Morgunblaðið - 17.10.1999, Síða 40

Morgunblaðið - 17.10.1999, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Blómastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sírni 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ MINNINGAR INGIBJORG SOFFIA PÁLSDÓTTIR HJALTALÍN + Ingibjörg Soffía Pálsdóttir Hjaltalín frá Brokey fæddist á Böðvars- hólum í Vesturhópi í V estur-Húnavatns- sýslu 20. ágúst 1918. Hún lést 25. septem- ber síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Stykkis- hólmskirkju 2. októ- ber. Það eru nú liðin nærri sjötíu ár síðan við Ingi- björg útskrifuðumst úr Gagnfræðaskóla Reykjavíkur - Ingi- marsskólanum. Eftir lokapróf úr 3. bekk fórum við skólasystkinin hvort í sína áttina. Undirrituð fór heim í átthagana aust- ur á land, nokkrir í framhaldsnám, en þær frænkur, Ingibjörg og Jóhanna, á vit ævintýranna vestur í Breiða- fjai'ðareyjar, sem mér fannst afar spennandi. Það voru því stopular fréttir sem ég fékk af þeim, þó að þær hefðu gifst hvor sínum bróðurnum á heimili því er þær réðu sig á og bjuggu fé- lagsbúi alla tíð. Festu þær svo djúpar rætur að þær dvöldu þar til hinstu stundar. Oft var mig búið að dreyma um að heimsækja þær og jafnframt upplifa dýrð þessa landshluta. En auðvitað rann það út í sandinn eins og mörg önnur góð áform. Við verð- um því að láta okkur nægja að hittast á einhverri góðri stjörnu er yfir lýk- ur. Við lát Ingibjargar rifjast upp ótal atvik frá skólaárunum. Hún var ákaf- lega hláturmild og sá oftast spaugi- legu hliðarnar á öllum málum. Mig langar að minnast eins atviks er lýsir henni mæta vel. I fyrsta bekk sátu þær saman Ingi- björg og Ásdís Sveinsdóttir, nágrann- ar úr vesturbænum, báðar mein- fyndnar og sérstaklega skemmtilegar. Það var í enskutíma hjá Ai’na Guðnasyni, ógleyman- legum kennara. Það var ekki hægt annað en læra hjá honum, og það vel, honum fannst næst- um dauðasynd ef ekki var tekið eftii’. Hann hafði þann sið að ganga um skólastof- una og endurtaka oft sömu setninguna og orðin svo enginn yrði nú útundan og talaði þá hátt og skýrt. Allt í einu snarstansar hann hjá þeim stöllum og það dimmdi yffr svip hans. Þær höfðu þá verið í barnaskap sínum að spila á spil í rólegheitum. Það varð dauðaþögn í bekknum í nokkrar sek- úndur. Asdís glotti háðslega en Ingi- björg brosti sínu breiðasta brosi með öllu andlitinu og sindraði á gullnu lokkana hennar. Það var eins og dregið hefði verið frá sólinni, hann mildaðist allur á svip við þessi við- brögð, ekkert orð sagt, og hélt svo áfram að kenna eins og ekkert væri sjálfsagðara. Hann var líka góður maður þó strangur væri. Þetta bros hafði sýnilega góð áhrif þótt okkur hinum nemendunum fynd- ist þær sleppa heldur létt út úr þessu. Þessar stúlkur voru ágætir nemend- m- eins og flestir er voru í þessum skóla. Þar voru frábærir kennarar sem kenndu áratugum saman og stóðu af sér allt dægurþras. Margt fleira væri hægt að nefna er gerðist þai’ en of langt yrði upp að telja. Um leið og ég þakka Ingi- björgu, og þeim báðum frænkum, fyr- ir þriggja vetra samfylgd sendi ég öll- um þeirra aðstandendum mínar bestu samúðarkveðjur og óska þeim allra heilla. Þorbjörg Einarsdóttir Hóli, Stöðvarfirði. RÓSA BJÖRNSDÓTTIR + Rósa Bjömsdóttir fæddist á Felli í Breiðdal 21. júní 1922. Hún lést á Landakoti 13. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Óháðu kirkjunni 26. ágúst. Dagur líður, fagur, fríður, flýgur tíðin í aldaskaut. Daggeislar hníga, stjömumar stíga stillt nú og milt upp á himinbraut. Streymir niður náð og friður, nú er búin öll dagsins þraut. (V. Briem.) Hinn 13. ágúst sl. andaðist móðursystir mín, Rósa Björnsdóttir, eða Rósa frænka eins og hún var alltaf kölluð í minni fjölskyldu. Skammt var stórra högga á milli því 9. ágúst hafði móðir mín kvatt. Mig langar til að þakka þér, elsku Rósa, fyrir alla þína hlýju og elskulegheit í minn garð. Mér þótti vænt um þig og ég veit að þér þótti vænt um mig. Þú varst fastur punktur í mínu lífi og nú er tómlegt að koma í bæinn og engin Rósa frænka til að heimsækja. Eg hugga mig þó við að nú líður þér vel. Þú ert komin til allra þinna sem á undan eru farnir í dýrð himnaríkis. Eyðist dagur, fríður, fagur, fagur dagur þó aftur rís: EUífðardagur ununarfagur, eilíf skín sólin í Paradís. Ó, hve fegri og yndislegri unun mun sú, er þar er vís. (V. Briem.) LEGSTEINAR t Marmari Islensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Blágrvti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík 1 sírni 5871960, fax 5871986 © ÚTFARARÞJÓNUSTAN Stofnað 1990 Persónuleg þjónusta Aðstoðum við skrif minningarrgreina Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjóri Guð geymi þig, elsku frænka. Minningin lifir. Þín Ester Guðlaug. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. FRÉTTIR Morgunblaðið/Björn Sturla Böðvarsson afhjúpar minnisvarðann. Helgi Hallgrímsson fylgist með. Loksins bundið slitlag á allan Siglufjarðarveg Skagafirði. Morgunblaðið. LOGNIÐ var sannanlega að flýta sér, eins og mætur maður sagði fyrir mörgum árum, þeg- ar framámenn Vegagerðarinnar ásamt nokkrum af þingmönnum Norðurlands vestra og sveitar- stjórnarmenn á Siglufirði, komu saman nyrst í Höfðahólum norð- an Hofsóss á föstudag, en þar var afhjúpaður stuðlabergs- drangur með koparskildi, til að minnast þess að nú í september sl. var lokið lagningu varanlegs slitlags á veginn til Siglufjarð- ar. Helgi Hallgrímsson vegamála- stjóri bauð viðstadda velkomna til þessarar athafnar og rakti í stuttu máli sögu vegagerðar til Siglufjarðar, sem lengstum hefur verið mjög erfið, enda ekki um auðveldustu fjallvegi eða snjó- léttustu héruð að fara, þegar landleið var valin til sfldarbæjar- ins nyrst á Tröllaskaga. Drap Helgi á vegagerðina um Siglufjarðarskarð, síðar um AI- menninga og göngin í gegnum Stráka, og nú siðast þann áfanga að leggja varanlegt slitlag á þessa leið. Fram kom í máli Helga að fyrsti hluti slitlagsins hefði verið lagður árið 1983, og siðan haldið áfram og jafnaði þetta sig upp á, að lagðir hefðu verið um það bil sex kflómetrar á ári, og í tilefni þess að nú væri verkinu Iokið hefði verið ákveðið að reisa minnisvarða. Bað hann síðan samgöngu- málaráðherra, Sturlu Böðvars- son, að afhjúpa minnisvarðann, en að því loknu héldu ráðherra, þingmenn og aðrir gestir áleiðis til Siglufjarðar þar sem þeir sátu boð heimamanna í tilefni dagsins. Vann ferð til Parísar VINNINGSHAFI í Brie-leik Rás- ar 2 og Osta- og smjörsölunnar sf. er Guðrún Halla Gunnarsdótt- ir en hún fékk ferð fyrir tvo til Parísar með gistingu. Á mynd- inni talið frá vinstri: Árni Þor- valdur Jónsson, Erla María, Hall- ur Orn, Guðrún Halla Gunnars- dóttir, Ólafur Magnússon og fremst er Iðunn Svala.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.