Morgunblaðið - 17.10.1999, Page 34

Morgunblaðið - 17.10.1999, Page 34
34 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ALDARMINNING Sigurbjörg ÓF. Anna EA 12 bíður löndunar í Siglufirði. :v X : 1 tr. i Magnús Gamalíelsson útgerðarmaður frá Olafsfirði Um þessar mundir eru liðin eitt hundrað ár frá fæðingu Magnús- ar Gamalíelssonar útgerðarmanns í Ólafsfírði. Hann var um langt skeið helsti athafnamaður þar í bænum og lét til sín taka á ýms- um sviðum, mest þó í sjávarútvegsmálum. Friðrik G. Olgeirsson segir að þótt hann fæddist með tvær hendur tómar, hafi honum tekist á 85 ára langri ævi að byggja upp fyrirtæki sem var í hópi stærstu sjávarútvegsfyrirtækja á Norðurlandi þegar best lét. Hjónin Guðfinna Pálsdóttir og Magnús Gamalíelsson. MAGNÚS Gamalíelsson fæddist að Hraunum í Fljótum 7. október 1899. Foreldrar hans voru Gamalíel Friðfinnsson smiður og Helga Sig- urlaug Grímsdóttir. Þau bjuggu fyrst í Fljótum en fluttust árið 1900 til Siglufjarðar. Þar skildi leiðir ári seinna; Gamalíel fór til Ameríku en Helga í vinnumennsku inn í Fljót. Árið 1907 giftist Helga Sigur- laug Kristni Jónssyni frá Ólafs- firði. Þau bjuggu fyrst í Fljótum en fluttust árið 1915 til Ólafsfjarð- ar. Magnús fór með þeim og var hann þá að verða 16 ára gamall. Þangað kom hann með ýmis áform um framtíðina. Hann hafði litla reynslu af sjósókn, hafði farið í einn róður um fermingaraldur frá Haganesvík og þá strax lent í hrakningum. Samt var hugurinn bundinn sjónum og þar taldi hann mestu möguleikana vera fyrir sig. Þorpið í Ólafsfirði var lítið þegar Magnús kom þangað í fyrsta sinn. Það var kallað Ólafsfjarðarhorn eða bara Hom og þar bjuggu 289 manns. Það hafði byrjað að mynd- ast árið 1883 og allir íbúarnir feng- ust við að veiða fisk eða verka fisk. Höfn var engin, aðeins flotbryggj- ur sem settar voru fram á vorin. Útgerð var því bundin við litla báta sem auðvelt var að setja á land. Þetta var landnemaþorp og margir fyrstu landnemamir enn á lífi. Árið 1917 fékk Magnús skiprúm hjá Þorvaldi Sigurðssyni sem þá var meðal helstu sjósóknara í Ólafs- fjarðarhomi og formaður á vélbátn- um Garðari. Magnús reri alls fimm vertíðir með Þorvaldi og taldi hann vem sína með honum hafa verið á við besta skóla í sjómennsku. Árið 1922 varð Magnús formað- ur á vélbátnum Göngu-Hrólfi. Hann var um átta lesta súðbyrð- ingur og mest var fiskað með fær- um ogá línu. Árið 1928 hóf Magnús sína eigin útgerð með því að hann keypti átta tonna bát sem hét Barði. Meðeig- andi hans var Gunnar Guðlaugs- son frá Akureyri. Vegna hafnleysunnar í Ólafsfírði var þar. aðeins sumarútgerð, á vetmm var útgerð engin og at- vinnulíf því að mestu í dvala. Minni bátamir vora settir á land heima en þeir stærstu naustaðir á Akur- eyri. Haustið 1928 tóku þeir Magn- ús Gamalíelsson og Guðmundur Guðmundsson upp á því að gera út frá Siglufirði til þess að lengja ver- tíðina en þar var góð höfn. Heppn- aðist þessi tilraun svo vel að ýmsir fleiri tóku þetta upp um tíma. Árið 1930 eignaðist Magnús vél- bátinn Einar Þveræing EA 537. Hann var tólf tonn og smíðaður úr eik og fum það ár á Akureyri. Sama ár var í fyrsta sinn gerð sú tilraun að senda stærstu bátana suður á land á vertíð frá janúar til aprílloka í stað þess að hafa þá verkefnislausa. Varð það upp frá því mjög algengt allt til ársins 1966 og fylgdi margt verkafólk með suður í atvinnuleit. Magnús gerði sér grein fyrir því hve skað- legt þetta var fyrir vöxt Ólafsfjarð- ar og þess vegna barðist hann öt- ullega fyrir gerð hafnar í bænum. Hann var með Einar Þveræing til ársins 1933. Þá fór hann í land og sinnti upp frá því stjórnunarstörf- um. Árið 1937 keypti Magnús mun stærra skip, Önnu EA 12. Hún var 28 tonn og gerð út á línu, færi og sfld. Átti hann þá orðið tvö skip. Fjórði áratugurinn var erfiður íyrir sjávarútveginn í landinu. Á stríðsámnum, 1939-1945, safnaðist flestum útgerðum fé en þá var end- urnýjun skipastólsins samt nánast engin vegna þess að ófriðurinn tor- veldaði samskipti þjóða. Þegar stríðinu lauk fóm því margir út- gerðarmenn að huga að endurnýj- un báta sinna. í þeim hópi var Magnús Gamalíelsson. Hann seldi báða báta sína en lét þess í stað smíða fyrir sig nýtt skip á Akur- eyri. Það var sjósett árið 1946 og skírt Einar Þveræingur ÓF 1. Hann var 64 tonn. Meðeigandi Magnúsar var Ásgeir Frímannsson en seinna keypti Magnús hlut hans. Á þessum ámm, 1947-1956, var Magnús líka framkvæmda- stjóri og stærsti hluthafinn í Hauk- um hf., sem átti og gerði út Hauk 1. ÓF 5, sem var 102 tonn. Bæði voru þessi skip hefðbundnir vertíðarbát- ar, útbúin til línuveiða, færaveiða og sfldveiða, og um líkt leyti og þau komust í gagnið voru Norðlending- ar að þreifa fyrir sér með togveið- ar. Árið 1950 voru þær bannaðar innan fjögurra mílna landhelgi og kom það í veg fyrir umtalsverðar togveiðar frá Ólafsfirði og flestum öðrum stöðum fyrir norðan allt fram til loka sjöunda áratugarins. Á sjötta áratugnum var langvar- andi aflatregða á gmnnmiðum fyr- ir norðan og því átti bátaútgerð víða í vök að verjast vegna tap- reksturs. Sfldveiðar bmgðust að miklu leyti líka og af þessum sök- um ríkti stöðnun í útgerð Norð- lendinga fram um 1960 og atvinna var víða mjög stopul. Á þessu tíma- bili reyndu bæði Magnús Gamalí- elsson og ýmsir fleiri útgerðar- menn í Ólafsfirði að fá keyptan tog- ara til bæjarins. Sú viðleitni bar lengi engan árangur en svo fór þó að lokum árið 1955 að ýmsir aðilar í Ólafsfirði, á Sauðárkróki og Húsa- vík stofnuðu hlutafélagið Norð- lending sem gerði út togarann Norðlending ÓF 4 í fímm ár. Þetta var 660 tonna nýsköpunartogari. Magnús var einn stærsti hluthaf- inn í Ólafsfjarðardeild félagsins. Magnús hóf fiskverkun um líkt leyti og hann byrjaði útgerð sína. Á þeim ámm verkuðu Ólafsfirð- ingar mestan hluta afla síns í salt en einnig töluvert í skreið. Fiskur- inn var ýmist sólþurrkaður eða seldur blautverkaður. Árið 1950 fékk Magnús lóð nyrst í Ólafsfirði til að reisa þar svokallað þurrkhús sem tók til starfa árið 1955. Þar fór verkun og þurrkun saltfisksins fram undir einu þaki og voru slík hús þá ný af nálinni hér á landi. Á sama tíma hóf Magnús rekstur saltfiskverkunar í Keflavík í félagi með Halldóri Kristinssyni, hálf- bróður sínum. Fyrirtækið hét Þristur sf. og starfaði í fimm ár. Árið 1935 stofnuðu nokkrir út- gerðarmenn í Ólafsfirði Síldarsölt- unarfélagið og var Magnús þar í forustusveit og framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun þess til ársins 1941. Sex árum seinna stofnaði hann söltunarstöðina Jökul hf. og var fyrirtækið starfrækt allan þann tíma sem síldarsöltun var stunduð í Ólafsfirði. Laust fyrir 1960 komu fram ný sjónarmið meðal útgerðarmanna. Þá ýttu þeir um stund áformum um togarakaup til hliðar en töldu þess í stað hagkvæmustu leiðina til að auka atvinnu í bænum vera þá að kaupa 100-200 tonna togbáta. Magnús mddi leiðina. í janúar 1960 kom frá Noregi 94 tonna stál- skip, Guðbjörg ÓF 3, sem hann hafði látið smíða þar fyrir sig. Sama ár stofnaði hann ásamt þeim Sigurði Baldvinssyni og Sigvalda Þorleifssyni hlutafélagið Þrist. Til- gangur félagsins var sá að kaupa og gera út skipið Ólaf Bekk sem þá var verið að ljúka við að smíða í Noregi. Ólafur var 155 tonna stál- skip. Þriðja stálskipið sem keypt var til Ólafsfjarðar árið 1960 var Sæþór ÓF 5, systurskip Ólafs Bekks. Þar átti Magnús enn hlut að máli. Eigandi skipsins var

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.