Morgunblaðið - 17.10.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.10.1999, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 10/10 -16/10 ►VISITALA neysluverðs miðað við verðlag í október- byijun var 193,3 stig og hækkaði um 0,8% frá fyrra mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vi'sitala neysluverðs hækkað um 5,3%. Undan- farna mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2%, sem jafngildir 8,3% verð- bólgu á ári. ► 1.120 breytingar voru gerðar á trúfélagaskráningu landsmanna fyrstu níu mán- uði ársins. Algengasta breyt- ingin var úrsögn úr þjóð- kirkjunni, en samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Islands skráðu 609 sig úr þjóðkirkjunni á timabilinu. ►NÝ tíu þúsund fermetra bygging verslunarmiðstöðv- arinnar Kringlunnar var opnuð á fimmtudag. Með byggingunni er búið að tengja saman Kringluna, Borgarkringluna og Borgar- leikhúsið og er húsnæðið alls um 62.000 fermetrar að stærð eftir breytingu. ►VÍSINDAMENN fundu sig- ketil í Fimmvörðuhálsi, sem liggur á milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjallajökuls. Talið er líklegast að jarðhiti hafi myndast á svæðinu við um- brotin í Kötlu í sumar og er umbrotasvæðið því stærra en talið var í fyrstu. ►BERKLATILFELLI hcr- lendis eru um 15 á ári og þar af hefur sfðustu árin um þriðjungur tilfella verið meðal þeirra sem nýfluttir eru til landsins. Þorsteinn Blöndal yfirlæknir á Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur segir að tilfelli af lyfþolnum berklum muni berast til Is- lands en hann telur ólíklegt að þeir nái að breiðast út. Kvennaráðstefnan tókst vel RÁÐSTEFNUNNI Konur og lýðræði við árþúsundamót lauk á síðasta sunnu- dag. Hillary Rodham Clinton forsetafrú Bandaríkjanna stýrði bæði pall- borðsumræðum á ráðstefnunni og flutti ræðu. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, formaður framkvæmdanefndar ráð- stefnunnar var ánægð með hvernig til tókst. Þegar hefur tekist að afla styrkja frá fjölda fyrirtækja og stofnana til verkefna sem vinna á að fram að næstu ráðstefnu sem halda á í Vilnius í Lit- háen eftir 18 mánuði. Áhrif álvers á Austurlandi kynnt SKÝRSLA um mat á umhverfísáhrifum álvers á Reyðarfirði var kynnt í vikunni. í henni er komist að þeirri niðurstöðu að íbúum á Mið-Austurlandi fjölgi um 600-900 manns ef 120 þúsund tonna ál- ver verði byggt í Reyðarfirði. Talið er að mengun af völdum álversins muni hafa áhrif á viðkvæman gróður í næsta nágrenni þess og því er gert ráð fyrir að gróðurfar við álverið breytist á þann hátt að viðkvæmari gróður hörfi fyrir þolnari gróðri. Þá sýna rannsóknir að útblástur flúors og brennisteinstvíildis frá 120 þúsund tonna álveri verði fyrir neðan viðmiðurnargildi um áhrif á fólk. Herinn rænir völdum í Pakistan PERVEZ Musharraf, yfirmaður herafla Pakistans, vék lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn landsins frá á þriðjudag;, eft- ir að forsætj^ráð- herrann, Ifáwáz Sharif, hafðí rék- ið hann úr emb- ætti. Valdátaka hersins fór fram án ofbeldisverka, en Sharif, auk nokkurra ann- arra ráðherra, var hnepptur í stofufangelsi. Herinn lýsti yfír neyðarástandi á fimmtudagskvöld og kvaðst hafa numið stjómarskrána úr gildi og leyst upp þingið. Orðrómur hef- ur verið á kreiki um að sett verði her- lög, en alger óvissa ríkir um þróun mála. Sameinuðu þjóðirnar og ýmis er- lend ríki hafa mótmælt valdaráni hers- ins og krefjast þess að lýðræðislegri stjórn verði aftur komið á í landinu. Bandaríkjaþing hafn- ar banni við kjarn- orkutilraunum ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings hafnaði á miðvikudag alþjóðlegum samningi um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn. Er þetta fyrsti afvopn- unarsamningurinn sem öldungadeildin fellir, en repúblikanar, undir forystu Jesse Helms, formanns utanríkisdeildar þingsins, voru honum mótfallnir. Ráða- menn í Evrópu hafa lýát yfir miklum áhyggjum vegna niðurstöðu öldunga- deildarinnar, og óttast að hún kunni að grafa undan tilraunum til að stemma stigu við útbreiðslu kjarnavopna í heim- inum. Kínverjar og Indverjar hafa lýst því yfir að þeir styðji samninginn enn, og að þeir muni beita sér fyrir því að hann verði staðfestur sem fyrst á þing- um landanna. ►Rússar héldu uppi harðri sókn í Tsjetsjníu í vikunni. Hafa her Tsjetsjníusljórnar og hópar skæruliða, víða þurft að hörfa, og níssneskt, herlið nálgást nú höfuðborg- ina Grosní. ►Sex milljarðasti jarðarbú- inn kom í heiminn í byrjun vikunnar, samkvæmt út- reikningum Mannfjöklasiofn- unar Sameinuðu þjóðanna. Kofi Annan, framkvæmda- stjóri SÞ, vár viðstaddur táknræna athöfn á fæðingar- deildinni í Sarajevó, þar sem fyrsta barnið sem fæddist eftir miðnætti á þriðjudag var heiðrað. ►Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, stokkaði upp í ríkisstjórn sinni á mánudag. Var Peter Mand- elson skipaður í embætti Norður-Irlandsmálaráð- herra í stað Mo Mowlam, að- eins tíu mánuðum eftir að hann hrökklaðist úr embætti viðskiptaráðherra vegna fjármálahneykslis. Mowlam mun nú taka við embætti samhæfingarráðherra ríkis- stjórnar Verkamannaflokks- ins. ►Starfsmaður á vegum Sam- einuðu þjóðanna á Austur- Tímor fullyrti á miðvikudag að engar sannanir hefðu fundist fyrir því að vígasveit- ir hefðu framið fjöldamorð á óbreyttum borgurum á eynni, þrátt fyrir sögusagnir um hroðaleg grimmdarverk. Sagði hann að friðargæslulið SÞ hefði þegar verið búið að finna ummerkin, ef slíkt hefði átt sér stað. FRETTIR Matvæladagur Matvæla- og næringarfræðifélags Islands Svínarækt- arfélag Is- lands verð- launað MATVÆLA- og_ næringarfræðifé- lag íslands (MNÍ) stóð í gær fyrir árlegum matvæladegi í sjöunda skipti. Efni matvæladagsins var offita, en Alþjóða heilbrigðismála- stofnunin telur að offita verði eitt helsta heilbrigðisvandamál næstu aldar og fara Islendingar ekki var- hluta af þeim offitufaraldri sem nú herjar á hinn vestræna heim. I sam- starfi við Samtök iðnaðarins var veitt viðurkenning fyrir lofsvert framtak á matvælasviði sem kallast „fjöregg MNÍ“. Svínaræktarfélag Islands hlaut að þessu sinni fjöreggið fyrir þró- unar- og rannsóknarmál félagsins sém miða að kynbótum íslenska svínastofnsins. Að sögn Kristins Gylfa Jónssonar, formanns félags- ins, sem fyrir hönd þess veitti verðlaununum móttöku eru mark- mið féiagsins m.a. að standa vörð um hagsmuni svínabænda og Morgunblaðið/Ásdís Kristinn Gylfi Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands, tekur við fjöregginu úr höndum Sveins Hannesarsonar, meðlims dómnefndar. framleiðslu og sölu svínakjöts hér á landi sem og að framleiða svína- kjöt með hagkvæmum hætti fram- leiðendum sem neytendum í hag. En auk þess að kynbæta ís- lenska svínastofninn með regluleg- um innflutningi á erfðaefni fyrir svín þannig að framleiðsla svína- kjöts standist kröfur neytenda um hollar og góðar afurðir. Kristinn sagði svínabændur þakkláta viður- kenningunni. En neysla svínakjöts hefur fjórfaldast síðastliðna tvo áratugi og að sögn Kristins, bendir allt til að hún muni halda áfram að aukast og væru verðlaunin því hvatning til að efla starfsgreinina enn fremur. Um 70 starfsmenn vantar á leikskóla borgarinnar Deildir lokaðar til skiptis ENN vantar um 70 til 80 starfs- menn á leikskóla Reykjavíkurborg- ar, þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar um lausar stöður, að sögn Bergs Felixsonar framkvæmdastjóra Leikskóla Reykjavíkurborgar. „Ástandið í mannaráðningum hefur aldrei fyn- verið jafn slæmt og nú í haust,“ sagði hann. Á mörgum leikskólum hefur verið gripið til þess ráðs að loka til dæmis einni deild hálfan dag í viku þannig að lokanir komi sem jafnast niður á bömum og foreldrum. Meðan marga starfsmenn vantar verður slíkt fyrirkomulag við lýði hjá nokki-um leikskólanna. Bergur sagði að ástandið væri hvað verst í jaðar- hverfum, þ.e. í vesturbæ og Grafar- vogi, en ekki eins slæmt í öðrum hverfum. „Það má ekkert bregða út- af og ef starfsmenn veikjast er eina ráðið að senda börnin heim,“ sagði hann. „Verst þykir okkur að við höf- um orðið að svíkja suma foreldra sem búið var að lofa vist fyrir börnin nú í haust því við höfum ekki þorað að fylla skólana alveg.“ Sagði hann að þrátt fyrir viðbót- arfjárveitingu til leikskólanna til ýmissa sérverkefna, sem gefi mögu- leika á aukavinnu, hafi ekki tekist að fá fólk til starfa. „Fáir sækja um og á þessum árstíma dreymir okkur ekki um að fá nýja leikskólakenn- ara,“ sagði hann. ISLENSK 'SKÓLAORÐÁBÖK Omissandi í námi og starfi Ensk-íslensk skólaorðabók er korrn'n út í nýrri útgáfu hjá Máli og menningu. Handhæg bók og nauðsynlegt hjálpartæki í námi, leik og starfi. Mál og mennlngl malogmenning.isip|l 1 Gangstétt- ir nýttar sem bíla- stæði ALÞJÓÐLEGUR dagur hvíta stafsins var á föstudag og vakti Blindrafélagið þá máls á einu aðalvandamáli þess að ferðast um með hjálp hvíta stafsins en það eru kyrrstæðir bflar á gangstéttum. Bflarnir geta valdið hættu Bflarnir geti valdið hættu og losna þurfi við þá af gangstétt- um til að blindir og sjónskertir komist óhindraðir ferða sinna í umferðinni. Það fellur í hlut stöðumæla- varða að sekta þá sem leggja bflum sínum ólöglega. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík skipt- ir lögreglan sér ekki af bflum sem lagt er á gagnstéttum, nema þeim sé Iagt þannig að hætta skapist fyrir gangandi vegfarendur. En þá eru bflarnir fjarlægðir með tilheyrandi skýrslutöku og sekt. Lögreglu kunnugt um vandann Lögreglan segir sér þó vera kunnugt um þann vanda sem þetta geti skapað blindum og segir þetta eiga sérstaklega við í miðbæ borgarinnar og Þingholtunum þar sem þrengsli séu oft mikil og fólk Ieggi frekiega.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.