Morgunblaðið - 29.08.1999, Page 1

Morgunblaðið - 29.08.1999, Page 1
ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST1999 BLAÐ E Nýi tölvu- og viðskiptaháskólinn Húsakynni útibús Nýja tölvu- og viðskiptaháskólans að Hlíðasmára 9 í Kópavogi. S Utibú stofnað í Kópavogi AJVINNUAUGLÝSINGAR Framkvæm dastjóri Iðntæknistofnunar AUGLYST er laus til umsóknar staða framkvæmdastjóra Iðntæknistofnunar. Framkvæmdastjórinn er staðgengill forstjóra og annast meðal annai's umsjón tímabundinna, af- markaðra verkefna. Umsækjandi þarf að hafa háskóla- menntun á sviði rekstrar eða verkfræði. Starfsmaður í golfvöruverslun ÓSKAÐ er eftir manni til starfa í golfvöruverslun og sagt æskilegt að viðkomandi hafi haldgóða þekkingu á íþrótta- greininni og sé vanur afgreiðslu. Fangavörður á Kvíabryggju FANGELSISMÁLASTOFNUN ríkisins auglýsir eftir starfsmönnum við fangelsið Kvíabryggju, annars vegar í framtíðarstarf fangavarðar og hins vegar til afleysinga í vaktavinnu frá hausti. Sjö manns starfa á Kvíabryggju auk forstöðumanns. Leitað er að einstaklingum á aldrinum 20- 40 ára sem lokið hafa grunnskólaprófí og tveggja ára við- bótamámi eða hafa hlotið menntun eða starfsþjálfun sem meta má að jöfnu. Kjötiðnaðarmaður hjá Goða KJÖTUMBOÐIÐ Goði hf. vill ráða kjötiðnaðarmenn eða menn vana kjötskurði nú þegar. Fyrirtækið getur einnig bætt við nemum á samning og vantar líka starfsfólk í pökk- un og almenn vinnslustörf. ___________RAÐAUGLÝSINGAR Flutningur á hættu- legum farmi VINNUEFTIRLIT ríkisins auglýsir námskeið fyrir þá sem annast sendingar og flutning á hættulegum varningi. Sam- kvæmt reglugerð á að pakka slíkum varningi í viðurkennd- ar umbúðir, merkja þær og útbúa tiltekin flutningsskjöl sem eiga að fylgja varningnum alla leið. Námskeiðið verður í Reykjavík. Fasteign á Reyðarfirði LÖGMENN Austurlandi ehf. auglýsa til sölu 955 fermetra fasteign að Búðareyri 15 á Reyðarfirði og er um iðnaðar- og þjónustuhúsnæði að ræða. Neðri hæð er nú nýtt sem trésmíðaverkstæði. Tónlistarskóli Arbæjar TÓNLISTARSKÓLI Árbæjar, sem áður hét Nýi Músík- skólinn; tekur nú til starfa í nýju húsnæði í Fylkishöll, gegnt Arbæjarlaug og hefst kennsla 13. september. í vetur verður meðal annars starfrækt söngleikjadeild við skólann. Heimasíðan er: www.centrum.is/stefstei7tonlistarskoliarb. ___________SMÁAUGLÝSINGAPj Hjálpræðissamkoma HJÁLPRÆÐISHERINN minnir á samkomu kl. 20.00, kapteinn Miriam talar. Hallelújakórinn syngur. NÝI tölvu- og viðskiptaháskólinn, NTV, í Reykjavík hefur opnað útibú að Hlíðasmára í Kópavogi og hefst starfsemin 1. september, að því er segir í fréttatilkynningu. Kennslu- rými NTV eykst mjög með þessari viðbót og með henni geta skólar NTV auk þess mætt þörf fyrirtækja fyrir sér- hæfð námskeið á ýmsum sviðum. Skólar NTV leggja metnað í að bjóða nemendum góða aðstöðu og áhersla er lögð á heimilislegt umhverfi. Tölvur, skjávarpar og annar kennslubúnaður eru af fullkomnustu gerð og innréttingar samkvæmt ströngustu kröfum. Kennslutölvur skólanna beggja eru alls 120, þær tengjast um háhraðanet sem stýrt er með IBM AS/400 tölvu. Hver nemandi hefur eigin PC-tölvu til umráða. Boðið er upp á námskeið í kerfisfræði og forritun, þjálf- un vegna sölu- og skrifstofustarfa, margvísleg grafísk nám- skeið og tölvunám þar sem farið er yfir helstu forrit og notkunarmöguleika tölvunnar. Skólar NTV hafa verið útnefndir sem prófmiðstöð fyrir Silvan Prometric, þar sem sérfræðingar geta fengið ýmsar prófgráður, einnig fyrir Skýrslutæknifélag fslands sem veitir nemendum alþjóðlega viðurkenningu á tölvuþekk- ingu. Ráðstefna um nettölvur nútímans Akveðið afturhvarf að verða NÚTÍMA samskipti ehf. og Opin kerfi hf. gengust nýlega fyrir ráðstefnu um nettölvur nútímans í Iðnó við Tjörnina. Á ráðstefnunni voru flutt erindi, fyrir- tæki kynntu reynslu sína af vinnu við nettölvukerfi og starfsmenn Nútíma samskipta og Opinna kerfa fjölluðu um tækninýjungar á þessu sviði. Nútíma samskipti hafa umboð fyrir Capio nettölvulausnir frá hollenska fyrirtækinu Boundless Technologies en fulltrúi frá því var einn þeirra sem fluttu erindi á ráð- stefnunni. Hermann Valsson, framkvæmda- stjóri Nútíma samskipta, segir að um þrjú ár séu liðin síðan nettölvan kom tO sögunnar en hún sverji sig í ætt við netkerfi sem tíðkuðust í fyr- irtækjunum fyrfr daga einmenn- ingstölvunnar. Munurinn sé þó sá að gömlu nettölvukerfin hafi haft svokallaðar „dauðar“ útstöðvar, þ.e. einungis skjá og lyklaborð, en net- tölvur nútímans hafi fullkomnari útstöðvar og noti Windows um- hverfi. Stjórmm og yfirsýn erfiðari „Fyrir um 25 árum voru hannað- ar stórar móðurtölvur sem þjónuðu hver sínu fyrirtæki. Útstöðvarnar 11 11 —~mww— 8 P iii if I i§§{ ;i I 11 II ii 11» «■ 1 ij 1 , ftft fti IL wSst.' Frá ráðstefnu Nútíma samskipta og Opinna kerfa um nettölvur. höfðu hvorki örgjörva né minni og gátu því ekki keyrt hugbúnað á eig- in spýtur. Kringum 1982 fór svo ein- menningstölvan, eins og við þekkj- um hana nú, að ryðja sér tO rúms og varð síðan allsráðandi. Skömmu síð- ar var farið að nettengja einmenn- ingstölvur og það hafði í för með sér að gömlu nettölvumar hurfu úr sög- unni. Ókosturinn sem þessi breyt- ing hefur haft í fór með sér er sá að stjórnun og yfirsýn er mun erfiðari en í gamla kerfinu. Notandinn getur átt við ýmislegt í sinni tölvu og skemmt uppsetning- una, andstætt því sem gerðist þegar ein móðurtölva stýrði öllum hug- búnaði og aðeins fáir höfðu aðgang að henni. Þetta hefur þýtt mjög aukinn rekstrarkostnað á einmenn- ingstölvuneti miðað við nettölvu- lausnir. Það hefur verið reiknað út að unnt er að lækka rekstrarkostn- að við tölvukerfi fyrirtækja um allt að 57% með því að taka upp net- tölvukerfi í stað einmenningstölvu- nets.“ Hermann segir að um eitt ár sé liðið síðan íyrirtæki fóru að hverfa aftur til nettölvulausna en Nútíma samskipti hafa flutt inn slíkar lausn- ir um tveggja ára skeið. Samstarf fyrirtækisins við Opin kerfi felst í því að Opin kerfi selja netþjóna tO nota með netlausnum frá Boundless Technologies og fyrirtækin standa þar að auki sameiginlega að mark- aðsmálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.