Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 54
' 54 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Lítil útskýring á mistökum Frá Ingu Bjarnason: í UMSÖGN sinni um hljómdisk Caput-hópsiris með tónlist Leifs Þórarinssonar í DV 8. júlí sl. hefur Jónas Sen, tónlistargagnrýnandi DV, mörg orð um þá skömm að geta ekki flytjenda tónlistarinnar á umslagi disksins. Af því tilefni vil ég að eftirfar- andi komi fram: Diskurinn er gef- inn út af útgáfufyrirtæki banda- ríska tónskáldsins og hljómsveit- arstjórans Gunthers Schullers. Vegna mistaka í vinnslu, sem reynt var að leiðrétta í prófarka- lestri, en því miður án árangurs, féllu niður nöfn flytjenda á um- slaginu. Til að bæta fyrir þetta var prentað sérstakt kynningarblað sem fylgir hverjum diski. Þar koma nöfn flytjendanna skýrt og greinilega fram. Ég veit að þetta kynningarblað barst DV eins og öðrum fjölmiðlum og að Jónasi Sen var fullkunnugt um það. Mér er því algerlega óskiljanlegt hvers vegna hann kýs að nefna það ekki einu orði. Hins vegar vil ég nota tækifærið tO að þakka það mikla og óeigin- gjarna starf sem hinir frábæru listamenn hafa lagt af mörkum, lc*anai leix«ng convotat fht iJudtea v«*n « Scíiooi <y Mubc and wart on lo (tai witti it» \cocm SytTftvnv OchaOia ln ln* IMC( M liucM oompc»Won undn (aegga onu GuntMt ScTuMr. A prOWc componc LMu hoa witten nxalc fcr ct rnnía tncUdng ofmo anej mora Ition iwy pracw lor ineotra prodjcliore j Productd ond ocBtod by B/amí kunor b/omaton I j PTOduced wOh tupport tan lcolond Hqbonql Bioodcatt Senico QtÚV) \ CaptJ [ntembic Snori SgAIa Blrc»saoi\ piono Audur HoWekmiðtt* vtoto &yndi| Holo GyUodðttk c«*o Kmoelnr BJotncaon. fkjto Sudnjn CWjuOótt*. horpjtcord Eooert Pátsjon. percujaton Sleef von Oosfwhoul. percutíon EfeaOe? Woaoo. hotp KYNNINGARBLAÐIÐ sem fylgdi diskinum. þeir Snorri Sigfús Birgisson, Bryn- dís Halla Gylfadóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Steef Van Ooster- hout, Auður Hafsteinsdóttir, Kol- beinn Bjarnason, Eggert Pálsson, Elísabet Waage og síðast en ekki síst Bjarni Rúnar Bjarnason hljóð- meistari. Einnig á Ríkisútvarpinð þakkir skildar fyrir sinn hlut. Með vinsemd og virðingu INGA BJARNASON, Klapparstíg 26. Ég er hrædd við Héraa, Magga, lest að lfta á einkunna- þú og segðu mér spjaldið mitt... hvernig mér gekk... Þú ættir kannski að skrifa hryllingssögur, kennari... Kommúnistaklrkan Frá Einari Ingva Magnússyni: ÞEGAR ég var að hreyta skömm- um í sjálfstæðismenn hér á árum áður, þegar hugsjónir Marx og Leníns heilluðu stórhugann, var á stundum laumað að mér athuga- semdinni: Vinstrimenn eru bara ekkert betri. Þeir eru verri ef eitt- hvað er. Þetta þótti mér vera íhaldsleg ósvífni. Nú sé ég hve mér hefur skjátlast hrapallega eftir fall jámtjaldsins þegar sannleikurinn um Austur- Evrópu varð öllum ljós og nú um daginn þegar vinstrimenn hækkuðu fargjöld strætisvagna Reykjavíkur. Helgi Hjörvar gengur tO verks þvert á orð sín. Já, þeir eru ekki mannanna bestir, sem alþýðan held- ur í einfeldni sinni að séu að vinna fyrir láglaunastéttina í landinu. Það er undarlegt hve menn eru fljótir að gleyma þegar þeir komast tO valda. Menn eins og Stalín og níðingurinn í Rúmeníu hann Sjá- seskú eru manni efst í huga þegar maður leiðir hugann að verkalýðs- foringjum sem gleyma fljótar en all- ir aðrir raunum alþýðunnar þegar þeir komast tO valda og fara sjálfír að hafa það betra. Þegar jámtjaldið var uppi var allt í dýrðarljóma fyrir austan í landi kommúnistanna hjá sósíalistum á Islandi. Hve við lofuðum þetta þjóð- félag, sem við höfðum ekki hug- mynd um hvernig var. Þó vora alltaf góðir menn, sem sögðu satt og við töldum uppfulla af lygum. En ís- lenskum sósíaiistum skjátlaðist. Sjálfur kynntist ég lífinu í fyrr- verandi kommúnistaríki eftir að Austur-Evrópa opnaðist og bjó ég í tvö ár í fyrrverandi Tékkóslóvakíu eftir að ég kynntist þarlendri konu minni, sem er löng saga og verður ekki rakin hér. Hún ólst upp í því áætlunarhagkerfi kommúnista, sem sósíalistar á Vesturlöndum lofuðu hve hæst, en ber því ekki vel sög- una. Svo er um flesta landa hennar. Af eigin raun hef ég heyrt þá óska sér þess að þeir tímar komi aldrei aftur. Ég hef oftsinnis rölt um hverfin í Bratislava, höfuðborg Slóvakíu, og virt fyrir mér íbúðar- húsin sem leiðtogar kommúnista áttu. Það vom víggirtar hallir þar sem ekkert var tO sparað á meðan verkalýðurinn bjó í sínum litlu blokkaríbúðum. Þótt ýmislegt megi betur fara í kapítalísku þjóðfélagi eins og ódýr- ari heilsugæsla og langskólanám, meiri launajöfnuður og ódýrara húsnæði fyrir verkalýðinn, þá er lausnina að betra rnannlífi ekki að finna í því hugmyndakerfi sem Austur-Evrópa er nýsloppin úr. Ber að þakka það að sjálfstæðismenn stjóma þessu landi og að ekki minni maður en Davíð Oddsson er í for- sæti fyrir þann ágæta flokk manna, sem ber hag allra stétta fyrir brjósti en flækja sig ekki í fölskum dýrðarljóma hugmyndafræði sem í raun er óframkvæmanleg. Eiga þeir minn stuðning og atkvæði í næstu kosningum. EINAR INGVI MAGNÚSSON, Heiðargerði 35, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.