Morgunblaðið - 17.10.1999, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 49
FRÉTTIR
140.000 kr.
lágmarks-
laun ekki
óraunhæf
VERKALÝÐSFÉLAG Norðfírð-
inga lýsir yfir miklum vonbrigðum
með að að ekki skuli takast að skipa
íslensku verkafólki í eina órofa heild
fyrir næstu kjarasamninga og hefur
samþykkt ályktun þess efnis. þar
segir m.a.:
„Aðalfundurinn lýsir jafnframt
yfir ánægju sinni með nýframkomn-
ar hugmyndir VMSÍ um breytingu
á viðræðuáastlun, en sagan sýnir
okkur að verkafólk hefur einatt
staðið andspænis því að semja
fyrstir allra um kjör sín við atvinnu-
rekendavaldið og aðrir sem meira
mega sín komið á eftir og skriðið
upp eftir bakinu á þeim sem lægstu
launin hafa.
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Norðfirðinga ályktar einnig, að
norðfirskt verkafólk væntir mikils
af komandi kjarasamningum og er
tilbúið að leggja mikið á sig til að
miklum árangri verði náð, ekki síst í
ljósi þess mikla launaskriðs sem
verið hefur undanfarið, launahækk-
ana til þiýstihópa og sjálftökuliðs
embættismanna ríkis og sveitarfé-
laga, og stjómenda stórfyrirtækja.
Einnig vill fundurinn benda á óþol-
andi launamun á milli landsbyggð-
arinnar og höfuðborgarsvæðisins,
sem berlega hefur komið fram í ný-
legri könnun eins stærsta stéttarfé-
lags og landssambands á landinu,
og lýsir þar allri ábyrgð á hendur
atvinnurekendum.
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Norðfirðinga samþykkir að 140.000
kr. lágmarkslaun á mánuði sé alls
ekki óraunhæf krafa um hækkun
lægstu launa á samningstímanum,
ef tekið er mið af sjálfteknum kaup-
hækkunum æðstu embættismanna
þjóðarinnar, stjómenda sveitarfé-
laga og stórfyrirtækja."
--------------
Karlanefnd
Jafnréttisráðs
Fagnar ráð-
gjot í forsjar-
og umgengnis-
málum
KARLANEFND Jafnréttisráðs
fagnar því að Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra hefur ákveðið að
gera tímabundna tilraun hjá emb-
ætti sýslumannsins í Reykjavík með
ráðgjöf í forsjár- og umgengnismál-
um fyrir foreldra sem standa í
skilnaði eða sambúðarslitum.
„Að mati karlanefndar hefur
skortur á slíkri ráðgjöf leitt af sér
margar erfiðar forsjárdeilur, þar
sem niðurstaðan hefur oft orðið sú
að brotið hefur verið á umgengnis-
rétti forsjárlausra foreldra og er þá
oftast um feður að ræða. Tilraun sú
sem dómsmálaráðherra hyggst nú
beita sér fyrir mun vonandi leiða til
þess að ráðgjöf af þessu tagi verði
gerð að reglu við skilnað eða sam-
búðarslit foreldra. Slík ráðstöfun
yrði til heilla fyrir alla aðila, ekki
síst börnin,“ segir m.a. í fréttatil-
kynningu frá karlanefndinni.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Uáuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
-*- ----- alfB
LV*0V€U3IB
HOR€fi T. s GINS€NG
fRRWL€iTT flp
ms EÐAL
6INSENG
Skerpir athygli
- eykur þol
Virkar m.a. gegns
Einbeitingarskorti,
streitu, þreytu og
afkastarýrnun.
Einnig gott fyrir aldraða.
LYFTU ÞÉR UPP MEÐ
SLÖKKVILIDIREYKJAVÍKUR
0PIÐ HÚS, í DAG, SUNNUDAGINN 17. 0KTÚBER
KL. 14.00 TIL 17.00
í SKÚGARHLÍÐ
Nýr 32 metra hár körfubíll
frá Bronto Skylift
Nýr gámabíll
Allir bílar og búnaður
til sýnis
Slökkviliðsmenn veita
upplýsingar um forvarnir
Neyðarbíllinn verður
á staðnum
Léttar veitingar
Þorir þú upp með
körfubílnum?
VERIÐ VELK0MIN SLÖKKVILIÐ REYKJAVÍKUR