Morgunblaðið - 17.10.1999, Side 6
6 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Pólitískri
endurhæf-
ingu Mandel-
sons lokið
P* 7BAKSVIÐ
m’7_______
Skipan Peters Mandelsons í embætti Norð-
----y----------------■------------------
ur-Irlandsmálaráðherra bresku stjórnar-
innar í stað Mo Mowlam hefur mælst ágæt-
----------7 .——■——————------------------
lega fyrir. Ovíst er að vísu hvaða áhrif þessi
mannaskipti munu hafa á friðarumleitanir
í héraðinu en að sögn Davíðs Loga Sig-
urðssonar er ekki ólíklegt að innan tíðar
dragi til tíðinda í þeim efnum.
SKIPAN Peters Mandelsons
sem ráðherra Norður-ír-
landsmála í bresku stjóm-
inni hefur mælst nokkuð vel
fyrir meðal stjórnmálamanna og
fréttaskýrenda á N-írlandi. Þótt
Mo Mowlam þyki af flestum hafa
staðið sig afar vel, og að sannarlega
hafi þokast í friðarátt í héraðinu í
ráðherratíð hennar, er það jafn-
framt mat manna að kominn hafi
verið tími til að skipta um karl í
brúnni. Hvort Mandelson muni
ganga betur en Mowlam að höggva
á þann hnút, sem staðið hefur frið-
arsamkomulaginu á N-írlandi fyrir
þrifum, er auðvitað óvíst en hins
vegar er ekki alveg útilokað að til
tíðinda dragi strax í þessari viku.
Eiginlega ætti engum að koma á
óvart að Mandelson taki nú við af
Mowlam. Ljóst var fyrir nokkru að
Mowlam væri ekki sætt lengur í
embættinu vegna samskiptaörðug-
leika milli hennar og forystumanna
stærsta flokks sambandssinna á N-
írlandi (UUP) og David Trimble,
leiðtogi UUP, hafði reyndar farið
fram á afsögn hennar þegar í sum-
ar.
Sambandssinnar hafa allt frá
fyrstu stundu grunað Mowlam um
að vera halla undir málstað lýðveld-
issinna, sem vilja rjúfa tengsl N-ír-
lands við Bretland og sameinast Ir-
landi, og vendipunkturinn varð síð-
sumars þegar Mowlam úrskurðaði
að vopnahlé Irska lýðveldishersins
(IRA) stæði óhaggað, jafnvel þótt
fyrir lægi að samtökin hefðu staðið
að röð ódæðisverka, auk vopna-
smygls frá Bandaríkjunum. Síðan
þá hefur aðeins verið tímaspursmál
hvenær Blair stokkaði spilin.
Nafn Mandelsons kom upp í um-
ræðunni um hugsanlegan eftirmann
Mowlam strax í sumar og reyndar
var það David Trimble sem stakk
upg á Mandelson sem heppilegum
N-Irlandsmálaráðherra. Sagði
Trimble að þar færi maður með
næga pólíska vigt til að valda emb-
ættinu, og ýjaði þar vitaskuld að því
að honum þætti Mowlam óhæf til að
gegna því.
A þeim tímapunkti var hins vegar
ekki nægilega langt um liðið síðan
Mandelson neyddist til að segja af
sér embætti iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, en það gerði hann í des-
ember á síðasta ári, og þetta var
aukinheldur fyrir þann vendipunkt,
sem áður var lýst. Ekki mátti held-
ur láta svo líta út sem sambands-
sinnar gætu einfaldlega pantað nýj-
an ráðherra þegar þeim mislíkaði
við þann gamla.
Tíu mánaða útlegð lokið
Endurkoma Mandelsons þykir
tíðindum sæta fyrir margra hluta
sakir, m.a. vegna þess að Mandel-
son er afar umdeildur stjómmála-
maður. Það efast hins vegar enginn
um að hann er þungavigtarmaður í
breska Verkamannaflokknum, þó
að hann hafi um tíu mánaða skeið
verið í eins konar útlegð úr framlínu
Mveg magnaðar Uiailandsferðir
Innkaupaferðirnar í hámarki -
okkar verð í lágmarki -
þú gerir vart betri kaup
en í Thailandsferð.
Odýrara en Evrópa/Kanarí -
■I slmi 562 0400 WM
5 ferðir uppseldar frá
2. sept. til 3. nóv. 1999
Nýtt tilboð: Thailandsvinafélagið
Undur Thailands - 24. nóv. 14 d. kr. 89.900
Jólaferð -18 d. 12.-29. des. kr. 139.900.
Gleðileg jól í sumri og sól!
Utnefnd í alþ.jóðasamtökin EXCELLENCE IN TRAVEL
ERLENT
Reuters
Deilur um afvopnun Irska lýðveldishersins (IRA) hafa staðið friðarsamkomulaginu á Norður-Irlandi fyrir
þrifum. IRA hefur reynst afar tregt til að verða við kröfum sambandssinna um að hefja afvopnun.
AP
Peter Mandclson, ráðherra N-Irlandsmála bresku ríkisstjórnarinnar,
með forvera sinum í starfi, Mo Mowlam.
stjómmálanna, og skipan hans í
embætti N-írlandsmálaráðherra er
ekki síst til marks um að Blair
hyggist áfram setja í forgang að
reyna að finna lausn á deilum stríð-
andi fylkinga á N-írlandi. Sú
ákvörðun Blairs að skipa mann, sem
bæði er einkavinur forsætisráðherr-
ans og einn helsti ráðgjafi, er stað-
festing á því.
Það er sem sé af sem áður var að
litið sé á ráðuneyti N-Irlandsmála
sem síðustu endastöð afdankaðra
stjómmálamanna. Reyndar er hið
gagnstæða uppi á teningnum í
þessu tilfelli því það er mál manna
að nú þegar Blair hefur ákveðið að
Mandelson hafi gert nægilega yfir-
bót fyrir yfirsjón sína - en Mandel-
son hrökklaðist úr ráðherrastóli
vegna þess að honum láðist að geta
um vaxtalaust lán sem hann fékk
frá umdeildum milljónamæringi - sé
pólitískri endurhæfingu hans jafn-
framt lokið. Sjálfur ku Mandelson
horfa löngunaraugum til utanríkis-
ráðherrastólsins og N-írlandsmála-
ráðuneytið gæti reynst stökkpallur
á leiðinni þangað.
Mandelson mun hins vegar ör-
ugglega hafa vit á því að einbeita
sér fyrst um sinn einungis að því
verkefni sem hann á nú fyrir hönd-
um. Og það væri honum líka vissara
því það verkefni er alls enginn
hægðarleikur og ekki er útilokað að
frammistaða hans í N-írlandsmála-
ráðuneytinu ráði úrslitum um hvort
áðumefndir framadraumar rætast.
Að vísu hefur mönnum nú fram að
þessu svo sem verið fyrirgefið fyrir
að ná ekki árangri í þessu vanda-
sama embætti en Mandelson hefur
ýmislegt að sanna og þætti sjálfsagt
ekki amalegt að geta stært sig af
því að hafa stuðlað að friðsamlegri
lausn deilnanna á N-írlandi.
Vel að sér í málefnum
Norður-Irlands
Hið merkilega er að menn virðast
almennt sammála um að fáir séu
betur til þess fallnir en einmitt
Mandelson að taka við af Mowlam á
þessum tímapunkti. Ekki síst af því
að Mowlam þótti undir það síðasta
standa ráðalaus gagnvart þeim erf-
iðu vandamálum sem við blöstu.
Mandelson verður örugglega allt
öðruvísi ráðherra en -------------------
Mowlam. Mowlam tók Verður Öðruvísi
við embættinu af enska ráðherra en
^irstéttarmanninum Mowlam
Patrick Mayhew, sem ___________
var ráðherra 1992-1997, ””"
og þótti því sem ferskur andblær á
N-Irlandi. Hún notaði tungutak
fólksins á götunni, var alþýðleg og
full eldmóðs, og má fullyrða að
þessir kostir hennar hafi m.a. skap-
að þær forsendur, sem tO þurfti,
þannig að leiðtogar stríðandi fylk-
ingar settust niður til viðræðna sem
lauk með samningum í apríl 1998.
í seinni tíð var hins vegar ekki til
staðar trúnaðartraust milli
Mowlam og leiðtoga sambands-
sinna, og þegar til kom reyndist
hún ekki búa yfir þeim taktísku,
pólitísku hæfileikum sem þarf til að
ná málum fram þrátt fyrir að í móti
blési. Af þeim hæfileikum hefur
Mandelson hins vegar ofgnótt.
Þrátt fyrir að hann hafí notið nokk-
urra óvinsælda innan eigin flokks,
m.a. verið uppnefndur „myrkra-
höfðinginn“ fyrir meint baktjalda-
makk á vettvangi stjórnmálanna, er
viðurkennt að hann sé góðum gáf-
um gæddur og búi yfir óumdeildum
stjórnunarhæfileikum.
Ekki þykir það heldur ljóður á
ráði Mandelsons, hvað varðar þetta
tiltekna embætti á þessum tiltekna
tímapunkti, að hann er einkar vel að
sér í málefnum N-írlands og er það
harla óvenjulegt með breska stjórn-
málamenn. Alkunna er t.a.m. að
margir N-írlandsmálaráðherrar
íhaldsflokksins á níunda áratugnum
höfðu Utinn skilning á orsökum
þeirrar gjár sem skilur að kaþólska
og mótmælendur. Var það síst til að
auka Iíkur á sáttum.
Áhugi Mandelsons á málefnum
N-írlands mun eiga rætur að rekja
til þess að um miðjan níunda ára-
tuginn starfaði hann við sjónvarps-
þáttagerð fyrir LWT og varð hann
með tíð og tíma helsti sérfræðingur
í málefnum N-írlands fyrir frétta-
skýringaþáttinn Weekend World.
Er fullyrt að Mandelson hafi æ
síðan fylgst vel með málefnum N-
Irlands og ekki þarf að efast um að
þessi þekking á aðstæðum og skiln-
ingur á rótum átakanna muni koma
í góðar þarfir nú þegar hann er orð-
inn ráðherra N-írlandsmála.
Hveitibrauðsdagar Mandel-
sons verða ekki margir
Hveitibrauðsdagar Mandelsons í
embætti verða nefnilega ekki ýkja
margir því jafnvel er búist við að til
tíðinda dragi strax í þessari viku.
Nú líður senn að lokum endurskoð-
unar friðarsamkomulagsins sem
George Mitchell, bandaríski öld-
ungadeildarmaðurinn fyrrverandi,
hefur stýrt undanfarnar vikur en
hann hefur leitað leiða til að finna
lausn á afvopnunardeilunni svoköll-
--------- uðu, sem reynst hefur
svo erfið úrlausnar.
Telja má líklegt að
annaðhvort muni sam-
_________ bandssinnar þá seint og
um síðir samþykkja
myndun heimastjórnar með aðild
Sinn Féin, stjórnmálaarms IRA,
gegn einhverjum ti'yggingum fyrir
því að IRA byrji afvopnun strax í
kjölfarið, eða þeir ítreka fyrri af-
stöðu að myndun stjómarinnar
komi ekki til greina nema IRA af-
vopnist fyrr. Verði þetta niðurstað-
an er ljóst að friðarsamkomulagið
er endanlega runnið út í sandinn og
óvíst hvað við tekur. Þá bíður
Mandelsons að bjarga því sem
bjargað verður.