Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fæddur til að segja sögur STÆRSTA útgáfufyrirtæki Þýska- lands, Bertelsmann, gefur út í kilju- forlagi sínu, btb, um þessar mundir bók Einars Kárasonar, Heimskra manna ráð. Bókin kom fyrst út inn- bundin hjá hinu þekkta bók- menntaforlagi Hanser og hlaut af- ar jákvæða dóma þar ílandi. Ritdómur Die Einar Kárason Zeit sagði m.a.: „(Einar) er fæddur til að segja sög- ur, einmitt þær sem lesandinn óskar sér: þéttar og drynjandi, blygðun- arlausar, gagnrýnar og safaríkar." Auk þessa sögðu gagnrýnendur: „ísland, klettaeyjan í Norður- Atlantshafí, er mér jafn fjarri og kínverska keisaraveldið. Samt fannst mér ég kannast mæta vel við mig meðal hinna forkostulegu fjöl- skyldumeðlima sögumannsins. Ég grét af hlátri og enn meira grét ég þegar ég las upp úr bókinni fyrir gesti og gangandi“(Hessischer Rudfunk-útvarp). Og ennfremur: „Tilraunir fjölskyldunnar til að halda f við nútímann, vaxandi ágirnd eftir peningum og völdum á sínar skoplegu hliðar, en þær voru ekki síður harmrænar. Dallas í ná- grenni Reykjavíkur - sannkallaður lestraunaður, skáldsaga í hæsta bókmenntalega gæðaflokki" (net- miðlinn buchecke - oneline). Heimskra manna ráð hefur nú komið út í sex löndum og er vænt- anleg hjá hinu virta forlagi de seuil í Frakklandi í apríl en bækur Ein- ars hafa verið þýddar á um tug tungumála. XJng myndlistarkona, Hjördís Árnadóttir, sýnir í New York Fjarræn ver- öld innblásin af heima- landinu Frá sýningunni í New York. Morgiinblaðið. New York. HJÓRDÍS Árnadóttir myndlistar- maður sýnir um þessar mundir í Gallery Silverstein í New York. Hjördís lýkur mastersnámi í mynd- list frá The School of Visual Arts í vor en það var fyrir tæpu ári að eigandi gallerísins kom á opið hús hjá nemendum deildarinnar og leist svo vel á verk Hjördísar að hann bauð henni að taka þátt í sýn- ingunni Af tilveru, Of existence. Verk listamannanna þriggja sem verk eiga á sýningunni, þeirra Hjördísar, Erics Hongistos og Sols Saxs, eru talsvert ólík en sam- merktar eiga þau vangaveltur um tilvist og umhverfi mannsins í sinni breiðustu mynd. Hjördís sýnir 4 stórar teikningar unnar með blýi og trélitum og gefa verkin sýn inn í óhlutbundinn og fjarrænan heim sem listakonan segir tengjast heimalandinu. „Fjarlægðin gerir það kannski að verkum að maður skynjar landið með öðrum hætti.“ GLÆSIVERK TIL SOLU Jón Engilberts Kristján Davíðsson Einnig verk eftir: ► Louisu Matthíasdóttur ^ Hafstein Austmann ► Valgarð Gunnarsson ► Sigurbjörn Jónsson ► Tolla ► Kjarval ► Ásgrím Jónsson ► Þorvald Skúlason ► Sverri Haraldsson ► Mugg Fyrir fjársterkan aðila leitum við að módelmynd eftir Gunnlaug Blöndal SMIÐJAN Innrömmun - Art Gallerý Ármúla 36, sími 568 3890. Opið í dag, sunnudag, kl. 14-17 20% af allri innrömmun út febrúar Fjallað er um sýninguna í jan- úarhefti listatímaritsins New York Arts þar sem verkum Hjördísar er lýst sem afar viðkvæmum og fín- gerðum abstraktsjónum af náttúr- unni, innblásnum af klassískri naumhyggju. Eric Hongisto er hugleikin náttúra stærðfræðinnar í skúlptúrum þar sem gengið er út frá hlutföllum himintungla til hins smæsta í tilverunni. Þriðja sýnin birtist í verkum Sols Saxs sem veltir fyrir sér afrískri arfleifð sinni og fjölbreyttum uppruna Bandaríkjamanna. Eins og áður segir lýkur Hjördís framhaldsnámi í New York í vor en hún útskrifaðist frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Islands HJÖRDÍS Árnadóttir við eitt af verkum sínum á sýningunni Af tilveru í Gallery Silverstein. árið 1998. Gallery Silverstein er í nýjum kjarna gallería í Chelsea- hverfi á vestanverðl Manhattan þangað sem mörg þekkt gallerí í borginni hafa flutt á síðustu árum. Sýningunni lýkur 26. febrúar nk. Tónleikar Hamrahlíðarkórsins Brautry ðj endur íslenskrar tónlistar Á TÓNLEIKUM Hamrahlíðar- kórsins, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, mánudagskvöld kl. 20.30 í Karlakórshúsinu Ými við Skógarhlíð, verða flutt lög eftir ís- lensk tónskáld. Tónskáldin eru Helgi Helgason, Sigfús Einarsson, Friðrik Bjarna- son, Sigvaldi Kaldalóns, Björgvin Guðmundsson, Sigurður Þórðar- son, Þórarinn Guðmundsson, Emil Thoroddsen og Hallgrímur Helga- son. Tónskáldin eiga það sameigin- legt að þau eru öll látin. Aðspurð minnti Þorgerður Ingólfsdóttir á að á þessari Tónlistarhátíð Tón- skáldafélags íslands væri um að ræða eins konar úttekt á tónlist okkar aldar, úttekt á liðinni öld eða öllu heldur tenging við sam- tímann. Morgunblaðið/Þorkell Hamrahlíðarkórinn á æfingu fyrir tónleikana á mánudagskvöldið. M-2000 Mánudagur 14. febrúar Tónleikar Hamrahlíðarkórs- ins Ymir - tónlistarhús Karla- kórs Reykjavíkur kl. 20.30 Hamrahlíðai'kórinn leikur undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur. Á efnisskránni eru með- al annars verk eftir Helga Helgason, Sigfús Einarsson, Friðrik Bjarnason, Sigvalda Kaldalóns, Björgvin Guðmunds- son, Sigurð Þórðarson, Þórarin Guðmundsson, Emil Thorodd- sen og Hallgrím Helgason. Tón- leikamir eru hluti af þríþættri hátíð Tónskáldafélagsins: ís- lenskri tónlist á 20. öld. Miðasala:Upplýsingamiðstöð ferðamála, Bankastræti 2 og við innganginn. Nú væri flutt tónlist frá fyrri helmingi aldarinnar. I vor yrði tónlistin frá 1950-1985 eða þar um bil. Næsta haust yrði svo flutt tónlist í lok aldarinnar, 1985-2000. Fyrir daga græðgisgleypigangsins „Tónlistin sem við flytjum á þessum tónleikum var samin fyrir daga græðgisgleypigangsins, Mc- Donalds og vídeós. Þetta var tím- inn þegar „brjóst gátu enn fundið til,“ segir Þorgerður. Tónleikarnir rifja það upp þegar hlutir gerðust við fábreytt skilyrði. Þá hefðu orðið til ættjarðarsöngv- ar sem væru á allra tungu. Unnið hefði verið ótrúlegt brauðryðj- endastarf og gefnar út söngbækur. Þorgerður sagði að nokkur verk- anna á efnisskránni væru stærri kórverk. Má þar nefna m. a. Mót- ettuna eftir Hallgrím Helgason og Friðarkórinn úr óratoríu Björg- vins Guðmundssonar. Kórverkið Fjallkonan eftir Sig- fús Einarsson var samin snemma árs 1929 og frumflutt á Austfjörð- um í maí sama ár af 50 manna blönduðum kór undir stjórn tón- skáldsins. Kórinn var á leið til þátttöku í norrænu kóramóti í Kaupmannahöfn og var það í fyrsta sinn sem blandaður kór frá Islandi ferðaðist til útlanda. Jón Þórarinsson tónskáld og kennari Þorgerðar man þegar kór- inn kom til Seyðisfjarðar og hlust- aði á hann barn að aldri í kirkjunni. Jón, sem man tímana og söguna hefur verið til ráðgjafar um val á efni fyrir þessa tónleika. Þorgerður segir það mikils virði að rifja upp nýliðna sögu sem oft fyrnist fljótt yfir í erli okkar daga: „Á fyrrihluta tuttugustu aldar urðu til mörg þau ljóð og lög sem lifað hafa með þjóðinni. En hvert stefnum við, hvað syngur unga fólkið í dag og hvað mun það syngja þegar það verður komið á elliheimili og þarf að lifa af með hjálp tónlistar og skáldskapar?"
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.