC Milan hefði ekki unnið sjö
síðustu leiki sína hefði Lazio enda
náð fyrsta meistaratitli sínum í 25
ár.
„Þetta er stórkostlegur draumur,
sem því miður rættist ekki,“ sagði
Sergio Cragnotti, eigandi Lazio og
einn ríkasti maður Ítalíu. Hann hef-
ur dælt fjármunum til liðsins á und-
anfömum árum og gert því kleift að
kaupa marga af bestu knattspymu-
mönnum heims. Lazio var lengst af
á toppi deildarinnar, m.a. í þrjá
mánuði samfleytt. En Milan komst
á toppinn eftir næstsíðustu umferð-
ina og gaf það ekki eftir.
Lazio var mun sterkara í viður-
eigninni við Parma og nautabaninn
Marcello Salas skoraði bæði mörk
liðsins. Milan var einnig sterkara
gegn Peragia, en geta þó þakkað
markverði sínum sigurinn að
nokkra leyti, því hann varði
nokkram sinnum stórkostlega í
seinni hálfleik.
Auk Milan og Lazio verða Fior-
entina og Parma í Meistaradeild-
inni á næstu leiktíð og er óhætt að
telja öll hðin líkleg til afreka á þeim
vettvangi. Roma tryggði sér rétt til
að leika í hinni nýju UEFA-keppni,
en Juventus, Udinese, Bologna og
Intemazionale verða að leika um
önnur tvö sæti Itala í þeirri keppni.
Tapliðin tvö úr þeim viðureignum
fá sæti í Inter-Toto, Getrauna-
keppni Evrópu.
Van Gaal skaut föstum
skotum í Barcelona
HOLLENSKI þjálfarinn Louis van Gaal skaut föstum skotum að
spænskum íþróttafréttamönnum á sunnudag eftir að lið hans,
Barcelona, tryggði sér Spánarmeistaratitilnn í knattspyrnu ann-
að árið í röð á laugardagskvöld með 4:1-sigri á Alaves. Þótt enn
séu þrjár umferðir eftir af spænsku deildinni er staða Börsunga
trygg á toppnum og þeir fagna sjötta titli sínum á þessum áratug
og þeim sextánda í sögu þessa fornfræga félags, sem fagnar
aldarafmæli sínu á þessu ári.
Ván Gaal hefur verið harðlega
gagnrýndur fyrir stjórri sína á
Katalóníu-stórveldinu, ekki síst fyr-
ir þær sakir að þjóðhollir Spánverj-
ar, einkum Katalóníubúar, telja frá-
leitan allan þann fjölda Hollendinga
sem með liðinu leikur. Alls eru átta
hollenskir landsliðsmenn innan vé-
banda liðsins auk þess sem van Gaal
hefur sér við hlið þrjá hollenska að-
stoðarmenn, þeirra á meðal Ronald
Koeman, stórskyttuna gömlu.
Arangurinn hefur þó ekki látið á
sér standa og seinni hluta leiktíðar-
innar hefur Barcelona haft umtals-
verða yfirburði. Hin óvenjulega
leikaðferð liðsins, 3-3-3-1, hefur
skilað sínu og þjálfarinn notaði svo
tækifærið í sigurvímunni á sunnu-
dag og lét spænsku pressuna heyra
það.
„Nú vil ég að fjölmiðlar skýri frá
því sem hefur átt sér stað, hverju
við höfum áorkað, í stað þess að
gagnrýna mig og hagræða sannleik-
anum,“ sagði hann.
„Mikilvægast er þó að aðdáendur
Barcelona, fólkið á götunni, hafa
ávallt staðið með mér. Fólkið hefur
ávallt sýnt mér stuðning."
Tugþúsundir æstra Barcelona-
búa þustu út á götur borgarinnar
eftir að úrslitin vora ljós á laugar-
dagskvöld. Hetjur þeirra eru enda
ótvíræðir sigurvegarar í spænsku
knattspymunni - hafa tapað einum
leik af síðasta 21 og unnið 17. And-
stæðingarnir í Mallorca, Celta Vigo,
Valencia og Real Madrid, stóðu
þeim hvergi á sporði og úrslitin era
nú ljós þótt enn séu níu stig eftir í
pottinum.
En margt hefði getað farið öðra-
vísi. Fyrir jól gekk gagnrýnin á van
Gaal nefnilega svo langt að hann
bauðst til að segja af sér. Þá hélt
forseti félagsins, Josep Lluis Nu-
nez, ró sinni þrátt fyrir meiðsli lyk-
ilmanna og slaka framgöngu liðsins
í Meistaradeildinni.
Spænskir fjölmiðlungar fóru þá
mikinn í skrifum sínum og heimtuðu
afsögn - eða uppsögn - hollenska
þjálfarans. Sumir fjölmiðlar sýndu
m.a. fram á það í vafasömum skoð-
anakönnunum að aðdáendur liðsins
vildu þjálfarann frá.
Neyðarfundur stjómar liðsins,
18. desember sl., ákvað þó að lýsa
yfir fullri samstöðu með þjálfaran-
um og aðferðum hans. Raunar mun-
aði aðeins einu atkvæði í þeirri at-
kvæðagreiðslu og stuðningur for-
setans vó þar þyngst, enda hafði
hann fagnað ógurlega með honum
árið á undan og lagt mikið undir til
að fá hann frá Ajax á sínum tíma.
Van Gaal og leikmenn liðsins hafa
nú endurgoldið það traust og sýnt
og sannað að þeir era besta lið
Spánar og um leið evrópskrar
knattspyrnu.
Aðeins er nú eftir að sýna styrk-
leik sinn á leiksviði Meistaradeild-
arinnar og þar eru Börsungar stað-
ráðnir í að gera betur næstu leiktíð.
Þeir ættu að geta lært sitthvað af
úrslitaleik Meistaradeildarinnar í
kvöld, en leikur Manchester United
og Bayern Miinchen fer einmitt
fram á Camp
Nou, leikvelli
félagsins. Bæði
voru liðin í riðli
með Barcelona í
Meistaradeild-
inni og varð
spænska liðið að
horfa á eftir
þeim upp í út-
sláttarkeppnina
en sitja sjálft eft-
ir með sárt enn-
ið. Eftir standa
þó í minningunni
tvær stórkost-
legar viðureign-
ir við ensku
meistarana, sem
báðar enduðu
með jafntefli,
3:3.
HOLLENDINGAR fagna - framherjinn Patrick Kluivert og þjálfarinn Louis van Gaal fagna
eftir 4:1-sigur Barcelona á Alaves á laugardagskvöld.
Helgi og Tryggvi í liði vikunnar
ÞRÍR landsliðsmenn íslands voru
á skotskónum í Noregi um helg-
ina. Helgi Sigurðsson hjá Stabæk
og Tryggvi Guðmundsson hjá
Tromsö skoruðu hvor sín tvö
mörkin og voru þeir valdir í lið
vikunnar hjá Nettavisen - sem
sóknardúett liðsins. Alls léku tíu
Islendingar með liðum sinum í 8.
umferðinni.
Helgi Sigurðsson var valinn
maður leiksins þegar lið hans,
Stabæk, lagði Valerenga á úti-
velli, 3:1. Stabæk hefur verið í
vandræðum vegna meiðsla leik-
manna og enn bættist í hóp
meiddra þegar einn Iykilleik-
manna liðsins, Axel Kolle, var
borinn út af á 12. mínútu, eftir að
hafa skorað fyrsta mark leiksins.
Á 62. minútu jafnaði norski lands-
liðsmaðurinn John Carew fyrir
heimamenn á Bislet leikvangin-
um. Það var svo Helgi sem gerði
út um leikinn með tveimur mörk-
um, á 72. og 86. mínútu. Eftir leik-
inn sagði Helgi síðara markið
vera það glæsilegasta sem hann
hafi skorið í Noregi, en hann vipp-
aði boltanum yfir markvörð Val-
erenga af 18 metra færi. Pétur
Marteinsson var einnig í liði Sta-
bæk og spilaði vel.
Tromsö, lið Tryggva Guð-
mundssonar, hefur heldur betur
sótt í sig veðrið eftir slaka byijun
í mótinu. Liðið hefur skorað 13
mörk í þremur sfðustu leikjum.
Um helgina komu Rúnar Kristins-
son og Heiðar Helguson með Lil-
leström í heimsókn norður. Eftir
að Tromsö hafði komist í 2:0
minnkaði Heiðar muninn. Færðist
þá mikil spenna í leikinn og Lil-
leström var ekki langt frá því að
jafna þegar Tryggvi tók til sinna
ráða og gerði tvö mörk á síðustu
16 mínútunum, 4:1. Þar með
komst Tromsö fram fyrir Víking,
upp í fimmta sæti deildarinnar, og
er tveimur stigum á eftir Lille-
ström.
Þrír Islendingar byijuðu inná
þegar Strömsgodset tók á móti
Viking. Valur Fannar Gíslason
var með frá byrjun í Strömsgod-
set og Stefán bróðir hans kom
inná sem varamaður. Þeir léku
vel og hjálpuðu liði súiu að landa
sigri eftir sex tapleiki í röð. Leik-
urinn einkenndist af baráttu og
fór 1-0. Auðun Helgason og Rík-
arður Daðason léku með Vík-
ingsliðinu.
Steinar Adolfsson lék með
Kongsvinger þegar það nældi sér
í fyrstu stig sumarsins - með 1:0
sigri á Moss.
Sá leikur sem vakti mesta at-
hygli var viðureign toppliðanna
Molde og Rosenborg. Molde var
meira með boltann en nýtti ekki
færin sín svo að Rosenborg fór
heim með þrjú stig eftir 0:2 sigur.
Rosenborg og Stabæk eru nú
jöfn á toppi deildarinnar með 19
stig og Molde í þriðja sæti með 18.
Þriggja vikna hlé verður nú
gert á deildinni áður en 9. umferð
verður leikin.
Meistarar á
aldarafmælinu
TVÖ stórveldi í evrópskri knattspyrnu fögnuðu
meistaratitli um helgina á aldarafmælum sín-
Um. i Í8B-1
Spænska stórliðið Barcelona tryggði sér
Spánarmeistaratitilinn á laugardagskvöld ogA >
litlu síðar höfðu leikmenn AC Milan gert hið p
sama á Italíu.
Þess má geta að Knattspyrnuféiag Reykja-
víkur fagnar aldarafmæli sínu á árinu, en
hvort það dugar þeim til fyrsta íslandsmeist-
aratitils sins í 31 ár skal ósagt látið.