Morgunblaðið - 22.06.1999, Side 5

Morgunblaðið - 22.06.1999, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999 B 5 FRJALSIÞROTTIR Pan O’Brien hættir við Vala náði sínu besta í Gautaborg HEIMSMETHAFINN í tugþraut, BandaiTkjamaðurinn Dan O’Brien, tekur ekki þátt í bandaríska meist- aramótinu í frjálsíþróttum um mán- aðamótin eins og til stóð. Hann seg- ist kenna sér meins í vinstra hné og geti af þeim sökum ekki tekið þátt í tugþrautarkeppninni eins og til stóð. Þar af leiðandi minnka líkum- ar á að hann keppi á heimsmeist- aramótinu í Sevilla í ágústlok, þar sem þrír efstu í hverri grein á bandaríska meistaramótinu vinna sér inn þátttökurétt á heimsmeist- aramótinu. O’Brien segist þó lifa í þeirri von að Alþjóða frjálsíþrótta- sambandið bjóði sér til mótsins á þeim forsendum að hann sé heims- methafi. Heimsmethöfum hafi stað- ið það til boða síðast og því ætti það ekki að vera raunin nú? spyr O’Brien. DAN O’Brien Fær París HM 2003? NÚ þykja miklar líkur á að París verði valin til að halda Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum árið 2003. Þetta er skoðun manna eftir að í ljós kom að aðalkeppinauturinn, London, mun ekki hafa leikvanginn kláran á rétt- um tíma án um 6 milljarða styrks frá breska ríkinu. Búist er við að Alþjóða- frjálsíþróttasambandið (IAAF) taki ákvörðun í málinu i' nóvember. ■ YAGO Lanie/a, langstökkvari frá Spáni og silfurverðlaunahafí á heimsmeistaramótinu innanhúss í Japan í vetur, bætti spænska metið í langstökki utandyra í þrígang í sömu keppninni í Guadalajara um helgina. ■ LAMELA stökk lengst 8,49 metra í fimmtu tilraun, en fyrr hafði hann stökkið 8,38 metra í fyrstu umferð og 8,46 metra í fjófiðu tilraun. ■ LENGSTA stökk Lamela, 8,49 metrar, er besti árangur sem Evr- ópubúi hefur náð í 12 ár. Um leið bætti hann 19 ára gamalt landsmet Spánar um 26 sentímetra. Það átti Antonio Gorgos. Heimsmetið á Bandaríkjamaðurinn Mike Powell, 8,95 metra. Það var sett á heims- meistaramótinu sem fram fór í Tókýó síðla sumars 1991. O’Brien hefur lítið keppt síð- ustu ár. Heimsmet hans er 8.891 stig en það setti hann 1992. Hann er núverandi ólympíumeistari, en hefur aðeins einu sinni keppt síð- an á leikunum - á Frðarleikunum í fyrrasumar. O’Brien keppti t.d. ekki á síðasta heimsmeistaramóti sem fram fór 1997. Þá kenndi hann um ýmiskonar álagsmeiðsl- um. VALA Flosadóttir, stangar- stökkvari úr IR, náði sínum besta árangri utanhúss á árinu er hún sigraði í stangarstökki á ungmennamóti í Gautaborg um liðna helgi. Vala stökk 4,15 metra og vann með talsverðum yfirburðum því önnur varð Sví- inn Charlotte Karlsson, stökk 3,55 metra. Fram til þessa móts var besti árangur Völu á árinu 4,10 metrar en þá hæð stökk hún á móti í Prag fyrir viku. Magnús Aron Hallgrímsson, HSK, sigraði í kringlukasti í 22 ára flokki á sama móti, kastaði 54,67, sem er nokkuð frá hans besta. Eigi að síður var hann hálfum fjórða metra á undan næsta manni. Stefán R. Jóns- son, úr Breiðablik, var einnig á meðal keppenda í kringlukast- inu en kastaði aðeins 40,56 metra. Þá hljóp Ólafur Sveinn Traustason, FH, með í 200 metra hlaupi. Hann rak lestina í sinum riðli í 22 ára flokki á 23,51 sekúndu og komst ekki í úrslit. Síminn er stoltur af að styrkja efstu deild íslandsmótsins í knattspyrnu í meistaraflokki kvenna sem í ár mun heita Landssímadeild kvenna. Styðjum við bakið á kvennaknattspymu, mætum á völlinn og hvetjum okkar lið! 6.UMFERÐ 21. JÚNÍ Breiðablik - Valur 20:00 22. júní ÍA - Grindavík 20:00 22. júní Fjölnir - ÍBV 20:00 22. júní KR - Stjarnan 20:00 I LANDS SIMADEILD KVENNA www.simi.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.