Morgunblaðið - 17.10.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 25
Á ÞESSU hausti er þess minnst
um allan heim að 150 ár eru liðin
frá dauða pólska píanóleikarans
og tónskáldsins Fryderyks Chop-
in. I kvöld, sunnudagskvöld, kl.
20.30, verður Chopin-vaka í Saln-
um í Tónlistarhúsi Kópavogs, en
dánardagur tónskáldsins var 17.
október. Nokkrir pólskættaðir
tónlistarmenn, búsettir hér á
landi, koma fram auk annarra
góðra gesta.
Á tónleikunum gefst áheyrend-
um kostur á að kynnast tónskáld-
inu Chopin í nýju Ijósi. Á efnisskrá
eru m.a. sjaldheyrð verk og auk
þess les Jónas Ingimundarson úr
bók Árna Kristjánssonar píanó-
leikara, „Um Fryderyk Chopin“,
en bókin kom út um síðustu jól.
Inngangsorð flytur Stanislaw J.
Bartoszek, en hann er formaður
Munurinn
á fínnskum
og íslensk-
um bók-
menntum
FINNSKT kvöld verður á
Súfistanum - bókakaffi, versl-
un Máls og menningar,
Laugavegi 18, á þriðjudags-
kvöld, kl. 20.
Þar mun hinn finnski ritfjöl-
listahópur The Fabulous Four
and A Blondie skýra í tali og
tónum frá því helsta sem er á
döfinni í finnskri ritlist og fjalla
gaumgæfilega um muninn á
finnskum og íslenskum bók-
menntum. Dagskráin fer fram
á finnsku, sænsku, ensku og ís-
lensku.
Einnig les Guðrún Sigurðar-
dóttir úr þýðingu sinni á skáld-
sögunni Ári hérans eftir
finnska rithöfundinn Aarto Pa-
asilina.
skepnu sína; það er kannski hrein
óskammfeilni að það skuli hvarfla
að manni að hann hafi ekki annað
viðmið en sjálfan sig.
Það er mikil ánægja fólgin í því
að eiga góðan hund. Auðvelt yrði
að safna saman ótal mörgum
hundasögum og gefa út á bók.
Hætta er þó á, að slíkar sögur
verði ærið þreytandi, nema þær
séu sagðar af þeim mun meiri list.
Hins vegar er án efa unnt að
draga saman mikinn fróðleik um
hunda í búskap íslendinga og gera
því efni makleg skil. Gæti það orð-
ið verðugt samstarfsverkefni
hundaræktenda og sagnfræðinga.
Bók sú, sem hér er til umfjöll-
unar, virðist einkum tekin saman
fyrir þá, sem sinna ræktun ís-
lenzka hundakynsins og getur
sjálfsagt orðið þeim til mikilla
nota. Unnendur hunda kunna
einnig að finna ýmislegt forvitni-
legt. Ekki er þó ástæða til þess að
draga fjöður yfir, að margt hefði
mátt betur fara við útgáfu þessa.
Bæði er það, að bókin er ekki
jafnefnismikil og ætla má við
fyrstu sýn og í annan stað ristir
frásögn ekki djúpt og er sjaldnast
skemmtileg aflestrar. Prófarka-
lestur er í molum og hvorki er far-
ið rétt með nafn Arnórs kerling-
arnefs né Martins Behaims. Það
má þó satt reynast, að sumt í bók-
inni kunni að valda því, að menn
átti sig á ýmsu í fari íslenzka
hundsins; sem alls ekki má fara
forgörðum, svo að ræktunarstefn-
an verði markvissari en áður. Þá
er hér haldið til haga hundsnöfn-
um og heitum á litum, sem gaman
er að.
Af myndum í bókinni er það að
segja, að þær eru býsna misjafnar
og litgreining er nokkuð ójöfn;
hins vegar bera þær allar ótvírætt
með sér, að íslenzki fjárhundurinn
er hin mesta vildarskepna.
Ágúst H. Bjarnason
LISTIR
150 ára ártíð Chopin
Chopin-vaka í Salnum
Vináttufélags íslendinga
og Pólverja. Þá leika
þau Karolina Styczen og
Jacek Tosik-Warszawi-
ak sónötu í g-moll fyrir
selló og píanó. Karolina
Styczen er pólskur selló-
leikari, sem þrátt fyrir
ungan aldur hefur hlotið
fjölda viðurkenninga í
heimalandi sínu. Hún er
sérstakur gestur á
Chopinvöku í Salnum.
Það er hins vegar Jacek
Tosik-Warszawiak, sem
ber hita og þunga af
tónlistarflutningi
kvöldsins, en auk hans
og Styczen koma fram
söngkonan Alina Dubik
og hljóðfæraleikararnir
Szymon Kuran á fiðlu,
Zbigniew Dubik á fiðlu,
Guðmundur Krist-
mundsson á víólu og
Dean Ferrell á kontra-
bassa, en auk þess mun
Kveldúlfskórinn frá
Fryderyk
Chopin
Borgarnesi undir stjórn Ewu
Tosik-Warszawiak, flytja eitt
verk.
Tónlistargáfur Chopin komu
snemma í ljós og fimm ára gamall
fór hann að spila á píanó undir
handleiðslu móður sinnar. Seinna
stundaði hann nám við Tónlistar-
skólann í Varsjá og var aðalkenn-
ari hans þar Josef Elsner, skóla-
stjóri skólans. Elsner var ekki
lærður píanóleikari og var Chopin
að mestu sjálfmenntaður í píanó-
leik undir eftirliti Elsners. Chopin
fór snemma að semja tónlist fyrir
píanó og var lítil pólónesa, samin
1817, er hann var sjö ára, hans
fyrsta verk.
Á fyrri hluta tónleikanna verður
flutt Sónata í g-moll, op. 65 fyrir
selló og píanó, Inngangur og
polonesa í C-dúr, op. 4, Píanó-
konsert í e-moll, op. 11 og Preludi-
um í c-moll, op. 28 nr. 20.
Á seinni hluta tónleikanna
verða flutt Sönglög op. 74, Fjórir
masúrkar op. 17 og Ballada nr. 3 í
As-dúr op. 47.
Það er Vináttufélag íslendinga
og Pólverja sem stendur að vök-
unni í samvinnu við Tíbrá - tón-
leikaröð á vegum Kópavogs.
Chopinvaka er hluti af áskriftar-
röð 3 í Salnum, en röðin er styrkt
af BYKO. VISA er sérstakur
styrktaraðili Chopinvöku.
Með öflugu dreifingakerfi komum við sendingunni til skila
hratt og örugglega.
POSTURIN N
- með kveðjti'!