Morgunblaðið - 12.12.1999, Síða 59
t
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1999 59
★
*
*
*
★
★
A
★
*
★
■k
★
★
★
★
★
★
•k
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
*
★
★
*
Sýnd kl. 5, 7,9og 11. B.i.16.
Hér er komið sjálfstætt framhaid myndarinnar Eitt
sinn stríðsmenn. Frá sama höfundi og með sömu
leikurum. Kröftug, óvægin, raunsæ, spennandi og
gefur fyrri myndinni ekkert eftir. Eitt sinn
stríðsmenn 2 er stórmynd sem allir hafa beðið
eftir og verða að sjá.
WHAT BECOMES OF THE
BROKEN HEARTED?
ffij
_ 8ió _JHB
|E|| /pp/ f n jp'jjriwi; i i
i!; i * Uupu'«l !M
TEMUERA MORRISON
EVRÓPUFRUMSÝNING: EITT SINN STRÍÐSMENN 2
MAGNAÐ
FRAMHALD
MYNDARINNAR
ONCEWERE
WARRIORS
lesið allt um Whot Bccomes Of The Brokcn Heortcd (eitt sinn striðsmcnn 2) o www.stjornubio.is
(LMJf&AR/m
James Bond er mættur I sinni stærstu mynd hingað till Pierce
Brosnan, Robert Carlyle, Sophie Marcueau og Denise Rkhards
fara á kostum og hasaratriðin slá öllu við.
Algjörlega ómissandi mynd.
Sýnd kl. 2.30, 5, 6.30, 9 og 11.
mm
= ALVÖRU BIÍ! ™
= STAFRÆNT _________________
= HLJODKERFI í | IJ Y
=F ÖLLUM SÖLUM!
1/2
,.*r
OFE Haúsvci kui
.wVvnftim 'w-.yrv
Sýnd kl. 3.
|k %
★ ★ ★ i/a
Kvikmytulir.ís.* ^
★ ★ ★ Dv
★ ★★★
Mbl
★ ★★
Sýnd kl. 4.50, 6.50,9 og 11.15. b.l i6.
Prælskemmtileg og hressileg gamanmynd
fyrir hressa stráka og hressar stelpur. ATH!
Bókin, Spegill, spegill... sem myndin er
byggð á er komin í allar bókaverslanir.
Sýnd kl. 9 og 11.30.
laugarasbio.is
Courtney
Love vildi úr
spjörunum
SÖNGKONAN Courtney Love úr
hljómsveitinni Hole hefúr aldrei
verið kunn fyrir að fara troðnar
slóðir; hún haslaði sér völl sem leik-
kona í mynd um klámkónginn
Larry Flynt og í nýlegu myndbandi
við lagið „Be A Man“ sem spilað
verður í fótboltamynd Olivers Stone
„Any Given Sunday“ dansaði hún
hálfnakin í óþökk leikstjóra mynd-
bandsins á niðurrigndum leikvangi í
Los Angeles umkringd vígreifum
knattspyrnumönnum. Love sem var
í bláum kjól fór úr honum og dans-
aði um á nærbuxunum. Ekki verður
þetta sýnt í myndbandinu sem yrði
þá líklega bannað en líkur verða að
teljast á því að netverjar fá að bera
söngkonuna augum átölvuskjánum.
Vinnutörn framundan
hjá Spielberg
STEVEN Spielberg tók sér langa
hvfld eftir gerð stórmyndarinnar
Björgun óbreytts Ryans. En nú
ætlar hann aftur að hefjast handa
og listinn er langur.
Variety greinir frá því að leik-
stjórinn hafi sagt Larry King í ný-
legu viðtali að hann ætlaði áreið-
anlega að leikstýra Tom Cruise í
myndinni „Minority Report“ og að
hann væri að vinna að handriti sem
byggt væri á „A.I.“, kvikmyndinni
sem Stanley Kubrick hafði unnið
að í törnum í nokkur ár og hefur
verið lýst sem nútimaútgáfu af
sögunni af Gosa, nýsköpuðu vél-
menni sem langar óskaplega mikið
til að verða alvöru drengur.
Ástæðan fyrir því að Kubrick
réðist ekki í verkefnið var sú að
hann taldi tæknina ekki komna
nógu langt á veg til þess að hægt
væri að gera söguna trúverðuga. f
greinum sem birt voru eftir andlát
hans kom fram að Júragarður
Spielbergs hefði endanlega sann-
fært hann um að hægt væri að
gera myndina eins og hann úskaði
sér og Kubrick hefði lagt á ráðin
með Spielberg um verkefnið.
Spielberg sagði í viðtalinu við
King að hann langaði einnig til að
gera fjórðu myndina um Indiana
Jones og mynd eftir metsölubók-
inni „Memoirs Of A Geisha“. „Þú
verður að átta þig á því að ég hef
ekki unnið í næstum tvö ár og ætla
að taka mér ianga vinnutörn,"
sagði Spielberg. Leikstjórinn neit-
aði að ræða mikið um „A.I.“ í við-
talinu en Variety hefur eftir heim-
ildarmönnum sínum að hún hafi
forgang umfram „Minority
Report“.
Carrey
á tungl-
inu
JIM Carrey segist hafa
lifað sig svo inn í hlut-
verk sviðsspaugarans
Andys Kaufmans í
væntanlegri mynd Mil-
os Foremans Maður á
tunglinu eða „Man on
the Moon“ að hann
gleymdi persónunni
Jim Carrey.
„Eftir að tökum
lauk eyddi ég þremur
vikum í að velta fyrir
mér: „Á hverju hef ég
áhuga? Hvað finnst
mér um þetta?“ Ég
hafði alveg sagt skilið
við það; maður missir gjörsam-
lega sjónar á sjálfum sér,“
sagði Carrey.
Foreldrar Kaufmans, Stanl-
ey og Carole Kaufman, komu
fram við hann sem Andy, segir
Carrey í samtali við Los Angel-
es Times. „Carol Kaufman
sendi mér bréf þar sem hún
skrifaði: „Við vissum hvemig
Andy var fram til 1983 og nú
vitum við hvernig hann er
núna.“ Þetta var gefandi, ógn-
vekjandi, skrýtið og yndislegt,“
bætir Carrey við.
Leikarinn, sem er 37 ára,
hoin'/ I'Vat IM-’Ö8f skri»utlegur á
mS ^ haMM vaTað
myndmm um Kaufman.
haslaði sér völl með myndunum
Gríman og Truman-þátturinn.
Hann segist meðvitaður um að
frægðin geti verið kæfandi.
„Stundum þegar ég vakna á
morgnana sest ég niður, fæ mér
kaffibolla, lít yfir fallega garð-
inn minn og hugsa: „Mundu
hvað þetta er yndislegt og að _
þú getur misst sjónar á því.“ Á
meðal leikara í myndinni sem
frumsýnd verður vestra síðar í
mánuðinum eru Courtney Love,
flestir mótleikarar Kaufmans í
þáttunum Taxi ásamt David
Letterman og Lorne Michaels.
7'lRrison
FORD
KRISTIN
SOTT THOMAS
LOLARUM
LINA LANGSOKKUR
Sýnd kl, 3. ÓKEYPIS INN
PRINSESSAN OG
DURTARNIR
Sýndkl. 3. ÓKEYPIS INN
□□ ‘ DQLBY 1
OI6ITAI
Smii 462 3500 • ftkurcvri • www.nell.is/bMrqarbio
Sýnd kl. 7. Síðasta sýning
-I mm
■■ 990 PUNKTA
Z FmulBfó
Keflavík - sími 421 1170
www.samfilm.is