Morgunblaðið - 17.10.1999, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
-I
I
I
1
MYNDBÖND
Snillingur
glæpa-
heimsins
Lansky
(Lansky)_______________
ffr a m a
★★★
Framleiðandi: Fred C. Caruso. Leik-
stjóri: John MacNaughton. Handrits-
höfundur: David Mamet. Kvikmynda-
taka: John A. Alonzo. Tónlist: George
S. Clinton. Aðalhlutverk: Richard
Dreyfuss, Anthony LaPaglia, Eric Ro-
berts, Max Perlich, Illeanna Douglas,
(96 mfn.) Bandarikin. Bergvík, 1999.
Myndin er bönnuð innan 16 ára.
í MYNDINNI er rakin ævi Meyer
Lansky, sem er talinn arkitekt
glæpaheimsins eins og hann var á
5.-8. áratugnum.
Lansky var snjall
og var aldrei
þátttakandi í
glæpum heldur
sá um að toga í
strengina á bak
við tjöldin.
Það er ávallt
gleðiefni þegar
mynd með hand-
riti eftir David Mamet kemur á skjá-
inn. Mamet hefur skrifað betur held-
ur en flestir um glæpaheiminn og þá
sem koma nálægt honum
(„Untouchables“, ,,Homicide“) og
persónur hans eru ávallt heilsteyptar
og lagskiptar. Lansky er dæmigerð
Mamet-persóna og túlka Dreyfuss og
Perlich hann óaðfinnanlega og er
Perlich jafn vel enn betri sem hinn
ungi Lansky. John MacNaughton
sem er frægastur fyrir myndina
„Henry: Poi’trait of a Serial Killer“
heldur vel utan um hæga atburðarás-
ina og leikurinn er í flesta staði mjög
góður. Undir lokin byrjar myndin þó
að vera aðeins of hæg og mörg
óþarfa atriði eru sett inn í hana til að
fylla upp í tímann.
Glaumgosar 6.
áratugarins
Sinatra gengið
(The Rat Pack)____________
D r a m a
'k'kVz
Framleiðandi: Fred C. Caruso. Leik-
stjóri: Rob Cohen. Handritshöfundur:
Kario Salem. Kvikmyndataka: Shane
Hurlbut. Tónlist: Mark Adler. Aðal-
hlutverk: Ray Liotta, Don Cheadle,
Joe Matcgna, Zeljko Invanek, WiIIiam
Petersen, Dan O’Herily. (100 mín)
Bandaríkin. Bergvík, 1999. Myndin er
bönnuð innan 12 ára. Félagarnir
Frank Sinatra (Ray Liotta), Dean
Martin (Joe Mategna), Sammy Davis
Jr (Don Cheadle) og Peter Lawford
(Angus MacFadyen) eru uppistaðan í
þessari mynd ásamt sambandi Sinatra
við öldungadeildarþingmanninn John
F. Kennedyjr. (William Petersen).
ÞAÐ ER óhætt að segja að þessir
kumpánar hafí verið litríkar persónur
og standa leikararnir sig vel í hlut-
verkum sínum.
Útlitslega er
myndin mjög vel
gerð og andrúms-
loft 6. áratugarins
svífur yfir reyk-
fylltum sölum
hennar. Myndin
reynir þó að segja
of margar sögur
og verður það til
þess engin heildarniðurstaða fæst
nema úr sambandi Sinatra og Kenn-
edy. Af leikurunum stendur Cheadle
upp úr en hann er ógleymanlegur
sem Sammy Davis. Leikstjórinn Rob
Cohen hefur undanfarið sérhæft sig í
spennu- og ævintýramyndum („Dra-
gonheart“ og „Daylight") en hann
nýtur sín augljóslega betur þegar
hann vinnur með alvöru fólki, en ekki
tölvubrellum og Stallone.
Ottó Geir Borg
SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 57^
FÓLK í FRÉTTUM
Nýr for-
stöðumað-
ur Alliance
Francaise
DENIS Bouclon, nýr forstöðu-
maður Alliance Francaise á Is-
landi hefur tekið við störfum.
Af því tilefni var lialdin mót-
taka í húsakynnum „allíansins“
fyrr í þessum mánuði þar sem
Frakkar og Frakklandsvinir
buðu nýjan forstöðumann vel-
kominn til starfa.
*"■ Á
W 'ú m
1
• - • ■ ■ - ■> h
Robert Cantoni, sem nýverið lét af störfum sem
sendiherra Frakklands hér á landi, var meðal
þeirra sem buðu Bouclon velkominn.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Fjölmennt var í boðinu og mikið um góðar veiting-
ar, líkt og búast mátti við hjá Frökkum.
lyerk í íslenskri útgáfu:
fsson, Þóruhn Lárusdóttir,
Jónsson, Laddi, Selma
>dó|tj|:pg HilmirSnær
RÁÐHÚBTORQI
BYGGÐ A EINUM VINSÆLASTA SÖNGLEIK ALLRA
EFTIRRODGERS OG HAMMERSTELN*.
J|||g§ \á
F é
Sl
4
1
« '
*
A