Morgunblaðið - 17.10.1999, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
„Heimur versnandi fer,“ segir máltækið og að ýmsu leyti hittir það naglann á höfuðið. Ýmsir hafa bent á
að þess háttar öfl séu í gangi á jörðinni að innan fárra áratuga verði vart aftur snúið og jörðin verði
þánaumast byggileg. I lok síðasta árs hóf 31 íslenskt sveitarfélag þátttöku í samstarfsverkefni umhverfís-
ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um svokallaða „Staðardagskrá 21“. Guðmundur
Guðjónsson kannaði hver tilurð þessa er og hvað menn telja að gerist næst.
Morgunblaðið/RAX
Sjálfbær nýting auðlinda felur m.a. í sér virðingu og nærgætni við náttúruna. Myndin er af Snæfellsjökli, tákni Snæfellsbæjar.
SNÆFELLSBÆR
RÍÐUR Á VAÐIÐ
GUÐLAUGUR Bergmann í Snæ-
fellsbæ er verkefnisstjóri átaksins
um Staðardagskrá 21 í Snæfellsbæ
og hann sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ekki væri seinna
vænna að tekið væri til hendinni?
því tíminn gerðist mjög naumur.
„Það sem þarf að gera er að
skapa alveg nýjan lífsstíl og það
þarf að vera alger sátt um það.
Sem aldrei fyrr er þörf á því að
menn séu og vinni samstiga að
góðu málefni." Guðlaugur vitnaði
síðan í bók eftir Paul Hawken rít-
höfund, umhverfisverndarsinna og
viðskiptajöfur í Kalifomíu, sem
væntanlegur er til Islands næsta
vor á vegum Umhverfisvemdar-
samtaka Islands, „The Ecology of
Commerce", með undirtitilinn „A
Declaration of Sustainability", og
sagði að: „Endanlegt markmið við-
skipta væri ekki, eða ætti ekki að
vera, einfaldlega að græða pen-
inga. Viðskipti eru heldur ekki
kerfi sem býr til og selur hluti.
Fyrirheit viðskipta er að auka al-
menn þægindi mannkynsins með
þjónustu, skapandi uppfinningum
'«g siðfræðilegri heimspeki. Að
þéna peninga peninganna vegna er
gersamlega þýðingarlaust og ófull-
nægjandi eltingarleikur í hinum
margslungna og hnignandi heimi
sém við búum í. Við stöndum á
jafnvægislausum og ógnvekjandi
krossgötum í hinum iðnvædda
þeimi.“
Guðlaugur
Bergmann
Kristinn
Jónasson
Samstarfsverkefni 31
sveitarfélags, Sambands ís
lenskra sveitarfélaga
og umhverfisráðuneytis
um „Staðardagskrá 21“
Þetta segir Hawken og er
hverju orði sannara. Við hjónin
höfum tekið þátt í að koma á fót
svona sjálfbæru samfélagi undir
Jökli síðustu árin, en eftir þennan
lestur fór ég í hálfgert þunglyndi
og sagði við Guðrúnu konu mína
hvort við ættum ekki bara að gef-
ast upp á þessu öllu saman og
steypa okkur út í
hrunadansinn. Þetta
er hvort eð er von-
laust mál. En hún
svaraði af stóískri ró
að við skyldum halda
haus og það er rétt,
það liggja möguleik-
ar í þessu fyrirbæri,
„Staðardagskrá 21“
og ómetanlegt er að
geta gengið fram
með góðu fordæmi
þegar um heilt sveit-
arfélag er að ræða.
Ég fæ því ekki
með orðum lýst
hversu mikilvægt
mér finnst að bæjar-
stjómin skuli taka
þessa ákvörðun, því
eftir höfðinu dansa
limirnir. Um það var
einmitt mikið deilt á
ráðstefnu sem um-
rædd sveitarfélög
héldu í Rúgbrauðs-
gerðinni í vor og um
tíma var ég einn á
móti öllum með þá skoðun að
breytingin yrði að koma að ofan.
Aðrir vora á því að breytingin yrði
að koma frá grasrótinni, en mér
varð það til happs að þarna var ís-
lenskur ráðgjafi og sérfræðingur í
þessum málum sem lengi hefur
búið í Svíþjóð. Hann tók til máls og
sagði að fyrir áratug hefði hann
fallist á grasrótarkenninguna, en í
dag væri ljóst að líklegra til árang-
urs væri að koma breytingunum á
ofan frá,“ segir Guðlaugur.
Hrunadansinn
í bók Pauls Hawken, sem Guð-
laugur vitnaði í, eru nefnd dæmi
um hrunadansinn sem Guðlaugur
kallar svo. Lítum á dæmi. - Á
hverjum degi taka bændur okkar
(Norður-Ameríka) 20 billjón fleiri
gallon (3,785 1 í galloni) af vatni úr
jörðinni en rigningin skilar til
baka. Ogalala Aquifer, á sem renn-
ur neðanjarðar undir Sléttunum
miklu í Bandaríkjunum og er
mesta ferskvatnsá á jörðinni, mun
þurrkast upp innan þrjátíu til
fjörutíu ára miðað við núverandi
vatnsnotkun. Á heimsvísu tapast
25 billjón tonn af gróðurmold á
hverju ári sem er álíka magn og á
öllum hveitiökrum Ástralíu."
Þannig mætti lengi halda áfram,
listinh er langur og kemur inn á
fjölmörg svið og Hawken segir að
valkostir aðila í viðskiptaheiminum
séu aðeins tveir, annar er að helga
sig endurreisnar- og uppbygging-
arstarfi, hinn er að stíga skrefið til
fulls og steypa samfélaginu í glöt-
un.
„Staðardagskrá 21“ fæddist á
Rió-ráðstefnunni vorið 1992. Full-
trúar 179 þjóða samþykktu þá
ályktun þar að lútandi, en í henni
felst að sérhvert ríki skal gera
áætlun um þróun mála fram á
næstu öld. Áætlunin taki til vist-
fræðilegra og félagslegra þátta og
hafi markmiðið um sjálfbæra þró-
un að leiðarljósi.
I 28. kafla ályktunarinnar er
fjallað um hlutverk sveitarstjórna.
Þar stendur að „sem það stjórn-
vald sem næst er fólkinu gegni það
þýðingarmiklu hlutverki við að
mennta og hvetja almenning á leið
til sjálfbærrar þróunar". Þar segir
enn fremur að „á árinu 1996 ættu
allar sveitarstjórnir, í samráði við
íbúana á hverjum stað, að hafa
komið sér upp staðardagskrá fyrir
samfélagið".
Námskeiðið
Eins og fram kom í inngangi
þessa pistils, setjast nú helstu
embættismenn heils bæjarfélags á
bekk og taka þátt í námskeiði sem
á að undirbúa framsóknina. Nám-
skeiðið byggist á Phoenix-nám-
skeiðinu - leiðin til árangurs, eftir
Brian Tracy, sem Fanný Jón-
mundsdóttir hefur staðið fyrir síð-
ustu árin. Hún heldur einmitt utan
um námskeiðahaldið ásamt Stefáni
Gíslasyni sem er verkefnisstjóri
Staðardagskrár 21 fyrir landið allt
og saman hafa þau Fanný og Stef-
án lagað efni Phoenix-námskeið-
anna að verkefninu sem nú um
ræðir.
Að sögn Guðlaugs Bergmanns
felst hluti af námskeiðinu í því að
hver einstaklingur setur sér mark-
mið, sem byggð verða á staðardag-
skránni og þáttum úr Phoenix-
námskeiðinu, en það byggist á sál-
fræði til árangurs, sjö huglægum
lögmálum, að leysa hæfileika úr
læðingi og orkuverið í undirmeð-
vitundinni, að ná tökum á lífi sínu,
að útrýma neikvæðum tilfinning-
um, að losa um hemlana, að virkja
áhyggjubanann, að stilla hugann
inn á velgengni, að breyta sjálfs-
vitundinni, að byggja upp nýjar
huglægar hefðir, hugbúnað fyrir
heilann, hraðnámstækni, slökun
með tónlist, fimm lykilatriði í að
setja sér markmið, tólf þrep til að
ná markmiðum sínum, að skipu-
leggja tíma sinn, að tvöfalda hæfi-
leika heilans, að ýta við innri hæfi-
leikum, tækni við skapandi lausn
vandamála, að auka orku sína, að
skilja hlekkinn sem tengir líkama
og sál, að eyða streitu og spennu,
að þroska persónuleika til vel-
gengni, að byggja upp úrvals sam-
bönd, að ala upp ofurmenni og að
finna tilganginn með lífinu.“
Stilla saman strengi
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í
Snæfellsbæ, sagði í samtali við
Morgunblaðið að almennt væri til-
hlökkun og jákvæði í hópnum að
taka þátt í umræddu verkefni.
„Við viljum og eigum að horfa til
framtíðarinnar og náttúran á að
njóta vafans. Við verðum að átta
okkur á því hvert stefnir í framtíð-
inni og kannski má segja að nú fari
í hönd svona hálfgerð stefnumót-
un. Hins vegar er ómögulegt að
segja nákvæmlega til um hvað
gerist næst.
Við lítum á þetta námskeiðahald
sem skref í áttina og með því
munu strengir verða stilltir sam-
an, enda skiptir nú miklu að menn
sýni samstöðu gagnvart málefninu.
Þetta er mikilvægt skref, það er
með því verið að koma mönnum í
skilning um hvað þarf að takast á
við á komandi árum.
Það er mikið fylgst með því sem
er í gangi, þó að við í Snæfellsbæ
ríðum á vaðið þá eru mörg önnur
sveitar- og bæjarfélög með í verk-
efninu og hinar ýmsu nefndir sem
eru að störfum setja efni sitt jafn-
óðum inn á vef sem Stefán Gísla-
son verkefnisstjóri stjórnar."