Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 B 19 SKRATTINN SKEMMTIR • • OMMU SINNI í allri umræðunni um hið dreifða eignar- hald á bönkunum er Ellert B. Schram hætt- ur að botna upp eða niður í hinu pólitíska rími, þar sem jafnaðarmenn segja að jöfn- uðurinn sé óframkvæmanlegur og foringi frjálshyggjuflokksins segir þjóðina ekki hafa efni á óheftum markaðslögmálum. E: g verð að játa að ég hef ruglast í I hinu pólitíska rími að undanförnu. Það sem snýr upp snýr niður. Og öfugt. I allri umræðunni um hið dreifða eignarhald á hluta- bréfunum í bönkunum hafa jafnaðar- menn fundið það út að jöfnuðurinn sé óframkvæmanlegur. Á sama tíma kemst foringi frjálshyggjuflokksins að þeirri niðurstöðu að þjóðin hafi ekki efni á óheftum markaðslögmál- um í hlutabréfaviðskiptum og boðar lög til að takmarka eignarhald. í framhaldinu boðar hann síðan þá skoðun sína að selja eigi 51% hlut ríkissjóðs í einu lagi! Bíddu, bíddu segja heilasellurnar í mér. Þetta minnir mig á þjálfarann sem öskraði á mig, þar sem ég stóð einn: Dreifðu úr þér maður! Nú er ég nota bene sammála bæði Davíð og Morgunblaðinu um hætt- una sem stafar af sölu ríkisins á sam- eign þjóðarinnar í stórbönkum og stórfyrirtækjum, ef sú sala leiðú til þess að þessi verðmæti safnist á fárra manna hendur. Alveg eins og ég hef verið þeirrar skoðunar að það stangist á við þjóðarhagsmuni og réttlæti að ríkið gefi frá sér fiskikvótann og örfá fyrirtæki í sjáv- arútvegi raki til sín þeim þjóðarauði. I raun og veru er ríkið að gefa frá sér stórkostleg verðmæti þegar í ljós kemur að sala ríkishlutabréfanna í Fjárfestingarbankanum var nánast á útsölu, enda er gróði Kaupþings ómældur við það eitt að kaupa og selja. Og allar líkur benda til að kaupendurnir fjórir sem kalla sig Orca hf. verði heldur ekki á flæðiskeri staddir með sinn hlut. Eg er satt að segja orðinn svo ruglaður í minni pólitík, að ég spyr eins og Steingrímur J. Sigfússon og rauðir grænir: Hvers vegna í ósköp- unum liggur svona mikið á að selja hlut ríkisins í bönkunum og Lands- símanum, ef okkur er ekki sama hverjir kaupa og okkur stendur ekki á sama hvernig eignarhaldið dreif- ist? Ef markaðurinn á ekki að fá að ráða? HUGSAÐ UPPHÁTT Ei sem ráða yfir sjónvarps- og útvarpsstöðvum og helftinni af þeim blöðum sem hér eru gefin út. Og athyglisverðir eru þeir silkihanskar sem notaðir eru á þessum sömu fjölmiðlum þegar þeir stóratburðir gerast í okkar litla þjóðfélagi að sami rassinn er undir eigendum banka, kvóta, verslana og fjölmiðla. Með þessum orðum er ekki verið að kasta rýrð á þá einstaklinga sem hér eiga hlut að máli, Jón As- geir með Bónusveldið, Þorstein með Samherja, Eyjólf með Dag og DV eða Jón Olafsson með Stöð tvö og Bylgjuna. Þeir hafa allir komist í álnir með dugnaði og útsjónarsemi og í krafti þeirra möguleika sem markaðurinn og lögin leyfa. N‘ p JL o etta er hins vegar spurning lum siðferði og völd og jöfnuð og það er vel að jafn áhrifa- mikill maður og sjálfur forsætisráð- heiTa skuli hafa vaknað til vitundar um að hér sé um að ræða þróun, sem geti reynst ísiensku þjóðfélagi hættuleg. Það sem hann er raunverulega að segja er að markaðurinn getur reynst lýðræðinu skeinuhættur, vegna þess að nú til dags eru það ekki atkvæðin sem ráða lýðræðinu, heldur peningarnir. En þá spyr mað- ur sjálfan sig: Af hverju opnuðust ekki augu Davíðs og annarra góðra sjálfstæðismanna fyrr? Þegar kvót- inn var gefinn? Þegar Burðarás teygir út anga kolkrabbans um allt viðskiptalífið? Þegar kennitölunum var safnað til þess eins að gera gys að eignarhaldsdreifingunni? Er það virkilega rétt að viðbrögð- in á yfirtöku hákarlanna á rúmum fjórðungshluta hlutabréfa í Fjárfest- ingarbankanum séu til komin vegna vanþóknunar á þeim einstaklingum sem keyptu? Forsætisráðherra steig í prédikunarstól í Hólakirkju til að vara við mafíósum og eiturlyfjabar- ónum og varð sú viðvörun ekki skilin nema á einn veg. Hannes Hólm- steinn er orðinn sjálfskipaður vernd- ari skírlífis í íslenskri pólitík og setur samasemmerki á milli fjárstyrkja til flokka og spillingar í stjórnmálum. R-listinn á að hafa þegið styrki frá Jóni Ólafssyni og Jón þegið greiða í staðinn. ■ú veit ég ekkert um gjafrnildi Jóns Olafssonar, en skyldi það þá vera í fyrsta skipti í sögu stjórnmálaflokkanna að greiði komi á móti greiða? Og ef með skír- lífispostulum hinna hreinræktuðu markaðslögmála bærast þær hug- renningar að maðkur kunni að vera í mysunni, hvers vegna hafa þeir þá alla tíð hafnað þeirri sjálfsögðu kröfu að upplýst sé opinberlega hverjir styrki flokkana og hvaðan fé komi til starfsemi þeirra? En auðvitað eru þær vangaveltur bara tímabundnar, vegna þess að áhrifin, hlutabréfin og eignirnar safnast á hendur sífellt færri manna og til hvers þurfa þá slíkir menn að greiða í kosningasjóði? Það verða þeir sem ráða og þá verður það frekar stjórnmálaafl- anna að koma sér í mjúkinn hjá burgeisum framtíðarinnar og leggja þar inn gott orð til að fá að þjóna þeim . í nafni markaðar og óheftrar auðsöfnunar. Jöfnuður þjóðfélagsþegnanna verður þá ekki lengur á dagskrá vegna þess að jafnaðarmenn nútímans hafa kom- ist að þeirri niðurstöðu að takmörk- un á valdi peninganna yfir sameig- inlegum þjóðarauði sé óframkvæm- anleg. Svona hefur skrattanum tekist vel að skemmta ömmu sinni. Græna kortsins 1998! RÍKISSTJÓRN BANDARÍKJANNA BÝÐUR 1 55.000 GRÆN KORT TIL VIÐBÓTAR í ÁR mmmn ERUM AÐ TAKA VIÐ UMSOKNUM NUNA Umsóknarfrestur er að renna út! Til að fá ÓKEYPIS nánari upplýsingar aendið nafn, hcimilisfang, aldur ag starf til: US Lottery Registration 1015 Gayley Avenue Dept. MGD Official Application 0ffice-DV2001 Los Angeles, California 90024 Fax 001 (818) 894-6501 sólarhr. Email info@USLR.com www. USLotteryRegistration. com Kl Electrolux Frystikistu- tilboð Frystikistur í öllum stærðum á tilboðsverði. 180-460 lítra. Verð frá 31.990 kr. HÚSASMIOJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Múrarar - verktakar - byggingameistarar Margir litir n það er fleira sem vekur sið- . ferðisspurningar en það eitt I hverjir eignist ísland í upp- hafi nýrrar aldar, þegar búið er að gefa kvótann og búið að selja eignir ríkisins fyrir slikk. Og þegar þessar ríkiseignir eru komnar í hendurnar á örfáum fjársterkum aðilum, sem fitna á fjósbitanum fyrir örlæti frjálshyggjunnar. Morgunblaðið hef- ur réttilega bent á að eignarhald á fjölmiðlum sé takmarkað með lögum víða erlendis, vegna hættunnar á einstefnu í skoðunum. Það er eitt og sér þessu máli óviðkomandi, nema þá sem sönnun á því að bæði póli- tískt og siðferðislega er bæði mögu- legt og réttlætanlegt að setja hömlur við óheftri eignaraðild að fyrirtækj- um, sem reka skylda starfsemi. En hvað segja menn um þá stað- reynd að fjölmiðlakóngar eignist helstu stofnanir aðrar sem og fyrir- tæki samfélagsins, í krafti markað- arins? Meðal nýrra eigenda í Fjárfest- ingarbankanum eru einstaklingar STEININGARLIM FLOTMÚR ÚTIPÚSSNING INNIPÚSSNING - RAPPLOGUN • 5 tegundir Margir litir - 3 tegundir Úti og inni LÉTTIÐ vinnuna og MARGFALDIÐ afköstin með notkun ELGO múrdælunnar! tilboða! ■i steinprýöi Stangarhyl 7 - P.O. Box 12072 - 132 Reykjavík % _________Simi 567 2777 - Fax 567 2718

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.