Morgunblaðið - 07.11.1999, Blaðsíða 48
^8 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Smáfólk
'mmM.
YE5 TEACHER
5AIPT0 5HOU)YOUMY
DRAWINÖ..5HE THINK5
IT'5 TOO.VIOLENT..
'T' ^
IT'5 TAKZAN,5EE, BEATIN6 UP
MICKEYM0USE,BUTHE'S6OT
AN APE ANDAN ELEPHANT
HELPIN6HIM JTWASN'T
A FAIR FI6HT..
9-/0
YE5,1 HADTROUBLE
DRAU1IN6 IT..THE FAT
RIDWH05IT5NEXTT0
ME KEPT THR0WIN6
MYCRAY0NSACR0S5
THEROOM..
50 WHY DIP YOU
U)I5HT05EEME..
BECAUSE I PUSHEP
HIMOUT OFTHE
CHAIR?
I
Já herra, kennarinn sendi
mig að sýna þér teikning-
una mína. Henni fínnst
hún full ofbeldiskennd.
Þetta er Tarsan, sjáðu, að berja
á Mikka mús, en hann er með
apa og ffl að hjálpa sér.
Svo þetta var ójafn leikur.
Já, ég átti erfitt með teikn- Af hvers vegna var ég
inguna því feiti strákurinn sendur til þín. Af því ég
við hiiðina á mér var alltaf ýtti honum út af stólnum?
að henda litunum minum.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Skaðleg áhrif
kláms á börn
Frá kennurum í 5. bekk
Foldaskóla:
AÐ GEFNU tilefni viljum við tjá
okkur um ýmislegt sem varðar
klám og klámiðnað þann er flæðir
inn í okkar samfélag. Þetta hefur
því miður skilað sér til nemenda
okkar og birst á dulbúinn hátt í
vinnu þeirra. Tilefnið er að það
fundust klám og klúryrði í ritþjálfa,
þ.e. allmörgum tækjum sem notuð
eru til að kenna bömunum lykla-
setningu í ritvinnslu. Hægt er að
opna og vista þar skjöl. Það sem
geymt var er því miður ekki prent-
hæft. Afleiðingin er sú að það verð-
ur að hreinsa út hvem einasta rit-
þjálfa. Við eram ekki að reyna að
finna einhverja sökudólga, eða þá
sem sjá um framleiðslu á þessu efni.
Okkur finnst ógeðfellt að böm og
unglingar skuli vera markhópur
fyrir þessa vafasömu framleiðslu.
Þess vegna viljum við vekja athygli
foreldra og annarra á því hversu
auðvelt er fyrir böm og unglinga að
nálgast klám.
Við spurðumst fyrir um hvernig
nemendur nálguðust svona efni. I
fyrsta lagi er það Netið! Einn nem-
andi lenti í því á vefsíðu Walt Disn-
ey, að í miðjum leik birtust allt í
einu klámsíður sem áttu ekkert
skylt við það sem bamið var að
skoða. I öðra lagi bára börnin fyrir
sig eldri systkini sem kaupa og
eignast klámblöð. I þriðja lagi biasa
klámtímarit og -blöð við börnum
hvar sem er í bókabúðum, bensín-
stöðvum og sjoppum sem selja blöð
og tímarit. Sumir nemendur nefndu
dæmi þess að á vinnustöðum feðra
væru „dónaleg" almanök af berum
konum. Einnig viljum við benda á
ógrynni af myndböndum sem hægt
er nálgast á auðveldan hátt, fjöl-
falda og dreifa meðal „vina og kunn-
ingja".
Við viljum vísa í viðtal við félags-
fræðing sem flutt var í RUV á dög-
unum. Þar kom fram að klám hefur
svipuð áhrif á böm og kynferðislegt
ofbeldi. Við kennarar við Folda-
skóla vitum sem uppeldisfræðingar
að klám er eitt af því hættulegasta
sem óhörðnuð böm og unglingar
komast í snertingu við.
Við þurfum engar vísindalegar
niðurstöður til að sanna slíkt. Þegar
raðst er inn á viðkvæmar tilfinning-
ar bama með slíkum hætti og
blygðunarkennd þeirra brotin niður
er voðinn vís. Við getum okkur þess
til, að nemendur þeir sem misnot-
uðu rítþjálfann haíi verið að bregð-
ast við vanlíðan sinni á þennan hátt.
Þeir höfðu ekki aðrar forsendur til
að vinna sig frá áhrifum kláms,
vegna þess að þeir era óþroskaðir
og skortir lífsreynslu til að bregðast
við á annan hátt. Við skoram því á
alla foreldra að vera vel á varðbergi.
Við vitum að klám er afrakstur
mannlegrar eymdar, niðurlægingar
og glæpa. Við verðum því að vera
vel á verði til að slíkt nái ekki til
skjólstæðinga okkar og skaði sjálfs-
mynd þeirra og hugmyndir um
samskipti kynjanna og fjölskyldulíf.
Böm og unglingar eru ákaflega
berskjölduð gegn því fjölmiðlafári
sem er í nútíma þjóðfélagi með öll-
um þeim vafasama boðskap sem
þar er fluttur. Þess vegna skorum
við á forráðamenn að læsa öllu sem
hægt er að læsa og takmarka að-
gang að Netinu. Við viljum benda á
að hægt er að kaupa forrit í tölvur
sem lokar fyrir aðgang að klámsíð-
um. Við viljum einnig benda for-
eldram á að kenna börnum sínum
gagnrýna hugsun og gleypa ekki
við öllum miður heppilegum tísku-
sveiflum.
Okkur kennurum 5. bekkinga
þykir nóg komið af framandi og
skaðlegum áhrifum, sem læðst hafa
inn í menningu barna okkar. Þessi
áhrif bergmála á göngum skólanna.
Börn sýna hvert öðra meira ofbeldi
í orði og verki en áður hefur þekkst.
Við erum allar sammála um það að
klám auki ekki víðsýni, þekkingu
eða hafi mannbætandi áhrif. Við
myndum aldrei gefa bömum okkar
skaðleg eiturefni út á morgunkorn-
ið. Gætum því vel að því andlega
fóðri sem börnin okkar innbyrða.
Okkur ber skylda til að verja þau
sem best við getum og munum að
forvarnir eru ekki bara gegn vímu-
efnum. Þær era gegn öllu sem
skaða börn svo sem ofbeldi og klámi
í hvaða mynd sem það birtist.
Með baráttukveðjum!
ELVA JÓHANNSDÓTTIR,
ÍRIS GUÐLAUGSDÓTTIR,
SIGRÚN DÓRA JÓNSDÓTTIR,
ÞÓRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR,
kennarar í 5. bekk Foldaskóla
Leiðrétting
Frá Jóni Ólafssyni:
í GREIN minni um það sem mér
fannst ofstækisfull viðbrögð við nýj-
um fréttum um fjárstreymi frá sov-
éska kommúnistaflokknum til Sósí-
alistaflokksins, sakaði ég Amór
Hannibalsson um dómgreindar-
leysi. Hann hefur nú bent mér á að
hann hafi ekki haldið þeim skoðun-
um fram opinberlega sem era aðal
tilefni ásökunarinnar. Svo það sé
rifjað upp, eru það hugmyndir um
að skipa sérstaka rannsóknarnefnd
til að rannsaka þetta fjárstreymi og
fleira því tengt. Mér er því skylt að
draga ummæli til baka hvað Arnór
varðar. Það er að vísu líka rétt að
taka það fram að mér fínnst ýmis
önnur skrif Amórs bera vott um
mikið dómgreindarleysi, einkum
níðrit hans um Halldór Laxness,
„Handbendi harðstjórans", sem
dreift var í litlu upplagi fyrir tveim-
ur árum. En þar sem grein mín var
ekki um það efni og Amór hefur
ekki sýnt það dómgreindarleysi að
krefjast opinberrar rannsóknar-
nefndar um rússagull dreg ég um-
mæli mín um hann í grein minni til
baka.
JÓN ÓLAFSSON,
Hugvísindastofnun, Nýja Garði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.