Morgunblaðið - 07.11.1999, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
jAsfiasfeiíur
^urðasfefftr
<3?ftyrjarmur
Bjúqnakrœfiir
tSfuqcja^a^ir
^þnörusfciför
^ottaskefifF
(jtcftkjastaur ^CStU
ósiur um
íeðííeg jóf
Öiijaqaur
@>túfur
Kcrtasm'fúr
og
íjetffaríRt
íiomanbi dr
Ketfírófiur
Jólakort,
þrettán saman í pakka.
Skemmtilegar teikningar eftir
Bjarna Jónsson, af íslensku
jólasveinunum þrettán, prýöa
kortin. Hverjum sveini fylgir
viðeigandi jólasveinavísa eftir
Jóhannes úr Kötlum.
Þaö er von okkar og vissa hjá
Blindrafélaginu að almenningur
og fyrirtæki munu taka vel á
móti sölufólki okkar eins og
endranær.
Með kærri jólakveðju
BLINDRAFÉLAGIÐ
Somtök biindra og sjðnskertra 6 ískmdi
LISTIR
Hverfingar um málverk
og höggmyndir
Verk eftir Guðrúnu Kristjánsdóttur.
Verk eftir Bjarna Sigurbjörnsson.
MYNDLIST
Listasafn Kúpavogs /
G e r ö a r s a f ii
MÁLVERK OG HÖGG-
MYNDIR
GUÐRÚN KRISTJÁNS-
DÓTTIR; BJARNI SIGUR-
BJÖRNSSON; GUÐJÓN
BJARNASON OG HELGA
EGILSDÓTTIR
Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga frá 12 til 18. Til 21.
nóvember.
í GERÐARSAFNI má nú sjá
samsýningu fjögurra listamanna,
þeirra Helgu Egilsdóttur, Guðjóns
Bjarnasonar, Bjarna Sigurbjörns-
sonar og Guðrúnar Kristjánsdótt-
ur. Flest verkanna á sýningunni
eru málverk, en Guðjón sýnir þó
bæði málverk og höggmyndir eins
og hann hefur áður gert. Sýning
þessi var áður sett upp í sumar á
kirkjuloftinu við Sívalatuminn í
Kaupmannahöfn.
Málverkin á sýningunni eru öll
stór og óhlutbundin eða afstrakt,
unnin með ýmsum aðferðum. Helga
málar dökkar myndir þar sem lita-
leiftur birtast í blásvörtum grunni.
Þessar myndir eru innblásnar af
náttúruformum og -kröftum, án
þess að vera þó á nokkurn hátt eft-
irmyndanir náttúrunnar. I þeim
birtist frekar, ef svo má segja, hið
huglæga afl náttúrunnar sem
hvorki verður mælt né myndað
heldur aðeins túlkað sem persónu-
leg upplifun listamannsins við
strigann.
Náttúran er heldur ekki langt
undan í stórum málverkum Guð-
rúnar Kristjánsdóttur sem dregur
formrænar afstraksjónir sínar af
landslagi ogsveipar þær dularfullri
birtu. Þó er langt í frá um eigin-
legar landslagsmyndir að ræða; líkt
og hjá Helgu er náttúran aðeins
uppspretta tilfinninga og forma en
er ekki sjálf viðfangsefni mynd-
anna. Hið formræna líf litanna er
inntak þessara málverka og í þeim
vinnur Guðrún með viðkvæma en
þróttmikla litaskala sem skila
þeirri djúpu birtu sem er eitt helsta
einkenni verka hennar síðustu árin.
Verk Bjarna bera aftur á móti
enga augljósa náttúrutengingu
heldur virðist jafnvel ætlað að
koma í stað sjálfra náttúruaflanna
og leysa þann ógnarkraft sem býr í
málverkin sjálfu, litunum og þeim
formum sem þeir mynda. Eins og
fyrr málar Bjarni á plexigler og
snýr litnum að veggnum svo áhorf-
andinn sér í raun bakhlið málverks-
ins gegnum glerið. En þar sem
hann notaði áður þykk litalög og
mismundandi litarefni eru þessi
verk unnin með þunnum olíulit
blönduðum vatni. Formin á geysist-
órum myndfletinum verða til í bar-
áttu þessara ósættanlegu efna, olíu
og vatns, og virðast endurskapa
baráttu einhverra goðsögulegra
frumkrafta, þeirra eilífu andstæðna
sem sífellt takast á og eru hreyfiafl
alls. Verkin eru nánast einlit en svo
gagnsæ að í þeim kviknar sterk
birta sem lífgar litafletina og kem-
ur hreyfingu á formin innra með
þeim.
Höggmyndir Guðjóns eru ólíkar
nokkra öðru, enda beitir hann afar
sérstæðri aðferð við gerð þeirra,
sýður saman þykka stálhólka í
krossa og ferninga og sprengir svo
með dínamíti. Afraksturinn er verk
sem í senn undirstrika mátt grann-
formanna og tæta þau í sundur svo
aðeins eru eftir undin brot tilvitnis
um sprenginguna. í málverkunum
ítrekar Guðjón síðan þetta samspil
formrænnar reglu og óreiðu með
þvi mála geómetrísk form á strig-
ann og hylja þau svo svörtu biki.
Sýningin Hverfingar er mikil að
vöxtum og fyllir alla sali í Gerðar-
safni. Verkin era líka öll stór og
kröftug og hver listamaður fyrir sig
hefði getað sett sinn hluta upp sem
sjálfstæða sýningu. En með því að-
tefla þessum verkum saman í eina
sýningu nást fram öflug heildarhrif
þar sem átökin við form og liti
magnast. Hver þessara listamanna
býr yfir mikilli orku og það er
djarft að setja verk þeirra upp sam-
an því hætta hefði verið á að þau
kaffærðu hvert annað í átökunum.
En á sýningunni gerist einmitt hið
andstæða: Svo ólík sem verkin eru
ná þau að magna hvert annað upp.
Yfirbragð sýningarinnar er fágað
enda vinnubrögðin vönduð og fram-
setningin hárnákvæm. En áhorf-
andinn skynjar þó vel hinn mikla
kraft sem ólgar undir og gerir-
hverfingar fjórmenninganna svo
áhrifamiklar sem raun ber vitni.
Jón Proppé
Norræn bókasafns-vika að hefjast
Stúlkan frá Tuoni landi Heljar, eins og þrír listamenn sem nú sýna í Norræna húsinu,
ímynduðu sér að væri fyrir daga Kalevala.
„f LJÓSASKIPTUNUM - þjdðsög-
ur og sagnir fyrr og nú" er yfir-
skrift Norrænu bókasafnavikunn-
ar sem hefst mánudaginn 8. nóv-
ember, en hún er nú haldin þriðja
árið í röð. Bókasöfn á öllum Norð-
urlöndum taka þátt í upphafshátíð
vikunnar sem felst í því að kl. 18
eru rafljósin slökkt, kveikt er á
kerti í bókasöfnunumog lesinn
sameiginlegur texti. í ár eru það
1. hluti Kalevala og fiökkusagan
Rottupítsan eftir Bengt af Klint-
berg. Báðir textarnir eru á vefs-
íðu vikunnar:
http://www.nordiskbiblioteks-
veck.org. Tilgangurinn með bóka-
safnavikunni er að vekja athygli á
sameiginlegum menningararfi
norrænna þjóða og í ár er vakin
athygli á sameiginlegri sagnaarf-
leifð þjóðanna.
Hljóðbók
Blindrabókasafn Islands hefur
gefið út hljóðbók í tilefni Norrænu
bókasafnavikunnar með upplestri
á gömlum og nýjum sögnum undir
heitinu: í Ijósaskiptunum - þjóð-
sögur og sagnir. Lesarar eru þau
Hjalti Rögnvaldsson, Sif Ragn-
hildardóttirj Jón E. Júlíusson og
Sigrún Sól Olafsdóttir. Á þessari
hljóðbók má finna bæði brot úr
Kalevala og Rottupítsuna auk
ijölda annarra sagna.
Bókasöfn bjóða auk þessarar
upphafshátíðar upp á ýmsar dag-
skrár og uppákomur alla vikuna.
Vikan er samstarfsverkefni PR
hóps norrænna bókasafna og Nor-
rænu félaganna. Verkefnið hefur
verið styrkt af norrænu ráðherra-
nefndinni og bókavarðafélögum
Norðurlandanna. Verkefnisstjór-
inn þetta árið er í Finnlandi hjá
Norræna félaginu þar.
Bókasafn Kópavogs
Dagskrá í Bókasafni Kópavogs
hefst með sameiginlegri dagskrá
bókasafnanna kl. 18 og kynnt
verður ný hljóðsnælda sem
Blindrabókasafn íslands gefur út
með upplestri á sögurn og sögn-
um. Á miðvikudag hefst dagskrá-
in með sögustund kl. 10-14. Leik-
hópurinn Fjölskyldan verður með
upplestur og býr til blöðrudýr fyr-
ir gesti. Einnig verður trúður á
ferðinni. Kl. 19:30 verður jóla-
föndurkynning í útlánsdeild. Þátt-
takendur í hannyrðaklúbbi eru
sérstaklega minntir á kynning-
una, en hún er öllum opin.
Kl. 20 kemur bókmennta-
klúbbur Hana-nú saman á neðri
hæðinni. Á laugardag kl. 15 les
Rúna K. Tetzschner ljóð eftir Þor-
geir Kjartansson. Einnig eru tón-
listarmenn væntanlegir. Rúna
sýnir Ijóð Þorgeirs skrautrituð í
sýningarkössunum og víðar í safn
inu í nóvembermánuði.