Morgunblaðið - 17.10.1999, Síða 64

Morgunblaðið - 17.10.1999, Síða 64
> Tölvueftirlitskerfi sem skilar arangrí (Q> NÝHERJI S: 569 7700 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RÍJSTJgMBUS' AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK 19% meiri hækkun launa * hér en í ESB frá 1995 LAUN hafa hækkað um 17% meira á Islandi en í OECD-löndunum á árabilinu 1995-2000 og 19% meira en í löndum Evrópusambandsins á sama tímabili. Þá hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna vaxið að meðaltali um nærfellt 30% frá árinu 1995, sem er verulega umfram hagvöxt á sama tímabili, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag í samtali við Finn Geirsson, formann Samtaka atvinnulífsins. „Það hlýtur að vera sameiginlegt hagsmunamál atvinnurekenda og ^starfsfólks þeirra að búa svo um hnúta að þessi mikli ávinningur sem náðst hefur haldi sér. Það hlýtur að verða sameiginlegt verkefni okkar að frnna leið sem tryggi hér stöðugt verðlag áfram og stöðugt gengi. Undanfarin ár hafa fært okkur heim sanninn um að þetta er ein mikilvægasta forsendan fyrir hag- vexti, góðu gengi fyrirtækja og góðri afkomu fólks,“ sagði Finnur. Ólíkt fyrri uppgangstímum Hann benti jafnframt á að hag- vaxtarskeiðið síðustu árin væri ólíkt fyrri uppgangstímum í íslensku efnahagslífi að því leyti að ekki væri hægt að rekja það beint til aukinna aflabragða eða hærra fiskverðs. Það væru ýmsir aðrir þættir sem spil- uðu þar inni í. Þar á meðal áreiðan- lega skipulagsbreytingar í íslensku efnahagslífi og á fjármagnsmarkaði, en einnig sá verð- og gengisstöðug- leiki sem ríkt hefði stærstan hluta þessa áratugar. „Við þurfum að ná samkomulagi um launahækkanir sem taka mið af þeirri verðmætasköpun sem við sjá- um fyrir okkur að geti orðið,“ segir hann aðspurður um hvað þurfi að gera til að varðveita þann árangur sem náðst hafi. „Menn hafa rætt um að við þurfum að ná mjúkri lendingu í efnahagslífinu og ég held það sé ágætis samlíking fyrir það sem við er að fást. Við höfum kannski verið að fljúga heldur hátt og þurfum að ná áttum,“ sagði hann ennfremur. Finnur sagði að fram hefðu komið hugmyndir um að það gæti verið erfitt að gera kjarasamninga til langs tíma vegna þeirrar óvissu sem nú ríkti. „I komandi kjarasamning- um eru það markmiðin um þróun efnahags- og kjaramálanna sem eru aðalatriðið og mér finnst það jákvætt að viðsemjendur okkar hafa síðustu vikumar greinilega ýtt úr vör mál- efnalegri umræðu um viðfangsefnin og era að velta fyrir sér raunhæfum lausnum. Nú er verið að leggja drög að viðræðum og þá þurfum við að meta hvemig einstakar tillögur falli að því markmiði að varðveita kaup- máttinn eins og frekast er unnt.“ ■ Launahækkanir/10-11 Lögreglan í Reykjavík 100 útköll á átta límuni LÖGREGLAN í Reykjavík stóð í ströngu aðfaranótt laugardags, en hún var kölluð út 100 sinnum frá þvi klukkan 12 á miðnætti og fram til klukkan 8 að morgni laugardags. Út- köll á sama tíma fyrir viku voru 78 og 69 á sama tíma fyrir tveimur vik- um. Lögreglan var meðal annars köll- uð á Eiðistorg skömmu eftir mið- nætti þar sem tilkynnt hafði verið um tvo unglinga sem unnu skemmd- arverk á bifreið. Brotin var hliðar- rúða og þak og skottlok voru m.a. dælduð. Atök urðu á milli eiganda bílsins og grunaðra og var annar hinna grunuðu fluttur á slysadeild. Um þrjúleytið var svo tvisvar ósk- að eftir aðstoð lögreglu við veitinga- staðinn Rauða ljónið á Eiðistorgi vegna slagsmála. m Gekk slasaður til byggða í myrkri £0$ W ’ '*'•'wmi Morgunblaðið/Sverrir Viðbúnaður flugfélaga vegna 2000- vandans um næstu áramót Búist við 30% minni umferð HOSKULDUR Hilmarsson ijúpna- skytta, sem leitað var að á Víði- dalsfjalli á milli Vatnsdals og Víði- dals á mótum Vestur- og Austur- Húnavatnssýslu frá föstudags- kvöldi til laugardagsmorguns, bjargaði sér af eigin rammleik til byggða eftir að hafa gengið slasað- ur um langan veg aðfaranótt laug- ardags uns hann kom niður að bænum Uppsölum í Sveinsstaða- hreppi klukkan 9.30 í gærmorgun. Höskuldur og veiðifélagi hans héldu til rjúpriaveiða í Víðidalsfjall á föstudagsmorgun og voru þar á rjúpu fram undir hádegi. Skall þá á þoka og missti Höskuldur sjónar , á félaga sfnum. Er hann hugðist ■ wsnúa við að bifreið þeirra félaga rann hann niður svellstokkna brekku og féll fram af brún hennar niður í urð. Tók nokkra stund fyrir Höskuld að komast á fætur enda hafði hann handarbrotnað og við- beinsbrotnað. Hann útbjó sér fatla úr bakpokaól og hélt áfram för sinni að bifreiðinni en villtist af leið. „Eg áttaði mig ekki á því að ég væri villtur fyrr en um klukkan 21 í gærkvöldi [föstudagskvöld]. Síðar sá ég ljós í Vatnsdalnum og ákvað að taka strikið þangað niður eftir í stað þess að fara til baka,“ sagði Höskuldur í samtali við Morgun- blaðið í gærmorgun, skömmu eftir lað hann kom að Uppsölum. Ljósin sem Höskuldur talar um STJÓRNENDUR undirbúningsfé- t #ags um fjármögnun og undirbúning byggingar álvers í Reyðarfirði munu fylgjast vel með ástandi efnahags- mála þegar nálgast ákvörðun um byggingu álvers og taka mið af því við ákvarðanir sínar. „Menn fylgjast með markaðnum. Ef þensla verður svo mikil að erfitt reynist að fá viðunandi tilboð, mun ^Jfirðsemi framkvæmdarinnar minnka. Ef tekið er mið af arðsemi við allar voru frá björgunarsveitarbifreið, sem hafði verið send til leitar að honum, en svo stórilla vildi til að þegar Höskuldur átti aðeins um 50-100 metra eftir ófarna að bif- reiðinni var henni ekið á brott enda var Höskuldur ljóslaus í myrkrinu og gat ekki gert vart við sig úr fjarlægð. Telur Höskuldur að hann hafi verið hálfnaður til byggða er hann missti af björgunarsveitarbifreið- inni. Þótt hann yrði fyrir talsverð- um vonbrigðum þegar hann horfði á eftir bifreiðinni hafði hann engu síður fundið veg, sein hann gat gengið eftir til byggða, og endaði för hans loks hjá Birgi Ingþórs- syni, bónda á Uppsölum, eftir alls sólarhrings útivist og 25-30 km göngu, þar af drjúgan hluta leiðar- innar slasaður. Höskuldur hefur nokkurra ára reynslu af ijúpnaveiðum og var ágætlega búinn ef frá er talinn hinn afdrifarfld skortur á vasaljósi og neyðarblysi. Segir hann að úr því verði snarlega bætt í næstu ijúpnaferð. I leitinni að Höskuldi tóku þátt um 80 manns úr björgunar- og hjálparsveitum úr Skagafirði, Hólmavík, Akureyri, frá Stranda- sýslu, Austur-Húnavatnssýslu og Húnaþingi vestra. Auk þess var leitarhundum frá Dalvík og Sauð- árkróki beitt við leit og ennfremur TF-Sif þyrlu Landhelgisgæslunnar. framkvæmdir á það að koma í veg fyrir að þenslan verði of mikil,“ segir Erlendur Magnússon, framkvæmda- stjóri fyrirtækjasviðs Fjárfestingar- banka atvinnulífsins (FBA), sem unnið hefur að fjármögnun verkefn- isins. Fimm íslensk fjármálafyrir- tæki standa að undirbúningsfélaginu ásamt Hydro Aluminium en það eru FBA, Eignarhaldsfélagið Alþýðu- bankinn, Islandsbanki, Landsbanki Islands og Þróunarfélag Islands. Haust við Tjörnina MARGIR voru í miðbænum í gærmorgun enda sólin farin að skína eftir marga rigningardaga. Liturinn á tijágróðrinum við Tjörnina og lauf á götum og göngustígum minnir okkur þó á árstímann. Viktor Leifsson var búinn að gefa öndunum og gerði sig líklegan til að klifra upp í tré við Tjarnargötu. Erlendur kveðst geta tekið undir með Má Guðmundssyni, aðalhag- fræðingi Seðlabankans, sem sagði í frétt í Morgunblaðinu í gær að besti tíminn til að heíja stórframkvæmdir væri þegar slaki væri í hagkerfinu. I því sambandi vekur Erlendur athygli á því að enn sé nokkur tími til stefnu því verklegar framkvæmdir við ál- verið verði aðallega á árunum 2002 og 2003 og erfitt að fullyrða nú um ástand efnahagsmála á þeim tíma. FJÓRAR flugvélar Flugleiða verða að öllu óbreyttu á lofti í Atlantshafs- flugi um næstu áramót en farþega- listinn er fremur stuttur. Atlanta stefnir að því að fljúga ekki um ára- mótin. Búist er við 30% minni um- ferð um íslenska flugstjórnarsvæðið en venjulega. Flugfélög og flugmálastjórnir hafa töluverðan viðbúnað vegna hugsan- legra bilana í tölvukerfum þegar árið 2000 gengur í garð. Hallgrímur Sig- urðsson, forstöðumaður rekstrar- deildar flugumferðarþjónustu, segir að undanfarin tvö ár hafi verið unnið að prófun tölvubúnaðar flugstjórnar- miðstöðvarinnar í Reykjavík. „Mikil alþjóðleg samvinna hefur átt sér stað og varaáætlanir hafa verið gerðar til öryggis. Þær hafa verið prófaðar og virka allar,“ segir Hallgrímur. Ekki er vitað hversu mikil umferð verður um íslenska flugstjómar- svæðið um áramótin. Hallgrímur segir að flest bendi til að hún verði um 30% minni en venjulega, enda hafi mörg flugfélög gefið yfirlýsingu um að þau fljúgi ekki á þessum tíma. Þótt sum flugfélög stefni að því að fljúga ekki um áramót auglýsa önnur félög sérstök áramótaflug. Samkvæmt áætlun verða fjórar flugvélar Flugleiða í Atlantshafsflugi um áramót en Guðmundur Ingason, sem stýrir 2000-verkefni hjá félag- inu, segir að farþegalisti sé fremur stuttur. Hann telur að flestir vilji vera annars staðar en í flugvél eða á flugvelli við þessi áramót auk þess sem hugsanlegt sé að einhverjir séu hræddir um öryggi sitt vegna mikill- ar umræðu um 2000-vandann. Að sögn Guðmundar hefur allt verið yf- irfarið í flugvélum Flugleiða og kveðst hann ekki hafa áhyggjur af öryggi vélanna á þessum tíma. ■ Fjórar vélar/C4 Minni arðsemi verði þenslan mikil

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.