Morgunblaðið - 17.10.1999, Side 56

Morgunblaðið - 17.10.1999, Side 56
i 56 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Keeslar, Þórhallur og leikstjórinn Róbert Douglas við tökur við borgarmörkin. Laufey Brá Jónsdóttir, Keeslar, Hafdis Helga og Þórhallur; dæmigert íslenskt fjölskyldu mynstur, - tveir pabbar og ein mamma? Matt Keeslar er leikari á uppleið og segist vera víkingur í sér. Sunna Qsk Logadóttir ræddi við hann yfír kaffíbolla ------------7---------- um leikara, Islendinga og hlutverk hans í kvik- ------------7---------- myndinni Islenski draumurinn. AÐ ER brosmildur og einkar heillandi ungur maður sem tekur í hönd blaðamanns og kynnir sig sem Matt Keeslar, leikara sem staddur er hérlendis vegna kvik- . myndarinnar Islenski draumurinn sem er úr smiðju leikstjórans og handritshöfundarins Róberts Dou- glas. Hann byrjar á því að lýsa vel- þóknun sinni á Islendingum og þeirri ótrúlegu gestrisni sem hon- um hefur verið sýnd síðan hann kom til landsins fyrir viku. ,Áður en ég kom hingað fór ég í stóra bókabúð í Los Angeles og keypti tvær bækur um Island,“ seg- ir hann. „Þetta voru reyndar einu bækurnar um Island sem fengust í búðinni," bætir hann hlæjandi við og blaðamaður kemst strax að því að hláturinn er honum eðlislægur og einlægt brosið aldrei langt und- an. * Hér á ég heima Matt er fæddur í Michigan-ríki í Bandaríkjunum árið 1972 og lýsir með einfóldu táknmáli fyrir heima- kærum blaðamanni hvar fylkið er. „Fólk sem býr í Michigan fínnst það alltaf þurfa að útskýra hvar það býr,“ segir hann og vingjarnlegt bros læðist fram á varimar. „Eg bjó þarna þar til ég varð átján ára, þá flutti ég til New York og fór í Julliard-listaháskólann. Eftir að hafa lokið þremur árum af fjónam fékk ég hlutverk í myndinni Run of the Country sem var fyrsta stóra hlutverkið mitt.“ Matt bjó í New York í átta ár en -< nýverið flutti hann sig um set til hjarta kvikmyndaiðnaðarins, Los Angeles. „Ég er nýbúinn að kaupa mér hús,“ segir hann og er greini- lega stoltur. „Eg er með stóran garð og þegar ég fer heim frá ís- landi ætla ég að fá mér hund.“ Foreldrar Matts höfðu gert sér væntingar um að hann yrði læknir og um tíma íhugaði hann það vand- lega. „Ég ætlaði mér upphaflega að verða ríkur læknir en ekki leikari en í menntaskóla fór ég að leika með áhugaleikhúsi og tók inntöku- próf í leiklistarskóla. Ég var ekkert j ákveðinn í þessu en svo komst ég inn í alla þrjá skólana sem ég sótti um og þá varð ég að taka ákvörð- un,“ segir Matt og bætir við að for- eldar hans hafí ekki verið sérstak- lega hrifnir af ákvörðuninni í upp- hafí en er þau sáu hann leika í sjón- varpsmyndum og kvikmyndum urðu þau sáttari. * Þekktasta kvikmynd Matts hing- Rós í hnappagat íslenska draumsins Morgunblaðið/Ásdís Matt Keeslar fer með hlutverk í Islenska draumnum og kann vel að meta gestrisni íslendinga og stórbrotið landslagið. Dreymir um fjölbreyttan leikferil og langskip að til er Last days of Disco sem sýnd var hérlendis í sumar en hann segist sjálfur hafa haft mesta ánægju af að leika í myndinni Sp- lendor sem frumsýnd var vestan- hafs nýverið. Sú mynd var sýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni og var vel tekið. „Greg Araki er mjög virtur, óháður kvikmyndaleikstjóri í Bandaríkjunum. Það var mjög gam- an að vinna að Splendor og ég hafði sérstaklega gaman af því að vinna með leikstjóra sem ég lít upp til.“ Ekki hefur farið mikið fyrir mörgum þeirra mynda sem Matt hefur leikið í og hafa þær sumar hverjar ekki höfðað til hins al- menna bíógests þrátt fyrir að fá ágætis dóma gagnrýnenda. En leik- ferill hans hefur þó sveiflast bæði upp og niður. Eftir að hafa fengið íyrirtaksdóma fyrir frammistöðu sína í myndinni Run of the Country tók hann að sér hlutverk í Hollywood-myndunum Stupids og Mr. Magoo ásamt Leslie Nielsen sem fengu afleita dóma og lítið áhorf. Matt sneri þá aftur við blað- inu og tók að leika í myndum sem voru minni í sniðum en gerðar af virtu kvikmyndagerðarfólki. „Það er erfítt að gera mynd sem allir kunna að meta og ég vil heldur ekki gera slíka mynd,“ segir Matt með áherslu. „Myndir sem höfða til allra eru átakalausar þótt þær geti verið glæsilegar. Ef ég léki aðeins í slík- um myndum yrði ég vinsæll en í þeim felst engin áskorun." Blaðamaður minnist á Scream 3 Hver veit, kannski á ég eftir að „finna“ sjálfan mig hér, næg eru ævintýrin! sem Matt fer með eitt aðalhlutverk- ið í og er ætlað að höfða til breiðs hóps áhorfenda. Matt hlær og við- urkennir að hún sé einmitt mynd eins og hann hafí verið að tala um. „I Bandaríkjunum er litið upp til peninga frekar en listamannanna sjálfra,“ útskýrir hann. „Menningin þar er að miklu leyti byggð á pen- ingum en ekki fólki. Þeim mun meiri peninga sem maður þénar, þeim mun virtari leikari verður maður. Til þess að öðlast tækifæri til að leika í myndum á borð við Sp- lendor er nauðsynlegt að leika í myndum sem höfða til sem flestra áhorfenda. Þannig verður maður sýnilegur. Þess vegna leik ég í myndum eins og Scream 3. En í rauninni er þarna á ferðinni frábær leikstjóri [Wes Craven] sem veit nákvæmlega hvað hann er að gera. Ég meina, við erum öll í skemmt- anabransanum og þetta er einmitt mynd sem á eftir að skemmta fólki. Sumir eru svo heppnir að fylgja sínu listræna innsæi og ná vinsæld- um eins og leikstjórinn Greg Araki og söngkonan Björk. En því miður er því ekki þannig farið með alla listamenn. Ég vil gera sem flestar og ólíkastar myndir og fínna út hvar ég á heima og hvað það er sem ég hef fram að færa.“ Við dyr heimsfrægðar? I Scream 3, sem frumsýnd verð- ur vestanhafs í febrúar, lék Matt á móti ungum leikurum á borð við Neve Campbell, Courtney Arquette (Cox), David Arquette, Kate Hud- son og Scott Foley, sem eiga mikilli velgengni að fagna og hófu mörg hver feril sinn í sjónvarpi. „Það var áhugavert að vinna með þeim,“ rifj- ar Matt upp og ætlar í fyrstu að láta þau orð nægja um samstarfíð en heldur svo áfram. „Flest þeirra náðu miklum vinsældum strax á unga aldri og þegar það gerist er mjög eðlilegt að fólk byggi varnar- múr í kringum sig til að forðast hina eilífu athygli. Þau vilja því ekki gefa of mikið af sér en þau eru öll mjög indæl og það var þægilegt að vinna með þeim. Það eru ekki til í þeim stjörnustælar heldur vinna þau mjög fagmannlega." Að vissu leyti vonar Matt að Scr- eam 3 eigi eftir að skipta sköpum fyrir feril hans sem leikara. „Mynd- ir sem þessi koma leikurum á kort- ið og gera manni auðveldara fyrir, sem leikara, að útskýra hvað það er sem maður er að gera.“ Á næstu misserum verða frum- sýndar nokkrar kvikmyndii’ þar sem Matt fer með hlutverk og er Psycho Beach Party ein þeirra. Myndin er gerð eftir handriti Charles Busch og er byggð á b- myndum frá sjötta áratugnum sem allar gerast á ströndinni. Vestan- hafs er þessarar myndar beðið með nokkurri óþreyju og miklar vonir bundnar við frammistöðu Matts. Stórmerkileg eyja En nýjasta hlutverk Matts er í kvikmyndinni Islenski draumurinn og var hann hérlendis gagngert til að leika í henni. „Umboðsmaður minn kom hingað í ferðalag á síð- asta ári og hreifst mjög af landi og þjóð. Allir komu svo vel fram við hann en það er nefnilega ekki svo oft sem Bandaríkjamenn fá hlýtt viðmót erlendis," segir Matt og skellii’ upp úr. „Þegar ég var við tökur á Scream fékk ég sent fax frá Islandi þar sem mér var boðið að leika í myndinni og umboðsmaður- inn minn kom með það til mín og sagði: „Sjáðu, ég hef ekki hugmynd um hvað þessi mynd er eða hvaða fólk stendur að henni en þér er boð- ið að fara til Reykjavíkur og þú verður að þiggja það.“ Ég ákvað að slá til,“ segir hann og brosir út að eyrum, greinilega sáttur við ákvörðunina. Dogma-myndir eru mjög vinsæl- ar um heim allan í dag og er skemmst að minnast þeirrar miklu athygli sem danska myndin Festen, eða Veislan, fékk. „Mér var sagt að Islenski draumurinn yrði í nokkurs konar dogma-stíl og það er mjög áhugavert fyrir leikara að fást við slíkt. Ég fékk sendan stuttan texta um myndina á ensku og svo hand- ritið á íslensku,“ segir Matt og hlær dátt. „Ég skildi auðvitað ekki neitt í því en það var gaman að sýna vin- um mínum það.“ I myndinni fer Matt með hlut- verk Tonys sem er kærasti bams- móður aðalsöguhetjunnar og ferða- maður á Islandi. „Ég leik þennan dæmigerða bandaríska ferðamann sem kemur til Islands til að „finna“ sjálfan sig. Hver veit, kannski á ég eftir að „finna" sjálfan mig hér, næg eru ævintýrin!" Matt sat ekki auðum höndum þá daga sem ekki var verið að taka upp og skoðaði sig um í nágrenni Reykjavíkur. „Þetta er stórmerki- leg eyja með ótrúlega fjölbreyttu landslagi og nútímalegri borg,“ seg- ir hann bergnuminn. Víkingar hafa heillað Matt síðan í barnæsku og hann þekkir vel til Eiríks rauða og Leifs heppna. „Mér hefur alltaf fundist ég hafa smávíking í mér,“ segii- hann. „Víkingalífið hefur alltaf togað fast i mig og mig lang- aði að smíða langskip en ég er ekki viss um að sá draumur eigi eftir að rætast.“ En Islenski draumurinn er um það bil að rætast og er tökum nú lokið. Matt Keeslar snýr hins vegar aftur til Bandaríkjanna í bili en langar að koma hingað næsta sum- ar þegar myndin verður fnjmsýnd. Ef Scream 3 slær í gegn verður á ferðinni stórstjarna en hvemig sem það fer hefur Island eignast enn einn aðdáanda úr listaheiminum sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.