Morgunblaðið - 17.10.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 17.10.1999, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Tillögur framkvæmdastiórnar ESB um nýja lotu aðildarviðræðna Ovíst hvort tímamörk muni standast Tillögum framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins um að sex nýjum ríkjum verði boðið að hefja viðræður um aðild að ESB hefur verið fagnað af ráða- mönnum viðkomandi ríkja. Aætlanir gera ráð fyrir að stækkunarferlinu verði að mestu lokið árið 2006 en ekki er víst -----------——■—7------------- að svo geti orðið. Ovissa ríkir um hvort meðal aðildarríkjanna náist samstaða um nauðsynlegar breytingar á stofnana- kerfí ESB vegna stækkunarinnar. Oli Jón Jónsson kynnti sér málið. ÓTT framkvæmdastjórmn hafi nú formlega mælt með því að viðræður um aðild sex nýrra ríkja að ESB skuli hafnar, hefur hún tekið fram að viðræður muni ekki geta hafíst nema að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum. Endanleg ákvörðun um að- ildarviðræður verður tekin á fundi leiðtogaráðs ESB sem haldinn verð- ur í Helsinki í desember. Fari svo að tillögur framkvæmda- stjórnarinnar verði samþykktar, geta alls 13 ríki gert sér vonir um að verða tekin inn í Evrópusambandið á næstu ánim. Þau eru mjög mis- jafnlega langt á veg komin með að uppfylla skilyrði aðildar en þó er stefnt að því að samningum við ríki í „fyrri lotu“ aðildarviðræðnanna verði lokið árið 2002. þá þarf að leggja nýja aðildarsamninga fyrir til staðfestingar í öllum aðildarlöndun- um, í samræmi við stjórnskipunar- lög í hveiju ríki, sem í reyndinni þýðir að þjóðþing allra landanna verða að leggja blessun sína yfir þá. Ekki er ólíklegt að þetta ferli geti tekið á annað ár og má búast við því að ríkjunum verði formlega veitt að- ild að ESB í byrjun árs 2004, gangi allt að óskum. Ríkin sem tilheyra „seinni lotu“ aðildarviðræðnanna geta hins vegar ekki treyst því að fá aðild íyrr en síðar, ef til vill ekki fyrr en árið 2006, og Tyrkland að líkind- um enn síðar. Sum lönd fá „hraðferð" Framkvæmdastjómin lagði á mið- vikudag fram tillögur um að hafnar verði aðildarviðræður við 6 ríki Austur-Evrópu, auk Möltu. Þær gera ráð fyrir að löndin muni geta öðlast aðild að ESB á mismunandi tíma, allt eftir því hversu vel þeim gengur að mæta þeim skilyrðum sem sett eru fyrir inngöngu. Emb- ættismaður á vegum framkvæmda- stjórnarinnar sagði í vikunni að þetta gæti þýtt að Möltu og Lett- landi yrði veitt aðild á sama tíma og þeim 6 löndum sem tilheyra fyrri lotu aðildarviðræðnanna. Að mati utanríkisráðherra Lettlands, Indulis Berzins, eru færri hindranir í vegi fyrir aðild landsins en ýmissa ann- arra umsóknarríkja og er haft eftir honum að hann geri sér vonir um að Lettar fái fulla aðild árið 2005. Vaclav Havel, forseti Tékklands,. hefur aftur á móti lýst áhyggjum af því sem fram kemur í tillögum fram- kvæmdastjórnarinnar varðandi stöðu Tékka. í tillögunum kemur fram gagnrýni á Tékka fyrir seina- gang í því að uppfylla skilyrði aðild- ar og að landið hafí dregist aftur úr öðrum umsóknarríkjum að þessu leyti. Að auki hefur Evrópusam- bandið nú lýst þungum áhyggjum vegna vandamála í sambúð Tékka og Sígauna, sem hefur leitt til þess að í einum bæ landsins hefur múr verið reistur til að aðskilja íbúðar- hverfí hópanna. Havel segist óttast að sumir Tékkar átti sig ekki á því hve gagnrýni framkvæmdastjómar- innar sé alvarleg og að tékkneskir stjórnmálamenn verði að sannfær- ast um að aðild að ESB þjóni hags- munum íbúa landsins. Tyrkir fagna Tyrkir hafa fagnað þeirri ákvörð- un framkvæmdastjórnarinnar að leggja til að Tyrkland verði viður- kennt sem tilvonandi aðildarríki. Samkvæmt yfirlýsingu frá tyrk- neska utanríkisráðuneytinu markar tillagan upphaf nýs tímabils í sam- skiptum Tyi-klands og ESB. Utan- ríkisráðherra Tyrklands, Ismail Cem, sagði á miðvikudag að ef land- ið verði viðurkennt sem tilvonandi aðildarríki muni nauðsynlegum um- bótum til að búa landið undir aðild verða hraðað. Dagblöð í Tyrklandi hafa einnig lýst yfir mikilli ánægju með tillögu framkvæmdastjómar- innar og bjartsýni á að áralöngum tilraunum Tyrkja til að fá aðild að ESB verði senn lokið. Tyrkir sóttu fyrst um aðild að ESB, sem þá hét Efnahagsbandalag Evrópu, árið 1963. Fyrir aðeins tveimur árum hafn- aði Evrópusambandið óskum Tyrkja um að hefja aðildarviðræður vegna bágrar stöðu mannréttinda í landinu og andmæla Grikkja, sem hafa í ára- tugi deilt við Tyrki út af Kýpur. Sambúð ríkjanna hefur batnað upp á síðkastið í kjölfar samvinnu vegna jarðskjálftanna sem urðu fyrr á þessu ári í löndunum tveimur. Grikkir hafa sagt að þrátt fyrir að Kýpur-deilan sé enn óleyst séu þeir nú reiðubúnir að styðja ákvörðun um að Tyrklandi verði, að uppfyllt- um ákveðnum skilyrðum, formlega bætt í hóp tilvonandi aðildarríkja. Grikkir vilja að Tyrkir leggi sitt af mörkum til að minnka spennu á Kýpur og beiti sér fyrir því að hafn- ar verði formlegar viðræður um frið og sameiningu eyjunnar. Verða að uppfylla „Kaup- man naliafnar-skil yrðin “ Ákvörðun um hvort Tyrkland verði formlega viðurkennt sem væntanlegt aðildarríki og hvort að- ildarviðræður hefjist við ríkin sex, verður tekin á fundi leiðtogaráðs ESB í Helsinki í desember á þessu ári. Leiðtogaráðið er skipað stjórn- arleiðtogum aðildarríkjanna og tek- ur ákvörðun um hvort formlegar að- ildarviðræður geti hafíst. Starfs- hættir og ákvarðanir leiðtogaráðs- ins, sem er æðsta valdastofnun STÆKKUN EVRÓPUSAMBANDSINS Seinni lota aðildarviðræðna - i Rikjaráðst. > Staðfestlngarferii w • l 1 i i ; ^ Kosningan Þýskal., Bretl., Frakkl., Svíþj. I I 1 2000 ' 2001 ' ' 2002 ' sáttmáli | Kosningan Nýframkv.- i i Evrópuþingið stjómESB? 2002 1 2003 ' 2004 ' 2005 1 2006 AP Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnarinnar, og Giinter Verheugen, sem hefur yfirumsjón með málefn- um tengdum stækkun ESB, við kynningu tillagna framkvæmdastjórnarinnar. skapi ekki miðað nægilega í átt til markaðsbúskapar. Samkvæmt mati framkvæmda- stjórnarinnar hefur bestur árangur í því að aðlaga löggjöf landanna að Evrópulöggjöf náðst í Ungverja- landi, Lettlandi og Búlgaríu. Engu að síður er tekið fram að Lettar og Slóvakar verði að sjá til þess að framkvæmd nýlegrar löggjafar og dómstólakerfið í heild verði bætt. Bent er á alvarlega veikleika landa eins og Póllands og Tékklands hvað varðar framkvæmd Evrópulöggjaf- ar og að Rúmenía sé einnig mjög aftarlega að þessu leyti. Nýtt Maastricht? í næstu viku verður birt á vegum framkvæmdastjórnarinnar skýrsla þriggja „vísra manna“ sem unnin hefur verið undir stjórn Jean-Luc Dehaene, fyrrum forsætisráðherra Belgíu. í henni er að fínna tillögur um hvemig unnt sé að aðlaga stofn- anir Evrópusambandsins að þeim breytingum sem eru fylgjandi stækkun þess. Vitað er að í skýrsl- unni er lagt til að þeim málaflokkum verði fjölgað þar sem veginn meiri- hluti í ráðherraráðinu nægir til að taka ákvörðun. Einnig má búast við að þar sé að finna tillögur um lausn- ir á öðrum viðkvæmum vandamál- um, eins og vægi atkvæða einstakra aðildarríkja í ráðherraráðinu og stöðu Evrópuþingsins. Samkvæmt ákvörðun leiðtoga- ráðsins á ríkjaráðstefnu um endur- skoðun sáttmálans að vera lokið fyr- ir árslok árið 2000 og þá tekur við staðfestingarferli sem háð er þeim reglum sem stjórnarskrár mæla fyi'; ir um í hverju aðildarríki fyrir sig. I fréttatilkynningu framkvæmda- stjórnarinnar frá því á miðvikudag kemm' fram að endurbótum á stofn- anakerfi ESB verði að vera lokið á árinu 2002 svo unnt sé að taka ákvörðun um að bjóða nýjum ríkjum aðild á því ári. Það er þó ljóst að deilur um breytingar á grunnsáttmálanum gætu komið í veg/yrir að þessi tíma- mörk standist. í því sambandi er rétt að benda á að á árinu 2002 eru þingkosningar í þremur stærstu ríkjum Evrópusambandsins, þ.e. Frakklandi, Þýskalandi og Bret- landi, auk Svíþjóðar. Telja má full- víst að málið verði pólitískt deiluefni í kosningabaráttu í þessum löndum. Ekki er heldur útilokað að í kjölfar kosninganna muni fylgja atburðarás sem veki upp minningar um eftirmál Maastricht-sáttmálans í upphafi þessa áratugar. ESB, fara eftir leikreglum hefð- bundinnar milliríkjasamvinnu og þar af leiðandi getur eitt ríki komið í veg fyrir að tillögur framkvæmda- stjórnarinnar verði samþykktar. í fréttatilkynningu sem gefin var út á vegum framkvæmdastjórnar- innar á miðvikudag kemur fram að öll ríkin þurfi að uppfylla hin svokölluðu „Kaupmannahafnar- skilyrði" til að aðildarviðræður geti hafist. Þessi skilyrði voru sam- þykkt á fundi leiðtogaráðsins í Kaupmannahöfn árið 1993 og gera kröfu um að tilvonandi aðildarríki búi við lýðræði, mannréttindi og virkt markaðshagkerfí, auk þess að vera í stakk búin að taka á sig þær kvaðir og skyldur sem eru samfara aðild og er að finna í grunnsáttmál- um og afleiddri löggjöf ESB. Sér- staklega er nefnt að Rúmenía og Búlgaría þurfi að gera ákveðnar ráðstafanir áður en viðræður við þessi lönd geti hafist. í Búlgaríu sé nauðsynlegt að loka kjarnorkuver- inu í Kozloduy og Rúmenar þurfi að bæta aðbúnað á heimilum fyrir munaðarlaus börn. Bæði löndin þurfa ennfremur að hraða umbót- um í efnahagsmálum. Framkvæmdastjórnin telur að öll umsóknarlöndin, sér í lagi Slóvakía, hafi náð umtalsverðum árangii í að styrkja stoðir lýðræðis og mannrétt- inda en að víða sé enn langt í land. Bent er á að öll löndin þurfi að halda áfram umbótum á réttarkerfum sín- um og að barátta gegn spillingu og fyrir bættum kjörum minnihluta- hópa í samfélaginu þurfí að halda áfram. Tekið er fram að litlar fram- farir hafi átt sér stað í Tyrklandi hvað snertir manm’éttindi og stöðu minnihlutahópa. Að mati framkvæmdastjórnarinn- ar búa aðeins tvö af löndunum við virkt markaðshagkerfi, Kýpur og Malta. Af ríkjum Austur-Evrópu komast Ungverjaland og Tékkland næst því að uppfylla þetta skilyrði. Fram kemur í tilkynningunni að Búlgaría sé á réttri leið hvað þetta varðar en að í Rúmeníu hafi að sama ESBríkin Ríki í„fyrri lotu“ Ríki í „seinni lotu“ RUSSLAND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.