Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Manchester. Reuters, AP.
DÓMARI í Manehester í Bretlandi
hefur dæmt 28 ára gamlan mann í
eins árs fangelsi fyrir að ógna ör-
yggi farþegaflugvélar í millilanda-
flugi með því að neita að slökkva á
farsímanum sínum. Var Neil
Whitehouse fundinn sekur um að
hafa með „glannaskap og gáleysi"
stefnt flugvél British Airways, með
91 farþega innanborðs, í voða.
Vélin var á leið frá Madríd til
Manchester í september sl. þegar
Whitehouse virti að vettugi ítrekað-
ar beiðnir um að slökkva á farsím-
anum. Þegar flugfreyja sagði hon-
um að síminn gæti truflað siglinga-
tæki vélarinnar svaraði Whitehou-
se: „Er það? Heldurðu að við vill-
umst?“ Dómarinn, Anthony Ensor,
sagði „þvermóðsku og heimsku"
Whitehouse sýna að honum hefði
staðið á sama um þann ótta sem
I fangelsi fyrir
farsímanotkun
hann hefði vakið hjá öðrum
farþegum.
Ensor sagði þetta vera í
fyrsta sinn sem einhver
væri lögsóttur í Bretlandi
fyrir að nota farsíma um
borð í farþegaflugvél og því
hefði hann ekki haft nein
fordæmi tO að styðjast við
er hann kvað upp úrskurð-
inn. Dómurinn, sem felldur
var á grundvelli laga frá
1995, er kveða á um að það teljist
glæpsamlegt að haga sér þannig að
Whitehouse
það stefni öryggi flugvélar í
voða, ætti að verða öðrum
farsímanotendum víti til
vamaðar. Bæði British
Airways og breska loft-
ferðaeftirlitið fögnuðu dómi
Ensors og sögðu hann skref
í rétta átt. Talsmaður flug-
félagsins sagði ánægjulegt
að dómstólar hefðu sýnt
skOning á því hversu mikil
hætta stafaði af notkun far-
síma um borð í flugvélum.
Whitehouse hringdi ekki úr far-
símanum þegar hann var um borð í
Boeing 737 þotu British Airways en
sérfræðingar, er báru vitni við rétt-
arhöldin í máli hans, sögðu að út-
varpsbylgjur frá símanum hefðu
getað valdið sprengingu eða haft
áhrif á siglingatæki flugvélarinnar,
sem var í 31 þúsund feta hæð. „Það
voru vísindalegar vísbendingar um
mögulega hættu,“ sagði dómarinn.
Whitehouse kvaðst einungis hafa
verið að undirbúa skrifleg skOaboð
sem hann hefði ætlað að senda við
komuna tO Manchester. Þrátt fyrir
aðvaranir frá flugmanni vélarinnar
og flugfreyjum hafði hann kveikt á
símanum. Lögfræðingur hans hélt
því fram að hættan á hugsanlegum
truflunum á tækjum vélarinnar
hefði einungis varað í nokkrar sek-
úndur og hefðu þær verið leiðrétt-
anlegar. Whitehouse viðurkenndi að
hegðun sín hefði verið óviðeigandi.
CHAR BROIL 500
L__ samsett
Ef þú kaupir
CHAR BROIL
, 5000 grill
færðu í
kauphæti: ^
• Óðals ung-
nauta steik
> Steff Houlberg
ostapyisur
• Grillábreiðu
• Grillbursta
og frí heim-
sending
Grilltilboðið á aðeins
við um heimsend grill.
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
Nota-
drjúgur
farsími
AYAKO Fujisawa sýnir nýja
gerð farsíma, sem japanska
fyrirtækið NTT Docomo
markaðssetur, og var kynnt í
aðalstöðvum fyrirtækisins í
Tókýó í gær. Hægt er að nota
símann tO að versla á fjármála-
mörkuðum, kaupa flugmiða og
fleira. Mörg japönsk fyrirtæki
eru rétt að byrja að hasla sér
vöO í netheimum og rafræn
viðskipti eru enn lítO í Japan.
Þótt tahð sé að þau muni að
mestu verða gerð að vestrænni
fyrirmynd sjást einnig merki
um að þau séu að þróast í aðra
átt en gengur og gerist í
Bandaríkjunum.
Ný gerð farsíma.
Scharping
neitar enn
RUDOLF Scharping, vamar-
málaráðherra Þýskalands, vís-
aði í gær til föðurhúsanna nýj-
um vangaveltum um að hann
kynni að fallast á að taka við af
Javier Solana sem fram-
kvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, NATO. „Ég
endurtek það sem ég sagði í
gær og fyrradag og í júní og í
maí,“ sagði hann við frétta-
menn. „Ég get ekki haldið
áfram að endurtaka afstöðu
mína eins og tíbeska bæn-
aruOu.“
Metfjöldi
sjálfsvíga
ÞRENGINGAR í efnahagslíf-
inu hafa leitt tO þess að sjálfs-
víg í Japan voru 35% fleiri á
síðasta ári en árinu á undan. í
fyrra sviptu 32.863 Japanir sig
lífí og er þetta mesti fjöldi
sjálfsvíga á ári frá því farið var
að halda tölu á þeim 1947. Ein-
ungis í Finnlandi eru sjálfsvíg
tíðari miðað við höfðatölu.
Menn á fímmtugs- og sextugs-
aldri eru líklegastir tO að
svipta sig lífi og þeir eru sá
hópur sem hefur orðið mest
fyrir barðinu á samdrætti hjá
fyrirtækjum sem bregðast við
honum með því að segja miOi-
stjómendum upp störfum.
Hawking enn
sannfærður
BRESKI eðlisfræðingurinn
Stephen Hawking er enn sann-
færður um að eðlisfræðingum
muni takast að sanna svokaO-
aða „allsherjarkenningu" eða
strengjafræði, sem útskýri al-
heiminn. í gær viðurkenndi
hann þó að það kynni að taka
lengri tíma en hann hefði
vænst. Á níunda áratugnum
sagðist hann telja helmingslík-
ur á að allsherjarkenningin yrði
sönnuð á næstu tuttugu áram
en á ráðstefnu um strengja-
fræði í Potsdam í Þýskalandi
sagði hann að þótt mikOl árang-
ur hefði náðst í fræðunum und-
anfama tvo áratugi virtust eðl-
isfræðingar ekki hafa færst
miklu nær markmiðinu.