Morgunblaðið - 04.06.1999, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannveig formað-
ur þingflokks Sam-
fylkingarinnar
Morgunblaðið/Jim Smart
NY stjórn þingflokks Samfylkingarinnar.
Jóhann Ársælsson, varaformaður þing-
flokksins, Rannveig Guðmundsdóttir for-
maður og Guðrún Ógmundsdóttir ritari.
RANNVEIG Guð-
mundsdóttir, þingmað-
ur Reyknesinga, var
kjörin formaður þing-
flokks Samfylkingar-
innar á fundi þing-
flokksins í Þórshamri í
Reykjavík í gær. Jó-
hann Ársælsson, þing-
maður Vesturlands,
var kjörinn varafor-
maður þingflokksins
og Guðrún Ogmunds-
dóttir, þingmaður
Reykvíkinga, var kjör-
in ritari. Að loknu
stjórnarkjöri var m.a.
farið yfir vinnureglur
þingflokksins, aðbún-
að hans og verkefni á
næstunni að sögn ný-
kjörins þingflokksfor-
manns, en eins og
kunnugt er kemur
nýtt þing sarnan nk.
þriðjudag.
Þingflokksfundur-
inn í gær var annar í
röðinni eftir alþingis-
kosningarnar í vor og
bárust honum í upp-
hafí fundarins góðar
kveðjur frá Benedikt Gröndal,
fyrrverandi formanni Alþýðu-
flokksins. Með þeim kveðjum
fylgdi fundarhamar smíðaður af
listamanni í byggðum Sama í
Norður-Svíþjóð. „Benedikt Grön-
dal fékk þennan fundarhamar til
að stýra fundum á Stokkhólms-
ráðstefnunni um afvopnun og
frið í Evrópu fyrir fimmtán árum
og segir hann að hamarinn hafi
reynst vel fyrir góðan málstað,“
sagði Rannveig í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Benedikt
er að óska okkur til hamingju
með að hafa myndað Samfylking-
una og að hún skuli vera annað
sterkasta aflið á Alþingi Islend-
inga. Hvetur hann okkur til dáða
með góðum orðum og var það
mikils virði að fá þessa fallegu
gjöf inn á fund okkar núna í upp-
hafi okkar starfa,“ sagði Rann-
veig.
Iðnaðarráðherra um fjármögnun álvers á Reyðarfírði
Eignarhlutföll
gætu ráðist af við-
brögðum fjárfesta
ÁLVER hefur verið teiknað inn á myndina með aðstoð tölvutækninn-
ar og sýnir hún staðsetningu þess í Reyðarfirði samkvæmt upplýsing-
um Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar.
FINNUR Ingólfsson iðnaðar- og
viðskiptaráðherra segir að eignar-
hlutfóll í fyrirhuguðu álveri á Reyð-
arfirði geti orðið önnur en greint
var frá í Morgunblaðinu sl. miðviku-
dag. Það ráðist af viðbrögðum fjár-
festa. Hann segir að margar hug-
myndir hafi verið uppi um skiptingu
á eignarhlutum frá því fyrst var far-
ið að ræða málið. Lengi hafi verið til
umræðu að eignarhluti Norsk
Hydro yrði 40% og í meðförum
málsins hafi hlutur þess í verkefn-
inu verið að minnka. Hins vegar
hafi frá upphafi legið fyrir að um
verulegan íslenskan hlut yrði að
ræða. Hann segir að innlendir lang-
tímafjárfestar hafi verið upplýstir
um líklega niðurstöðu í þessum efn-
um fyrir nokkru, þ.e. að eignarhluti
íslenskra og annarra erlendra fjár-
festa annarra en Norsk Hydro gæti
orðið á bilinu 75-80%.
„Nú eru menn komnir niður á það
að eignarhluti Norsk Hydro gæti
orðið 20-25%. Heildarkostnaður
verkefnisins er áætlaður um 30
milljarðar ki-óna. Fjármögnun með
eigin fé yrði í ki-ingum 10 milljarðar
króna og gert hefur verið ráð íyrir
því að hlutur langtímafjárfesta á ís-
landi geti verið í kringum 40% eða 4
milljarðar króna. Norsk Hydro
legði fram 2,5 milljarða króna og
aðrir aðilar á markaði, bæði inn-
lendir og erlendir, legðu fram
30-40%, eða 3-4 milljarða. Þetta
hafa menn verið að horfa á upp á
síðkastið sem kost í fjármögnun
verkefnisins," segir Finnur.
Ekkert með samdrátt í rekstri
Norsk Hydro að gera
Hann segir að breytingar á eign-
arhlutföllum hafi verið að þróast í
viðræðum manna á milli um verkefn-
ið á undanfömum mánuðum. Breyt-
ingar á hugmyndum um eignarhlut-
föll hafi ekkert með samdrátt í
rekstri álvera Norsk Hydro að gera.
Ávallt hafi verið gengið út frá því að
um verulegan innlendan hlut yrði að
ræða án þess að það hafi verið fest
niður nákvæmlega hvað í því fælist.
„Eignarhlutfóllin gætu orðið önn-
ur og það ræðst auðvitað mjög mikið
af því hvemig hugsanleg viðbrögð
verða hér við þessu,“ segir Finnur.
Aðspurður um hvers vegna þessi
breyting á hlutföllunum hafi ekki
verið upplýst fyrr segir Finnur að
það hafi ekki verið hægt þar sem
málið hafi á þennan hátt þróast í
viðræðunum í marga mánuði. Það
gerist síðan í júní næstkomandi að
tekin verði ákvörðun um það hvort
menn ætli að ráðast í verkefnið.
„Það er gengið út frá því að í lok
júnímánaðar verði undirrituð yfir-
lýsing um það að næsta skref verði
stigið," segir Finnur.
Ungar stúlkur misnotaðar eftir kynni við eldri menn á spjallrásum
Spjallrásirnar ekki
eins saklausar
og margir halda
LÖGREGLAN í Reykjvík hefur haft
til rannsóknar nokkur kærumál, sem
varða kynferðisbrot og nauðganir
gegn 14-18 ára stúlkum, sem rekja
má beinlínis til samskipta þeirra við
eldri karlmenn sem hafa byrjað á
spjallrásum á Netinu og leitt síðan
tO frekari kynna með áðumefndum
afleiðingum.
Að sögn Björgvins Björgvinssonar
lögreglufulltrúa em mál af þessu tagi
ekki mjög mörg en þau hafa verið að
koma upp á síðastliðnum tveimur ár-
um. Ennfremur hefur verið tilkynnt
um hótanir og rógburð á spjallrásum
eða irkinu, þó einkum meðal eldri
notenda og segir Björgvin að slíkum
tilkynningum fari fjölgandi.
Lögreglan vildi ekki upplýsa hve
mörg mál nákvæmlega hér um ræð-
ir, en nefnir að rannsókn sumra mál-
anna hafi leitt til handtöku nokkurra
aðila sem kærðir hafa verið til lög-
reglu vegna misnotkunar eða kyn-
ferðisbrota gegn ungum kvenkyns
spjallrásarfélögum. Hafa sum málin
sem lögreglan hefur rannsakað leitt
til ákæru og dómsmeðferðar.
Að sögn Björgvins telur lögreglan
að líklegt sé að aðeins brot af þess-
um málum komi til kasta lögreglunn-
ar.
„Ein ástæðan gæti verið sú að við-
komandi finnur til sektarkenndar og
skammast sín. Um leið og hann fer
til lögreglunnar verður hann að
segja foreldrum sínum frá öllum
málavöxtum," segir Björgvin.
Sú framvinda sem á sér stað hér-
lendis í þessum málum er að sögn
Björgvins í takt við það sem er að
gerast á Norðurlöndunum og víða
erlendis þar sem Netnotkunin hefur
breiðst út.
í ljósi þess að tölvur og Netbúnað-
ur teljast nú til sjálfsagðra heimilis-
tækja á mjög mörgum íslenskum
heimilum og ekki síst í ljósi þess að
aðgangur barna er greiður að þeim,
segir Björgvin að ábyrgð foreldra sé
mikil þegar kemur að notkun bama
á spjallrásum, sem eru ekki eins sak-
lausar og margir halda.
„Það er staðreynd að liður í því að
verða fullorðinn er að nota Netið.
Þetta er hlutur sem hefur ekki verið
fyrirferðarmikill í uppvextinum
þannig að það er tiltölulega nýtt fyr-
ir börn að takast á við þetta í þroska-
ferlinu. Á Netinu er allt opið og leyfi-
legt og hver sem er getur sagt sína
skoðun óhindrað. Þar gilda önnur
lögmál en úti í þjóðfélaginu þar sem
ákveðnir staðir eru lokaðir ungu
fólki eins og barir, spilasalir og eró-
tískir' ’Staðrr'-avO'nokkur dæmi séu
nefnd. En á Netinu er hinsvegar allt
opið.“
Foreldraeftirlit er mikilvægt
Björgvin segir að í ljósi þessa sé
mikilvægt að foreldrai- hafi eftirlit
með Netnotkun bama sinna inni á
heimilunum og til að minnka líkumar
á því að böm dragist inn í samskipti
við menn, sem eru að leita sér að
fómarlömbum, megi athuga nokkur
atriði varðandi spjallrásimar.
„Foreldrar verða fyrst og fremst
að fylgjast með því við hverja böm
þeirra era að spjalla. Á spjallrásun-
um eru alltaf notuð gælunöfn og það
er eftirtektarvert að margir segja
ósatt um aldur sinn. Það er því gott
fyrir foreldrana að átta sig á því, sér-
staklega varðandi stúlkur, að ef þær
eiga einhverja sérstaka spjallvini,
hverjir þetta eru og hvað þeir eru
gamlir og undir hvaða gælunafni
þeir spjalla. Þegar menn nota gælu-
nöfn sem tengjast kynlífi ættu for-
eldrarnir að hugleiða hvað um er að
ræða.
Þótt spjallrásarfélagi á irkinu sé
ljúfur og þægilegur á allan hátt er
ekki þar með sagt að hann sé það við
nánari kynni,“ segir Björgvin. „Þetta
eru tveir ólíkir þættir, að kynnast á
Netinu og kynnast á þann hátt sem
fólk kynnist yfirleitt. Það þekkir
ekki hvort annað þótt það sé búið að
tala saman nokkuð lengi á Netinu.
Þetta er það sem lögreglan rekur sig
á, að aðili telji sig geta treyst við-
komandi því hann var svo þægilegur
í samtölum á Netinu."
,Á spjallrásunum virðist fólk opna
algjörlega fyrir sínar leyndustu til-
finningar og það er svo auðvelt fyrir
menn, sem era þannig gerðir, að not-
færa sér það. Krakkar geta farið að
skýra frá sínum leyndustu hugsun-
um og ef t.a.m. stúlkur sem eru ekki
ánægðar með útlit sitt segja ókunn-
ungum spjallrásarvini það, getur við-
komandi auðveldlega notfært sér
það ef hann finnur að sjálfsmat
stúlkunnar er lágt, sérstaklega ef
hann er eldri en hann segist vera.
Hann getur hrósað henni, sagt henni
að hún sé falleg og að hann verði að
fá að sjá hana. Þannig geta menn
fengið stúlkur til að fallast á að hitta
sig með auðveldum hætti þannig að
foreldrar eiga að vera mjög á verði.“
Mjög varasamt
Að sögn Eyrúnar Jónsdóttur um-
sjónarhjúkrunarfræðings á neyðar-
móttöku vegna nauðgunar á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur hafa tvær ungar
stúlkur komið á neyðarmóttöku
sjúkrahússins vegna nauðgunar, sem
rekja má til þess að þær hittu sér
eldri menn sem þær höfðu kynnst á
spjallrásum.
Eyrún segir, aðspurð að því hvaða
hugrenningatengsl það veki þegar
ungir þolendur lýsi af hvaða rótum
ofbeldið sé rannið, að foreldrar þurfi
að vera meðvitaðir um það við hverja
böm þeirra tali á spjallrásunum.
„Þetta er mjög varasamt," segir
hún. „Ef börn eru að fara að hitta
einhverja af spjallrásunum ættu þau
ekki að mæla sér mót ein síns liðs við
einhvern sem þau þekkja ekki, þótt
þau hafi verið búin að ræða málin.
Það er ekki hægt að segja að það sé
hægt að þekkja einhvern persónu-
lega þótt viðkomandi hafi spjallað
við hann á irkinu í einhvern tíma.
Okkur finnst þetta mjög slæm þróun
ef þetta er það sem er væntanlegt,"
segir Eyi-ún.
Nýtt á Mallorca
Port d'Andratx
- þar sem rómantíkin blómstrar
„fcW.9-2106
Samvinnuferðir
Landsýn
Á verði fyrir þigl