Morgunblaðið - 17.10.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 17.10.1999, Síða 1
236. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Öflugur jarðskjálfti skek- ur suðurhluta Kaliforníu Ekkert manntjón þar sem upp- tökin voru á strjálbýlu svæði Los Angeles, Strasbourg. AFP, AP, Reuters. ÖFLUGUR jarðskjálfti, sem mældist að minnsta kosti 7 stig á Richters-kvarða, reið yfir suðurhluta Kaliforníu á laugardagsmorg- un, eða laust fyrir klukkan þrjú að nóttu að staðartíma. Talið var að tugir manna hefðu slasast, en ekki var vitað til þess í eftirmiðdaginn á laugardag að nokkur hefði látið lífið eða hlotið alvarleg meiðsl. Upptök skjálftans voru í Mojave- eyðimörkinni, um 50 km frá bænum Joshua Tree, en svæðið er afar strjálbýlt. Ekki höfðu borist fregnir af umtalsverðum skemmdum á svæðinu, en útvarpsstöð í Joshua Tree skýrði frá því að hlutir hefðu fallið úr hillum og að vatnsleiðslur hefðu sprungið. Ein kona slasaðist er hún varð undir fataskáp. Vakt- maður á gistiheimili í bænum sagði í samtali við AP-fréttastofuna að raf- magn hefði farið af, en að engin merki væru um skemmdir. Sagði hann að gestir gistiheimilisins væru heilir á húfi. Þeir hefðu allir vaknað og að útlendingar í hópnum hefðu orðið nokkuð skelkaðir. „Par frá Bretlandi spurði mig hvort þetta væri eðlilegt," sagði vaktmaðurinn. Hús riðuðu í Los Angeles I Los Angeles, sem er í yfir 160 km fjarlægð, riðuðu hús og rafmagn fór af hluta borgarinnar. Að sögn lögreglu var ekki vitað til þess að al- varleg slys eða skemmdir hefðu orðið. Jarðskjálftinn fannst alla leið frá Las Vegas í Nevada til Tucson í Arizona og inn í Mexíkó. Vitni lýstu jarðskjálftanum sem ölduhreyfingu, frekar en snöggum rykk, en talið er að hann hafi staðið yfir í að minnsta kosti 45 sekúndur. „Hann var frekar öflugur og stóð lengi yfir,“ hafði AP eftir hrað- brautalögreglumanni í San Bemar- dino-sýslu, skammt frá upptökum skjálftans. Að sögn lögreglunnar í San Bem- ardino fóra 20 vagnar af 40 í lest frá Amtrak-fyrirtækinu út af brautar- teinum í Mojave-eyðimörkinni við skjálftann. Björgunarsveit var send á vettvang en enginn reyndist slas- aður. Óhappið átti sér stað nálægt bænum Ludlow, nokkra km norður af upptökunum. Sá fyrsti í nýrri hrinu Jarðskjálftafræðingar telja skjálftann þann fyrsta stóra í nýrri hrinu, en minni skjálftar urðu á fóstudag og nokkrir eftirskjálftar hafa riðið yfir. Fyrstu fréttir bentu til þess að jarðskjálftinn hefði verið 7 stig á Richters-kvarða, en banda- rískir jarðskjálftafræðingar nefndu tölur allt að 7,3. Franska jarð- skjálftafræðistofnunin í Strasbourg taldi að skjálftinn hefði verið 7,6 stig. Kalifomía liggur á miklu jarð- skjálftasvæði og í janúar 1994 létust 72 er jarðskjálfti, sem mældist 6,7 stig, reið yfir Northridge, skammt norðan Los Angeles. Skjálfti, sem mældist 7,3 stig, skók ríkið árið 1992 með þeim afleiðingum að einn maður lést og hafa tugþúsundir eft- irskjálfta fylgt í kjölfar hans. OREGON IDAHO KYRRAHAF 200 km „Eins og úti á rúmsjó“ HAFLIÐI Kristinsson og Stein- unn Þorvaldsdóttir kona hans, sem búa í Pasadena í norður- hluta Los Angeles, vöknuðu er jarðskjáiftinn reið yfir. „Við urð- um heldur betur vör við skjálft- ann. Það var eins og rúmið væri úti á rúmsjó og það var mjög sér- kennilegt,11 sagði Hafiiði í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að húsgögn hefðu ekki færst úr stað, en að hlutir í hillum, gard- ínur og aðrir lausamunir hefðu verið á fleygiferð. „Annars tók- um við þessu nú rólega því það er slökkvistöð hérna hinum meg- in við götuna og þegar slökkvilið- ið hreyfði sig ekki var ég ekkert að æsa mig.“ Reuters Unglingar vaða í vatnsflaumi á bílastæði við verslunarmiðstöð í bæn- um Homestead í Flórída í gær. Fellibylurinn Irene gengur yfír Flórída Að minnsta kosti fimm látnir Miami. AFP, AP, Reuters. AÐ MINNSTA kosti fimm manns létu lífið í Flórída er fellibylurinn Irene gekk yfir ríkið aðfaranótt laugardags. Miðja fellibylsins þok- aðist norður yfir Palm Beach á laug- ardagsmorgun, og hefur Bill Clinton Bandaríkjaforseti lýst yfir neyðará- standi. Skýrt var frá því að fimm manns hefðu beðið bana er rafmagnslína slitnaði af völdum óveðursins í Broward-sýslu í Flórída. Ekki var Ijóst um hádegisbil á laugardag hve mikið tjón hefði orðið af völdum fellibylsins, en miklar rigningar, sem fóra á undan honum, höfðu valdið talsverðum flóðum á föstu- dag. Víða var rafmagnslaust í Flórída af þessum sökum. A mestu þéttbýlissvæðum ríkisins varð að- eins vart mikils vinds og regns. Fjórir drukknuðu á Bahama-eyj- um og að minnsta kosti fimm létust á Kúbu, er fellibylurinn gekk yfir Karíbahafið á föstudag. Búist var við að Irene stefndi út á Atlantshaf aðfaranótt sunnudags, en varað var við því að mikið regn og tilheyrandi flóð gætu orðið í Suður- og Norður- Karólínu. ESB hyggst samræma innflytj endastefnu Tampere. AP, Reuters. LEIÐTOGAR aðildaa-ríkja Evrópu- sambandsins ákváðu í gær að gefa sér eitt ár til að komast að sam- komulagi um sameiginlega stefnu í dómsmálum og málum innflytjenda og flóttamanna, auk þess sem stefnt er að því að samræma aðgerðir í baráttunni gegn skipulagðri glæpa- starfsemi. Fundi leiðtoganna 15 í Tampere í Finnlandi, sem boðaður var sérstaklega til að ræða þennan málaflokk, lauk í gær. Glæpamenn hafa í auknum mæli notfært sér að landamæri era opin milli ríkja ESB til að stunda skipu- lagt smygl á fólki, og er hinni sam- eiginlegu innflytjendastefnu ætlað að stemfna stigu við þvi. Hún fæli einnig í sér að reglur um meðferð mála flóttamanna og skilyrði fyrir því að þeim sé veitt hæh yrðu samræmdar. Meðal annars er stefnt að því að finna leiðir til að koma í veg fýrir að flóttamenn, sem neitað er um hæh í einu aðildariTki, faii þá beint til ann- ars ESB-ríkis og sæki um hæli. Ákvörðun öldungadeildar Bandaríkjaþings hörmuð Þá komust leiðtogarnir að sam- komulagi um að stefnt skyldi að samræmingu aðgerða til að berjast gegn eitmiyijasmygli, hryðjuverk- um og skipulagðri glæpastarfsemi, sem teygii- sig í æ ríkari mæli á milli landa. Lagt var til að Evrópulög- reglan, Europol, yrði styrkt í þessu skyni. I drögum að yfirlýsingu fundarins kemur fram að leiðtogar aðildarríkj- anna harmi þá ákvörðun öldunga- deildar Bandaríkjaþings að staðfesta ekki alþjóðlegan samning um bann við kjamorkutilraunum. Lýst er yfir áhyggjum af því að öldungadeildin hafi þannig sent röng skilaboð til þeirra landa sem hafa verið að reyna að koma sér upp kjamavopnum. Leiðtogarnir samþykktu einnig að stöðva frekari mannúðaraðstoð til Pakistans og letja fyrirttcki til að fjárfesta í landinu, hafi herstjórnin ekki lagt fram áætlun um endur- reisn lýðræðis fyi-ir 15. nóvember. Hvfld á nýrri öld ÍÍÍÉ ÍSLENSKU HESTANNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.