Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 B 7
■
Alnæmisplágan setur spurningamerki við framtíð heilu samfélaganna íAfríku. í Mósambík, þaðan sem myndin er, smitast 700 manns á dag.
Syabulala litla íörmum móður sinnar, Violet. Faðirinn, Wiseman, er veikur af alnæmi ogmóðirin ogSyabulala eru einnigmeð veiruna ísér. Um hin börnin, á
myndinni til vinstri, er ekkert vitað.
Lennox Cefa liggur á bedda í skúr sín-
um í Khayelitsha. Hann ermeð alnæmi
á lokastigi. Tvisvar ímánuði koma
hjúkrunarkonur Rauða krossins til að
baða hann en þrátt fyrir það þjáist hann
afslæmum legusárum.
Morgunblaðió/RAX
í blökkumannaliverfum Suður-Afríku
er óvenju mikið um fjölskyldur þar
sem eiginkonan er ein um að ala
upp börnin. Þetta er bæði afþví að
karlarnir vinna oft í námum fjarri
heimilinu en á síðustu árum gerist
það æ oftar að þegar ainæmisveiran
greinist í eiginkonunni þá lætur eig-
inmaðurinn sighverfa.
þær veikjast þá heimsækjum við
þær,“ segir Claribel Nomala, hjúkr-
unarfræðingur Rauða krossins. „Það
er ótrúlegt hvað öriítið betri næring
getur gert, jafnvel framlengt líf
þeirra þannig að þær geta verið
lengur með börnunum og þá falla
þær kanski ekki frá fyrr en börnin
eru komin á legg.
Konurnar héma styðja hver aðra,
og ef ein veikist þá heimsækja hinar
hana. Hér geta þær líka saumað föt
og þannig aflað sér einhverra tekna.
Við erum því miður bara með þrjá
karlmenn hér. Hinir hafa allir hlaup-
ist á brott. En það er mikilvægt að
fjölskyldan sé meðvituð um sjúk-
dóminn og hvernig eigi að sjá um al-
næmissjúkling þannig að við hvetj-
um konurnar til að þegja ekki um
þetta. En margar eru hræddar um
viðbrögðin og við því er ekkert að
gera.“
Faraldurinn er að breyta sam-
setningu heilu þjóðanna og binda
þær enn fastar í viðjar fátæktar.
Heimilum þar sem konan er ein um
uppeldi barnanna fjölgar. Þetta er
augljóst á hverfismiðstöð Rauða
krossins í Khayelitsha.
Prjóna vetrarpeysur
Maureen Housten er há og tignar-
leg ung kona sem starfar sem félags-
ráðgjafi hjá Rauða krossinum. Það
kemur í hennar hlut að ræða við
ungu konurnar sem leita til mið-
stöðvarinnai-. Við minnumst á að inni
sé ótrúlega glaðlegt andrúmsloft.
„Það er ekki alltaf svona,“ segir
Maureen. „Stundum er þetta ákaf-
lega erfitt og þá er mikið gi'átið og
mikil hryggð sem ríkir. Þær spyrja
sig; hvað verðm’ um mig og barnið
mitt? í flestum tilvikum hlaupast
Christina Kolaba er með alnæmi á lokastigi. Hjúkrunarfræðingar Rauða krossins hafa heimsótt konuna reglulega
ogþvegið henni með heitu vatni. Á meðan leika börnin hennar úti á götu og móðir hennar sinnir heimiiisverkunum.
Síðan myndirnar voru teknar hefur Christina verið færð á heimili fyrir dauðvona sjúklinga.