Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 6/2 -12/2 ►BANKARÁÐ Búnaðar- banka íslands sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem átalin voru brot á verklags- reglum innan bankans. Fjár- málaeftirlitið hafði gert at- hugasemd við framkvæmd reglnanna. ►METIUGNAÐUR varð af rekstri Islandsbanka hf. og détturfélaga á síðasta ári og nam hagnaðurinn 2.015 milljónum króna fyrir skatta. ► FRAMLEIÐSL A á kinda- kjöti jókst um 5,7% á síðasta ári en sala á innanlands- markaði dróst hins vegar saman um 1,6%. Hlutdeild kindakjöts í neyslu lands- manna hefur dregist mjög saman. ►HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknar- flokksins, segir að flokkur- inn vilji beita sér fyrir aukinni áherslu á byggða- kvóta til að hægt verði að bregðast við miklum vanda- málum í einstökum byggðar- lögum. ►DAVÍÐ Oddsson forsætis- ráðherra sagðist á Alþingi vel geta hugsað sér að Björk Guðmundsdóttir fengi að reisa sér hús á Elliðaey á Breiðafirði og búa þar leigulaust í þakk- lætisskyni fyrir störf hennar í þágu þjóðarinnar. Sagði hann hins vegar að söng- konunni hefði verið gerð grein fyrir því að ef til þess kæmi að eyjan yrði seld myndi hún verða auglýst þannig að aðrir gætu komið að máíinu. Samgöngur lömuðust á Suður- og Suðvesturlandi FÁRVIÐRI gekk yfir Suður- og Suð- vesturland á fóstudag. Allir vegir á Suð- urlandi, Suðurnesjum og höfuðborgar- svæðinu lokuðust vegna ófærðar og dæmi voru um að fólk þyrfti að dúsa í bílum sínum á Reykja8nesbraut og Hellisheiði tím8únum saman. Allar björgunarsveitir á svæðinu voru kallað- ar út til að aðstoða vegfarendur. Mikið var um óhöpp, en engin alvarleg slys urðu á fólki. Öllu millilanda- og inn- an81ands8flugi var aflýst og þurftu Flugleiðir að snúa sjö flugvélum til Glas- gow með nærri 1.000 farþega. Læknafélag íslands og íslensk erfðagreining leita samkomulags ÍSLENSK erfðagreining og Læknafé- lag íslands hafa ákveðið að halda sátta- fund í vikunni vegna ágreinings um söfnun sjúkraskrárupplýsinga í miðlæg- an gagnagrunn á heilbrigðissviði. Deilu- aðilar hafa að undanfömu ræðst við óformlega til að undirbúa formlegar við- ræður í vikunni. Talsmaður LI hefur lýst yfir að hugsanleg lausn felist í að leitað verði eins konar opins samþykkis sjúklinga um að upplýsingar um þá megi nota í rannsóknarskyni og setja í gagnagrunninn. Efling semur við Reykjavíkurborg STÉTTARFÉLAGIÐ Efling og Reykjavíkurborg gengu frá kjarasamn- ingi fyrir tæplega 3.000 starfsmenn borgarinnar. Samningurinn fól í sér 3% launahækkun, auk 2.500 kr. hækkunar á alla taxta. Samningurinn gildir frá ára- mótum og rennur út í árslok. Auk þess að semja um fyrrgreinda launahækkun náði Efling fram kröfu um stofnun starfsmenntasjóðs, en í hann mun borg- in greiða 0,22% af heildarlaunum. Um er að ræða sambærilegt ákvæði og Starfs- mannafélag Reykjavíkurborgar er með. Flugræningjar gáfust upp FLUGRÆNINGJAR, sem haldið höfðu 165 manns í gíslingu um borð í afganskri farþegaþotu á flugvelli í Bretlandi, gáfust upp á fimmtudags- morgun án þess að kæmi til átaka. Hópur manna skipaði á sunnudags- morgun flugmönnum Boeing 727 þotu í eigu afganska flugfélagsins Ariana að fljúga til nokkurra borga í lýðveldum Sovétríkjanna fyn-verandi áður en þot- unni var stefnt til Stanstead-flugvallar utan við Lundúnir. Flugræningjarnir slepptu fljótlega nokkrum gíslum og fjórum mönnum tókst á Joriðjudags- kvöld að sleppa frá borði. I fyrstu var talið að flugræningjamir hefðu krafist þess að einum foringja stjórnarand- stæðinga í Afganistan, Ismail Kahn, jrnði sleppt úr haldi. Eftir að ræningj- arnir gáfust upp kom í ljós að þeir höfðu ekki sett fram neinar pólitískar kröfur og vaknaði þá grunur um að um skipulagðan landflótta nokkurra far- þega kynni að vera að ræða. Lögregla í Bretlandi handtók 20 manns í tengsl- um við flugránið en alls hafa 74 farþeg- anna beðið um pólitískt hæli í Bret- landi. Friðarferlið í uppnámi Friðarferlið á Norður-írlandi er í upp- námi eftir að frestur, sem bresk stjórn- völd gáfu írska lýðveldishernum (IRA) til að hefja afvopnun, rann út í lok vik- unnar. Peter Mandelsson, ráðherra málefna Norður-írlands í bresku ríkis- stjórninni, tilkynnti á föstúdagskvöld að ákveðið hefði verið að færa völd tveggja mánaða gamallar heimastjóm- ar á N-írlandi aftur til Lundúna. Vonir eru þó bundnar við að heimastjórnin verði aðeins frá völdum í skamman tíma og ný skýrsla frá John de Chastelain, yfirmanni nefndar sem falið var að sjá um afvopnun, hefur gef- ið þeim vonum byr undir báða vængi. ►ÍSRAELAR gerðu í vikunni miklar loftárásir á m.a. raf- orkuver og stöðvar Hezbollah- skæruliða í Líbanon til að hefna fyrir ríg fsraelskra her- manna sem skæruliðar hafa vegið. Árásimar hafa varpað skugga á friðarviðræður Isra- ela og Sýrlendinga og aukið líkur á þrí að Israelar dragi herlið sitt út úr Líbanon á næstuuni. ►Taija Halonen, frambjóð- andi jafnaðarmanna, var á sunnudag kjörin forseti Finn- lands í seinni umferð forseta- kosninganna þar í landi. Ha- lonen hlaut 51,6% atkvæða en frambjóðandi Miðflokksins, Esko Aho, 48,4%. ►TÖLVUÞRJÓTAR gerðu vefsíður nokkurra þekktra netfyrirtækja í Bandaríkjun- um óvirkar í vikunni með þrí að beita hrekk sem kom í veg fyrir að vepjulegir viðskipta- vinir næðu sambandi við þær um liríð. Bandarísk stjómvöld leggja nú allt kapp á að flnna þijótana en hrekkurinn hefur undirst rikað hve netfyrirtæki em enn berskjölduð fyrir tölvuglæpum. ►MEÐLIMIR nýmyndaðrar ríkisstjórnar í Austurríki hafa í vikunni reynt að sefa áhyggj- ur Evrópuríkja af þátttöku Frelsisflokksins í stjóm lands- ins. Ráðherrar stjómarimiar hafa í vikunni mætt kulda og verið sniðgengnir af ráðherr- um annarra ríkja á fundum innan Evrópusambandsins. ►MIÐJUMAÐURINN Stipe Mesic var á mánudag kjörinn forseti Króatfu með rúmlega 56% atkvæða. Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta s Arni Svanur Daníels- son hlaut styrkinn ÁRNI Svanur Daníelsson guð- fræðingur fékk á föstudag hundr- að þúsunda króna verkefnastyrk Félagsstofnunar stúdenta fyrir kjörsviðsritgerð sína í guðfræði sem ber heitið Formálar Lúthers að Biblíunni. - Viðhorf Lúthers tii heiiagrar ritningar og hugmyndir hans um túlkun hennar. Ritgerð- in var unnin undir leiðsögn dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar. Árni Svanur lauk fimm ára námi í guðfræði frá Háskóla íslands hinn 5. febrúar sl. en stundar nú MA-nám í guðfræðideild. Guðjón Olafur Jónsson, stjórn- arformaður FS, afhenti Árna Svani styrkinn og segir hann í samtali við Morgunblaðið að verkefni hans hafi sem slíkt þótt áhugavert og að hann hafi að auki verið með góð meðmæli frá Ieiðbeinanda og sýnt góðan náms- árangur. Styrkurinn veittur þrisvar á ári Aðspurður segir Árni Svanur að styrkurinn sé staðfesting á því að hann hafi verið að gera góða hluti. „Það er eitt að fá klapp á bakið frá kennurum sínum sem maður hefur umgengist og skilja mann algjörlega en annað að fá viðurkenningu utanfrá. Það skiptir miklu máli.“ Verkefnastyrkur FS er veittur þrisvar á ári en markmiðið með veitingu hans er m.a. að hvetja Morgunblaðið/Golli Árni Svanur Daníelsson guðfræðingur tekur við styrknum og viður- kenningarskjali úr hendi Guðjóns Olafs Jónssonar, stjórnarformanns Félagsstofnunar stúdenta. stúdenta til markvissari undir- búnings og metnaðarfyllri loka- verkefna. Samkvæmt upplýsingum frá FS geta þeir nemendur sem skráðir eru til útskriftar hjá HÍ og þeir sem eru að vinna að verkefni sem veitir 6 einingar eða meira í greinum þar sem ekki eru eigin- leg lokaverkefni sótt um styrk- Ráðstafanir vegna sjúkrahúsum álags p a VEGNA óvenju mikils álags hefur forstjóri sjúkrahúsanna í Reykja- vík falið lækninga- og hjúkrunar- forstjórum spítalanna að taka sam- eiginlega á þeim vanda að koma sjúklingum fyrir í yfirfullum sjúkrahúsunum, þannig að þeir njóti umönnunar á sem bestan hátt. Ástandið hefur verið með erfið- asta móti á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur í Fossvogi og segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, hjúkrunarfor- stjóri SHR, að á milli 10 og 20 sjúklingar séu að jafnaði á göng- unum. Til eru dæmi um að sumir hafi þurft að vera þar einn og jafn- vel tvo sólarhringa. Sigríður segir að menn eigi eftir að setjast niður og leita leiða til að bæta úr vandanum. Það þurfi að kanna að hve miklu leyti sjúkra- hústengd heimaþjónusta og aukin heimahjúkrun geti komið til móts við þarfir sjúklinganna. Þá stendur til að setja af stað vinnuhóp til að samhæfa betur þjónustu á milli spítalanna og heimahjúkrunar, auk þess sem að reynt hefur verið að vinna að því að tryggja einhver pláss á sjúkrahótelum hjá Rauða krossinum. — Himnastiqinn Seldist upp, en er kominn aftur SiQMfðurriosafton gyþór Gutws'seon Sígildar, gullfallegar djassballöður í frábærum flutningi Sigurðar Flosasonar og félaga „Ballöðutúlkun með meistarabrag" Vernharður Linnet, Mbl Einstök tilfinning" Ingvj Þór Kormáksson, DV Fólk selji upplýs- ingar úr sjúkra- skrám HÓPUR fólks, sem telur óeðli- legt að Islensk erfðagreining fái einkarétt á að nýta sjúkraskrár í gagnagrunn á heilbrigðissviði, mun á næstu dögum senda bréf inn á íslensk heimili þar sem að fólk er hvatt til að segja sig úr gagnagrunninum. Undir bréfið ritar Valdimar H. Jóhannesson sem málsvari þessa hóps, sem telur að með einkaleyfinu sé verið að færa Islenskri erfða- greiningu milljarða í hendur. „Til að koma í veg fyrir að deCODE og/eða íslensk erfða- greining ehf. fái gefins af þjóð- arauðnum tugi milljarða eigum við vepjulegir íslendingar nú aðeins einn kost, að sameinast um að segja okkur úr miðlæg- um gagnagrunni á heilbrigðis- sviði með skipulegum hætti. Þess vegna er þér sent úrsagn- areyðublað og umboð lögmönn- um til handa til að semja um greiðslur til þín fyrir að sam- þykkja að vera í gagnagrunnin- um,“ segir í bréfinu. I niðurlagi bréfsins er farið fram á að fjölskyldumeðlimir undirriti beiðni um úrsögn og „gefi lögmönnum hópsins um- boð til að gera sem mest úr þeim verðmætum", sem þeir telja að liggi í heimild viðkomandi til að veita aðgengi að upplýsingum úr sjúkraskrám sínum. Ekið á mann á ísafirði EKIÐ VAR á gangandi vegfar- anda á Seljalandsvegi á föstu- dagskvöld. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, slasaðist töluvert og liggur á Fjórðungssjúkra- húsinu á ísafirði. Slysið varð með þeim hætti að maðurinn gekk framfyrir rútu þegar jeppabifreið kom aðvífandi og lenti á honum. Aðstæður voru slæmar þegar slysið varð; lítið skyggni og ófærð, að sögn lög- reglunnar á ísafirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.