Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
^^LEIKFFLAGlj|á
©T REYKJAVÍKURJ®
18!17 1997
BORGARLEIKHÚSIÐ
A SIÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fýrir sýningu
eru miðar seldir á hátfvirði.
Stóra svið kl. 20.00:
Litíá ktlfllúiýfbúðto
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
í kvöld fim. 22/7 AUKASÝN.
- laus sæti
fös. 23/7 laus sæti
lau. 24/7 laus sæti
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Erum byrjuð að taka niður
pantanir fyrir ágústmánuð.
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Simapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
Fim. 22/7 kl. 21.00
Bræðingur
KK djazzlríó
Fös. 23/7
Þjdðlagahópurinn
Bragarbót
Ólína Þorvarðar, Kristín Á.
Ólafs, KK og Diddi fiðla.
Miðapantanir í símum
551 9055 og 551 9030.
ISLENSKA OPERAN
___iiiii
n.é’jii'ISiij Lj , i
Gamanleikrit I leikstjórn
Slgurðar Sigurjónssonar
Fös 23/7 kl. 20 örfá sæti
Lau 24/7 kl. 20 örfá sæti
Ósóttar pantanir
S ’• seldar daglega
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 12
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga
Hirðfffl hennar hátignar - uppselt
Næstu sýningar
sun. 8. og 15. ágúst
Midasala í síma 552 3000.
Opiö virka daga kl. 10-18 og
fram aö sýningu sýningardaga
Miöapantanir allan sólarhringmn.
Frá A til Ö
■ ASTRÓ Útvarpsstöðin FM957
heldur upp á 10 ára afmæli stöðvar-
innar á föstudagskvöld kl. 20.30 fyrir
fjöldann allan af einstaklingum sem
sumir hverjir tóku sín fyrstu skref á
FM957. Kl. 22 verður tekið á móti
hlustendum og er hægt að nálgast
boðsmiða í afgreiðslu útvarpstöðvar-
innar í Aðalstræti 6.
■ ÁSGARÐUR Glæsibæ Bingó
fímmtudagskvöld kl. 19.45. Allir vel-
komnir. Dansleikur sunnudagskvöld
kl. 20. Caprí tríó leikur fyrir dansi.
■ CAFÉ HAFNARFJÖRÐUR er nýr
pöbb, diskótek og sportbar að Dals-
hrauni 13. Iþróttaleikir á tveimur
risaskjám. Húsið er opið fóstudag ki.
16-3 og laugardaga og sunnudaga kl.
11-3.
■ CAFÉ ROMANCE Breski píanó-
leikarinn Alison Sumner leikur öll
kvöld. Hún Jeikur einnig fyrir matar-
gesti Café Óperu.
■ CATALÍNA, Hamraborg Hljóm-
sveitin Þotuliðið leikur föstudags- og
laugardagskvöld.
■ FÓGETINN Á fímmtudagskvöld
leikur Kolbeinn og á föstudags- og
laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Blái fiðringurinn. Á sunnudagskvöld
leikur Guðmundur Rúnar og leikur
hann einnig miðvikudagskvöld.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtu-
dagskvöld leika Papar og á fóstu-
dagskvöld leika hljómsveitirnar O.fl.
og Skriðjöklarnir en þetta er eitt af
fáum skiptum sem þeir leika í
Reykjavík en þeir verða einnig á
Gauknum á sunnudagskvöld. Á laug-
ardagskvöld leikur hljómsveitin
Diesell. Á mánudagskvöld leikur síð-
an Bjarni Tryggva og verður með
sögustund fullorðinna.
■ GLAUMBAR Hljómsveitin
Funkmaster 2000 leikur sunnudags-
kvöld frá kl. 23. Tveir nýir meðlimir
eru komnir til leiks þeir Valdi Coliins
bassaleikari og Davíð Þór sem leikur
á bassaflautu.
■ GRANDROKK Blúshljómsveitin
Blues Express leikur fimmtudags-
kvöld frá kl. 22.30. Hljómsveitin Blí-
strandi æðarkoliur leikur föstudags-
kvöld og á laugardagskvöld leikur
síðan hljómsveitin Popper og á
sunnudagskvöld verða tónleikar með
hljómsveitunum Utópíu og Url. Tón-
leikamir hefjast kl. 22.
■ GRUNDARFJARÐARHÁTÍÐIN
Hljómsveitin Sól Dögg leikur laugar-
dagskvöld í Iþróttahúsinu og er 16
ára aldurstakmark.
■ GULLÖLDIN Það eru stuðkarl-
SKRIÐJÖKLAR eru nú komnir saman á ný undir yfirskriftinni
Hugvit og fegurð ‘99 og leika þelr föstudags- og sunnudagskvöld á
Gauki á Stöng og á laugardagskvöldinu í Réttinni, títhlíð. Hljóm-
sveitina skipa þeir Ragnar Sót, söngvari, gítarleikaramir Jakob
Jónsson og Kristján Edelstein, bassaleikarinn Jón Haukur, hljóm-
borsleikarinn Jóhann Ingvason og trommuleikarinn Halli Gulli.
arnir Svensen & Hallfunkel sem
skemmta gestum föstudags- og laug-
ardagskvöld. Á sunnudagskvöld
verður síðan djassstemmning þar
sem Kvartett Steina Krúbu leikur.
Kvartettinn skipa: Þorsteinn Eiriks-
son, trommur, Sveinbjörn Jakobs-
son, gítar, Sigurjón Ámi Eyjólfsson,
saxafón og Jón Þorsteinsson á bassa.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og er
aðgangur ókeypis.
■ HLOÐUFELL, Húsavík Hljóm-
sveitin Sigur rós heldur tónleika
fímmtudagskvöld frá kl. 22. Á fóstu-
dagskvöld er barinn opinn og á laug-
ardagskvöld Ieikur síðan hljómsveitin
Blístrandi æðarkollur frá miðnætti.
■ HREÐAVATNSSKÁLI, Borgar-
fírði Hljómsveitin Gildrumczz verð-
ur með sína vinsælu Creedance Cle-
arwater Revival dagskrá á laugar-
dagskvöld.
■ INGÓLFSCAFÉ, Ölfusi Á laugar-
dagskvöld verður haldið Mono-ball
þar sem hljómsveitin Á móti sól leik-
ur. Mono 87.7 verður með beina út-
sendingu frá hluta af ballinu og
Captain Morgan verður í stuði í dyr-
unum.
■ INGHÓLL, Selfossi Hljómsveitin
O.fl. leikur laugardagskvöld og verða
ýmsar uppákomur s.s. leynigestir,
gjörningur frá tískusamsteypunni
Maí/GETon og heppnir gestir verða
leystir út með gjöfum.
■ KAFFI REYKJAVÍK Á fímmtu-
dagskvöld leikur Gréta og á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin 8-villt. Hún Gréta leikur
síðan sunnudags- og mánudagskvöld
og á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld tekur Éyjófur Kristjánsson
við.
■ KAFFI SPORT Á fimmtudags-
kvöld leika Furstarnir ásamt Geir
Ólafssyni, söngvara. Furstarnir eru
Árni Scheving, bassi, Guðmundur
Steingrímsson, trommur, Kjartan
Valdimarsson, píanó og Þorleifur
Gíslason á saxafón.
■ KAFFI THOMSEN Á laugardags-
kvöld leikur Craze núverandi DMC
heimsmeistari plötusnúða og ITC
Scratch-Off meistari. Craze heitir
réttu nafni Aristh Delgado og fædd-
ist í Managua. Þetta mun vera í
fyrsta sinn sem heimsmeistari plötu-
snúða leikur á íslandi.
■ KRIN GLUKRÁIN Á fímmtudags-
og sunnudagskvöld leikur Guðmund-
ur Rúnar Lúðvíksson og á fóstudags-
og laugardagskvöld leikur hljóm-
sveitin Léttir sprettir. Leikstofan er
lokuð vegna breytinga.
■ LEIKHÚSKJALLARINN Á fóstu-
dagskvöld verður Gæsa-gleðistund
þar sem verða gæsaskot, gæsasöngv-
ar og flottasta gæsin verður valin.
Aliar gæsir frá glaðning frá Rómeó
og Júlíu. Dj. Gummi Gonzalez verður
í búrinu. Á laugardagskvöld sér
Siggi Hlö um danstónlistina.
■ LILLEPUT, Laugavegi 34a er
pöbb í erlendum stíl með risaskjá og
tónlist fyrir alla aldursflokka. Húsið
er opið alla daga frá kl. 12 og opið til
kl. 23.30 virka daga og til kl. 2 föstu-
dags- og laugardagskvöld.
■ LUNDINN Vestmannaeyjum
Hljómsveitin Hafrót leikur fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
■ MÓTEL VENUS Á laugardags-
kvöld verður haldið menningarkvöld
frá kl. 21 þar sem boðið eru upp á
tónleikakvöld með léttu djassívafi
þar sem Óskar Guðjónsson, Þórður
Högnason og Einar Scheving leika.
Verð á tónleikana 700 kr. Tónleikar
og matur 2.400 kr.
■ NAUSTIÐ er opið alla daga frá kl.
18 fyrir matargesti. Reykjavíkur-
stofa er opin frá kl. 18.
■ NAUSTKRÁIN Á fóstudags- og
laugardagskvöld leikur hin frábæra
hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.
■ NÆTURGALINN Þau Hilmar
Sverrisson og Anna Vilhjálms leika
fostudags- og laugardagskvöld.
■ PÉTURS PÖBB, Höfðabakka 1
Plötusnúðurinn Skugga-Baldur sér
um tónlistina föstudags- og laugar-
dagskvöld til kl. 3.
■ RAUÐA LJÓNIÐ Hljómsveitin
Hot’n Sweet með Hermann Inga
fremstan í flokki leika föstudags- og
laugardagskvöld.
■ RÉTTIN, títhlíð Á laugardags-
kvöld verður alvöru sveitaball með
hljómsveitinni Skriðjöklum. Frítt á
tjaldstæðin.
■ RIVE GAUCHE, Kópavogi Næstu
fimmtudagskvöld leikur Sváfnir Sig-
urðarson, gítarleikari frá kl. 21.
■ SIGUR RÓS er í tónleikaferð um
landið. Hljómsveitin leikur fimmtu-
dagskvöld í Hlöðufelii, Húsavík,
föstudagskvöld í Sjallanum, Akur-
eyri og laugardagskvöld verður
hljómsveitin á Mælifelli, Sauðár-
krók. Allir tónleikarnir hefjast kl. 21
og er miðaverð 1.000 kr. í forsölu og
1.200 kr. við inngang.
■ STUÐMENN leika á fjölskyldu-
skemmtun í félagsheimilinu í Vík í
Mýrdal og hefst hún kl. 21. Á fóstu-
deginum verður unglingahljómsveit-
in síðan með tónleika í íþróttahúsinu
í Höfn í Hornafirði og daginn eftir er
haldið til Egilsstaða, nánar tiltekið á
Hótel Valaskjálf. Yfirreið helgarinn-
ar lýkur síðan á Siglufirði á sunnu-
daginn með fjölskylduskemmtun á
Hótel Læk. Með í fór eru söngvarar,
dansarar auk bílstjóra og burðar-
karla úr Reykjavík.
■ VIÐ POLLINN, Akureyri Dans-
sveitin KOS leikur fóstudags- og
laugardagskvöld.
Vinirnir fá launahækkun
LEIKARARNIR í Vinum gætu
fengið allgóða launahækkun
skrifi þau undir samning um að
leika í enn einni þáttaröðinni,
þeirri sjöttu. Þeir sem þekkja til
í Hollywood segja þau geta átt
von á því að fá sem svarar um
sautján milljónum króna á mann
fyrir hvern þátt en núna fá þau
sem svarar um sjö milljónum
króna. Þetta eru gríðarlegar
upphæðir í samanburði við það
sem þau fengu greitt þegar þau
léku í fyrstu þáttaröðinni. Þá
rað þúsund krónum á mann fyr-
ir þáttinn.
Núna eru Vinir langvinsælasti
gamanþátturinn í Bandaríkjun-
um og horfa að meðaltali 23,5
milljónir manna á hvem þátt.
Þættirnir em einnig næstvinsæl-
ustu sjónvarpsþættirnir í Banda-
ríkjunum en Bráðavaktin er eini
þátturinn sem er vinsælli. Sjón-
varpsstöðin NBC, sem sýnir
Vini, vill því gera allt til að
halda í mannskapinn því þætt-
irnir yrðu að sjáífsögðu ekki
þeir sömu án
þeirra. Því er
talið að þeim
verði boðin áður-
nefnd upphæð
og þá verði von-
andi hægt að
samningsbinda
þau í að
minnsta kosti
tvö ár til við-
bótar. Von-
andi verða
Vinirnir
skynsamir
og taka
þessu
kostaboði
svo að
sjón-
varpsá-
horfend-
ur verði
eftir í lausu
MYNPBÖNP
Dauðinn kem-
ur í heimsókn
Má ég kynna Joe Black
(Meet Joe Black)_
Drama
★★★
Leiksfjórn: Martin Brest. Aðalhlut-
verk: Brad Pitt, Anthony Hopkins og
Claire Forlani. 173 mín. Bandarísk.
CIC myndbönd, júní 1999. Öllum
leyfð.
Ml l I |( >l ttl. AGK
ÞAÐ er mikið kjöt á beinunum í
þessari mynd um dauðann. Fjölmarg-
ar spurningar
vakna gjaman þeg-
ar menn taka til við
að hugleiða þennan
eina og endanlega
sannleik mannlegr-
ar tilvistar og skilin
milli lífs og dauða;
samband holds og
anda; og eðli ástar
og vináttu eru
dæmi um viðfangs-
efni myndarinnar. Það er því úr nógu
að moða fyrir fráþæran leikarahópinn,
með þá félaga Pitt og Hopkins í broddi
fylkingar. Frásögnin h'ður fram hægt
og þungt í takt við vandlega þyggða
hrynjandi og þótt myndin sé hátt í
þtjá tíma að lengd tekur maður varla
eftir því. Myndin ber þess merki að
vera byggð á sviðsverki, því mikilvægi
sögunnar og spenna liggja innra með
persónunum frekar en í því sem þær
taka sér fyrir hendur. Virkilega eftir-
minnileg gæðamynd.
Guðmundur Ásgeirsson
Goðsögn
sem lifír
Hagnýtir galdrar
Practical Magic)_________
Ævintýri/ástar-
saga/drama
★ ★*/2
Leiksljóm: Grifíín Dunne. Aðalhlut-
verk: Sandra Bullock, Nicole Kidman,
Stockard Channing og Dianne Wiest.
100 mín. Bandarísk. Wamer myndir,
júlí 1999. Aldurstakmark: 12 ár.
NORNIR eru rótgróinn og um-
deildur hluti goðsagnaheims vest-
rænnar menningar. Hér blandast
nornasögur hefð innan bandarískra
fantasíubókmennta
eftir konur, þar
sem dulin kvenleg
öfl era meginatriði.
Þessi bandaríski
femínismi er mjög
á skjön, og sum-
staðar í algjörri
andstöðu við evr-
ópskar kenningar
um femínisma þar
sem einmitt er ráð-
ist harkalega gegn goðsögnum af
þessu tagi. Myndin er hins vegar
ágæt skemmtun. Þetta er rómantísk
ástarsaga með hryllingsívafi, römmuð
af með nokkuð sjarmerandi töfra-
ljóma. Leikkonurnar standa sig
glæsilega upp til hópa og sömu sögu
er að segja um karlana þótt þeir
gegni mun veigaminni hlutverkum.
Myndin er öll mjög fagmannlega unn-
in, en það vantar einhvern neista. Fín
afþreying sem ekki skilur of mikið
eftir sig.
Guðmundur Ásgeirsson