Morgunblaðið - 17.10.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 23
Dáðlítill draugagangur
KVIKMYNPIR
Háskúlabfó, Bfúhöllin
THE HAUNTING ★★
Leiksljóri Jan De Bont. Höfundur
handrits David Self byggft á skáld-
sögu Shirley Jackson. Kvikmynda-
tökusljóri Karl Walter Lidenlaub.
Tónskáld Jerry Goldsmith. Aðalleik-
endur Liam Neeson, Catherine Zeta-
Jones, Owen Wilson, Lili Taylor,
Bruce Dern, Virginia Madsen. 112
mín. Bandarísk. DreamWorks 1999.
ÓNEITANLEGA var það pín-
legt fyrir DreamWorks, íyrirtæki
galdrakarlanna Spielberg, Katzen-
berg og Geffen, er The Blair Witch
Project, hræódýr smáhrollur með
gjörsamlega óþekktum mannskap í
hverju rúmi, gaf þessari fokdýru
mynd langt nef, er þær voru frum-
sýndar í sumar. The Haunting er
byggð á sígildri draugasögu
Shirley Jackson, leikstjórinn á að
baki nokkrar af mest sóttu mynd-
um kvikmyndasögunnar, aðalkari-
leikarinn einn sá eftirsóttasti og
kvenstjarnan sú heitasta í dag.
Engu að síður fékk dvergmyndin
margfalt betri dóma og aðsókn.
Ástæðan er augljós. Hrollvekjur
verða að geta skelft mann til að
standa undir nafni. Svo einfalt er
það. Jan De Bont hefur greinilega
lagt traust sitt á fokdýrar brellur
og ekki skort skotsilfrið. Myndin
er einnig vel tekin og tökustaðimir
ekki af verri endanum, m.a. ein-
hver hábreskur herragarður sem
nýtist tökustjóranum, Karl Walter
Lidenlaub, í ystu æsar að utan sem
innan. Jerry Goldsmith er höfund-
ur einnar bestu, ef ekki bestu tón-
listar í hrollvekjusögunni, í hinni
magnþrungnu The Omen, (‘76). Val
hans ber vott um fagmennsku, en
því miður er Goldsmith víðs fjarri
sínu besta að þessu sinni. Þau Li-
am Neeson og Catherine Zeta-Jo-
nes standa sig hvorki vel né illa,
Lili Taylor kemst aldrei í takt við
myndina, eða öllu frekar álappa-
legt hlutverkið. Einhver Owen Wil-
son, sem lítur út einsog mislukkuð
klónun af Bill Pullman (það var þá
maðurinn til að klóna!) er vita dáð-
laus. Aðalgalli The Haunting er þó
handritið og óskiljanlegt að það er
byggt á The Haunting Of Hill Hou-
se, sömu gæðasögu Shirley
Jackson og samnefnd mynd Ro-
berts Wise fyrir röskum þrem ára-
tugum - sem stendur manni enn
fyrir hugskotssjónum á svefnlaus-
um skammdegisnóttum... I öðni
lagi virkjar mynd De Bonts aldrei
taugakerfíð, andstætt við hrollinn
hans Wise, sem spilaði á óttann
sem við berum flest í brjósti okkar
þegar kemur að myrkvuðum híbýl-
um með maiTandi hurðum. Ógn-
inni sem við tengjum nóttinni og
hinu illa. Brellurnar hans eru lftið
meira en augnakonfekt.
Söguþráðurinn, í stuttu máli, er
á þá leið að sálfræðingur (Liam
Neeson) fær þrjá einstaklinga (á
fölskum forsendum) til að dveljast
á auðum og afskekktum herragarði
sem hefur orð á sér fyrir reimleika.
Ætlunin er að kanna viðbrögð
hópsins gagnvart hinu óþekkta.
Ýmsu hefur verið breytt en engu
til bóta. Neeson gerir það sem
hann getur í afkáralegu hlutverki,
Zeta-Jones fer mikinn í hlutverki
listamannsins Theo, sem nú er orð-
in tvíkynhneigð. Kyntröllið afgreið-
ir það léttilega. Sú breyting er
samnefnari fyrir aðrar. Óþörf.
Frammistaða annarra er döpur.
Bruce Dern er misnotaður í örhlut-
verki og Zeta-Jones verður að
vanda betur hlutverkavalið, annars
er hætt við að hún endi feril sinn á
svipuðum nótum og Virginia Mad-
sen, sem var eitt uppteknasta kyn-
táknið fyrir aðeins fáeinum árum.
Hér rétt bregður henni fyrir í smá-
hlutverki í upphafi.
Sæbjörn Valdimarsson
t
Hjartans þakkir til allra, sem
sýndu okkur vináttu og hlýhug
við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Ingvars J. Helgasonar
forstjóra.
Innilegar þakkir til
starfsfólks deildar A7 á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Sigríður Guðmundsdóttir
Helgi Ingvarsson Sigríður Gylfadóttir
Guðmundur Agúst Ingvarsson
Júlíus Vífill Ingvarsson
Júlía Guðrún Ingvarsdóttir
Aslaug Helga Ingvarsdóttir
Guðrún Ingvarsdóttir
Elísabet Ingvarsdóttir
Ingvar Ingvarsson
Guðríður Stefánsdóttir
Svanhildur Blöndal
Markús Möller
Jóhann Guðjónsson
Gunnar Hauksson
Helga Hrönn Þorleifsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Skrifstofu-
og tölvimám
É g li a f ð i
unnið við
vaktavinn
u í fimm ár
oglangaði
að breyta
til. Ég fór i
skrifstofu- og
tölvunám hjá NTV og var námið
rnjög markvisst og skemmtilegt.
Út á þetta nám fékk ég
skrifstofustarf hjá Vélorku.
Ég er injög ánægð með vinnuna
og liugsa oft með hlýliug til
skólaii5.
Giiðiiv Ólcidóttir
Skiifstofustnlko
- Tölvubókhald
- Verslunarreikningnr
- Sölutækni og þjónnsta
- Mannleg samskipti
- Bókhald
- Almennt um tölvur
- Windows
- Word
- Excel
- Power Point
- Internetið frá A-0
- Starfsþjálfun
Ttlvalið námskeið fyrir fólk á leiðinni út á
vinnumarkaðinn eða þá sem vilja styrkja
stöðu sína með aukinni menntun.
Námið er 192 klst. Kennt er alla virka daga frá
8.00- 12.00 Næsta námskeið byrjar 25. október.
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
$----------------------------------------------------------
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sfmi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasíða: www.ntv.is
100
sæti tii
London
frá 13.
helgarferð
frð
24.
Heimsferðir kynna nú einstök tilboð til heims-
borgarinnnar London í nóvember og fyrstu
100 farþegarnir sem bóka geta tryggt sér
hreint ótrúlegt verð, flugsæti frá aðeins 13.890
krónum.
Hvergi í Evrópu er jafnmikið um að vera í list-
um og menningarlífi og hjá Heimsferðum get-
ur þú valið um gott úrval hótela, frá 2 - 4
stjörnu og að sjálfsögðu nýtur þú góðrar þjón-
ustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Charing Cross
13.890
Verð kr.
Flugsæti með flugvallarsköttum,
l.nóv., S.nóv., 15.nóv.
Gildir frá mánudegi til fimmtudags.
24.990
Verð kr.
Flug og gisting á Grand Plaza hótel-
inu t London með morgunmat.
Fylgstu með á FM 95.7 og þú getur
unnið sæti til London.
Flugvallarskattar innifaldir.
Gildir 11. og 18.nóvember.
Flug alla fimmtudaga og mánudaga í nóvember
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is