Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ í kjarnanum Erföaefnið, DNA, í kjamanum skiptist f 23 pör af litningum. Genin raðast eins og perlur á band á hvern litning, f genunum eru uppskriftir að prótínum. EJ Undnir stigar bssá Vísindamenn Genamengisáætlunarinnar fengu gen úr sex sjálfboðaliðum til að rannsaka en gen tveggja einstaklinga af sömu tegund eru nánast eins. DNA-sameindin minnir á langan, undinn stiga sem á ensku er nefndur double eða tvöfaldur helix. Þrep stigans eru geröir úr fjórum tegundum efnasam- banda, núkleótíð-basa, A, T, C og G sem tengjast og raða sér með ákveðnum hætti í basapör. Verkefni genamengisrannsóknanna er að lýsa þvf hvernig röðunin er í hverju geni. Kóðuð uppskrift Genarööin ákvaröar samsetningu prótínsins sem DNA-erfðaefnið í hverju geni framleiöir, hvort þar verður til hemóglóbin, sem flytur súrefni um líkamann, mótefni sem ræðst á bakteríur eða eitthvað annað Alls eru um 50.000 efni fram- leidd í DNA-sameindinni. 3 Litningur Undni stiginn (Double helix) Fruma Umfrymi Frumuhýði GENIN OG MARKAÐURINN Fjölmörg fyrirtæki stunda nú rannsóknir á genum og hyggcjast fjármagna þær með greiðslu fyrir not á þekkingunni. Sótt hefur verið um þúsundir einkaleyfa á genum og sum hafa þegar verið veitt. Kristján Jónsson kynnti sér ástand og horfur á genamarkaðnum. EITT af því sem vefst fyrir mönnum á líftækniöld er rétturinn til að nýta sér þekkinguna á genum í hagnaðarskyni og hvaða aðferðum beita skuli við að ýta undir rannsókn- ir. A að fara troðnar slóðir og láta op- inbera aðila annast rannsóknimar eða nýta einkaframtakið? Sé seinni kosturinn valinn, hvaðan á þá fjár- magnið til rannsóknanna að koma? Meðal annars, segja menn, með því að hagnýta sér einkaleyfi á um 100 þúsund genum mannslíkamans, láta þá sem uppgötva nýja þekkingu og fínna upp nýjar aðferðir í þeim efnum njóta þess fjárhagslega. Lyfjafyrirtækin veðja því á líf- tæknina þegar mannamein framtíð- arinnar eru annars vegar og flóra líf- tæknifyrirtækjanna hefur stækkað hratt. Árið 1990 fór það fyrsta á hlutabréfamarkað, Genenteeh og bréfin ruku þegar upp verðstigann. Meira en 1400 fyrirtæki á þessu sviði hafa verið stofnuð vestanhafs á síð- ustu árum, kappið er oft ómælt og væntingarnar eftir því. En aðeins um 50 dæmi eru um að framleiðsluvara frá þeim hafi raunverulega farið á markað. „Peningar flæða nú frá netfyrir- tækjum yfir í genamengisfyrirtæki," hefur bandaríska tímaritið US News & World Report eftir Michael King, sérfræðingi hjá verðbréfafyrirtæk- inu Robertson Stephens í lok janúar. En netfyrirtækin og genamengisfyr- irtækin eiga eitt sameiginlegt: Mörg þeirra hafa enn ekki sýnt neinn hagn- að, segir ritið. Stjómendur verð- bréfasjóðsins Franklin Biotechno- logy Discovery Fund, sem hefur veðjað á ýmis vafasöm líftæknifyrir- tæki á fósturstigi, forðast að fjárfesta í flestum genamengisfyrirtækjum. „Það er langur vegur frá erfðafræði- legum upplýsingum yfir í árangurs- ríkt lyf,“ segir framkvæmdastjóri sjóðsins, Kurtvon Emster. Aðrir sérfræðingar segja að væn- legast sé að festa fé sitt í tæknifyrir- tækjum sem framleiða búnaðinn sem m.a. er notaður til að rannsaka gena- mengið. Nefnt er að PE Biosystems Group, sem framleiðir tölvubúnaðinn sem nú er einkum notaður við grein- ingu genanna, muni að líkindum skila að meðaltali 20% hagnaði á ári fram til 2003. Tekist hefur með vissu að greina fáein gen sem valda sjúkdómi. Eitt þeirra er genið sem veldur svo- nefndri Huntingtonsveiki sem er lífs- hættulegur heilasjúkdómur er orsak- ast af galla í litningi. Þrátt fyrir miklar rannsóknir hefur þó ekki enn verið hægt að nýta þessa þekkingu til að lækna sjúkdóminn. Lyfín enn framtíðardraumur Þótt raunveruleg erfðafræðileg lyf og erfðalækningar séu því enn fram- tíðardraumur hefur á hinn bóginn verið hægt að búa til nýjar fram- leiðsluaðferðir með líftækni sem m.a. valda því að fólk með sykursýki þarf ekki lengur að nota insúlín úr svína- blóði. Sýklar hafa verið „bættir“ með mannagenum og þar sem sýklar geta fjölgað sér gífurlega hratt eru þeir notaðir sem eins konar dvergvaxnar insúlín-verksmiðjur. Líftæknin er því fyrir löngu orðin arðsöm í lyfjaframleiðslunni, er því jafnvel spáð að árið 2010 verði seld lyf, framleidd með líftækni, fyrir meira en 60 milljarða dollara árlega, um 4.500 milljarða króna. Svarar þetta til helmings af árlegri sölu allra lyfjafyrirtækja heimsins núna en að sjálfsögðu eru spámar byggðar á óvissum forsendum. Erythropietin, efni sem ýtir undir framleiðslu rauðra blóðkoma, var framleitt með líftækniaðferðum. Þetta efni hefur þegar geíið framleiðandanum tugi milljarða króna í tekjur. Nú vona lyfjaframleiðendur að margir sjúkdómar reynist vera að einhverju eða öllu leyti af erfðafræði- legum toga, jafnvel þótt þeir séu ekki arfbundnir. Einkum em menn þá með þijá flokka sjúkdóma í huga; í fyrsta lagi krabbamein, í öðra lagi hjartasjúkdóma og loks taugasjúk- dóma. Vitað er að mjög fáar gerðir krabbameins erfast, oftast er sjúk- dómsvaldurinn eitthvað í umhverfi eða aðstæðum og kemur til sögunnar löngu eftir fæðingu. En hvað er það sem fær framur í lungum eða maga til að fara allt í einu að fjölga sér óhóflega og búa til lífs- hættuleg æxli? Verður hægt að finna sökudólgana meðal genanna með því að beita útilokunaraðferðum? Verður hægt að gefa fólki ráð til að fyrir- byggja sjúkdóminn, t.d. með því að breyta mataræði eða öðram þáttum sem hægt er að breyta, ef Ijóst er að í genamengi þess era varasöm eintök? Margir sérfræðingar álíta að þekk- ingin á erfðaefninu muni fremur nýt- ast til að reikna út líkur á því að fólk fái sjúkdóm og efla forvamir en bein- línis að finna upp lyf. Erfðaefnið í framunni, DNA, var í fyrsta sinn einangrað 1869 og upp- bygging sameinda þess, undni stig- inn eða helix, var uppgötvuð árið 1953. Lengi var þó áhugi annarra en sérhæfðra vísindamanna lítill. Ekki var hægt að sjá í fljótu bragði hvern- Magn erfðarefnis í lífverum er mjög breytilegt. [ þessu yfirliti stendur hvert bindi fyrir 50 milljónir basapara Avaxtafluga y 160 milljónir ■ ■■I basapara 5 Hryggleysingi |ÍNjjg| 100 milljónir basapara 't' Ö | 15 milljónir basapara Saurgerill 10 milljónir basapara ig hægt væri að nýta þessa þekkingu beinlínis til að bæta heilsuna eða græða á henni fé. Nokkrar rannsóknastofnanir í Bandaríkjunum og Bretlandi settu sér það markmið fyrir tíu árum að kortleggja genamengið. Fyrir tveim áram var ákveðið að miða við að því lyki árið 2003 og kostnaðurinn yrði um þrír milljarðar dollara eða nær 220 milljarðar króna. Fleiri þjóðir, þ.á.m. Frakkar, Þjóðverjar og Jap- anir, taka þátt í verkefninu, sem er á ensku nefnt The Human Genome Project, eða Genamengisáætlunin. Þá rataði hinsvegar minkur inn í hænsnabúið. Bandarflgamaðurinn J. Craig Venter gerði samning við fyrirtækið Perkin-Elmer, sem framleiðir bún- aðinn sem notaður er við greininguna og hét hann að vera miklu fljótari en opinbera stofnanirnar og kostnaður- inn yrði einn tíundi þess sem þau gerðu ráð fyrir. Það var þó eitt sem einkum olli fleiri en ráðamönnum fyrri áætlana kvíða; Venter sagðist ætla að tryggja sér einkaleyfi á hluta genanna sem hann kortlegði. Aður hafði reyndar fyrirtækið Incyte Pharmaceuticals í Kaliforníu kynnt þá ætlun sína að reyna að safna genaupplýsingum í sinn eigin banka og selja þær hæstbjóðanda. Fyrirtækið hefur þegar fengið um 350 einkaleyfi á genum og sótt um 6.500 að auki. Að sögn The Wall Street Joumal hyggst Incyte ekki greina allt genamengið en einbeita sér að 15 til 20 þúsund genum sem álitið er að skápti mestu fyrir læknis- fræðina. Einkaleyfí og skilyrði Almenn skilyrði fyrir því að fá einkaleyfi á uppgötvun era að um sé að ræða nýjung sem ekki hafi legið í augum uppi og hafi notagildi. Evrópusambandið hefur skilgreint hvemig meðhöndla skuli einkaleyfis- umsóknir á genum. Þarf sá sem það fær að geta sýnt hvemig umræddur hluti gensins eða genið allt virkar, hvemig tækni skuli nota til að fram- leiða genið og hvert gagnið sé. Fyrsta einkaleyfið á örvera var staðfest í Bandaríkjunum með hæstaréttardómi árið 1980 eftir nfu ára þóf og þekkt dæmi frá seinni ár- um er ærin Dollý. „Hönnuðir“ henn- ar í Skotlandi sóttu um einkaleyfi á einræktuðum spendýrum, líftækni- fyrirtæki á borð við Monsanto hafa einnig fengið fjölda einkaleyfa í tengslum við framleiðslu á erfða- breyttum landbúnaðarvörum. Hin hreina ára vísindamannsins er að láta undan síga fyrir peningaöfl- unum, segja sumir og sakna tímanna þegar menn létu eða sögðust láta fróðleiksfysnina eina ráða gerðum sínum. Aðrir fullyrða að verði réttur- inn til að fá einkaleyfi á DNA skertur muni geta lítilla fyrirtælqa til að fá áhættufjármagn minnka og það koma niður á rannsóknum og vís- indaþróun í heiminum. Auk þess muni vísindamenn ef til vill forðast að skýra frá uppgötvunum óttist þeir að geta ekki vemdað þær nógu vel með einkaleyfum. Stefna Genamengisáætlunarinnar hefur frá 1995 verið sú að setja niður- stöðumar jafnóðum á Netið og leyfa öllum að nálgast þær án greiðslu. Um sé að ræða vísindauppgötvanir sem eigi að vera öllum vísindaheiminum aðgengilegar og einkaleyfi gætu hamlað framföram á þessu sviði. Auk þess hefúr vafist fyrir mörgum að skilgreina nákvæmlega hvenær hægt sé að fullyrða að menn séu búnir að gera meira en að lýsa náttúrafyrir- bæri og hvenær þeir séu búnir að breyta eðli þekkingarinnar með því að bæta við hana svo mikilvægum, nýjum eigindum að hægt sé að segja: Þetta er ekki lengur uppgötvun held- ur uppfinning. Sem dæmi um muninn mætti nefna að sænskir bræður fundu upp aðferð til að plasthúða pappír eins og notaður er í Tetrapak-umbúðir og er notaður í mjólkurambúðir og fieira.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.