Morgunblaðið - 04.06.1999, Qupperneq 68
MCRGUNBLAÐIÐ
*68 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
FÓLK í FRÉTTUM
SÝNINGIN var glæsileg og gestir fögnuðu ákaft að henni lokinni. Silja er önnur frá hægri.
SILJA Schandorff er ættuð frá
Islandi. Hún hafði aldrei komið
hingað áður né haft samband
við ættingja sína.
Ein úr hópi konunglega danska
ballettsins á ættir að rekja til íslands
Fj ölskyldutengsl
endurnýjuð
ÞAÐ var hjartnæm stund þegar
ballerínan Silja Schandorff úr kon-
unglega danska hallettinum hitti ís-
lenska ættingja sína í fyrsta skipti.
Fundum þeirra bar saman eftir
sýningu dansflokksins í Þjóðleik-
húsinu þann 2. júm'.
Móðuramma Silju, Rósa Sveins-
dóttir, var íslensk en flutti til Dan-
merkur þegar hún var átján ára.
Rósa hafði eftir það h'tið sambandi
við heimahagana og því hafa fjöl-
^ skyldutengslin aldrei verið sterk
milli afkomenda hennar og fjöl-
skyldunnar hér heima.
I samtali við blaðamann sagðist
Silja hafa grafið upp nafn eins ætt-
ingja sinna þegar hún fréttj af ferð
dansflokksins til Islands. „Eg vissi
ekkert um ættingja mína nema
bara að ég ætti ættir að rekja hing-
að. Amma mín dó þegar ég var
mjög lftil og því heyrði ég aldrei
neitt um Island,“ sagði ballerínan
sem þótti yndislegt að hitta ís-
lenska ættingja sína í fyrsta skiptið.
Öðruvísi að dansa á Islandi
Silja sagði það sérstaka reynslu
að koma fram á íslandi. „Ég var
full eftirvæntingar yfír að fá að
dansa hér vegna upprunans, mér
fannst skrítið að vita til þess að í
salnum væru ættingjar mínir að
fylgjast með sýningunni og sjá mig
í fyrsta skipti.“ Hún segist alltaf
hafa verið stolt yfir að vera af ís-
lensku bergi brotin þrátt fyrir að
hafa ekki komið hingað áður.“
Vill koma aftur
Silja getur lítið skoðað sig um í
ferð sinni hingað, enda verður
dansflokkurinn aðeins fáa daga á
íslandi. Hún segist vel geta hugsað
sér að koma hingað síðar og þá á
eigin vegum.
Ættingjar Silju sögðust ekki hafa
vitað af tilvist hennar fyrr en hún
hafði nýverið samband, en þær
voru ákveðnar í að halda fjöl-
skyldutengslunum við.
ÍA(œturgatinn
Smiðjuvegi 14, %ópavogi, sími 587 6080
I kvöld
og laugardagskvöld
leikur hljómsveitin
Gammel dansk
Lifandi tónlist fyrir lifandi fólk - Opið frá kl. 22—3
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
DANSMÆRIN með frænkum sínum eftir sýninguna, frá vinstri: Hrönn Stefánsdóttir, Margrét Ragnarsdóttir,
Ragnhildur Sigurðardóttir, Ingunn Stefánsdóttir, Helga Ragnarsdóttir, Hólmfríður Sigurðardóttir, Silja
Schandorff og Kristín Stefánsdóttir.
KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur tekið til sýninga nýjustu mynd Woody
Allens, Celebrity, með Kenneth Branagh og Judy Davis í aðalhlutverkum
KENNETH Branagh fer með hlutverk rithöfundar-
ins Lee.
JUDY Davis og Joe Mantegna sem Robin og Tony.
Frægð í fyrirrúmi
Lí
Frumsýning
EE Simon (Kenneth
Branagh) er rithöfundur sem
I hefur ekki átt miklum vin-
sældum að fagna. Hann hefur því
snúið sér að greinaskrifum í tímarit
sem fjallar um heim fræga og fallega
fólksins. I gegnum starf sitt á tíma-
ritinu og með kvikmyndahandrit í
farteskinu er Lee kominn með annan
fótinn inn í heim fræga fólksins og
hann dreymir um að komast í hóp
stjarnanna.
Fyrrverandi kona Lee, Robin (Ju-
dy Davis), er ein taugahrúga eftir
skilnaðinn og tilbúin í
hvað sem er ef hún
getur komið lífi sínu í
fyrra horf. Þegar
hún íhugar fegrunar-
aðgerð hittir hún
sjónvarpsframleið-
andann Tony Gar-
della (Joe Man-
tegna) sem
veitir henni
aðra sýn á til-
veruna og
CARLIZE Theron í hlutverki
frægrar fyrirsætu sem heillar Lee.
vegur hennar til frægðar og frama
virðist vera í augsýn.
Velgengni fyrrverandi eiginkonu
er Lee óskiljanleg, enda telur hann
að þeir frægu hljóti að vinna meira
og vera miklum mun hæfileikaríkari
en hinn venjulegi meðaljón. Hann
telur því að ef hann geti aðeins kom-
ið sér örlítið nær frægðinni muni
hans tími renna upp. En angistar-
fullar tilraunir hans til að baða sig í
frægðarljósinu vekja upp aðrar til-
finningar hjá glæsibúnum stjörnu-
fansi en upphaflega var til ætlast.
Celebrity er 31. mynd leikstjórans
Woody Allens sem fyrir löngu hefur
skapað sér nafn sem einn athyglis-
verðasti leikstjóri aldarinnar. I gam-
anmyndinni Celebrity veltir Allen
upp spurningum um frægð og frama
og persóna hans sjálfs er aldrei langt
undan eins og sjá má í tilvistar-
kreppu aðalpersónu myndarinnar,
rithöfundarins Lee, sem er hvergi
hlíft frekar en öðrum persónum
myndarinnar undan hárfínu háði
leikstjórans. Eftirsókn persónanna
og hamagangurinn við að öðlast sína
fimmtán mínútna frægð verður í
höndum Allens gamansöm en hár-
beitt samfélagslýsing á bandarísku
þjóðfélagi.
Allen teflh- fram heilum stjörnu-
skara af frægum leikurum, enda vel
við hæfi í mynd sem hefur frægðina
að yrkisefni. Kenneth Branagh hefur
skilið Shakespeare eftir heima í
Bretlandi og leikur Lee sem líkist
talsvert höfundi sínum, Allen. Leik-
konan Judy Davis hefui- oft unnið
með Allen áður og leikur veigamikið
hlutverk eiginkonunnar Robin. Auk
þeirra eru þau Hank Azaria, Melanie
Griffith, Leonardo DiCaprio, Famke
Janssen, Joe Mantegna, Bebe
Neuwirth, Winona Ryder, Charlize
Theron í smærri hlutverkum.