Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 41 MINNINGAR ÖRVAR PÁLMI PÁLMASON + Örvar Pálmi Pálmason fædd- ist á Sauðárkróki 13. febrúar 1977. Hann lést á heimili sínu á Sauðárkróki 15. okt- óber 1999 og fór út- för hans fram frá Sauðárkrókskirkju 23. október. Helkalt og hart harmfregnin óvænta góðvini snart. Lifendur sorg hefur lostið lífsþráður brostið. Guðsneistinn einn geymdur í manninum ósn- ortinn hreinn. Trúin á takmarkið dulda tilganginn hulda. Lifandi ást alfóður lífsins sem neinum ei brást. Þreki mót þjáningu teflir þolgæðið eflir. Aidrei hné tár eigi til jarðar féll kvistur svo smár. Að eigi væri eining í stærra einhveiju hærra. Lífið er starf lífstrúin framsækna tekin í arf. Krefst þess að byrðin sé borin þótt blæði í sporin. Sköpum er skipt skyldu og starfi á æðra svið lyft. Unnt er þó engum að skiya örlaga vilja. Sorgin er sár syrgjandi ástvina hrynjandi tár. Andvörpin hrópa í hæðir hjörtunum blæðir. Hver veitir fró hver gefur sorgþjáðum friðsæld og ró. Huggar í harminum sefann hrífur burt efann. (F.G.) Kæri vinur. Pað er afmælisdagurinn þinn í dag. 23 ára hefðirðu orðið. Ljóðið hér á undan lýsir vel tilfinningum mínum frá því ég frétti andlát þitt 15. október í fyrra og fram á dag- inn í dag. Þótt ég geti ekki enn skilið til- ganginn þá reyni ég eins og ég get að sætta mig við að þér og öðru ungu fólki, sem kallað er burt svo skyndilega, sé ætlað eitthvað stærra hlutverk en hér í þessu jarðlífi sem við svo mörg notum ekki á réttan hátt á meðan við er- um ung. Á meðan við erum ung finnst okkur alltaf nægur tími til að hittast og gleðjast saman en svo þegar einhver er kallaður burt hugsa þeir sem eftir éru: Hvers vegna? Hefði ég eitthvað getað gert eða einhver annar? En það þýðir ekki að velta sér upp úr því, því svörin eru engin en kennir manni samt að það borgar sig að nýta tímann og rækta vin- áttu og samband við aðra því eng- inn veit hver verður næstur og þá er of seint að gera nokkuð. Þá get- ur maður bara setið eins og ég geri núna og reynt að ylja sér við gamlar og góðar minningar, reyna að vera glaður og rifja upp allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman, ferðirnar til afa þíns í Svaðastaði, leikina í Hlíðahverf- inu og seinna þegar við stækkuð- um, brasið með mótorhjólin og vélsleðann. Tímann sem ég var með þér og fjölskyldu þinni að leggja ljósleiðarann, það var skemmtilegur tími, og ekki síst af- mælisveisluna sem þú hélst á Mælifelli þegar þú varðst tvítugur. Alla brandarana sem þú sagðir og uppátækin þar sem þú varst oftast fremstur í flokki. Ég gæti haldið lengi áfram en mörgu held ég út af fyrir mig og geymi. Kæri vinur, ég vildi að þú værir ennþá hér en fyrst þú varðst að fara veit ég að hvergi líður þér betur en hjá pabba þínum sem þér þótti svo vænt um og leist upp til því ég trúi því að þið séuð saman og lítið niður til okkar annað slag- ið. Ég sakna ykkar. Þinn vinur, Víðir Snær. Birting a fmælis- og minn- ingar- greina MORGUNBLAÐIÐ tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í sí- mbréfi (569 1115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Um hvern látinn einstakl- ing birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksenti- metra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í texta- meðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII- skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. JÓN BJARNASON + Jón Bjarnason fæddist í Auðs- holti 15. október 1906. Hann lést á dvalarheimilinu Blesastöðum 7. febr- úar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Skálholtskirkju 12. febrúar. Elsku afi minn, ég get ekki lýst því með orðum hve mikið ég sakna þín en ég er samt svo glöð að þú skulir vera kominn á stað þar sem þú ert óhultur. Nú ert þú kominn til ömmu sem þú elskaðir svo heitt en misstir svo unga, aðeins 54 ára að aldri. Ég var svo heppin að hafa kynnst þér í þessi sautján ár og að hugsa sér að því sé lokið er svo sárt en í staðinn hugsa ég um þá hluti sem við_gerðum saman. Ég man þegar ég var lítil og fór til þín á daginn og fékk súkkulaði- mola eða rúsínur hjá þér, það var svo gaman að koma til þín með Auði vinkonu mína, ekki bara til að fá sælgæti heldur að tala við þig. Þú varst svo góður við hana Áuði og varst henni sem afi. En þegar ég hugsa til baka man ég svo vel eftir hvað ég sagði við Auði. „Auður, þú mátt fá minn afa að láni eða eiga hann með mér.“ Auður kom allt- af fram við þig sem sinn eigin afa og það var svo gott að leyfa fleirum að njóta þeirr- ar ánægju að elska þig. Ég var yngsta barn mömmu og pabba áður en það kom lítill strák- ur árið 97 sem var skírður í höfuðið á þér og bróður þínum Her- manni. Jón Hermann heitir hann og hlotnað- ist honum sá heiður að heita í höfuðið á þér og ég man hvað þér fannst gaman að honum og hve mikils virði það var þér að hann hét Jón eins og þú. Það var svo gott að láta þig hlýja sér um hendur og fætur þegar mað- ur kom að utan ískaldur og ég man eins og þetta hefði gerst í gær, þessar fínu hreyfingar og hlýju hendurnar þínar. Afi minn, nú ert þú farinn frá mér í annan heim sem þér líður vel í en það situr mikill söknuður í brjósti mér sem fer aldrei. Ég mun aldrei gleyma þér þótt tíminn líði. Ég kveð þig nú, afi, þótt sárt sé og vona að þér líði jafnvel þar eins og þér leið hér. Þín Harpa. t Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts JÓHANNS KR. JÓNSSONAR, Dalsgarði, Mosfellsdal. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á B-deild, Reyjalundi, fyrir góða umönnun. Fróði Jóhannsson, Steinunn Guðmundsdóttir, Gerður Jóhannsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir, Signý Jóhannsdóttir, Jón Baldvinsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Karl Friðrik Karisson, Jón Jóhannsson, Pascal Jóhannsson, Arndís Jóhannsdóttir, Guðmundur fsidórsson, Gísli Jóhannsson, Helena Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t FJÓLA JÓNSDÓTTIR, Hverahlíð 20, Hveragerði, lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, fimmtudaginn 27. janúar sl. Jarðarförin hefur farið fram. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkmnarheimilisins Áss fyrir góða umönnun og aðstoð. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Sigurðsson. t Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, KOLBEINS GUÐMUNDSSONAR frá Kílhrauni, Hrafnistu, Reykjavík. Kristleifur Kolbeinsson, Stefanía Erla Gunnarsdóttir, Kjartan Kolbeinsson, Helga Haraldsdóttir, Guðmundur Kolbeinsson, Kolbrún Jóhannsdóttir, Marteinn Guðlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. I | t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og út- farar elsku föður okkar, sonar, vinar, bróður og afa, EINARS ÞORSTEINSSONAR, Blikastöðum 1. Sérstakar þakkir viljum við færa séra Bjarna Karlssyni fyrir hans einstaka stuðning. Helga Hrund Einarsdóttir, Arna Ðögg Einarsdóttir, Hjalti Knútur Einarsson, Þuríður Annabell Tix, Yvonne Dorothea Tix, Arnheiður Einarsdóttir, Þorsteinn Hörður Björnsson, Ása Kristín Knútsdóttir, Vilborg Elín Kristjónsdóttir, Eyrún Þorsteinsdóttir, Heiður Þorsteinsdóttir, Hrönn Þorsteinsdóttir, Hörður Þorsteínsson, Arna Björk Þorsteinsdóttir, Andrea Ósk og Vilberg Sindri. \ 1 ) i I I I i + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu samúð og vináttu við fráfall JÓNS SNÆBJÖRNSSONAR, Veghúsum 31, áður bónda í Mýrartungu II, Reykhólasveit. okkur ■ ( f t Aðalheiður Hallgrímsdóttir, Snæbjöm Jónsson, Júlfana Sveinsdóttir, Inga Hrefna Jónsdóttir, Árni Garðar Svavarsson, Ólína Kristín Jónsdóttir, Unnur Helga Jónsdóttir, Guðrún Erla Baldursdóttir, Svavar Jén Árnason. \ f : \ f Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, og afa, EYJÓLFS HALLDÓRSSONAR, Granaskjóli 88, Reykjavík. Karen Guðmundsdóttir, Anna Björg Eyjólfsdóttir, Halldór Árnason, Auður G. Eyjólfsdóttir, Hlynur J. Arndal, Halldór G. Eyjólfsson, Solveig H. Sigurðardóttir, Bjarni Eyjólfsson, Þórey Hermannsdóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.