Morgunblaðið - 17.10.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 55 j
FÓLK í FRÉTTUM
Ingibjörg Þórðardóttir er fréttamaður AP og BBC
Heimurinn í
og myndu
ÞAÐ er ekki heiglum hent fyr-
ir heimagróna íslendinga að
komast að á vinnustöðum er-
lendis þar sem góð tungumálakunn-
átta er eitt helsta inngönguskilyrð-
ið. En þetta tókst Ingibjörgu Pórð-
ardóttur sem hefur stofnað sitt eig-
ið fyrirtæki og tekur að sér verk-
efni fyrir bæði Associated Press og
BBC. „Ég get stjórnað því hvenær
ég vinn; ætli 90% vinnunnar séu
ekki hjá BBC og 10% hjá AP,“ seg-
ir hún og bætir við að hún ráði
vinnutíma sínum nokkurn veginn
sjálf - þótt hún sé bundin af því að
taka minnst 15 vaktir á mánuði hjá
BBC.
Á stærstu fréttamiðlun heims
En það er ekki það sama að
vinna hjá þessum tveimur risafjöl-
miðlafyiirtækjum. „AP er ekki
með útsendingar heldur miðlar
fréttum og ljósmyndum til fjöl-
miðla um heim allan,“ segir Ingi-
björg. „Eftir að APTN, sem er
sjónvarpsarmur fyrirtækisins,
keypti WTN er það orðið
langstærst langstærst sinnar teg-
undar í heiminum, mun stærra en
Reuters. Þjónusta þeirra felst í að
útvega myndir og handrit fyrir
sjónvarpsstöðvar ú um allan heim,
oftar en ekki frá viðburðum sem
annars væri erfitt að nálgast, t.d.
t.d. af atburðum í Austur-Tímor.“
Ingibjörg byrjaði á því að klippa
myndir og smíða texta. „Nú felst
vinnan helst í því að fara yfir stað-
reyndir og orðfarið áður en fréttirn-
ar eru sendar út; í raun nokkurs
konar prófarkalestur. Jafnframt
vinn ég við sérstaka þjónustu sem
APTN býður upp á sem felst í
þremur fréttaökkum á dag þar sem
heimsviðburðum eru gerð skil. Ég
sé líka um að að lesa inn á þessa
fréttapakka.“ Aðspurð um hvernig
hún hafi fengið starfið svarar Ingi-
björg hressilega: „Ég hitti stúlku í
boði og hún spurði mig af hverju ég
kæmi ekki á vinnustaðinn; ég gerði
það og var boðin vinna. Eftir það
hef ég unnið þama í eitt og hálft
ár.“
Möguleikar stafrænnar tækni
Bróðurpartur vinnunnar hjá Ingi-
björgu er fyrir sjónvarpsstöðina
BBC World, sem ekki er fjármögn-
uð af breska ríkinu. „Þar eru hálf-
tíma fréttaþættir á hverri klukku-
stund og þrisvar á dag eru sérstakir
fréttaskýringaþættir sem eru ein og
hálf klukkustund að lengd,“ segir
hún. „Við einbeitum okkur í hvert
skipti að afmörkuðu svæði í heimin-
um.“
Ingibjörg byrjaði á því að skrifa
fréttir en segist núna vera farin að
vasast í öllu, m.a. að semja og flytja
eigin fréttapakka. „Fyrstu þrír
mánuðirnir voru reynslutími og var
þá nýtilkomið að sent væri út á staf-
rænu kerfi. Þetta reyndi töluvert á
því ekki var nóg með að ég væri að
byrja í nýju starfi hjá risastórum
fjölmiðli heldur þurfti ég líka að
læra inn á nýja tækni. En allt gekk
þetta upp og nú er ég fær um að
vinna á öllum sviðum fréttamennsk-
unnar, þ.e. með umfjöllun um Evr-
ópu, Asíu og Ameríku."
Ingibjörg segir að miklir mögu-
leikar felist í stafrænum útsending-
um því þá sé sífellt hægt að vera
með beinar útsendingar. „Það þarf
varla neinn fyrirvara," segir hún.
„Við getum byrjað hvenær sem er;
við þurfum aðeins nokkrar sekúnd-
ur til að hefja útsendingu."
Hvað skiptir máli í fréttinni?
Ingibjörg fluttist til London eftir
að hafa útskrifast úr stjórnmála- og
fjölmiðlafræði í Háskóla Islands og
segist ekki hafa lent í miklum
tungumálaörðugleikum eftir að hún
hóf störf á fréttastofunum.. „Við er-
um með alþjóðlegan áhorfendahóp
og verðum fyrst og fremst að hafa
rétta málfræði," segir hún. „Fram-
burðurinn skiptir ekki eins miklu
máli. Ég las mér því til af krafti,
æfði mig og þegar ég stóð á gati þá
bara lærði ég meira.“
OPIÐ I DAG
sunnudag
frá kl.
13.00 ■ 17.00
Veifingastaðir og Kringlubió
eru með opió lengur á kvöldin.
/CK(>\ú|(k>N
9
Ingibjörg Þórðardóttir við höfuðstöðvar BBC í London.
Ekki er síður mikilvægt að setja
fréttirnar rétt upp, að sögn Ingi-
bjargar, því í sjónvarpi hefur maður
aðeins um 3 til 4 sekúndur til að ná
athygli áhorfandans. „Ég get tekið
sem dæmi fréttina: „Sprengja
sprakk í Naíróbí á fjórða tímanum í
nótt; þrjú hundruð manns létust."
Þarna kemur fréttamaðurinn sér
ekki beint að efninu; hver er fréttin
og hvað skiptir máli? Sex manna
hópur vinnur að hverjum klukku-
tíma í útsendingu og við þurfum að
skrifa fréttirnar sem lesnar eru af
þuli, búa til spumingar fyrir hann
og sjá til þess að viðmælandinn geti
svarað. Þá þurfum við að passa upp
á að hann hafi ekki öfgakenndar
skoðanir og að ekki gæti hlut-
drægni."
Eftirlitið eins og í Fort Knox
Síðan Ingibjörg hóf störf hjá
BBC hafa verið fluttar þrjár fréttir
frá íslandi. í einni fréttinni kom
hún á viðtali við Geir Haarde fjár-
málaráðherra í beinni útsendingu,
sendi út og flutti fréttina. „Keikó
var líka stórmál,“ segir hún og
hlær óstjórnlega. „Menn litu á mig
og spurðu: „Ætlar þessi hvalur
aldrei úr vélinni?" Það tók allan
daginn að koma honum af flugstöð- v
inni og allir á fréttastofunni sátur~
horfðu í gaupnir sér og hristu höf-
uðið.“ Mikil ábyrgð er að flytja
fréttir á stórum fréttastofum enda
eru þær oft étnar upp af minni fjöl-
miðlum og villur geta breiðst hratt
út.
„Maður verður að vera inni í öll-
um málum,“ segir Ingibjörg. „Kær-
ur eru fljótai’ að berast ef við grein-
um rangt frá, að ekki sé talað um
sterk viðbrögð áhorfenda. Ef upp
koma stór mál eru haldnir fundir og
fréttamenn settir inn í þau út frá
lagabókstafnum og sérfræðingar^
kallaðir til; við megum t.d. ekki tala
um Makedóníu heldur verður það
að vera fyrrverandi Júgóslavíu-lýð-
veldið Makedónía. Þegar búið er að
þjálfa fréttamennina upp er hlaðið á
þá verkefnum."
Enda er Ingibjörg ekki á leið
heim á næstunni. „Maður á auðvitað
aldrei að segja aldrei, en ekki í
augnablikinu." I raun gæti hún búið
í höfuðstöðvum BBC í London því
þar er allt til alls. „Við höfum að-
gang að sjoppum, veitingastöðum,
legubekkjum, fatahreinsun, leik-
fimiþjálfun, pöbbum og svo eru
jafnvel sólbekkir á þakinu,“ segir
hún. „Eftir að fréttakonan Jill
Dando var myrt hefur öryggiseftir- ->
litið innan byggingarinnar verið
hert til muna þannig að við getum
varla hreyft okkur án þess að hafa
lykil; þetta jaðrar við að vera eins
og í Fort Knox. Það virðist þót ekki
hafa skilað tilætluðum árangri þar
sem óboðinn gestur komst inn í að-
alfréttastofuna um daginn, eyðilagði
ýmis tæki og hótaði starfsfólki líf-
láti. Sem betur fer var ég í fríi þann
dag. Ég býst við að þetta sé bara
hluti af því að vinna hjá svona
þekktu fyrirtæki."
OCTOBER SKY
Flocjer Eberr
ÞRR SEMyHJRRTRÐ S L Œ R
SAMBÍ