Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 29 Hér er Magnús að baða lakkplötu í vatni meðan verið er að yfirfæra efni en það mýkir hljóðið. sig eru 4-5 diskar nema hvað efnið með Vilhelm-Lanzky-Otto fór á sjö diska.“ Magnús segist hafa mjög gaman af þessari vinnu. „Ég hef yndi af að hlusta á tónlistina sem ég ólst upp við og hlusta á gömlu útvarpsmenn- ina en málfar þeirra er oft skemmti- legt en þeir töluðu alvöru íslensku,“ segir Magnús með áherslu á síðustu orðin. Auglýsa eftir gömlu útvarpsefni Það kemur fram að Magnús og Jónatan eru áhugasamir um að fá til sín gamalt útvarpsefni sem fólk á ef til vill í fórum sínum. „Það tíðkaðist hérna í gamla daga að flytjendurnir tækju efnið með sér heim,“ segir Jónatan og ef einhverjir eiga slíkt efni hjá sér biðjum við þá um að koma því til Ríkisútvarpsins. „Fólk tók líka oft upp þætti um leið og þeim var útvarpað og geymdi þá,“ segir Magnús. „Eins vasrum við þakklátir að fá gamlar plötur með ís- lensku efni sem við eigum ekki og fá að yfirfæra efnið yfir á geisladisk.“ Jónatan segir að í gömlu hljóðrit- ununum leynist ýmsar sjaldgæfar upptökur af dægurtónlist eins og lög flutt af Hauki Morthens en sumt af því efni hafi aldrei verið gefið út. Hann nefnir einnig Hljómsveit Jans Moráveks og upptökur með Sigurði Ólafssyni, Alfreð Clausen og Soffíu Karlsdóttur sem allt voru vinsælir söngvarar á eftirstríðsárunum að ógleymdum upptökum með Hljóm- sveit Bjarna Böðvarssonarsem hafa nú þegar verið yfirfærðar á geisla- disk og eru komnar á almennan markað en hægt er að kaupa þessa tónlist í afgreiðslu Ríkisútvarpsins. Tilraun gerð til að koma efninu til almennings „Meðan verið var að vinna þessar upptökur yfir á geisladisk fundum við fljótt fyrir miklum áhuga á þeim. Við gerðum því samning við FIH og STEf um útgáfu á efninu," segir Jónatan. „Þetta er tónlist sem tekin var upp á tímabilinu 1940-53. En ekkert er til af útgefinni dægurtónlist frá þessum tíma. Það var árið 1936 sem FÍH gerði samning við Ríkisútvarp- ið um stofnun sérstakrar dægur- lagahljómsveitar, FÍH-hljómsveit- arinnar, sem lék til að byrja með dægurlagatónlist á tveggja vikna fresti í útvarpið. Fram að þeim tíma hafði eina lifandi tónlistin verið flutt af einsöngvui-um eða hljóðfæraleik- urum og þá var um að ræða klass- íska tónlist eða sönglög," segir Jón- atan. „Bjarni var stjómandi hljómsveit- arinnar og kynnti lögin. Síðar kall- aði hann til söngvara með hljóm- sveitinni. Meðal þeirra var kona hans Lára Magnúsdóttir en hún söng í Dómkirkjukórnum og Her- mann Guðmundsson sem var vinsæll söngvari í eina tíð. Baldur Hólm- geirsson, Haukur Morthens og Al- freð Clausen stigu sín fyrstu skref með hljómsveitinni sem var fljótlega farið að kalla Danshljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Og ekki má gleyma syni hans Ragnari Bjarna- syni, sem var trommari í hljómsveit- inni og þreytti hann frumraun sína sem söngvari með hljómsveitinni. Bjami Böðvarsson var um margt merkur maður en hann var stofn- andi FÍH. Það má geta þess til gamans af því við eram einnig að vinna hér með gamlar upptökur eftir Jón Leifs að faðir Bjarna, sem var prestur á Hrafnseyri, var hálfbróðir Ragn- heiðar Bjarnadóttur móður Jóns Leifs.“ Jónatan segir geisladiskinn með Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar vera tilraun hjá Ríkisútvarpinu til að koma þessu gamla efni til al- mennings og vonandi verði framhald á því. En fyrst og fremst verða gömlu upptökurnar leiknar í þáttum útvarpsins í framtíðinni. FRÉTTIR Svandís Magnúsdóttir og Ólöf Björk Halldórsdóttir. Ný hárgreiðslu- stofa í Hafnarfirði SVANDÍS Magnúsdóttir og Ólöf Björk Halldórsdóttir hafa opnað hárstofuna Focus á Reykjavikur- vegi 62, Hafharfirði, þar sem hár- stofan Meyjan var áður til húsa. Boðið er upp á góða þjónustu og unnið er með vörur frá Keune í París. Svandís starfaði áður hjá Kristu í Kringlunni, Bylgjunni í Kópavogi og Hárstofu Dísu. Ólöf Björk starf- aði á Bylgjunni í Kópavogi og Hár- stfl í Hafnarfirði. Opnunartími er eftirfarandi: Virkir dagar 10-18 og laugardagar 10-13. f biðstofu hárstofunnar er listagallerí þar sem eru til sýnis og sölu málverk eftir Sibbu. Fyrirlestur um streitu og fjölskyldulíf FYRIRLESTUR verður í Foreldra- húsinu, Vonarstræti 4 b, bakhúsi, mánudaginn 14. febrúar kl. 20.30. Fyrirlesturinn nefnist Streitan og fjölskyldulífið. Fjallað verður um áhrif streitunn- ar á fjölskyldulífið og á einstaklinga. Fjallað verður m.a. um eftirfar- andi spurningar: Er streita hluti af nútíma fjölskyldulífi og eitthvað sem við sköpum okkur sjálf oft af „litlu“ tilefni? Ef svo er hvernig birtist hún, hvaðan kemur hún og hvaða áhrif hefur streitan á fiölskvlduna? Hvað er til ráða þegar streitan er að taka völdin? Hvernig er afslappað fjöl- skyldulíf? Er það til? Fyrirlesari er Sigríður Anna Ein- arsdóttir félagsráðgjafi með sér- menntun í fjölskyldu- og hjónameð- ferð. Hún rekur félagsráðgjafar- stofuna Aðgát. Þar býður hún upp á viðtöl og námskeið, auk þess að halda námskeið í fyrirtækjum um sjálfseflingu, samskipti og streitu. Allir era velkomnir. Aðgangseyrir er kr. 500. Ókeypis flug fyrir börn í TILEFNI af vetrarfríum grunn- skóla landsins býður íslandsflug nú bömum 6-16 ára ókeypis flug til allra áfangastaða félagsins tímabilið 16. febrúar til 14. mars. Tilboðið gild- ir í allt flug félagsins að frátöldu flugi eftir klukkan 14 föstudaga og sunnu- daga. Eitt bam fær frítt með hverj- um fullorðnum. Fullorðinn og bam verða að ferðast saman báðar leiðir. Farþegi sem gistir þijár nætur á áfangastað og greiðir við bókun þremur dögum fyrir brottför kemst fram og tilbaka til Akureyrar, Egils- staða, Bfldudals, Sauðárkróks, Siglufjarðar og Gjögurs á stéttar- félagsfargjaldi, 7.030 krónum, og til Vestmannaeyja 5.930 kr. Kjósi farþeginn að gista aðeins tvær nætur á áfangastað og greiða við bókun tveimur dögum fyrir brottför er bónusfargjaldið besti kosturinn, 8.330 kr. til Akureyrar, 8.830 kr., til Sauðárkróks, 9.330 kr. til Egilsstaða, Siglufjarðar, Bfldu- dals og Gjögurs, og 6.930 kr. til Vest- mannaeyja. Auk þess býður íslands- flug upp á aðra kosti ef tveir þeir ofantöldu henta ekki. Nánari upplýs- ingar veitir afgreiðsla Islandsflugs. Það er augljóst að íslenskir fjárfestar kunna vel að meta aðgang að stærsta hlutabréfamarkaði heims - Wall Street - í gegnum Kauphölt Landsbréfa. Það sýna viðbrögð þeirra þúsunda íslendinga sem orðnir eru virkir þátttakendur á þessum markaði. f þakklætisskyni fyrir þessar frábæru viðtökur bjóða Landsbréf áfram ókeypis viðskipti á • Wall Street til 16. febrúar. Það þýðir einfaldlega að það kostar ekkert að selja eða kaupa hlutabréf í einhverju af þeim þúsundum fyrirtækja sem skráð eru á Nasdaq-kauphöllina á Wall Street.* Ef þú hefur ekki þegar kynnt þér hvað Kauphöll Landsbréfa býður aðgan upp á, þá er þetta rétti tíminn til að slást í hópinn. brúar KAUl'UOt.l. I.AMISHRÉI V I ANHSimi I * Nánari upplýsingar um tilboðsdagana er að finna á vef Kauphallar Landsbréfa. I Simi 535 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.