Morgunblaðið - 12.12.1999, Page 30

Morgunblaðið - 12.12.1999, Page 30
30 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Sæplast á Dalvík orðið stærsta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum Morgunblaðið/Kristján Steinþór Ólafssson framkvæmdastjóri Sæplasts á Dalvík. Fyrirtækið hefur vaxið mikið síðustu misseri og starfrækir nú verksmiðjur í fjórum löndum, Islandi, Indlandi, Kanada og Noregi. FIMM VERKSMIÐJUR ÍFJÓRUM LÖNDUM VIÐSKÍPTI JflVINNULÍF Á SUIMNUDEGI ► Steinþór Ólafsson er fæddur á Akureyri 25. maí árið 1960 og ólst þar upp. Hann útskrifaðist sem vélfræðingur frá Vélskóla Is- lands árið 1982. Ari síðar hóf hann nám við Tækniháskólann í Óð- insvéum í Danmörku og varð rekstrartæknifræðingur þaðan. Hann hóf MA-nám við University of Southern California í Bandaríkjun- um og stundaði það á árunum 1991 til 1993 er hann lauk námi. Eftir að hann flutti heim til Islands starfaði hann hjá Eimskip til ársins 1996 en þar var hann deildarstjóri yfír þeirri deild sem sá um lestun og losun skipa. Árin 1996 og 1997 vann hann hjá Þor- móði ramma-Sæbergi, Granda og fleirum í Mexíkó við að byggja upp útgerð þeirra þar. Hann starfaði hjá Eimskip frá þeim tíma, var forstöðumaður áætlunarsiglinga félagsins. Steinþór var ráðinn framkvæmdastjóri Sæplasts um mitt ár 1998. Eiginkona hans er Elín Gautadóttir, verkfræðingur hjá Landsbréfum. I verksmiðju Sæplasts á Dalvík. eftir Margréti Þóru Þórsdóttur REKSTUR Sæplasts hf. á Dalvík hefur vaxið mjög hratt síðustu misseri. Félagið rekur nú fjórar verksmiðjur í jafnmörgum löndum og tekur við þeirri fimmtu um næstu áramót og verða starfsmenn þess þá orðnir um 220 talsins. Fyrirtækið var stofnað árið 1984 og hóf starfsemi á Dalvík um mitt það ár og voru starfsmenn þess þá fimm. Hjá Sæplasti voru þá aðal- lega framleiddar hverfisteyptar vörur, plastker, vörubretti og fleh-a, einkum ætlað fyrirtækjum í sjávarútvegi. Arið 1989 sameinaðist Plasteinangrun á Akureyri Sæplasti en það félag framleiddi sprautusteyptar trollkúlur fyrir sjávarútveg. A síðasta ári var keypt ný hverfísteypusamstæða og hefur afkastageta verksmiðjunnar á Dal- vík ríflega tvöfaldast síðan. Steinþór Ólafsson framkvæmda- stjóri Sæplasts hóf störf hjá fyrir- tækinu um mitt síðasta ár og stóð þá m.a. frammi fyrir því verkefni að snúa taprekstri félagsins árið á undan í hagnað. Arið 1997 var Sæplast rekið með rúmlega 30 milljóna króna tapi og er það eina árið í sögu félagsins sem tap hefur orðið á rekstrinum. Steinþór sagði að gripið hefði verið til aðgerða, starfsfólki fækkað, röradeild fé- lagsins var seld sem og eignir. Það auk almenns aðhalds og söluaukn- ingar varð til þess að viðsnúningur varð í rekstri og var félagið gert upp með 55 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Gríðarstórt markaðs- svæði í Asíu Fyrir réttum þremur árum stofnaði Sæplast dótturfélag á Ind- landi, Sæplast India, og á í því 51% hlutafjár, Verkfræðistofan Meka á 16% og aðrir, m.a. heimamenn, eiga það sem á vantar. Verksmiðjan, sem er í Ahmadabad í Gujarat- fylki, var tekin í notkun í október í fyrra, en þar eru framleidd plast- ker. Gert er ráð fyrir að velta fé- lagsins á Indlandi verði um 20 milljónir á næsta ári og eru starfs- menn 25. Sæplast hafði selt ker inn á Asíu- markað, en með því að stofna eigin verksmiðju í nálægð við markaðinn var hægt að lækka flutningskostn- að umtalsvert. „Þetta er nokkurs konar þróun- arverkefni, en það er komið vel af stað og er í góðum farvegi. Allar okkar áætlanir varðandi reksturinn á Indlandi hafa staðist," sagði Steinþór, en stofnkostnaður við verkefnið í heild nemur rétt innan við 50 milljónum króna. „Með rekstri verksmiðjunnar í Indlandi erum við að horfa til Asíumarkaðar og þá til lengri tíma. Þetta er gríð- arstórt markaðssvæði, um einn milljarður manna býr í landinu og við munum einnig sækja inn á markaði í Sri Lanka, Pakistan og Bangladesh í náinni framtíð. Þarna eru því miklir möguleikar." Verksmiðjur keyptar í Noregi og Kanada Fyrr á þessu ári, eða í maí síðast- liðnum, keypti Sæplast tvær hverfi- steypuverksmiðjur, annars vegar verksmiðju í eigu Dynoplast A/S í Saint John í New Brunswick-fylki í Kanada og hins vegar verksmiðju í eigu Dynoplast A/S í Salangen í Noregi. Steinþór sagði að Sæplast hefði lengi leitað leiða til að komast inn á markað í Norður-Ameríku og skoð- að ýmsa kosti eins og samvinnu við fyrirtæki þar eða sameiningu. Tek- in var um það ákvörðun hjá Dynoplast að selja plastdeild félag- ins og festi breskt fjárfestingafélag kaup á henni, sem aftur seldi Sæplasti og hið sama var uppi á teningnum varðandi verksmiðjuna í Noregi. Hjá Sæplast-Canada starfa um 70 starfsmenn og er veltan á næsta ári áætluð um 650 milljónir króna, þannig að um nokkuð stærri verk- smiðju er að ræða en á Dalvík. Þar eru framleiddar fjölbreyttar vörur úr plasti, en megináherslan er lögð á einangruð ker og plastbretti fyrir fisk og annan matvælaiðnað. Meðal plastafurða sem framleiddar eru í kanadísku verksmiðjunni má nefna sérstök bretti sem notuð eru í flug- vélum, frystigáma fyrir kjúklinga- iðnað, kerrur og vagna til nota í matvælaiðnaði sem og flotbryggjur og vatnstanka. Sæplast-Canada hefur átt gott samstarf við Tyson Food, sem hef- ur höfuðstöðvar í Arizona í Banda- ríkjunum og er sjötti stærsti kjúklingaframleiðandinn þar í landi. Sæplast-Canada hefur í sam- vinnu við Tyson Food þróað sér- stakan plastgám fyrir kjúklinga- framleiðslu. Færum okkur nær markaðnum og styrkjum stöðuna Sæplast-Norge var stofnað í júní í sumar og rekur verksmiðju í Sa- langen þar sem aðallega era fram- leidd einangi-uð ker og bretti fyrir fiskiðnað og aðra matvælafram- leiðslu. Framleiðslan fer aðallega á markað í Noregi og er áætlað að hlutdeild verksmiðjunnar í markaði þar í landi sé um 60%. Þá hefur verksmiðjan einnig sótt á markað í írlandi og Danmörku. Hjá verk- smiðjunni starfa um 20 manns og er veltan áætluð um 180 milljónir króna. „Með kaupum á þessum verk- smiðjum eram við að færa okkur nær markaðnum og styrkja þannig okkar stöðu, það hefur þegar gefið góða raun,“ sagði Steinþór. Félagið hefur ekki látið staðar numið í land- vinningum sínum, því í síðasta mán- uði var undirrituð viljayfirlýsing um kaup Sæplasts á plastverk- smiðju í eigu Polimoon í Álasundi í Noregi, en hún var áður í eigu Dynoplast A/S. Samningur um kaupin var nýlega undirritaður og er stefnt að því að Sæplast taki við rekstrinum um næstu áramót. Verksmiðjan framleiðir m.a. flot, belgi, björgunarhringi, fríholt og fjölmargar vörur aðrar sem tengj- ast sjávarútvegi og siglingum. Velt- an er áætluð um 600 milljónir króna á ári og vörurnar seldar um allan heim. Starfsmenn era um 70 talsins. Stefnt að kaupum á fleiri verksmiðjum í útlöndum Steinþór sagði stöðu Sæplasts á markaði í Noregi og reyndar mun víðar styrkjast mjög við þessi kaup. Með kaupum á þessum tveimur verksmiðjum í Noregi og í Kanada | er Sæplast orðið stærsta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum, en áætluð heildarvelta þess á næsta ári er um tveir milljarðar króna. „Við höfum áhuga fyrir að fjárfesta enn frekar í útlöndum og áætlanir gera ráð fyr- ir að við kaupum tvær til fimm nýj- ar verksmiðjur á næstu árum. Við höfum verið að skoða ýmsa valkosti í þessum geira, sjávarútvegi og matvælaframleiðslu, enda það svið I sem við þekkjum best. Fyrirtækið j mun því enn eiga eftir að vaxa og á | alla möguleika á því,“ sagði Stein- þór. Fjármagnað með hlutafjárútboði Hann sagði að þrátt fyrir miklar fjárfestingar hafi félaginu ekki ver- ið steypt í of miklar skuldir og eigið fé þess sem hafi verið um eða yfir 50% verði eftir fjárfestingar ársins og hlutafjárútboð um 37%. Nýtt hlutafjárútboð í Sæplasti hófst í liðinni viku og era boðnar 30 milljónir að nafnvirði, um 270 millj- ónir ki'óna. Það fé verður notað til að greiða niður kaup á verksmiðj- um félagsins í útlöndum. Núver- andi hluthafar hafa forkaupsrétt á genginu 9. „Hluthafahópurinn hef- ur staðið þétt við bakið á okkur, hann hefur trú á fyrirtækinu og menn hafa ekki verið að rjúka til og selja þó upp hafi komið erfiðleikar," sagði Steinþór en hluthafar í Sæplasti eru um 380 talsins. Bréf félagsins hafa hækkað um 80% á árinu. Gott starfsfólk Steinþór lauk einnig lofsorði á starfsfólk félagsins, sem átt hefði mikinn þátt í að snúa rekstri þess við á tímum erfiðleika með sam- | hentu átaki. „Okkar fólk hefur sýnt það og sannað að það er tilbúið að taka á þegar á reynir og það er mjög góður andi hjá okkur, enda væri þetta varla hægt annars. Fyr- irtækið hefur vaxið afar hratt að undanförnu án þess að bætt hafí verið við mannskap, þeir sem fyrir eru hafa bætt á sig vinnu og hafa gert það með glöðu geði,“ sagði Steinþór. Aukin umsvif fyrirtækis- . ins kalla á breytingu á stjórnskipu- lagi þess og hefur stjórn félagsins ákveðið að endurskoða skipurit og J stefnumörkun félagins, en þeirri vinnu lýkur í upphafi næsta árs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.