Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 11 Morgunblaðið/Golli Hagvöxtur hér á landi hefur verið 22-23% frá árinu 1995, en kaupmáttur ráöstöfunar- tekna hefur aukist meira en það eða um 28-29% á sama tímabili. ríkt hefði stærstan hluta þessa áratugar. „Við þurfum að ná samkomu- lagi um launahækkanir sem taka mið af þeirri verðmætasköpun sem við sjáum fyrir okkur að geti orðið,“ segir hann aðspurður um hvað þurfi að gera til að varðveita þann árangur sem náðst hafi. „Menn hafa rætt um að við þurfum að ná mjúkri lend- ingu í efnahagslífinu og ég held það sé ágætis samlíking fyrir það sem við er að fást. Við höfum kannski verið að fljúga heldur hátt og þurfum að ná áttum,“ sagði hann ennfremur. Finnur sagði að fram hefðu komið hugmyndir um að það gæti verið erfitt að gera kjara- samninga til langs tíma vegna þeirrar óvissu sem nú ríkti. „í komandi kjarasamningum eru það markmiðin um þróun efna- hags- og kjaramálanna sem eru aðalatriðið og mér finnst það já- kvætt að viðsemjendur okkar hafa síðustu vikurnar greinilega ýtt úr vör málefnalegri umræðu um viðfangsefnin og eru að velta fyrir sér raunhæfum lausnum. Nú er verið að leggja drög að viðræðum og þá þurfum við að meta hvernig einstakar tillögur falli að því markmiði að varð- veita kaupmáttinn eins og frekast er unnt.“ ÓHEPPILEG ÞRÓUN Hann bætti því við aðspurður að hann skildi fyllilega sjónar- mið forsvarsmanna innan verka- lýðshreyfingarinnar, sem hefðu lýst yfir ánægju með árangurinn af síðustu kjarasamngum, en væru ósáttir við þá þróun sem átt hefði sér stað í kjölfarið og speglaðist meðal annars í því að laun opinberra starfsmanna hefðu hækkað meira en annarra. Þetta hefði verið óheppileg þró- un. I öðrum löndum væru víðast hvar, eftir því sem hann vissi best, samningar gerðir við opin- bera starfsmenn í takt við það sem gerðist á almennum vinnu- markaði. Kauphækkanir opin- berra starfsmanna settu ekki tóninn um það sem í boði væri, eins og krafa hefði komið fram um nú. Fyrirtæki gætu ekki hækkað skatta eða aukið lántök- ur í þeim mæli sem ríki og sveit- arfélög virtust geta gert til þess að fjármagna rekstur sinn. Því gætu launahækkanir til opin- 77 Hættumerkin birtast til dæmis í vaxandi veröbólgu og viö- skiptahallanum sem er uggvænlegur.íí berra starfsmanna aldrei verið viðmið fyrir almenna vinnu- markaðinn. Launahækkanir í at- vinnulífinu yrðu að taka mið af þeirri verðmætasköpun sem þar færi fram. Annað kallaði á koll- steypu. „Þá værum við bara kominn í þetta gamla far verðbólgu og gengisfellinga. Sami vítahringur- inn aftur sem við höfum blessun- arlega komist út úr. Það er alveg fyrirsjáanlegt að slíkur víta- hringur myndi hitta launafólk verst fyrir,“ sagði Finnur. Hann sagði að það væri mikill og vaxandi skilningur á mikil- vægi þess að varðveita stöðug- leikann vegna hagsmuna launa- fólks og efnahagslífsins. Enginn vildi hverfa til þess ástands sem ríkt hefði á verðbólguárunum og skuldsetning íslenskra heimila gerði það að verkum að afleið- ingarnar yrðu skelfilegar léti verðbólgan á sér kræla á nýjan leik. Með óraunhæfum kjara- samningum yrðu það ekki bara launin sem hækkuðu heldur einnig skuldirnar og þá hyrfi ávinningurinn strax og meira til. Launahækkanir umfram verð- mætasköpun í þjóðfélaginu væru ekki annað en ávísun á verðlagshækkanir og síðan gengissig og þar með værum við komnir inn í vítahring sem allir vildu forðast. ALMENNT HLYNNTIR VINNU- STAÐASAMNINGUM Aðspurður um þá gagnrýni sem komið hefði fram á ákvæði síðustu kjarasamninga um vinnustaðasamninga þess efnis að atvinnurekendur hefðu lítinn áhuga á að hrinda þeim í fram- kvæmd, segir Finnur að hann telji að vinnuveitendur séu al- mennt hlynntir fyrirtækjasamn- ingum. Það sé að ýmsu leyti eðli- legt að samningar fari sem mest fram á þeim vettvangi þar sem menn séu sér best meðvitandi um það hvað fyrirtækin geti gert fyrir starfsmenn sína. „Ef til vill er skýringin á því hve fáir fyrirtækjasamningar hafa verið gerðir sú, að þetta tímabil hefur verið uppgangs- tímabil. Það hefur verið þensla og launaskrið og fyrirtæki hafa hugsanlega ekki séð sér hag í því að brydda upp á fyrirtækja- samningi þegar þannig árar, en samningurinn á jú að geta skil- að ávinningi fyrir báða aðila. Þetta er líka spurning um að finna þessum samningum heppi- legan farveg. Fyrirtæki leggja mikið upp úr því að fyrirkomu- lagið geti verið sem einfaldast og að því verðum við að vinna betur. Almennt séð þurfum við að fara í auknum mæli inn á þá braut í þessum kjaramálum að einfalda og auka sveigjanleika og búa svo um hnúta að kjara- samningar séu ekki að gera fyr- irtækjum erfitt fyrir að koma á meiri hagræðingu," sagði Finn- ur. Hann segir að ýmiss konar af- kastahvetjandi launakerfi og kerfi sem fela í sér kauprétt á hlutabréfum séu mjög jákvæð þar sem hægt sé að koma þeim við. Þau verði þó að byggja á frjálsum samningum milli við- komandi fyrirtækis og starfs- manna þess. Hann á frekar von á því að slíkir samningar eigi eftir að ryðja sér enn frekar til rúms heldur en hitt, en undir það ýti tilkoma hlutabréfamarkaðarins. „Eg held reyndar að hlutabréfa- markaðurinn og vaxandi þátt- taka almennings í honum hafi leitt til aukins almenns skilnings á því að fyrirtækin þurfi að hafa skilyrði til þess að vaxa og dafna,“ sagði Finnur. AUKNAR UPPLÝSINGAR EYÐA TORTRYGGNI Hann bætti því við að vegna hlutabréfamarkaðarins hefði að- hald aukist að stjórnum og stjórnendum fyrirtækja. Upplýs- ingaflæðið væri miklu betra en það var. „Við vitum miklu meira um afkomu fyrirtækja, jafnvel í smáatriðum, og þetta held ég að hljóti að eyða til dæmis tor- tryggni launafólks, sem áreiðan- lega var til staðar hér á árum áð- ur,“ sagði Finnur. Hann ítrekaði mikilvægi þess að menn næðu áttum í kjara- samningunum sem framundan væru og settu ekki efnahagslífið á hliðina með óraunhæfum kröf- um. Það hefði gerst í uppsveifl- unni 1986-87 með þeim afleiðing- um að það væri fyrst nú á síðustu árum sem við hefðum aftur náð þeim kaupmætti sem þá hefði verið. Eftir góðærið undanfarið stæði launafólk mun betur en áð- ur. Til marks um það hefði kaup- máttur vaxið að meðaltali um nærfellt 30% frá árinu 1995, sem væri verulega umfram hagvöxt á sama tímabili, og sambærilegar hækkanir væri hvergi að finna í iðnríkjunum á sama tímabili. „Ef litið er á tímabilið 1995-2000 þá munu laun hafa hækkað um 17% meira á Islandi en í OECD-löndunum og 19% meira en í löndum ESB. Það er óraunhæft að ætla að þetta geti gengið til lengdar. Þess má geta að aðilar vinnumarkaðarins í Noregi hafa komið sér saman um að draga úr launahækkunum niður í það sem tíðkast hjá við- skiptalöndum þeirra, en í Noregi hafa verið allmiklar launahækk- anir undanfarin ár, þótt ekki hafi þær verið jafnmiklar og hér.“ Finnur sagði að þrátt fyrir allt væri hann bjartsýnn á að hægt yrði að ná skynsamlegum kjara- samningum, sem gætu stuðlað að því að varðveita þann árangur sem náðst hefði. Hins vegar væri það ekki eitt út af fyrir sig nóg, því einnig væri lykilatriði að rík- isstjómin næði að skila a.m.k. þeim afgangi á fjárlögum sem að væri stefnt nú. Hann hefði viljað sjá meiri fjárlagaafgang, en engu að síður fælist góð viðleitni í þeirri niðurstöðu fjárlagafrum- varpsins sem lagt hefði verið fram. Það vekti þá trú að full al- vara byggi að baki fyrirætlunum stjórnvalda um að stemma stigu við þenslunni. Einnig væri nauð- synlegt að gæta aðhalds í pen- ingamálum, en hvort tveggja rík- isfjármálin og peningamálin væru þau tæki sem stjórnvöld hefðu á sínu valdi og væru mót- andi um framvindu efnahagsmál- anna. „Vonandi verður hægt með sameiginlegu átaki allra hlutað- eigandi að varðveita og bæta þann efnahagslega árangur sem Islendingar hafa verið að ná á undanförnum árum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.