Morgunblaðið - 12.12.1999, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.12.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1999 37 tískukenninga. Hann hafði miklar mætur á orðum Njáls: „Allt orkar tvímælis, þá er gert er.“ Honum lík- aði miður við grillufangara og innti eftir áþreifanlegum og hlutlægum röksemdum.. „Það er ævinlega freisting að falla fyrir einföldum skýringum, en veruleikinn er oftast margbrotinn, og útlistun hans krefst þolinmæði og raunsýni," segir hann á einum stað. Fleyg eru orð hans: „Mer leiðist öll vitleysa." Ég á Einari Ólafí margt gott upp að unna. Ég var árum saman læri- sveinn hans í Háskólanum og varð síðar eftirmaður hans sem prófessor bókmenntum fyrri alda. Aldrei reyndi ég hann að neinu nema góðu einu og tel ég víst að flestir nemend- ur hans geti sagt hið sama. Hann var ágætur lærifaðir og leiðbeinandi og gaf sér alltaf tíma til að hlýða þolinmóður á nemendur sína og gefa þeim holl ráð. Einar Ólafur var gæfumaður í einkalífí sínu. Kona hans var Kristjana Þorsteinsdóttir sem studdi hann með ráðum og dáð og var hægri hönd hans í hvívetna. Sonur þeirra er Sveinn Einarsson þjóðkunnur menningarfrömuður. Heimili þeirra hjóna var annálað fyrir rausn og höfðingsskap, þótt fjárhagur væri'oft þröngur. Einar Ólafur tók aldrei að sér aukastörf ef peningar einir voru í boði. Hann gaf sig allan að hugðarefnum sínum. Fjöldi innlendra og erlendra fræði- manna voru tíðir gestir og sátu þar í góðum fagnaði. Það er ekki ofmælt að heimili þeirra hjóna hafi um langt skeið verið miðstöð íslenskra miðaldabókmennta og þjóðfræða. IV Hvers vegna varð Njála til á ís- landi en ekki annnars staðar? Af hverju er Njála eins og hún_ er? Margar niðurstöður Einars Ólafs eru grundvallarhugmyndir í ís- lenskri bókmenntasögu og sumir dýrmætustu gimsteinar íslenskra sagnabókmennta eru skynjaðir og skildir að vitund hans og forsögn. Einar Ólafur dró lærdóma af rann- sóknum sínum og þekkingu. Arið 1953 lét hann þau orð falla að ís- lenskt þjóðerni væri honum hug- stæðast allra mála. Þjóðei'ni var í huga Einars Ólafs jákvætt hugtak, ekki óvild til annarra þjóða heldur hvatning til að meta og elska ágæti og afrek eigin þjóðar. Þjóðernið, menningarerfðirnar og frelsisþráin væru það hreyfiafl, sem framar öllu öðru knúði þjóð áfram og upp á við. Gunnar á Hlíðarenda og Njáll á Bergþórshvoli væru ekki aðeins sögupersónur í Njálu heldur einnig tákn fyrir íslenska þjóðmenningu og þjóðfrelsi tuttugustu aldar. Glati ís- lendingar tungu sinni og þeirri menningu sem henni er tengd væru þeii’ „búnir að vera“ sem þjóð. Þeir skyldu varast að brjóta fjöregg sitt. Þetta erindi átti Einar Ólafur við þjóð sína. Hann var bæði langsýnn og ráðhollur. Höfundur er dr. Bjarni Guðnason, prófessor emeritus við Háskóla Is- lands. Sérmerktar Húfur og HANDKLÆÐI Fáið upplýsingar um tilboð! Handklæði með ensku félags- merkjunum Pantið jólagjafirnar á netinu þessi jól! Myndsaumur Hellisgata 17,220 Hafnarfjörður, sími 565 0122, fax565 0488. Netverslun: www.if.is/myndsaumur Njótið lífsins, notið bílastæðin Framboðið af bflastæðum í miðborginni er mikið. Yalkostirnir eru stöðumælar, sérstök miðastæði og sex glæsileg bflahús. # Bflahúsin eru þægilegur kostur. hámarkstíma frá 15 mín. Þú ekur beint inn í vistlegt hús, sinnir þínum erindum og gengur að bílnum á vísum, þurrum stað. í bílahúsinu rennur tíminn ekki út og þú borgar aðeins fyrir þann tíma sem þú notar. # Stöðumælar eru skamm- tímastæði með leyfilegum upp í 2 klst. # Miðastæðin eru víða og góður kostur. Þú borgar fyrir þann tíma sem þú ædar að nota; korter, hálftíma, klukkustund eða lengri tíma. Mundu eftir miðastæðunum. §l§ Bflastæðasjóður Hönnun: Gísti B & SKÓP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.