Morgunblaðið - 29.08.1999, Side 23

Morgunblaðið - 29.08.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 E 23 « GUÐ AUGLÝSIR Tvíburaborgabréf Skilti með ýmsum orðsendingum frá Guði tóku að birtast í Tvíburaborgunum í júní. Gauti Sigþórsson gat ekki á sér setið að grafast fyrir um hver stæði á bak við þessa sérkennilegu auglýsingaherferð. AÐ BAR nýlega til að þar sem ég sat í leigubíl sem ók norður aðra stærstu hrað- brautina í Minneapolis, birtust mér skilaboð frá Guði. Fyrst hélt ég að mér hefði missýnst auglýsinga- skiltið sem stóð við hraðbrautina. Með hvítum stöfum á svörtum bak- grunni var ritað: „Haldið áfram að leggja nafn mitt við hégóma og ég mun lengja umferðarteppurnar. - Guð.“ Mín fyrstu viðbrögð voru að muldra „hvur andskotinn!“ og spyrja bílstjórann hvort hann hefði séð skiltið. Sem betur fer talaði maðurinn ensku. Já, já, þau eru út um allt, kvað hann. Skilti með ýms- um orðsendingum frá Guði tóku að birtast í Tvíburaborgunum í júní, en hann hafði enga hugmynd um það hverjir stæðu fyrir þessu. Á leiðinni heim sá ég annað skilti. „Mun vegurinn sem þú ert á leiða þig heim til mín? - Guð.“ Eft- ir það var forvitni mín vakin, og ég varð að kynna mér þessa auglýs- ingaherferð nánar. Hverjir hafa efni á því að eyða þúsundum doll- ara til þess að leggja skaparanum orð í munn? Skýringin er, samkvæmt New York Times, að einhver Flórídabúi sem krefst nafnleyndar greiddi Smith auglýsingastofunni í Fort Lauderdale 150.000 dollara (tæpar 11 milljónir króna) til að hanna auglýsingaherferð sem bæði yrði andlega vekjandi og hentaði tíunda áratugnum, án þess að vera bundin tilteknum söfnuðum eða guðfræði. Útkoman var safn hnyttinna frasa sem færu John Wayne, Marlon Brando, og Clint Eastwood ágæt- lega. Guð faðir er nú orðinn Guðfaðir- inn. Hann talar nú eins og aðalper- sóna í kvikmynd þar sem stuttorð- ar hetjur eiga alltaf síðasta orðið. Don Corleone sagði: „Við gerum honum tilboð sem hann getur ekki hafnað.“ Guð segir: „Hvaða hluta „Eigi skalt þú ...“ skildir þú ekki?“ Vegaauglýsingamar frá Guði byggja á táknum sem eni amerísk- um almenningi mjög kær. Annars vegar er Drottinn, sá sem hafður var með í ráðum þegar púrítanarn- ir á Mayflower höfðu í hyggju að stofna ríki Guðs á jörð í nýja heim- inum. Enn í dag getur enginn stjórnmálamaður risið til hárra metorða í Bandaríkjunum öðruvísi en að sýna skýrt og greinilega að hann eða hún ræki trú sína. Hins vegar er hinn sjálfstæði, sterki ein- staklingur, hin þögla hetja sem berst gegn óréttlæti með takmark- aðri virðingu íyrir samfélagi og lögum. Þegar þessi tvö sagnaminni eru leidd saman með frösum eins og „Þetta með „Elska skaltu ná- unga þinn“ - mér var alvara" verð- ur útkoman nokkurs konar „Don Drottinn“. Þessi Guð hefur fengið góðar viðtökur um öll Bandaríkin. Eftir að skiltin birtust fyrst síðasta haust í Flórída voru þau gerð að herferð á landsvísu. Samtökin Out- door Advertising Association of America tóku hugmyndina upp á sína arma og fengu meðlimi sína, aðallega fyrirtæki sem gera út aug- lýsingaskilti, til þess að setja upp skilaboðin að ofan ókeypis. Skiltin hafa nú birst á u.þ.b. 10.000 stöðum um allt land. Þrátt fyrir góðar móttökur minnir þessi herferð helst á lækna- brandarann „aðgerðin gekk vel, en sjúklingurinn dó“. Þessi fámálugi en áberandi Guð er hálfslappur. Það er eitthvað veiklulegt við hót- anir eins og „Hefurðu lesið met- sölubókina mína? (Það verður próf- að úr henni)“ eða „Og þér finnst vera heitt hérna?“ „Don Drottinn" er sniðugur og orðheppinn, en það ætti að vera ljóst að þegar skapar- inn þarf að fá lánaðar raddir og frasa frá Eastwood, Brando og kol- legum þeirra þá er eitthvað að. Það er kaldhæðnislegt að guðhræddur auðkýfíngur í Flórída skuli þannig staðfesta það sem vitað vai' á 19. öld, að heimsmynd og samfélag nú- tímans eru afhelguð. Guð er ekki lengur neitt merkilegra tákn en vörumerkin á öllum hinum auglýs- ingunum meðfram hraðbrautinni. Smith auglýsingastofan hefur með þessu móti tekið að sér hlutverk sem Nietzsche úthlutaði vitfirringi, að ganga um torgið með kyndil um hábjartan daginn og æpa til fólks- ins að Guð væri dauður því að við hefðum sjálf drepið hann. Sjálfur bíð ég spenntur eftir sjónvarpsauglýsingunum. Meðan guð auglýsir í Ameríku eru aðrir sem þakka guði fyrir að vera ekki Ameríkanar. Bylting 7 Fjölnota byggingaplatan sem allir hafa beðið eftir! VIR0C byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf. VIR0C byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi. VIR0C byggingaplatan er umhverfisvæn. VIR0C byggingaplatan er platan sem verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint. Staðalstærð: 1200x3000x12 mm. Aðrar þykktir: 8,10,16,19,22,25, 32 & 37 mm. Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm Vlroc utanhússklæðning PP &CO Leltlð upplýslnga Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 í 568 6100 s M Á A U G L V S I N G A FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. =077», Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma Kapteinn Miriam talar. Hallelúja kórinn syngur. Allir hjartanlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn samkoma kl. 20.00. Biblíuskólanemendur taka þátt i samkomunni. Allir hjartanlega velkomnir. Mán: Marita-samkoma kl. 20.00. Fös: Unglingasamkoma kl. 20.30. Lau: Bænastund kl. 20.30. www.gospel.is Klettu^v Kristit samlilig Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sunnudagur 29. ágúst kl. 20 Almenn samkoma. Predikun: Jón Þór Eyjólfsson. Allir velkomnir. Heimasíða: www.islandia.is/~kletturinn FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Sunnudagsferðir 29. ágúst: Kl. 10.30 Skorradalur, berja- og sveppaferð. Skógarganga með Ágústi Árna- syni skógarverði i samvinnu við Skógræktarfélag fslands. Tilvalin fjölskylduferð. Verð 1.900 kr frítt f. börn m. fullorðnum. Kl. 10.30 Síldarmannagötur. Gömul þjóðleið úr Hvalfjarðar- botni í Skorradal. Áætluð heim- koma kl. 18.30. Um 5-6 klst. ganga. Verð 1.900 kr. Brottför frá BSÍ, austanmeg- in, og Mörkinni 6. Sjá textavarp bls. 619. Héðinsgötu 2, s. 533 1777. Sunnudagskvöld kl. 17.00 Hilmar Kristinsson. Trúðu á Guð. Þriðjudagskvöld kl. 20.00 Bibliuskóii. Föstudagskvöld kl. 21.00 Gen-X-kvöld fyrir unga fólkið. Trúboð í miðbænum frá Grófinni 1 kl. 23.30-4.00. Allir velkomnir. Vertu frjáls. Kfktu í Frelsið. fOO KFUM & KFUK 1 8 9 9 - 1 599 Aðalstöðvar við Holtaveg Samkoma sunnudagskvöld klukkan átta. Samkoman verður í umsjá Sam- bands íslenskra kristniboðsfé- laga. Hjónunum Kjellrúnu og Skúla Svavarssyni kristniboðum, sem nýlega komu til landsins eft- ir nokkurra ára dvöl í Kenýju, verður fagnað. Allir velkomnir. OBAHÁ’Í OPIÐ HÚS Sunnudagskvöld kl. 20:30 Kynning á bahá’í trú Kaffi og veitingar Álfabakkd 12, 2. hœð sími 567 0344 www.bahai.is íslenska Kristskirkjan Samkoma kl. 20. Mikil lof- gjörð, fyrirbænir og vitnis- burðir um það hvers virði trúin á Jesú er. Heimasíða: http://www.mmedia.is/ kristskirkjan. Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Samkoma kl. 20.00. Predikun: Högni Valsson. Allir veikomnir. TILKYNNINGAR Frá Sálar- rannsóknar- félagi íslands ATH! Höfum opnað aftur eftir sumarleyfi. Miðlarnir og huglæknarnir Bjarni Kristjáns- son, Guðrún Hjörleifsdóttir, Haf- steinn Guðbjörnsson, Kristín Karlsdóttir, Lára Halla Snæfells, María Sigurðardóttir, Þórunn Maggý Guðmundsdóttir og Skúli Lórentzson starfa hjá félaginu og bjóða upp á einkatíma. Friðbjörg Óskarsdóttir leiðir og heldur utan um bæna- og þróun- arhópa. Uppiýsingar, bókanir og tekið á móti fyrirbænum i sima 551 8130 frá kl. 9-15 alla virka daga. Eftir það eru veittar upplýsingar og hægt er að skilja eftir skilaboð á símsvara félagsins. SRFÍ. DULSPEKI Miðlun — spámíðlun Lifsins sýn úr fortíð í nútíð og framtíð? Tímapantanir hafnar að nýju í síma 561 6282. (Ath. breytt símanúmer). Geirlaug. KENNSLA LITIR LJÓSSINS"/námskeið 3. — 4. sept. • Áhrif lita. • Hugleiðslur. • Skapandi myndsýnir. • Málun. Upplýsingar og skráning hjá Helgu, s. 551 7177. Brian Tracv :0: lW ERNATIONAL Brian Tracy námskeiðið PHOENIX leiðin til árangurs 20. klst. námskeið 7.-16. sept., 21. -30. sept., 4. -15. okt., 19.-28. okt., 2.-11. nóv., 16.-25. nóv. 5. 899 4023/ 577 9904. Jóna B. Sætran í samstarfi við Inn- sýn. hugborg@islandia. www.islandia.is/~hugborg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.