Morgunblaðið - 04.06.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999 25
Gucci leitar
fjárfesting-
artækifæra
Reuters.
ÍTALSKA Gucci tískuhúsið leitar
nú fjárfestingartækifæra á lúx-
usvörumarkaðnum, innan og utan
Italíu, að sögn stjórnarformanns-
ins Domenico De Sole.
Guccj vann áfangasigur þegar
tískuhúsinu tókst að minnka eign-
arhlut keppinautarins LVMH í
tískuhúsinu verulega og fá Gucci
nafnið í vörumerki fyrirtækisins.
Nú hefur Gucci rúma þrjá millj-
arða dollara til umráða og hefur
áhuga á að bæta við sig litlum og
stórum lúxusvörumerkjum.
Verður YSL merkið
eign Gucci?
Gucci hefur á prjónunum að
kaupa Sanofi snyrtivörumerkið en í
því felst m.a. Yves Saint Laurent
merkið. Pessi áform verða lögð fyr-
ir stjóm fyrirtækisins í júlí nk. og á
yfirtökunni að ljúka innan árs, að
sögn De Sole.
Stjórn tískuhússins mun ekki
einblína á að ná yfirburðastöðu á
lúxusvörmarkaðnum en leggur
áherslu á að fyrirtækið sé sveigjan-
legt og fúst til samvinnu.
De Sole gerir lítið úr þeim sögu-
sögnum að Gucci hyggist yfirtaka
Versace eða Calvin Klein vöru-
merkin og segir vandlegar áætlan-
ir nauðsynlegar áður en samruni
eða yfirtaka á sér stað.
-----------------
CBS eykur
hlut sinn á net-
markaðnum
Reuters.
BANDARÍSKA fjölmiðlafyrirtæk-
ið CBS Corp. sem rekur sjónvarps-
stöð undir sama nafni hefur til-
kynnt um kaup á 35% hlut í netfyr-
irtækinu Banyan Systems Inc.
Banyan rekur upplýsingavefsíð-
una Switchboard með skrá yfir 117
milljón bandarísk fyrirtæki, auk
vegakorta og upplýsinga.
I tilkynningu frá CBS segir að
ákvörðunin um kaupin hafi verið
samþykkt og einnig að Switchbo-
ard fái auglýsingar hjá CBS að
verðmæti 135 milljónir dollara i
skiptum fyrir hlutabréfm. Auk
þess felst í samningnum að CBS fái
5% hlut í Switchboard í viðbót og
heimildir til að fjárfesta meira í
Banyan.
„Þessi samningur við Banyan er
enn eitt skrefið að því markmiði
okkar að veita neytendum raun-
verulega þjónustu á vefnum,“ segir
Mel Karmazin, forstjóri CBS. CBS
hefur nú þegar fjárfest fyrir 500
milljónir dollara á netmarkaðnum
en fyrir á það hluta í íþrótta- og
viðskiptavefsíðum.
BRÚÐARGJAFIR í
MIKLU ÚRVALI
BRÚÐARLISTAR
Ingólfsstrœti 5
VIÐSKIPTI_______________________
Panasonic til samstarfs við
Universal Music Group
Los Angeles. Reuters.
PANASONIC raftækjaframleið-
andinn og tónlistarfyrtrtækið Uni-
versal Musie Group hafa komið á
fót 30 milljóna dollara sameignar-
fyrirtæki til að framleiða stafræn
DVD háskerpumyndbönd og
hljómdiska á ungan en blómlegan
markað nýrrar margmiðlunar-
tækni.
Nýja fyrirtækið mun sameina
tæknihæfni Panasonic Disc
Services Corp. (PDSC) og mark-
aðsáhrif Music & Video Distri-
bution dreifingardeildar Universal
fyrirtækisins að því er forstjóri
PDSC, Bob Pfannkuch, sagði í yf-
irlýsingu.
Hörð samkeppni
i hljóðritunum
Panasonic er dótturfyrirtæki
japanska raftækjarisans Matsus-
hita Electric Industrial Corp., en
Universal Music er deild í kanad-
íska skemmtiiðnaðarfyrirtækinu
Seagram Co. Ltd. Matsushita
Electric á minnihluta í Universal
kvikmyndaverinu.
IBM og Sony hafa ákveðið að
samræma stafræna tækni sína og
láta hana hljóðritunarfyrirtækjum
í té. Sony hefur einnig samið við
Microsoft um flutning tónlistarefn-
is með Windows Media hugbúnaði
að fyrirmynd RealNetworks.
Tæpur helmingur starfsmanna
stafrænnar tónlistardeildar AT&T,
þar á meðal stofnendurnir Lany
Miller og Howie Singer, eru
gengnir til liðs við Reciprocal Inc,
annan keppinaut í stafræna geiran-
um.
Jarðvegsþjöppur
Óverðtryggð ríkisbréf ríkissióðs
RBoo-ioio/KO
Flokkur: 1. fl. 1995
Lánasýsla ríkisins óskar eftir að kaupa óverðtiyggð
ríkisbréf í framangreindum flokki með tilboðs-
fyrirkomulagi. Öllum er heimilt að gera sölutilboð
að því tilskildu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki
lægri en 10 milljónir króna að söluverði.
Lágmarksfjárhæð útboðsins er 3oo milljónir króna
að söluvirði en heildarfjárhæð útboðsins er áætlað
um 1.000 milljónir króna að söluvirði.
Sölutilboð þurfa að hafa borist Lánasýslu rikisins
fyrirki. ii:ooföstudaginn4- júni.
Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
Utgáfudagur: september 1995
Gjalddagi: 10. október 21000
Lánstími: núi,35ár
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is
nppKaup
Uppkaup óverðtiyggára
ríldsbréfa ríkissjóás meá
tilbo á sfyrirkomulagi
4. júní 1999