Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 39 MINNINGAR ustu árin sem þú lifðir. Pú og Rikki, vinur þinn, voruð að koma ykkur fyrir í sumarbústaðnum sem þið vor- uð að byggja saman og voruð alltaf að dunda fyrir austan. Þið voruð að bíða eftir að komast upp í sumó sem fyrst en ég veit að þú verður þarna og fylgist með honum í anda. Takk fyrir allt saman, elsku amma mín, megi Guð og englarnir fylgja þér. Og láttu þau nú ekki trufla þig í kleinugerðinni! Elsku pabbi, Rikki og fjölskylda. Guð blessi okkur öll. Elska þig, Lárus Axel. Mig langar með nokkrum fátæk- legum orðum að minnast hennar ömmu. Amma Gústa eins og hún var alltaf kölluð, var amma af Guðs náð. Þegar maður kíkti til hennar var alltaf tínt eitthvað til með kaffinu, eða kókinu öllu heldur, og síðan var spjallað um heima og geima, böm, bamaböm og langömmuböm, föt og hárgreiðslur, drauma og endur- minningar bar einnig oft á góma. Það var virkilega gaman að spjalla við hana. Margar á maður minning- arnar um hana og ylja þær manni nú þegar hún hefur kvatt þennan heim. Ég má til með að segja frá er hún hringdi eitt skiptið og spurði hvort ég gæti ekki skotist í efnabúð fyrir hana. Þá var ég nýbúin að sauma kjól á puntudúkkuna sem sat oftast á rúminu, ég spurði hvort ég ætti að fara að sauma fleiri kjóla á dúkkuna, nei, nú átti ég að kaupa joggingefni og sauma buxur og peysu, því að hún þyrfti að gefa lítilli vinkonu sinni það. Jæja, eftir að hafa fengið upp úr henni hvað litla vinkonan var gömul, fremur tvirætt þó, aldurinn var frá fæðingu til eins árs, fór ég og gerði eins og um var beðið, saumaði ferskjulitar buxur og peysu í stíl, kem svo með herlegheitin til ömmu, og viti menn, var það þá ekki önnur dúkka sem skyldi fá þau, barnið hennar eins og hún kallaði hana. Sagði ég svo ömmu að eftir þetta skyldi hún segja mér á hvern fötin ættu að vera, en enn í dag held ég að báðar dúkkurnar klæðist þessum fötum. Hún amma hefur nú afrekað margt á sínum lífsferli og gert það sem engum hefði komið til hugar t.d. að kaupa sína fyrstu íbúð þegar hún var sjötug. Marga dreymir það ekki einu sinni þótt yngri séu. Og að henni ásamt vini sínum til margra ára skyldi koma til hugar að byggja sumarbústað á áttræðisaldri, þetta hefði bara ömmu Gústu og vini hennar, honum Rikka, dottið í hug. Og vona ég að Rikki eigi eftir að njóta veru í sumarbústaðnum, sem var ömmu svo kær og að andi henn- ar sé þar með honum. Og að lokum vil ég bara segja: amma mín, þú fékkst að fara eins og þú varst svo oft búin að segja, engin sjúkrahús- lega og margra ára kvalir, þannig að þú fékkst síðustu óskina uppfyllta. Bless, amma mín, og blessuð sé minning þín. Rikka, pabba, systkinum hans og fjölskyldum votta ég samúð mína. Ágústa Jóhanna og fjöl- skylda. Elsku amma mín. Mig langar til að kveðja þig í síðasta sinn. Ég man svo vel þegar ég kom í heimsóknir til þín og fékk að leika í legó, sem alltaf var geymt uppi í skáp. Ég man líka eftir að þú gafst mér alltaf nammi og kók. Alltaf þegar ég fór frá þér, þá stóðst þú í glugganum og vinkaðir, svoleiðis man ég þig. Guð blessi þig. Þinn Sindri Snær. Elsku amma mín. Ég man eftir öllum stundunum sem við áttum saman. Mér fannst gaman í legó hjá þér, þú varst alltaf svo góð við mig og gafst mér nammi og gos. Ég man eftir litla dótahundinum og dúkkun- um þínum. Það var alltaf gott að koma til þín á fallega heimilið þitt í Stigahlíðinni. Alltaf þegar ég fór frá þér varst þú í glugganum og veifað- ir. Guð blessi þig. Þinn Anton Bjarni. GUÐNY LAXDAL + Guðný Laxdal fæddist á Gauts- stöðum á Svalbarðs- strönd 6. júlí 1914. Hún Iést á Kristnes- spítala 30. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Grímur Laxdal, f. 5. júlí 1882, d. 2. nóvember 1977 frá Tungu á Sval- barðsströnd og Sig- urdís Bjarnadóttir, f. 20. febrúar 1883, d. 1. jan. 1962 frá Saurbæ á Vatnsnesi. Guðný var ein af sjö systkin- um. Eftir fermingarár fluttist Guðný að Nesi í Höfðahverfl þar sem hún bjó ásamt foreldrum srn- um og systkinum þar til hún giftist eiginmanni sfnum, Magnúsi Snæbjarnarsyni, 13. nóvember 1936. Magnús var fæddur 14. októ- ber 1906 að Grund í Höfðahverfi, d. 12. mars 1994 að Hombrekku á Ólafsfirði. Árið 1935 hafði Magnús reist nýbýlið að Syðri-Grund í Höfðahverfi og þar bjuggu þau hjónin þar til Guðný fluttist að Lindasíðu 2 á Akur- eyri haustið 1993. Þau eignuðust fjögur börn sem öll era á lífi. Þau eru: 1) Sæv- ar Magnússon, f. 21. júní 1936, eiginkona hans er Guðný Klara Hallfreðsdóttir f. 8. janúar 1941 og búa þau að Syðri-Grund. 2) Helgi Laxdal, f. 9. jan. 1941, eiginkona hans er Guðrún Elín Jóhannsdóttir f. 4. ágúst 1943 og eru þau búsett í Kópa- vogi. 3) Kristjana Magnúsdóttir, f. 30. október 1945, sambýlismaður hennar er Friðrik Rúnar Gíslason, f. 26. nóvember 1945 og búa þau í Kópavogi. 4) Jóhanna Magnús- dóttir, f. 23. maí 1952, eiginmaður hennar er Tryggvi Þór Jónsson, f. 13. desember 1948, og eru þau búsett í Ártúnum í Austur-Húna- vatnssýslu. Guðný átti 13 baraa- böm og 19 barnabarnaböm. títför Guðnýjar fór fram frá Laufáskirkju 4. febrúar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðarviðkvæm stund. Vinimirkveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Elsku amma. Nú hefur þú kvatt í hinsta sinn. Áttatíu og fimm ár eru langur tími og þú hefur lifað miklar breytingar og átt viðburðaríka ævi. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir okkur og því myndast nú stórt skarð. Margar góðar minningar sitja eft- ir. Það var alltaf notalegt að heim- sækja ykkur afa í litla rauða húsið ykkar á Syðri-Grund. Sérstaklega minnumst við kakósins og ristaða brauðsins sem bragðaðist betur hjá þér en nokkrum öðrum. í þessum heimsóknum fórum við líka saman í berjamó, spiluðum rommí og margt fleira. Þessar samverustundir eru ógleymanlegar. Þau voru heldur ekki ófá skiptin sem við sátum spennt við eldhúsgluggann heima og biðum eftir að þið afi kæmuð brun- andi á gula skodanum í hlaðið og allt- af með eitthvað handa okkur í far- teskinu. Síðar, eftir að við uxum úr grasi og vorum flutt að heiman, fylgdistu alltaf með okkur og studdir okkur í einu og öllu. Við áttum því alltaf vísan hlýhug frá þér þrátt fyrir að við værum komin hvort í sinn landshlutann og hittumst sjaldnar en áður. Þú varst alla tíð sjálfstæð og glæsileg kona sem komst heiðarlega fram og þorðir að segja skoðanir þín- ar hvort sem þær féllu í góðan jarð- veg eða ekki. Því mynduðust oft fjör- ugar umræður þegar heimsmálin voru rædd þar sem enginn lá á sínu. Þú lagðir mikið upp úr heilsusam- legu líferni, sem fólst í því að borða hollan mat og fara daglega í göngu- túra. Við vorum þér því samferða í mörgum göngutúmum. Við viljum þakka fyrir þann dýr- mæta tíma sem við fengum með þér og þú munt lifa áfram með okkur í þeim ótal minningum sem við eigum um þig. Jón Sindri, Guðný Bergþóra og Jónas. Ég kveikíá kertum mínum við krossins helga tré. í öllum sálmum sínum hinnsekibeygirkné. Ég villtist oft af vegi. Égvaktioftogbað. -Núhallarhelgumdegi á Hausaskejjastað. I gegnum móðúog mistur éjgmikilundursé. Egséþigkomakristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir dijúpa, ogdýrðúraugumskín. Á klettinn vil ég kijúpa ogkyssasporinþín. Égfellaðfótumþínum og faðma lífsins tré. Með innri augum mínum égundurmikilsé. Þú stýrirvorsins veldi ogvemdarhveijarós. Fráþínumástareldi fá allir heimar Ijós. (Davíð Stefánsson.) Hafðu þökk fyrir allt Kristjana. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, LILJA GUÐRÚN AXELSDÓTTIR, Furugerði 1, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 31. janúar. Útförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu. Bjarni Tryggvason, Viðar Þorbjörnsson, Svanhvít Sigurðardóttir, Svava Bjarnadóttir, Bjarney Bjarnadóttir, Gísii Agnarsson, Elsa Bjarnadóttir, Magnús Loftsson, Friðrik Bjarnason, Hafdís Theódórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær amma mín og tengdaamma, LEEDICE KISSANE, fyrrverandi prófessor og sendikennari í ameriskum bókmenntum á vegum Fulbright-stofnunarinnar, lést í Grinnell, lowa, sunnudaginn 30. janúar. Minningarathöfn fer fram í Grinnell laugardaginn 19. febrúar. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast bent á Samtök um byggingu tónlistarhúss, sími 553 9277. Michael J. Kissane og Ellen Mooney. + KJARTAN JÓNSSON fyrrv. lögregluþjónn frá Hrífunesi, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku- daginn 2. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍNBORG MARGRÉT BJARNADÓTTIR, Orrahólum 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 15. febrúar kl. 13.30. Örn Ingvarsson, Ester Eiríksdóttir, María Kristíne Ingvarsson, Birgir H. Traustason, Bjarni Ingvarsson, Hafdís Hallsdóttir, Lilja Ingvarsson, Einar Bj. Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGVELDUR ÞORSTEINSDÓTTIR, Hlaðhömrum II, áður Vallá, Kjalarnesi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 15. febrúar kl. 13.30. Alvilda Magnúsdóttir, Þórir Axelsson, Þorbjörg Þorvarðardóttir, Magnús Matthíasson, barnabörn og barnabarnabörn. ♦ + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og systur. ÁSU SIGRÍÐAR STEFÁNSDÓTTUR, Reykjavíkurvegi 35A, Hafnarfirði, Sérstakar þakkir til Gunnars Valtýssonar læknis og Systrafélags Víðistaðakirkju. Unnur Sveinsdóttir, Þórir Kjartansson, Ása Sigríður Þórisdóttir, Kjartan Þórisson, Edda Lilja Guðmundsdóttir, Kristmann Ágúst Stefánsson. Skilafrestur minningargreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðviku- dags-, fimmtudags-, fostudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingai’degi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til- tekna skilafrests.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.