Morgunblaðið - 17.10.1999, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tónlist Kurt Rosen-
winkel á Múlanum
ANNAÐ djasskvöld Múlatíma-
bilsins í Sölvasal Sólon Islandus
verður í dag, sunnudag, kl. 17.
Hilmai- Jensson og félagar munu
leika tónlist eftir kollega Hilmars,
Kurt Rosenwinkel. Með Hilmari
spila Jóel Pálsson á tenórsaxófón,
Pórður Högnason á kontrabassa
og Matthías Hemstock á tromm-
ur. Ennfremur taka þeir félagar
nokkra standarda.
Hilmar Jensson lauk burtfar-
arprófi frá tónlistarskóla FIH
og síðar BM-prófi frá Berklee
College of Music í Boston.
Hann hlaut heiðursstyrk
SPRON 1996 og listamanna-
laun 1998. Hann er kennari við
tónlistarskóla FIH.
Kurt Rosenwinkel er sagður í
hópi bestu djassgítarleikara
yngri kynslóðarinnar.
Menningarmálanefnd
Reykjavíkur
auglýsir eftir umsóknum
um styrki til menningarstarfs
í borginni árið 2000
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem
liggja frammi í Upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur og á
heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is. Hægt er að fá
umsóknareyðublöð send þaðan ef óskað er.
Umsóknir skulu berast til Signýjar Pálsdóttur,
Ráðhúsi Reykjavíkur, 101 Reykjavík.
Umsóknir skal senda í síðasta lagi 19. nóvember.
Umsóknir sem berast eftir þann tíma hljóta ekki afgreiðslu.
Nánari upplýsingar veitir
Uppiýsingaþjónusta Ráðhússins í síma 563 2000
alla virka daga milli kl. 10 og 12.
ekstrardeild
ðiB er nám í:
Vörustjúrnun
n á m t i I
ðbótar við
íðnrekstrarfræði (eða sambærilegt
n á m)og lýkur með B.Sc. gráðu í
ámið hefst í janúar 2000.
óBamarkaðsíræði
co
Tveggja anna nám til viðbótar við
íðnrekstrarfræði (eða sambærilegt
nám) og lýkur með B.Sc. gráðu í
alþjóðamarkaðsfræði.
Námið hefst í janúar 2000.
Deildarstjóri r e k s t r a r d e i I d a r og
námsráðgjafi skólans veita nánari
upplýsingar í síma 577 1400.
U m s ó k n a r f r e s t u r er til 29. október.
Tækniskóli íslands er fagháskóli á
tækni- og r e k s t r a r s v i ð i. Námsaðstaða
e r góð o g tækja- og tölvukostur er í
sífelldri endurnýjun.
Tækniskóli Islands
Háskóli a t v i n n u I í I s i n s
tækniskóli Islands
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík,
sími 577-1400, fax 577-1401, www.ti.is
Einar Jóhannesson og Islenska tríóið í Kammermilsíkklúbbnum
Morgunblaðið/Þorkell
Einar Jóhannesson og íslenska tríóið; Nína Margrét Grímsdóttir, Sigurbjörn Bernharðsson
og Sigurður Bjarki Gunnarsson.
Að ganga í endur-
nýjun lífdaga
TRÍÓ eftir meistarana Wolfgang
Amadeus Mozart, Johannes Bra-
hms og Ludwig van Beethoven eru
á efnisskrá tónleikanna. Islenska
tríóið, sem er einungis ársgamalt,
er skipað þeim Sigurbirni Bern-
harðssyni, sem leikur jöfnum hönd-
um á fiðlu og lágfiðlu, Sigurði
Bjarka Gunnarssyni á knéfiðlu og
Nínu Margréti Grímsdóttur á pí-
anó. Einar Jóhannesson klarínettu-
leikari kemur nú í fyrsta sinn fram
með tríóinu.
„Það er eins og að taka sér yngri
hjákonu eða elskhuga, maður
örvast allur og gengur í endurnýj-
un lífdaga,“ segir Einar og hlær
þegar hann er spurður hvernig
honum líki að spila með „krökkun-
um“. „Égá í rauninni ekki að vera
að spila núna, því ég er eiginlega
búinn að spila mig í þrot - gleymdi
að taka mér sumarfrí. En þetta er
alveg eins og vítamínsprauta,"
heldur hann áfram.
Listamenn verða að viðhalda
barninu í sér
„Það er alveg gífurlega mikil-
vægt fyrir okkur að fá tækifæri til
að vinna með manni eins og Einari,
sem er einn af frábærustu tónlist-
armönnum þjóðarinnar, í þessum
verkum, sem eru í rauninni mjög
erfið. Hann hefur auðvitað reynslu
sem við höfum ekki,“ segir Nína
Margrét. Einar segir reynsluna
y Mörkinni 3, sími 588 0640
Casa@islandia.is
Einar Jóhannesson
klarínettuleikari og ís-
lenska tríóið leika á
tónleikum Kammer-
músíkklúbbsins í Bú-
staðakirkju í kvöld.
Margrét Sveinbjörns-
dóttir hitti tónlistar-
mennina á æfíngu og
forvitnaðist um sam-
starfið og efnisskrána.
vissulega hjálpa en hættan geti
einnig verið sú að menn spili þessi
verk það oft að þeir hætti að sjá
ferskar og nýjar hliðar á þeim. „Og
auðvitað verða listamenn alltaf að
viðhalda barninu í sér - annars er
voðinn vís,“ segir Einar.
Félagarnir í Islenska tríóinu eru
allir við nám og störf í Bandaríkj-
unum, Nína Margrét í Connect-
icut, Sigurbjörn í Chicago og Sig-
urður Bjarki í New York. Sigur-
björn segir að hefðu þau verið í
öðruvísi samsettum kammerhóp
hefði það getað verið þeim til
trafala að vera búsett svo fjarri
hverju öðru. „Það er hins vegar al-
veg hægt í píanótríói, því þar má
segja að sé fullkomið jafnvægi
milli sóló- og kammermúsíkspils.
Þetta eru þrjár sjálfstæðar raddir,
svo við þurfum ekki að vera alveg
gift hvert öðru eins og í strengja-
kvartett," útskýrir hann. Síðastlið-
ið ár hafa þau komið fram saman
við ýmis tækifæri og leikið á tón-
leikum og tónlistarhátíðum, ekki
síst norrænum, víða í Bandaríkj-
unum og Kanada. I desember nk.
munu þau leika á nokkrum tónleik-
um þar vestra, og Einar með þeim,
sömu efnisskrá og á tónleikunum í
Bústaðakirkju.
Fyrst á efnisskránni er Tríó fyr-
ir klarínettu, lágfiðlu og píanó í Es-
dúr K 498 eftir Mozart, stundum
kallað Kegelstatt-tríóið. Þá kemur
Tríó fyrir klarínettu, knéfiðlu og
píanó í a-moll op. 114 eftir Brahms
og eftir hlé er röðin komin að Erki-
hertogatríóinu svokallaða, Tríói
íyrir fiðlu, knéfiðlu og píanó í B-
dúr op. 97 eftir Beethoven.
„Fyrri hluti tónleikanna litast
sterklega af klarínettinu,“ segir
Einar, „þetta eru hvort tveggja
verk skrifuð fyrir ákveðna menn,
sem voru klarínettusnillingar
þeirra tíma. Annars vegar var það
vinur Mozarts, sem hét Anton Sta-
dler, og hins vegar Richard
Muhlfeld, sem Brahms skrifaði
fyrir. Mozart-tríóið er oft kallað
billjardtríóið eða Kegelstatt-tríó,
en Mozart ku hafa samið mörg
verka sinna þegar hann var að
spila billjard. Brahms-tríóið er
greinilega verk mjög þroskaðs
manns og það er kannski viss for-
tíðarþrá í því, en samt er það mjög
ólíkt kammertónlist þessa tíma.
Það var í raun mjög stutt skref frá
Brahms yfir í Schönberg og Ma-
hler.“
Alger andstæða ytri aðstæðna
Nína Margrét bendir á að verk
Mozarts og Brahms séu bæði sam-
in fáum árum fyrir andlát tón-
skáldanna og því megi segja að þau
séu þroskuð verk. Erkihertogatríó-
ið semur Beethoven þegar farið er
að síga á seinni hluta ferilsins.
„Hann var orðinn alveg heyrnar-
laus, kominn í algera einangrun og
sjálfsmatið mjög lágt. Mannleg
reisn hans hafði ekki verið lægri.
Svo skrifar hann nokkur verk á
þessu tímabili sem eru alger and-
stæða þessara ytri aðstæðna," seg-
ir Sigurbjörn.
Nína Margrét kveðst að síðustu
vilja taka fram að það sé mjög mik-
ilvægt fyrir Islenska tríóið og ann-
að ungt tónlistarfólk í svipuðum
sporum að fá tækifæri til að koma
fram í tónleikaröð sem hefur fest
sig jafnrækilega í sessi og röð
Kammermúsíkklúbbsins, sem hef-
ur byggt upp stóran og tryggan
skara áheyrenda að kammertón-
list.
Tónleikarnir í Bústaðakirkju
hefjast kl. 20.30. í kvöld, sunnu-
dagskvöld.