Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 22. JIJLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Ný 120 stðna handbóh um vörur og þjónustu BM •Vallá 0 Oxiurrtilcinn i 'm Ir «!': r-r'r~. Tr; \ tr: 1-iUS OG GARÐUR !Ni Fegraðu hús og garð BM»Vallá auðveldar þér verkið! Komdu í heimsókn og fáðu ókeypis eintak af handbókinni „HÚS OG GARÐUR“ í söludeild okkar í Fornalundi. í handbókinni finnur þú meðal annars allar nýju vörurnar. Landslagsráðgjöf BM»Vallá hjálpar þér síðan að útfæra þær á skemmtilegan hátt fyrir garðinn þinn. BBfc Antih hringur Óðalströppusteinn wStmSBmm Yorh steinflísar Vínarsteinn Miðaldasteinn NYTT NYTT NYTT NYTT Berlínarsteinn Hljóðshermar — hogaeiningar Óðalsrennusteinn Oxfordsteinn © BM-VALIÁ Söludeild í Fornalundi Breiðhöfða 3 Sími 585 5050 Fax 585 5051 www.bmvalla.is Opnunartímar: Virka daga kl. 9:00-18:00. Opið á laugardögum kl. 10:00-14:00. ÚR VERINU Reglugerð um veiðar í Barentshafí Aflamarki úthlutað eftir mánaðamótin ÁRNI M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, hefur gefíð út reglugerð um veiðar íslenskra skipa á Norður- íshafsþorski í Barentshafi, sam- kvæmt Smugusamningnum svokall- aða milli Islands, Noregs og Rúss- lands. Fiskistofa hefur gefið út afla- hlutdeild einstakra skipa samkvæmt samningnum og verður aflamarki síðan úthlutað á þeim grundvelli eft- ir 31. júlí nk. Þá er búist við að veiði- leyfi til einstakra skipa verði gefin út á næstu dögum og er skipum þá ekk- ert að vanbúnaði að halda til veið- anna. Islensku skipunum er aðeins heimilt að veiða Norðuríshafsþorsk innan lögsögu Noregs og Rússlands og eru veiðarnar háðar sérstöku leyfi Fiskistofu, sem úthlutar aflahlut- deild til einstakra skipa í efnahags- lögsögu Noregs annarsvegar og Rússlands hinsvegar. Innan lögsögu Noregs, norðan við 64°00’N og utan 12 sjómílna frá grunnlínum, er ís- lenskum skipum heimilt að veiða alls 4.500 tonn af þorski, auk 1.335 tonna aukaafla af öðrum tegundum. Innan lögsögu Rússlands, utan 12 sjómílna frá grunnlínum, er íslenskum skip- um heimilt að veiða alls 2.781 tonn af þorski, auk 834 tonna aukaafla. I hverri veiðiferð í bæði lögsögu Nor- egs og Rússlands skal afli af öðrum tegundum en þorski ekki vera meiri en sem nemur 30% af þorskafla, mið- að við afla upp úr sjó. Heimilt er að framselja aflahlut- deild og aflamark milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt almennum reglum um framsal aflahlutdeildar og aflamarks. Ekki fengið upplýsingar um Rússakvótann I reglugerðinni segir að afli ís- lensk útgerð veiðiheimilda í rúss- neskri lögsögu, umfram þær sem út- hlutað er, skuli það tilkynnt Fiski- stofu ásamt staðfestingu frá rúss- neskum stjórnvöldum, en tvíhliða samningur íslands og Rússlands kveður á um að Islendingum standi til boða að kaupa 1.669 tonn af þorski í lögsögu Rússlands. Kristján Ragn- arsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir út- vegsmenn engar leiðbeiningar hafa fengið um hvernig þeir eigi að bera sig eftir þessum heimildum. „Rússar áttu samkvæmt samningnum að láta okkur þessar upplýsingar í té í maí sl. um hver myndi leigja okkur þess- ar heimildir og á hvaða verði. Þær hafa hinsvegar enn ekki borist. Við höfum farið fram á það við íslensk stjórnvöld að við fáum að minnsta kosti að vita hvar við eigum að bera niður,“ segir Kristján. Ekki fleiri en 15 skip í norskri lögsögu Reglugerðin kveður einnig á um að ekki skuli fleiri en 15 íslensk skip stunda veiðar innan efnahagslög- sögu Noregs. Þá er skipunum óheimilt að hefja veiðiferð innan efnahagslögsögu Noregs eða Rúss- lands, fyrr en að fenginni staðfest- ingu á að þeim sé það heimilt og frá hvað tíma. Þá verða skipin sem ætla að veiða í lögsögu Noregs að vera búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til stjórnstöðvar Landhelgisgæsl- unnar um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Þeim er auk þess óheimilt að hefja veiði- ferð í lögsögu Noregs fyrr en starfs- menn Landhelgisgæslunnar hafa staðfest til Fiskistofu að ofangreind- ur búnaður sé um borð og starfi eðli- lega. Islenskum skipum er óheimilt að stunda veiðar á Norðuríshafsþorski og innan íslenskrar Iandhelgi í einni og sömu veiðiferðinni. Tilkynna ber Fiskistofu hvenær veiðarnar hefjast og hvenær þeim lýkur, áætlað magn, samsetning afla um borð og áætlað- ur löndunarstaður og -tími. Hvern mánudag verða skipin einnig að til- kynna Fiskistofu um heildarafla síð- ustu viku, sundurliðað eftir tegund- um og veiðisvæðum. Skipstjórum ber auk þess að skrá nákvæmar skýrslur í afladagbækur sem Fiski- stofa leggur til og skila mánaðar- lega. Þai' verður m.a. að koma fram hve mikill hluti aflans er fenginn í efnahagslögsögu Noregs og hve mikill í efnahagslögsögu Rússlands. Úthlutuð þorskaflahlutdeild íslenskra skipa í Barentshafi Kvoti tonn SH. Aflahlut- Skip a’>- - deild, % Kvoti tonn Svalbarði Sl 302 4,56 329,5 Bylgja VE 75 1,02 73,9 Arnar HU1 4,32 312,0 Páll Pálsson ÍS102 1,00 72,7 Rán HF 42 3,84 277,6 Víðir EA 910 0,95 69,0 Málmey SK1 3,55 256,5 Faxi RE 9 0,91 65,4 Hriseyjan EA410 3,45 249,2 Örfirisey RE 4 0,88 63,8 Akureyrin EA110 3,44 249,1 Þórunn Sveinsd. VE 401 0,78 56,5 Sléttanes ÍS 808 3,14 227,0 Hólmatindur SU 220 0,78 56,2 Stakfell ÞH 360 3,14 226,8 Andey ÍS 440 0,75 53,9 Haraldur Kristj.son HF 2 3,05 220,8 Brettingur NS 50 0,74 53,2 Mánaberg ÓF 42 2,95 213,2 Harðbakur EA 303 0,73 52,5 Hötmngur IIIAK 250 2,84 205,6 Klakkur SH 510 0,72 52,2 Snonri Sturiuson RE 219 2,75 198,6 Barði NK120 0,72 52,2 Hólmadrangur ST 70 2,59 187,2 Emir BA 29 V 0,68 49,1 GnúpurGK11 2,53 182,9 Hólmanes SU1 Jtnm) 0,67 48,4 Sigurbjörg ÓF1 2,28 164,7 BessifS 410 ££ J 0,63 45,8 Hegranes SK 2 Á Freri RE 73 Bliki EA12 ' ^ 2,14 155,0 Frosti ÞH 229 0,60 43,0 1,97 1,85 142,8 133,7 Árbakur EA 308 Jón Vídalín ÁR1 0,58 0,52 41.7 37.7 Júlíus Geirmundsson ÍS 270,73 124,9 Haukur GK 25 0,52 37,4 Björgvin EA311 1,67 120,7 Hringur SH 535 0,50 36,1 Múlaberg ÓF 32 1,60 115,6 Júlli Dan ÍS19 0,42 30,3 Hrafn Sveinbjarnarson GK 2I555 112,2 Eyborg EA59 0,41 29,6 Sólberg ÓF12 1,45 104,9 Bjartur NK121 0,40 28,7 Geiri Péturs ÞH 344 1,41 102,0 Ljósafell SU 70 0,33 24,1 Sléttbakur EA 304 1,31 94,7 Sjóli HF1 0,28 20,2 MargrétEA710 1,30 93,7 Akurey RE 3 0,26 18,9 Háberg GK 299 1,29 93,0 Beitir NK123 / Svanur EA14 0,24 17,1 Vestmannaey VE 54 1,27 92,2 0,23 16,3 Ýmir HF 343 1,27 91,6 Stefnir ÍS 28 ^ 0,21 15,1 Þorsteinn EA810 1,24 89,5 Stálvík Sl 1 0,20 14,7 Kambaröst SU 200 1,19 86,0 Björgúlfur EA 312 0,20 14,2 Breki VE 61 1,17 84,8 Mars HF 53 0,19 13,8 Þerney RE101 1,17 84,6 SeleySU 210 0,12 9,0 Baldvin Þorst.son EA10 1,14 82,7 Hamrasvanur SH 201 0,10 7,1 Óseyri ÍS 4 k 1,14 82,3 Edda KE 51 0,05 3,9 Klcifaberg ÓF 2 ^ 1,12 80,8 Kaldbakur EA 301 0,05 3,3 Orri ÍS 20 VA' 1,10 79,4 Gullver NS12 0,04 3,0 Skagfirðingur SK 4 1,06 76,6 Húsvíkingur ÞH 1 0,01 1,1 Rauðinúpur ÞH 160 1,05 75,6 SAMTALS 100,00 7.231.0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.