Morgunblaðið - 17.10.1999, Page 46
46 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
CRTU ORPINN LEIÞUR Á RIGNINGU
OG SNJÓ? HVERNIG V/ERI AÐ FÁ
SÉR HÚS Á SPÁNI!
mmm
Sögða gömlu vikingarnir, þegar þeir sjósettu báta sína
og sigldu til hvítu strandanna og grænu pálmatrjánna á Spáni.
Ef þið viljið einnig búa við hvítar strandir Costa Blanca bjóðum við
ykkur velkominn til að sjá fullt af áhugaverðum tilboðum okkar.
Ibúðir frá 5.000.000 ptas., og raðhús frá 8.900.000 ptas. Þið getið
einnig séð okkur á heimasíðunni: www.viking-homes.com
VIKIHG HEIMILI & GOLF, sem var stofnað 1986, býður
viðskiptavinum sínum ávallt góða þjónustu: *fría lögfræðiaðstoð
við kaup á fasteign *endursöluþjónustu *leigu á íbúðunum.
Verið itelkomin í heimsókn á skrifstofuna okkar
í Villamartin (10 km suður af Torrei/ieja)
eða hafið samband i/ið okkur í síma 868 0S04
og fyrir bœkling í síma +34 96 6764060,
fax +34 96 6765206 eða e-mail viking-homes@visual.es
‘5£—~f Fasieignasalan IJakki
—Jsr----------------------
imtimni K SOð
Fasteignasalan Bakki, s. 482 4000
EITT GLÆSILEGASTA
HÚSIÐ Á SUÐURLANDI!
Steypt. Byggt 1983. Einbýlishús. Herb: 8 + 2
stofur. Stærð 365,3 fm. Stærö bílskúrs 42 fm.
Nr. (1019). Eitt glæsilegasta hús Suðurlands er
nú til sölu. Arkitekt hússins er Vilhjálmur
Hjálmarsson. Hér hefur verið vandað til verks í
hvívetna. Fallegur vel ræktaður garður. Á besta
stað á Selfossi. Frábær eign.
Uppl. um verð og áhv. lán á skrifstofu.
STÓRKOSTLEGT VIÐ-
SKIPTATÆKIFÆRI!
Timbur. Byggt 1987. Bílskúr 1993. Einbýlishús.
Herb: 4 + stofa. Stærð 141,8 fm. Stærð bílsk.
56,3 fm. Nr. (9408). Fráb. einb. á Stokkseyri. Hér
hefur ekkert verið til sparað að gera eignina vist-
lega og glæsil. í bílsk. er nú rekið matvælafyrir-
tækið Flatbakan sem framleiðir El-Sombrero
pizzur o.fl. og getur þaö fylgt með í kaupunum.
Fyrirtækið hefur traust viðskiptasambönd og
vaxtamöguleikar eru miklir. Þetta er tækfæri fyrir
samhenta fjölskyldu sem vill byggja upp á Ijúfum
stað við sjóinn.
Uppl. um verð og áhv. lán á skrifstofu.
TÆKIFÆRI SEM MARGUR
HEFUR BEÐIÐ EFTIR!
Timbur. Byggt 1928. Einbýlishús. Herb: 3 +
stofa. Stærð 138,9 fm. Geymsla 40,2 fm. Nr.
(9302). Yndislegt hús á Eyrarbakka með sál! Hér
hafa búið miklir andans menn þ.á.m. Ragnar í
Smára. Tilvalið sem fyrstu kaup eða sem sumar-
bústaður. Nú er tækifæri til að breyta um lífstíl
og búa í friði og ró á Bakkanum.
Uppl. um verð og áhv. lán á skrifstofu.
ÚTI VIÐ SVALAN SÆINN!
Steypt. Byggt 1994. Einbýlishús. Herb: 3 +
stofa. Stærð 100 fm. Stærð bílsk. 36 fm. Nr.
(9406). Þetta fallega hús er vel staðsett á
Stokkseyri og er nánast fullbúið en þó er rúm
fyrir þínar hugmyndir! Stór ræktaður garður. Hér
er sannarlega hægt að gera góö kaup og láta
sér svo bara líða vel í fersku sjávarloftinu!
Uppl. um verð og áhv. lán á skrifstofu.
rf
Árni Valdimarsson, löggiltur fasteignasali.
Fasteignasalan Bakki er frísk og framsækin fasteignasala
og þetta er lítið sýnishom úr söluskrá okkar.
Allir sem kaupa fasteign hjá okkur fá heimsókn í nýja húsið
og við færum ykkur sunnlenskt handverk og 3ja mánaða áskrift
að Sunnlenska fréttablaðinu í innflutningsgjöf.
FJÖLDI EIGNA UM ALLT SUÐURLAND.
Sendum söluskrá með myndum í pósti.
Lítið á heimasíðu okkar: http://www.isholf.is/bakki
Tölvur og tækni á Netinu
vl>mbl.is
LISTIR
„Þeir sera hafa vænst eftir einhverju öðru og meira en rútínulegri hollí-
vúddafgreiðslu verða fyrir vonbrigðum,“ segir meðal annars í dómnum.
Tyrkja-
ránið II
KVIKMYJVPIR
Háskólabfó
BARÁTTAN UM BÖRNIN -
SPLIT irk
Leikstjóri og handritshöfundur: Can-
an Gerede. Kvikmyndatökustjóri:
Peter Steuger. Leikmynd: Árni Páll
Jóhannsson. Aðalleikendur: Mahir
Glinsirey, Bennu Gerede, Baltasar
Kormákur, Halldóra Björnsdóttir,
Seda Cetio, Melis Sen. Tyrk-
nesk/frönsk/íslensk. Isl. kvikmynda-
samsteypan í samvinnu við Alfa Film,
Artcam International og Scarabee
Film Producties 1999.
EITT ljótasta níðingsverk í ís-
landssögunni er Tyrkjaránið 1627, er
Serkir rændu og drápu nokkur
hundruð Islendinga. Er þó jafnan
kennt við þessa útkjálkaþjóð í Evr-
ópu og hinum vestræna heimi - þótt
hún hafi þar hvergi komið nærri og
við gáfum henni lífseigan hraksmán-
arstimpil: hundtyrki. Hinsvegar er
ósvikinn Tyrki ein aðalpersónan í
harmleiknum sem myndin Baráttan
um börnin er byggð á. Önnur er til
allrar ógæfu íslensk kona og móðir
stúlknanna tveggja, sem í sakleysi
sínu eru smánaðar, gerðar að peðum
í atskák þeirra sem eiga að vernda
þær. Mál Sophiu Hansen var og er
átakanleg sorgarsaga, persónuleg
svívirða og aukinheldur tilfinninga-
mál allrar íslensku þjóðarinnar sem
hefur fylgst grannt með hvernig
tyrkneskt réttarkerfi og íslamskir
ofstækismenn hafa niðurlægt þessa
konu í áraraðir. Það er búið að troða
á tilfinningum Sophiu og engin lausn
í sjónmáli. Við höfum líka orðið vitni
að einurð hennar og óbilandi trú á að
réttlætið muni sigra að lokum í
mannfjandsamlegu umhverfi þar
sem miðaldamyrkur ríkir í huga
stórs hluta þjóðfélagsins. Mannrétt-
indabrot eru daglegt brauð, karl-
remba og kvenfyrirlitning ráða ríkj-
um meðal allah-hrópandi heittrúar-
manna.
Því er þessi formáli að efni Barátt-
unnar um börnin snertir okkur
meira en aðrar myndir. Því er best
að taka það strax fram að ekki er
annað að sjá en fyrir höfundum hafi
vakað það eitt að gera aðsóknarafþr-
eyingu í anda Not Without My
Daughter, (‘91), bandarískri mynd
sem byggð var á svipaðri harmsögu.
Leikstjóranum og handritshöfundin-
um, Canan Gerede, tekst það ekki
frekar en að koma með þarft og
meitlað innlegg í umræðuna um
„réttlætið“ í landi sínu. Það glittir í
þjóðfélagsádeilu, á trúmál frekar en
stjórnarfar, en hún er grunn og
ósannfærandi. Þeir sem hafa vænst
eftir einhverju öðru og meira en
rútínulegri hollívúddafgreiðslu verða
fyrir vonbrigðum.
Aðalpersónurnar eru Sól (Bennu
Gerede), íslensk kona sem á tvær
telpur með Halil (Mahir Gúnsirey),
tyrkneskum manni sínum. Frúin
virðist allt í öllu, rekur verslun í
Reykjavík, hans hlutverk óljóst. Hún
kynnist Friðriki (Kormákur
Baltasar), skilur við Halil, fær for-
ræði yfir börnunum. Engu síður
ákveður hún að maki sinn fyrrver-
andi taki þau með sér í frí til Tyrk-
lands. Halil heitir á spámann sinn, að
þau gerist hans liðsmenn ef honum
takist að ná þeim frá „heiðingjanum“
og sest upp með þær í sínu heima-
landi. Sól heldur í tvær mislukkaðar
ferðir til Tyrklands, ásamt Friðriki,
að heimta dætur sínar, en rekur sig
á ókleifan vegg framandi þjóðfélags.
Myndin er ekki hlutlaus, gerir lítið
úr konunni, sem er jafnvel látin
reyna að tæla Halil til fylgilags þeg-
ar fokið er í flest skjól. Er gerð óá-
byrg, lítilsigld persóna. Halil á hinn
bóginn nýtur nokkurrar samúðar.
Stóri gallinn er samt persónusköp-
unin í heild. Hún er með tölu yfir-
borðskennda, stúlkubörnin meðtalin,
sagan og meðferð hennar minnir í
grunnhyggni sinni meira á rútínu-
legt sjónvarpsefni en kvikmynda-
gerð. Talið er á tyrknesku og ensku,
sem er öllum leikurunum greinilega
framandi og skaðar heildaráhrifin. Á
hinn bóginn komast leikararnir Ger-
ede, Gúnsirey og Baltasar Kormák-
ur, þolanlega frá sínu í mynd sem
veldur frekar vonbrigðum hvernig
sem á hana er litið og er furðu létt-
væg fundin, hvaða forsendur sem
maður gefur sér. Þetta fólk snertir
mann ekki.
OPID HUS
Blikahólar 6
3|a herb. með bílskúr
Til sýnis og sölu falleg 80 fm útsýnisíbúð á 2. hæð ásamt
26 fm góðum bílskúr. Parket á gólfum, íbúðin getur verið
laus strax.
Verð 8,7 m. Áhv. 1,6 m. byggsj. Garðar og Sólveig taka
vel á móti ykkur í dag, sunnudag, milli kl. 15 og 18.
Brynjólfur Jónsson fasteignasala,
sími 511 1555, gsm 898 9791.
Síðumúli 10
Sími 588 9999
Fax 568 2422
odal@odal.is
OPIÐ í DAG Mn.1.1
KL. 13 OG 15
Þórarinn Jónsson
hdl., lögg. fastcignas.
OPIÐ HUS
Hlaðbrekka 10, Tvíbýli. Faiiegt
u.þ.b. 220 fm. einbýlishús á tveimur
hæðum ásamt 30 fm. bílskúr. Á efri
hæð er 130 fm. íbúð með 4 svefn-
herbergjum en á neðri hæð er ca. 60
fm aukaíbúð með sérinngangi auk ca.
30 fm. óskráðs rýmis. Gott og vei
skipulagt hús. Verð 16,3 m.
Opið hús í dag, sunnudag, milli
kl. 14.00 og 17.00. Verið velkomin.
UT AÐ BORÐA
ÁHÓTELBORG
Allir sem láta eign sína (sölu hjá okkur
í október fá sérstaklega góð kjör auk
þess sem þeir fara út að borða á Hótel
Borg á okkar kostnað.
MIKIL SALA, VANTAR ALLAR GERÐIR
EIGNA Á SKRÁ. HAFÐU SAMBAND.
www.odal.is
- allar eignir á netinu
Kaldasel. Reisulegt 233 fm. hús á
tveimur hæðum með innbyggðum
bílskúr. 4-5 svefnherberai, stofa,
borðstofa og sjónvarpsnol. Góð
suðurverönd m/heitum þotti, tvennar
svalir og stór gróin lóð. Mikið útsýnj og
góð staösetning innst í botnlanga. Áhv.
4,9 m. Verð18,3m.
Brekkusel Vandað og sérstaklega
vel viðhaldið 250 fm. endaraðhus,
tvær hæðir og ris, ásamt 23 fm.
í góðu þríbýli.
Mósaíkparket á stofum, parket á
herbergjum og baðherbergi flísalagt í
hólf og gólf. Hús í góðu ástandi m.a.
nýtt þak. og nýir gluggar. Laus strax.
Verð 9,8 m.
Barónsstígur. Reglulegasnyrtileg
og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð a
1. hæð í góðu fjölbýli. 2 svefnherbergi
og stofa. Parket á stofu og herbergjum,
flisar á baði. Mjög vel umgengin eign.
Verð 6,9 m.
Vesturgata. Glæsileg 83 fm. rishæð
í góðu steinhúsi (fjórbýli). 2 svefnherb.
og stofa, rúmgott eldhús og glæsilegt
baðherbergi. Merbau parket á stofu og
baðherbergi flísalagt. Feiknamikið
útsýni. Áhv. 3,6 m. Verð 8,4 m.
Sæbjörn Valdimarsson